Fréttablaðið - 05.03.2008, Side 9
H A U S
MARKAÐURINN 9MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008
Ú T T E K T
MILLJARÐATUGIR GEYMDIR Í SKATTASKJÓLUM
Verðmæti hlutabréfa hér á landi hefur hrun-
ið á undanförnum mánuðum. Markaðsverð-
mæti allra skráðra félaga er nú um 1.895
milljarðar króna, Samkvæmt því má ætla að
virði þeirrar hlutabréfaeignar sem geymd er
í fyrirtækjum með heimilisfesti í skattaskjól-
um nemi ríflega 77 milljörðum króna. Hátt í
fjögur hundruð milljarða króna hlutabréfa-
eign er skráð í Hollandi og Lúxemborg.
Fram kemur í grein Indriða að í Lúxem-
borg sæti eignarhaldsfélög útlendinga lítilli
eða engri skattlagningu á tekjur sem koma
erlendis frá. Þaðan fáist ennfremur takmark-
aðar upplýsingar um félögin og eigendur
þeirra.
Hvað Holland varðar sé skattalöggjöf þar
áþekk því sem gerist í flestum ríkjum Evr-
ópu. Tvennt kunni þó að skýra íslenskar fjár-
festingar þar sérstaklega. „Fyrrum nýlend-
ur Hollands, sem nú eru svokölluð verndar-
svæði, og teljast sum hver til skattaparadísa,
njóta sérstöðu í Hollandi í skattalegu tilliti
sem gerir það að verkum að auðvelt er að
færa óskattlagt fé á milli.“
Hitt sem kunni að hafa áhrif sé að enginn
afdráttarskattur sé lagður á arð sem greiddur
sé milli Íslands og Hollands, samkvæmt tví-
sköttunarsamningi landanna. „Má því gera
ráð fyrir að hagnaður sem þangað er fluttur
eigi sér greiða leið annað,“ segir Indriði í
greininni.
HVAÐA FYRIRTÆKI ERU ÞETTA?
Indriði H. Þorláksson sundurgreinir ekki
eignarhald í einstökum fyrirtækjum eða hlut-
deild einstaklinga. Hins vegar kemur fram
í grein hans að í hópi þeirra fyrirtækja,
þar sem erlenda eignaraðildin er stærst séu
einkum fjármálafyrirtæki, bankar og stór
eignarhaldsfélög. Þessi félög séu Straumur-
Burðarás, Bakkavör Group, Landsbanki Ís-
lands, Össur, Exista, Eimskipafélagið, Kaup-
þing, Alfesca, Glitnir og Flaga Group.
Í þessum fyrirtækjum er, samkvæmt grein
Indriða, yfir helmingur eignarhaldsins er-
lendur. Sé eignarhaldið sundurgreint eftir
svæðum er tæplega fimmtungur í eigu aðila
í Hollandi, tæplega fimmtungur í Lúxem-
borg og 6,2 prósent eru í eigu aðila sem hafa
heimilisfesti á aflandssvæðum, eða í skatta-
paradísum.
ARÐURINN ÚR LANDI?
Stærstu fjármálafyrirtæki landsins greiddu
tæpan fjórðung af hagnaði sínum í hitteð-
fyrra út sem arð í fyrra. Alls fengu þúsundir
hluthafa samanlagt um 71 einn milljarð króna
í sinn hlut. Samkvæmt lögum um fjármagns-
tekjuskatt hefði tíund af þessu, eða um sjö
milljarðar króna, átt að renna í ríkiskassann.
Indriði bendir hins vegar á í grein sinni að
í tilviki þeirra félaga sem áður voru nefnd
eigi erlendir aðilar að jafnaði yfir helm-
ing hlutafjár. Hin erlenda eignaraðild sé að
fjórum fimmtu hlutum frá félögum í Hol-
landi, Lúxemborg eða aflandssvæðum. „Ein-
ungis um fjórðungur eignarhalds í þeim er
hjá félögum þar sem líkur eru á að þau eða
eigendur þeirra greiði skatt hér á landi af út-
hlutuðum arði eða söluhagnaði. Aðrir eigend-
ur eru annað hvort lífeyrissjóðir, sem eru
skattfrjálsir, eða erlendir aðilar sem litlar
líkur eru á að greiði hér skatt sem nokkru
nemur,“ segir Indriði.
HVAÐ ERU SKATTAPARADÍSIR?
Indriði segir að aflandssvæði, eða skatta-
paradísir, séu lönd eða landsvæði þar sem
erlendir aðilar fái skattaskjól. Með öðrum
orðum séu ekki lagðir skattar á erlenda aðila
og erlendum yfirvöldum séu veittar takmark-
aðar upplýsingar um félög sem þar starfa.
Yfirleitt sé félagalöggjöf þar í molum, engar
kröfur séu gerðar um reikningshald og fleira.
Þá sé skráning félags oftar en ekki mála-
myndagjörningur, enda séu þúsundir félaga
sem skráð séu á þessum svæðum einungis
skúffufyrirtæki.
Skattaparadísir sem tengist skráðum félög-
um í Kauphöllinni séu einkum Bresku Jóm-
frúaeyjar og eyjar á Ermarsundi.
Aðrar skattaparadísir, samkvæmt lista
OECD, eru til að mynda Andorra, Belís,
Mónakó, Hollensku Antillur og Maldíveyjar.
EKKI ÓLÖGLEGT AÐ SKRÁ EIGN ERLENDIS
Þótt eignin sé geymd í erlendum félögum er
ekki þar með sagt að menn svíki undan skatti
eða að skráningin sé í sjálfu sér ólögleg. Til
að mynda verður ekkert fullyrt um slíkt þótt
félög séu skráð í Lúxemborg, á Ermar-
sundi eða á Kýpur.
Skúli Eggert Þórðarson ríkis-
skattstjóri segir að skattyfir-
völd hérlendis fylgist með
þessum erlendu skráning-
um „en það er í sjálfu sér
ekkert ólöglegt við þær“.
Bryndís Kristjánsdóttir
skattrannsóknarstjóri
segir að fyrir fáum árum
hafi skattsvikamál með
erlendum tengingum
verið nær óþekkt. Hins
vegar hafi slíkum málum
fjölgað mikið undanfarin
ár.
Ætla má að skattsvik í
gegnum erlend félög hafi
numið um fimmtán milljörðum króna undan-
farin þrjú ár. Fram kemur í skýrslu starfs-
hóps sem mat umfang skattsvika hér á landi
árið 2003 að ætla megi að slík skattsvik nemi
um einu til einu og hálfu prósenti af tekjum
ríkisins.
Rétt er að taka fram að hér er ekkert full-
yrt um að einstakir aðilar, menn eða félög,
stundi skattsvik með því
að skrá félag eða félög er-
lendis.
ÞÖRF Á LAGABREYTINGUM?
Indriði fullyrðir í grein
sinni að erlent eignarhald
á íslenskum félögum, raun-
verulegt eða dulið íslenskt
eignarhald, hafi mikil áhrif
á tekjur ríkissjóðs. Hluti
af tekjum og hagnaði falli
til aðila eða félaga erlend-
is sem ýmist greiði skatta
þar eða alls ekki, séu fé-
lögin skráð „í vafasömu
skattaumhverfi“.
Indriði segir óviðun-
andi út frá jafnræðis-
sjónarmiðum og skaðlegt
öllu skattasiðferði „að þeir
sem til þess hafa vilja og
aðstöðu geti sniðgengið ís-
lenska hagsmuni svo frek-
lega sem þeim sýnist“.
Hann segir að skattalög
hér hafi ekki þróast með
tilliti til aðstæðna. Mestu
skipti skortur á svonefndri
CFC-löggjöf. Slík lög
skylda innlenda aðila til að
upplýsa um eignir og tekj-
ur erlendra félaga í þeirra
umráðum og skatt-
leggur tekjurnar
ef þær sæta ekki
almennri skatt-
lagningu í upp-
runalandinu.
250
200
150
100
50
0
1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006
Aflandssvæði
Holland
Belgía/Lúxemborg
HOLLAND
BELGÍA
LÚXEMBORG
ERMARSUNDSEYJAR
EYJAN
MÖN
211.767 MILLJÓNIR
178.016 MILLJÓNIR
61.661 MILLJÓNIR
„Ég vil að svissneski fjármálaheimurinn
verði heiðarlegri og siðlegri,“ segir Rudolf
Elmer, svissneskur fyrrverandi banka-
maður, í samtali við Der Spiegel.
Hann hefur birt leynilegar upplýs-
ingar um ýmsar færslur Julius Bär-
einkabankans í Sviss. Málið teng-
ist ýmsum vafasömum færslum
frá bankanum til banka á Cayman-
eyjum. Bankinn mun bæði hafa fært
fé fyrir viðskiptavini sína og sjálfan sig
til að komast hjá skattgreiðslum í Sviss.
Málið þykir minna á skattahneykslið í
Þýskalandi, þar sem yfirvöld keyptu upplýs-
ingar um á annað þúsund leynilega reikninga í
smáríkinu Liechtenstein. Vel á fimmta þúsund
manna af ýmsum þjóðernum tengjast málinu.
Yfirvöld hér á landi, annars staðar á Norður-
löndum, í Hollandi, Ítalíu og Ástralíu hafa
óskað eftir gögnum um málið frá Þýskalandi.
Þá hafa Bretar og Bandaríkjamenn einnig
samið við uppljóstrarann sem seldi Þjóðverj-
um upplýsingar um bankann í Liechtenstein.
Frá Sviss til Cayman
SÓLIN SEST Í SKATTAPARADÍSINNI Cayman-eyjar eru
samkvæmt Der Spiegel fimmta stærsta fjármálamiðstöð
heimsins og alræmt skattaskjól.
skattaparadísum
íslenskum félögum er í rauninni innlendur. Verðmæti hlutabréfa
ar Karl Helgason rýndi í rannsókn Indriða og komst einnig að því
Afdráttarskattur
Afdráttarskattur getur verið dregin af arð-
greiðslum, vöxtum, þóknunum og öðrum
kostnaði, sérstaklega ef greiðslur fara
fram til erlendra aðila. Þegar erlendir aðil-
ar greiða þannig tekjur enn áfram til þriðja
aðila sem á uppruna sinn að rekja til þess
lands sem greiðslan kom upphaflega frá,
geta að skattyfirvöld dregið aukalegan af-
dráttarskatt af slíkri greiðslu þrátt fyrir að
þær séu ekki inntar af hendi af aðila í við-
komandi landi.* * Tax.is
Mikið af íslensku fé fer fram og aftur héðan og til eyja
í Ermarsundi, Hollands og Lúxemborgar. Ætla má að
mikið af þessu sé fólgið í því að félög í eigu íslenskra
einstaklinga og félaga séu geymd í eignarhaldsfélögum
þar ytra. Ermarsundseyjar eru taldar til skattaparadísa.
Mikil bankaleynd ríkir í Lúxemborg, þar sem erlendir
aðilar þurfa ekki að greiða skatta af tekjum sem koma
að utan. Í Hollandi er enn fremur stutt í skattaparadísir.
Stórkostlegur vöxtur hefur orðið í þessum fjármagns-
hreyfingum frá miðju ári 2004.
H U N D R U Ð M I L L J A R Ð A T I L B E N E L Ú X - L A N D A O G E R M A R S U N D S E Y J A