Fréttablaðið - 02.04.2008, Page 1
Viðvarandi verðbólga | Verð-
bólga hefur eingöngu verið undir
2,5 prósenta verðbólgumarkmiði
Seðlabankans í 18 mánuði af 84
við núverandi peningamálastefnu
Seðlabankans. Þetta benti grein-
ingardeild Glitnis á í síðustu viku
á sjö ára afmæli flotgengis og
verðbólgumarkmiðs.
Málað svörtum litum | Seðla-
banki Íslands gerði í vikulokin
síðustu hóflega athugasemd við
framsetningu Glitnis á framgangi
peningamálastefnunnar. Verð-
bólga mun nefnilega hafa verið
innan vikmarka, milli eins og fjög-
urra prósenta í 45 mánuði í árin
sjö, rétt rúman helming tímans.
Atlaga að Íslandi | Davíð Odds-
son Seðlabankastjóri sagði í ræðu
sinni á ársfundi bankans að til álita
kæmi að gera alþjóðlega rann-
sókn á því sem hann kallaði til-
ræði við heilbrigð fjármálakerfi.
Davíð sagði að nú stæði yfir atlaga
óprúttinna aðila gegn íslenska rík-
inu og innlendum bönkum.
Hamé blessað | Tékkneska sam-
keppniseftirlitið lagði í síðustu
viku blessun sína yfir kaup ís-
lenska fjárfestingarfélagsins
Nordic Partners á tékkneska mat-
vælafyrirtækinu Hamé. Gengið
var frá kaupunum í byrjun ársins.
Liðkað til á markaði | Sérstök
útgáfa Seðlabanka Íslands á ríkis-
bréfum upp á 7,15 milljarða króna
í liðinni viku var talin geta liðkað
lítillega til á vaxtaskiptamarkaði.
Einnig er horft til áhrifa af útgáfu
sérstakra „innstæðubréfa“ upp á
allt að 50 milljarða króna í þess-
ari viku.
142
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 9. janúar 2008 – 1. tölublað – 4. árgangur
12
F R É T T I R V I K U N N A R
Tíma - og verkskráning
Flotastýring og eftirlit
www.trackwell.com
bættu skorið...!!!
nánar www.lausnir.is
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Milestone ætlar að skrá fjármálaþjónustu sína á
markað í Svíþjóð innan tveggja ára. Í opnuviðtali við
Markaðinn segir Karl Wernersson, stjórnarformaður
Milestone, að í vali á kauphöll hafi verið horft til
dýptar markaðarins, auk starfssvæðis og fyrirætl-
ana um framtíðarvöxt fjármálaþjónustu innan sam-
stæðu félagsins.
Milestone færir allar íslenskar eigur félagsins
undir sænska fjármálafyrirtækið Invik, sem þar með
verður eignarhaldsfélag fyrir alla starfsemi sam-
stæðunnar. Í framhaldinu verður Invik skráð í OMX
Nordic Exchange kauphöllina í Stokkhólmi. Tíma-
setning skráningarinnar hefur hins vegar ekki verið
fastnegld. „Við metum það í samstarfi við okkar ráð-
gjafa en stefnan hefur mjög ákveðið verið tekin á
skráningu innan tveggja ára,“ segir Karl.
Framtíðarvöxt samstæðunnar segir Karl vera utan
landsteinanna, auk þess sem meirihluti fjárfestinga
hennar sé erlendur. Og þótt Sjóvá sé vissulega íslenskt
fyrirtæki og starfi hér á landi sé töluvert af fjárfest-
ingum félagsins í erlendum verkefnum. Auk þess að
horfa til framtíðarvaxtar og starfssvæðis segir Karl
smæð markaðarins hér einnig spila inn í ákvörðunina
um að skrá Invik fremur í Svíþjóð. Karl snertir einn-
ig á málum tengdum lausafjárkreppunni á fjármála-
mörkuðum, en fjárfestingar bankinn Askar Capital,
sem er að stærstum hluta í eigu Mile stone, er meðal
fjármálafyrirtækja sem brenndu sig á fjárfesting-
um í skuldabréfavöndlum tengdum undirmálslánum
á bandarískum fasteignamarkaði. „Þetta voru hins
vegar afurðir sem virtustu matsfyrirtæki heims voru
búin að fara í gegnum og segja að væru jafn öruggar
eignir og til dæmis skuldabréf bandaríska ríkisins.
Spurningarnar sem vakna um mats fyrirtækin eru því
kannski áleitnari en um þá sem tóku ákvarðanir um
þessar fjárfestingar,“ segir hann.
Þá segir Karl að færa verði Seðlabankanum vopn
sem bíti í baráttu við verðbólgu og stingur upp á af-
námi verðtryggðra lána og upptöku fljótandi vaxta
á fasteignalán sem fylgi stýrivöxtum. Um leið telur
hann að afnema eigi verndartolla og stuðla með því
að lækkun á matarverðs og annarri verðhjöðnun.
„Við höfum sjálf yfir að ráða þeim meðölum sem þarf
til að lækka vöruverð og slá á þenslu og þurfum ekki
Evrópusambandið til,“ segir hann. Sjá síðu 8-9
Milestone ætlar á
markað í Svíþjóð
Skrá á Invik, dótturfélag Milestone, í OMX-kauphöllina í
Stokkhólmi innan tveggja ára. Lyf og heilsa verða seld.
„Það er verið að kanna leiðir til
að koma með erlent fjármagn
inn í landið,“ segir Sturla Páls-
son, yfirmaður alþjóðasviðs Seðla-
bankans.
Hann segir að vinna af þessu
tagi verði að fá að hafa sinn gang
áður en meira verði gefið upp um
stöðu mála. Hann vill ekkert um
það segja hvort leitað sé gjald-
eyrisskiptasamninga, lánalína eða
fjármögnunar af öðru tagi.
Heimildir Markaðarins herma
að rætt sé við seðlabanka Evrópu
og aðra seðlabanka; öll mál séu í
athugun í bankanum. Sturla vill
ekkert segja um hvort leitað sé
til evrópska bankans, breska eða
bandaríska.
„Tíminn er dýrmætur,“ segir
Sturla, spurður hvenær niður-
stöðu sé að vænta. Hann segist
enn fremur ekkert geta sagt um
hvaða kjör séu í boði. „Markaðir
hafa verið erfiðir en ég get ekki
útilokað að við fáum sæmileg
kjör.“
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra sagði á ársfundi Seðlabank-
ans að bankinn kannaði hvort
hann gæti unnið með seðlabönk-
um í þeim ríkjum þar sem íslensku
bankarnir eru umsvifamiklir. Þeir
starfa, auk Norðurlandanna, í
Bretlandi og á evrusvæðinu.
- ikh / Sjá síðu 2 og 6
Rætt við evrópska seðlabankann
Seðlabankinn ræðir við erlenda seðlabanka. Markaðsaðstæður þykja erfiðar.
Markaðsvirði Byrs sparisjóðs
nemur nú tæpum 65 milljörðum
króna miðað við gengi stofnbréfa.
Eigið fé sjóðsins eftir sameining-
una við Sparisjóð Norðlendinga
nemur 57,5 milljörðum króna.
Heildarstofnfé Byrs nemur
30,2 milljörðum króna. Síðustu
viðskipti voru á genginu 2,15.
Aðalfundur Byrs verður hald-
inn næsta miðvikudag, en þar
er á dagskrá tillaga um 44 pró-
senta arðgreiðslu og úttekt á hluta-
félagavæðingu hans.
Verið er að ljúka verðmati og
skiptalýsingu vegna hlutafélaga-
væðingar Byrs, en samkvæmt
heimildum Markaðarins er ólík-
legt að því verði lokið fyrir fund-
inn. Þá hefur ekki verið tekin
ákvörðun um tímasetningu skrán-
ingar á markað þótt hennar verði
varla langt að bíða eftir að breytt
hefur verið um rekstrarform. - óká
Markaðsvirðið
rétt yfir eigin fé
Í FORSVARI FYRIR BYR Jón Þorsteinn
Jónsson stjórnarformaður og Ragnar Z.
Guðjónsson, annar tveggja sparisjóðsstjóra
Byrs sparisjóðs. MARKAÐURINN/PJETUR
Konur og fjármagn
Auður kvenna vex hratt
Dagur í lífi
Athafnakona með
öndina í hálsinum
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
Lánshæfismat
Neikvæðar horfur
ríkis og banka