Fréttablaðið - 17.02.2008, Page 16

Fréttablaðið - 17.02.2008, Page 16
16 17. febrúar 2008 SUNNUDAGUR „Ég hét áður Haraldur Óli Haraldsson en árið 2002 lét ég breyta nafninu í Óli Gneisti Sóleyjarson. Ástæða nafnbreyt- ingarinnar er af tvennum toga – annars vegar dó mamma mín þegar ég var ungur og hefur mig alltaf langað til að kenna mig við hana. Svo hef ég aldrei verið kallaður annað en Óli og mér hafði alltaf þótt það óþægilegt, í skóla til dæmis þegar lesið var upp og slíkt, að ansa í raun aldrei því nafni sem ég taldi mig fyrst og fremst bera. Til að losna við þann rugling endanlega lét ég taka Haralds-nafnið út. Mér fannst ég hins vegar þurfa að aðgreina mig aðeins frá öllum þeim Ólum sem til eru og þar kemur nafnið Gneisti inn. Ég hafði rek- ist á það nafn í Gísla sögu Súrssonar, en þar er einn sem heitir Þorvaldur Gneisti og svo í Njálu er að finna mann sem er Gneistason. Nafnið vakti aðdáun mína og ákvað ég að bæta því við. Ég er mjög sáttur við breytinguna og enn sem komið er er enginn annar sem heitir Gneisti á landinu, sem veldur því að maður týnist ekki svo auðveldlega í fjöldanum.“ A ð minnsta kosti eru lögin þannig í dag að ekki er hægt að kaupa sér nafn nema einu sinni á ævinni. Þjóðskrá segir þó að sjái fólk mikið eftir mannanafnabreyting- unni og vilji breyta aftur í gamla nafnið síðar meir megi prófa að sækja um með góðum rökstuðn- ingi og er þá hvert tilvik metið fyrir sig. Samkvæmt Þjóðskrá er heimilt að breyta eiginnafni, annað hvort að taka sér nafn eða nöfn til við- bótar því nafni sem einstaklingur ber fyrir, eða fella niður nafn eða nöfn sem hann ber. Að fella niður nafn án þess að nýtt sé tekið upp kostar ekki en kostnaðurinn við að bæta inn nýju nafni er sem fyrr segir 4.400 krónur og Þjóð- skrá skráir og fylgist með öllum breytingum sem gerðar eru á nöfnum fólks. Vilji fólk breyta kenninafni sínu, kenna sig til móður eða bæta við ættarnafni sem verið hefur í fjölskyldunni, kostar slíkt ekkert og fólk af erlendum uppruna, sem varð að taka sér íslenskt nafn á sínum tíma til að fá ríkisfang hér, getur í dag fellt niður þau íslensku nöfn sem því var gert að taka sér, sér að kostnaðarlausu. Árið 2005 skilaði eftirlitsnefnd með mannanafnalögum skýrslu til dómsmálaráðherra þar sem meðal annars má sjá að síðustu rúm 10 árin hafa um 100 manns látið breyta eiginnafni sínu ár hvert. Að meðaltali eru það um 57 manns sem hafa tekið upp nýtt eiginnafn til viðbótar öðru sem fyrir er ár hvert frá árinu 1997 og 35 til viðbótar hafa svo tekið upp nýtt eiginnafn og látið fella annað niður. Mun færri hafa hins vegar bara látið fella niður nafn án þess að bæta nýju við, eða um 5 á ári. Að kaupa sér nafn Ríflega hundrað manns láta breyta eiginnafni sínu ár hvert og algengast er að nýju nafni sé bætt við annað sem fyrir er. Júlía Margrét Alexandersdóttir komst að því að langi hana til að breyta nafni sínu og heita Rakel Sif eins og hana dreymdi um í nokkur ár, kostar það hana 4.400 krónur og eins gott að vera alveg viss því ekki er í boði að breyta aftur. HVER VEIT HVAÐ VERÐUR Þótt foreldrarnir ráði nafngift barna sinna oftast og flest þeirra sitji sá sem síðar meir ákveða að hafa áhrif á nafngift sína sjálfir og breyta nafni sínu. „Ég var skírður Ágúst Þórgnýr Thoroddsen þannig að sú breyting sem átti sér stað var sú að ég lét fella niður nafnið Ágúst. Ég var alltaf kallaður Gústi og er reyndar enn kallaður Gústi af fjölskyldu og nánustu vinum þótt ég kynni mig sjálfur sem Þórgný, en það hef ég gert frá því að ég var tíu ára gamall. Þegar ég var fjórtán ára hvæsti hún amma mín ein- hvern tímann á mig af hverju ég færi ekki bara og skipti um nafn, orðin langþreytt á að heyra mig kynna sjálfan mig sem Þórgný, þannig að ég tók hana á orðinu og hljóp niður á Hagstofu og lét breyta þessu. Ég man nú ekki alveg af hverju ég tók upp á því að vilja láta kalla mig Þórgný fremur en Ágúst en ætli það hafi ekki verið að mér hafi fundist nafnið meira spes og fólk dáðist jafnan að því. Ég var hins vegar nefndur Ágúst í höfuðið á góðum vini hans pabba og þegar ég var sextán ára sagði ég honum að ég hefði breytt um nafn og skiljanlega var hann sár yfir því, því hann kom suður og bað eiginlega um nafnið.“ Eiginnafnsbreytingar eftir aldri á árunum 1997 til 2005 Breyting gerð Á 1. ári Eins árs 2-4 ára 5-14 ára 15-24 ára 25-44 ára 45-64 ára 65 ára og eldri Alls Nafnbreyting við ættleiðingu 52 89 22 7 3 1 0 0 174 Eiginnafn tekið upp til viðbótar öðru eiginnafni 24 25 38 115 98 98 51 7 456 Eiginnafn fellt niður 4 2 4 8 6 13 6 1 44 Eiginnafn tekið upp og annað fellt niður 12 14 15 36 36 77 32 5 227 Alls 92 130 79 166 143 189 89 13 901 HEIMILD: ÞJÓÐSKRÁ ALGENGAST AÐ NÝJU EIGINNAFNI SÉ BÆTT VIÐ EINI GNEISTINN Á LANDINU AMMA RAK MIG Í ÞETTA „Ég var skírður Halldór Vésteinn Sveinsson og breytti nafninu í Halldór Tinni Sveinsson fyrir þremur árum. Ástæðan er sú að þegar ég var lítill byrjaði bróðir minn að kalla mig eftir eftirlætis teiknimyndapersónunni sinni – Tinna sjálfum. Nafnið festist við mig og varð ég vitaskuld sjálfur mikill aðdáandi Tinna og á í dag mikið og flott safn af Tinnadóti. Ég starfa sem blaðamaður og það að ég kallaði sjálfan mig Tinna en var í þjóðskrá skráður sem Hall- dór Vésteinn var farið að valda miklum misskilningi. Ég sá mér því leik á borði og ákvað einn dag- inn að láta fella niður Vésteinn og skrá Tinna inn í staðinn. Ég vildi ekki gefa Halldórs-nafnið upp á bátinn þar sem börnin mín eru NÝTT NAFN TIL HEIÐURS TEIKNBÆTTI VIÐ NAFNI SEM ER EKKI Í NOTKUN Í DAG „Ég er skírð Björk Bjarkadótt- ir en þegar ég var tvítug lét ég bæta nafninu Nína framan við Björk og er því í dag skráð sem Nína Björk Bjarkadóttir í þjóð- skrá. Þegar ég var unglingur bjó ég lengi í Svíþjóð og þar kvikn- aði hugmyndin fyrst, og seinna, þegar ég flutti til Frakklands eftir stúdentspróf, var ég farin að finna fyrir því að það var erf- itt að heita Björk á franskri grundu. Vinkonur mínar byrjuðu því að kalla mig Nínu í gamni og svo festist það bara við mig. Á sínum tíma fannst mér því mjög mikilvægt að láta breyta þessu í þjóðskrá en í dag er ég bara köll- uð Nína af frönskum vinum mínum og þar sem ég bý nú í Noregi kalla ég mig Björk. Þannig hefur Nínu-nafnið dottið upp fyrir en ég hef ekkert farið út í að láta breyta því aftur.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.