Fréttablaðið - 17.02.2008, Síða 97
SUNNUDAGUR 17. febrúar 2008 25
Nánar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
119.900 kr.
Verð á mann í tvíbýliBenidorm
Real de Faula
15.–22. mars
Golf meðExpress ferðum
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, frítt í flug fyrir golfsettið,
gisting á Hotel Sheraton ásamt morgunverði, rútuferðir til og frá flugvelli,
íslensk fararstjórn og 5 golfhringir.
92.800 kr.
Verð á mann í tvíbýliLondon
Hanbury Manor
19.–24. mars
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, frítt í flug fyrir golfsettið,
gisting á hótelinu ásamt morgunverði og 5 golfhringir.
Iceland Express-deild kvk:
Valur-Grindavík 69-57 (34-33)
Stig Vals: Molly Peterman 33 (8 frák., 9 stoðs.),
Signý Hermannsdóttir 12 (13 frák., 4 varin),
Hafdís Helgadóttir 11, Þórunn Bjarnadóttir 6 (5
stoðs.), Guðrún S. Baldursdóttir 4, Tinna Björk
Sigmundsdóttir 3.
Stig Grindavíkur: Tiffany Roberson 18 (15 frák.),
Petrúnella Skúladóttir 11, Joanna Skiba 9, Jovana
Lilja Stefánsdóttir 7, Berglind Anna Magnúsdóttir
5, Helga Hallgrímsdóttir 4, Ólöf Helga Pálsdóttir
2, Íris Sverrisdóttir 1.
Fjölnir-Haukar 59-91 (37-46)
Stig Fjölnis: Slavica Dimovska 28 (9 frák.), Efem
ia Sigurbjörnsdóttir 13 (8 frák.), Gréta María Grét
arsdóttir 6 (7 frák., 5 stoðs.), Birna Eiríksdóttir 6,
Hrafnhildur Margrét Jóhannesdóttir 2, Eva María
Emilsdóttir 2, Erna María Sveinsdóttir 2.
Stig Hauka: Kiera Hardy 22 (12 frák., 8 stoðs.),
Kristrún Sigurjónsdóttir 17, Unnur Tara Jónsdóttir
16 (8 frák., 6 stoðs.), Bára Fanney Hálfdanardóttir
14, Telma Björk Fjalarsdóttir 7 (15 frák.), Ragna
Margrét Brynjarsdóttir 6, Sara Pálmadóttir 3, Aldís
Pálsdóttir 2, Kristín Fjóla Reynisdóttir 2, María
Lind Sigurðardóttir 2.
Áskorendakeppni Evrópu:
Konur:
RK Lasta-Valur 26-31 (12-16)
Mörk Vals (skot): Kristín Guðmundsdóttir 7 (10),
Kristín Collins 5 (6), Ágústa Edda Björnsdóttir
5/3 (7/4), Eva Barna 4 (5), Íris Ásta Péturs
dóttir 2 (2), Rebekka Skúladóttir 2 (3), Hafrún
Kristjánsdóttir 2 (6/2), Dagný Skúladóttir 1 (2),
Nora Valovics 1 (2), Berglind Íris Hansdóttir 1 (2),
Hildigunnur Einarsdóttir 1 (3), Katrín Andrésdóttir
(1).
Varin skot: Berglind Íris Hansdóttir 12 (32/2
37,5%), Jolanta Slapikiene 6(12/1 50%)
Hraðaupphlaup: 11 (Kristín G. 3, Kristín C.,
Rebekka, Ágústa, Nora, Íris, Hildigunnur, Dagný,
Hafrún)
Fiskuð víti: 7 (Hafrún 2, Eva, Íris, Anna, Katrín,
Kristín C.)
Utan vallar: 4 mínútur
Karlar:
Fram-CSU Poli Timisoara 24-26
Mörk Fram: Hjörtur Hinriksson 5, Halldór Jóhann
Sigfússon 4, Stefán Baldvin Stefánsson 4, Andri
Berg Haraldsson 3, Jóhann Gunnar Einarsson 2,
Jón Björgvin Pétursson 2, Haraldur Þorvarðarson
1, Einar Ingi Hrafnsson 1, Rúnar Kárason 1, Björn
Guðmundsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 6, Magnús
Gunnar Erlendsson 5.
ÚRSLITIN Í GÆR
KÖRFUBOLTI Valskonur eiga enn von
um sæti í úrslitakeppni kvenna
eftir 12 stiga sigur á Grindavík,
69-57, í Vodafone-höllinni í gær.
Það leit þó ekki vel út í byrjun
því Grindavík var komið níu stig-
um yfir, 15-24, eftir fyrsta leik-
hluta. Valskonur tóku þá við sér
og tóku öll völd á vellinum
undir frábærri stjórn
Molly Peterman sem átti
stórleik.
Molly endaði leik-
inn með 33 stig, 9
stoðsendingar og
8 fráköst en 9 stig
Hafdísar Helga-
dóttur í þriðja
leikhluta áttu
líka mikinn þátt
í því að Valsliðið
náði frumkvæð-
inu í leiknum.
Signý Hermannsdóttir var sterk í
fyrri hálfleik þegar hún skoraði
öll 12 stigin sín og Þórunn Bjarna-
dóttir og Tinna Björk Sigmunds-
dóttir voru traustar að vanda.
Hjá Grindavík var meðal-
mennskan allsráðandi en það
var helst Petrúnella Skúladótt-
ir sem stóð upp úr í leik liðs-
ins. Joanna Skiba, sem var 38
stig í síðasta leik.
Haukar hafa enn
átta stiga forskot á
Val í baráttunni
um 4. og síðasta
sætið inn í úrslita-
keppnina eftir 32
stiga stórsigur á
Fjölni, 91-59. - óój
Sætin í úrslitakeppni Iceland Express-deildar kvenna:
Valskonur eiga von
FRÁBÆR Molly Peter-
man skoraði 33 stig fyrir
Val í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HANDBOLTI Valur vann góðan sigur,
31-26, á Lasta Radnicki frá Serbíu
í sextán liða úrslitum Áskorenda-
keppni Evrópu.
Valur valtaði yfir Napredak,
sem einnig er frá Serbíu, í 32 liða
úrslitum en Lasta Radnicki er
mun sterkara lið. Það tók Val 17
mínútur að ná yfirhöndinni í
leiknum og þegar flautað var til
hálfleiks munaði fjórum mörkum
á liðunum, 16-12.
Valur jók forskotið í sex mörk í
upphafi síðari hálfleiks, 14-20. Þá
tók við afleitur tíu mínútna kafli
þar sem serbneska liðið skoraði
sex mörk gegn engu og leikurinn
skyndilega orðinn jafn.
Valur svaraði því með fimm
mörkum í röð og þegar fjórar
mínútur voru eftir var munurinn
orðinn átta mörk, 31-23, þrátt
fyrir að sóknarleikur Vals gengi
illa en sjö síðustu mörk Vals
komu úr hraðaupphlaupum.
Serbarnir skoruðu þrjú síðustu
mörk leiksins og á liðið veika von
um að slá Val út þegar liðin mæt-
ast á nýjan leik í dag.
Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari
Vals, er ekki sáttur við forskotið
sem liðið fer með í síðari leikinn í
dag.
„Ég er ósáttur að vera ekki með
meira forskot. Við vorum klaufar
í lokin. Á móti kemur þetta er
hörkulið að mínu mati með marga
flinka leikmenn, og þær eru
sterkar á fótunum. Þetta er langt
frá því að vera búið. Mér finnst
við vera sterkari en þær og eiga
mikið inni varnar lega. Ég er
sannfærður um að við klárum
þetta.“ - gmi
Valur vann öruggan fimm marka sigur á Lasta Radnicki sem hefði hæglega getað orðið talsvert stærri:
Valsstelpur á góðri leið í átta liða úrslit
ERFITT Valsstúlkan Eva Barna brýst hér af harðfylgi í gegnum vörn Lasta Radnicki í
leik liðanna í Vodafone höllinni í gær. F´RÉTTABLAÐIÐ/VILHELM