Tíminn - 15.11.1981, Side 16

Tíminn - 15.11.1981, Side 16
Sigurður A. Magnússon MdSKVAR MORGUNDAGSINS Þetla er sjálfstœtt íramhald metsölubókarinnar Undir kalstjörnu. Þegar frásögnin hefst er söguhetjan 9 ára og þegar henni lýkur er hann kominn „í fullorðinna mannatölu." Möskvar morgundagsins er ekki síður en fyrri bókin íallegt og átakanlegt lista- verk og um leið sérstœð aldaríarslýsing af þeim sviðum Reykjavíkurlífsins á kreppu- og hemámsárum sem lítt heíur fyrr verið hampað í bókum. Verð kr. 296.40. Félagsverð kr. 251.95. Jakobína Sigurðardóttir í SAMA KLEFA Aðalpersónur eru miðaldra kona og ung stúlka sem verða aí tilviljun samskipa á leið suður. Á þeim rúma sólarhring sem ferðin tekur segir eldri konan þeirri yngri slitur úr œvisögu sinni. Aí hversdagslegri frásögn hennar - og ekki síður þvi sem hún lœtur ósagt - nemur lesandinn örlagasögu umkomulausrar manneskju og það hugaríar sem til verður í harðbýlum og af- skekktum byggðum og skapar henni örlög. Er þá ónefnd lýsing ungu konunn- ar og að hve miklu leyti hennar bíður sams konar hlutskipti þrátt fyrir þá upp- reisn sem henni býr í brjósti. Hér er mikilli sögu þjappað saman á fáar blaðsíður í bók sem enginn bókmennta- unnandi má láta íram hjá sér fara. Verð kr. 216.15. Félagsverð kr. 183.75. Einar Kérason ÞETTA ERU ASNAR GUÐJÓN Bráðvel skriíuð íslensk nú- tímasaga. Aðalpersóna er ungur maður sem er í upp- reisn gegn umhverfi sínu, uppreisn sem er hálf áttavillt og steínulaus. Við fylgjum honum eftir í stúdentspróís- íylliríi sem aetlar engan enda að taka, í kommúnu gamalla skólaíélaga sem hafa sest að á sveitabœ til að nýta gœði landsins, í misheppnaðri tilraun til háskólanáms og á trillu og togbát þar sem lítið fer fyrir sjómannarómantík í lýsingu höfundar. Vandfundin er jafn hnyttin lýsing á lífi og hugsunar- hœtti ungs fólks nútímans og í þessari bók. Málíarið er ósvikið og sver sig í œttina og sagan er auk þess krydduð með hráslaga- legum gálgahúmor sem hœfir eíninu einkar vel. Verð kr. 216.15. Félagsverð kr. 183.75. Vilborg Dagbjartsdóttir UÓÐ Ljóðasaín eins af allra list- fengrustu ljóðskáldum okkar. Hér er að finna allar þœr ljóðabœkur sem Vilborg hefur gefið út, Laufið á trjánum, Dvergliljur og Kyndilmessu. Til viðbótar eru hér prentuð ljóð sem síðar haía birst í blöðum og tímaritum. Er ekki minnstur íengur að fá þau kvœði öll saman á einum stað þvi meðal þeirra eru mörg aí merkilegustu ljóðum Vilborgar. Jón Reykdal teiknaði kápu og sá um útlit bókarinnar. Verð kr. 247.- Félagsverð kr. 210.- Tryggvi Emilsson KONA SJÓMANNSINS og aðrar sögur Æviminningar Tryggva Emilssonar haía notið mikillar hylli og viður- kenningar. Sögur þessarar bókar eru skáldsögur þó að þcer sœki að einhverju leyti efnivið sinn tfl raunveru- leikans. Sögusviði í Konu sjómannsins svipar að tals- verðu leyti til œviminning- anna, þar er lýst líísbaráttu íólks og byrjandi verkalýðs- baráttu í ungum og vaxandi kaupstað þar sem óbrúan- legt djúp er milli stétta. í bókarlok eru nokkrar smœrri sögur þar sem frá- sagnargáía höíundar nýtur sín einna best. Verð kr. 247.- Félagsverð kr. 210.- Mikhaíl Búlgakof MEISTARINN OG MARGARÍTA Söguþráð þessarar mögnuðu og œrslaíullu skáldsögu er eriitt að rekja í stuttu máli. Hér er fiéttað saman píslarsögunni og frá- sögn af því er andskotinn og árar hans heimsœkja Moskvu - og setja allt á annan endann. Það íólksem aí þvi hlýtur uppreisn, örlagasaga þess og ástar- saga, er þungamiðja bókar- innar upp frá þvi. Mikhaíl Búlg|akof (1891- 1940) lauk við þessa skáld- sögu skömmu íyrir andlát sitt og var þá lítil von til þess að sagan kœmist nokkru sinni á prent. Frumprentun var í sovésku tímariti 1966-7, með ýmsum úríellingum. í þýðingu Ingibjargar Haraldsdóttur, sem gerð er beint úr rússnesku, er sagan óstytt. Verð kr. 296.40. Félagsverð kr. 251.95. Snorri Hjartarson KVÆÐ11940-1966 Heildarsaín ljóða Snorra Hjartarsonar fram að verð- launabókinni Hauströkkrið yiir mér. Myndskreytingar eftir Jón Reykdal. Bóksem enginn ljóðaunnandi getur án verið. Verð kr. 197.60. Félagsverð kr. 167.95. William Heinesen KVENNAGULLIÐ í GRÚTARBRÆÐSLUNNI Fimmta bókin í sagnasaíni Heinesens í þýðingru Þorgeirs Þorgeirssonar. Um síðustu bók sögðu gagnrýnendur m.a.: „Er nú ekki að orðlengja það að slíka bók leggja menn írá sér með þakklœti og biðja Wiliiam Heinesen að liía í hundrað og tuttugu ár. Þorgeir Þorgeirsson íœr ósvikið lof fyrir þýðingu sína sem hinar fyrri í þessu ritsafni - hún er á miklu máli og góðu." ÁB Þjv. „Þessar dýrlegu smásögur Heinesens eiga eílaust eftir að vera öllum unnendum hans kœrkomin upplyfting í annars snautlegu jólabókaílóði." SSHp. „Þegar óðm hverju er verið að rífast út af Norrœna þýðingarsjóðnum. aldrei heyrist þá nefnt hvað við eigum sjóðnum að þakka... í mínum huga er enginn vaíi á því að þýðingar Þorgeirs Þorgeirssonar em það sem við eigum sjóðnum mest að þakka það sem aí er." ÓJ Dbl. „Sem bókmenntaverk er „Það á að dansa" með því besta aí þýddu efni, sem undirritaður hefur fengið til lestrar mjög lengi." JGTíminn. Verð kr. 247.- Félagsverð kr. 210,- Maj Sjöwall og PerWahlöö MAÐUR UPPIÁ ÞAKI Sjöunda bókin í hinum vinsœla lögreglusagna- ílokki Skáldsaga um glœp. Þessar bœkur hafa komið út í 22 þjóðlöndum og hvarvetna notið mikiila vin- sœlda. Eftir þessari sögu gerði Bo Widerberg kvikmynd sem m.a. hefur verið sýnd hér á landi. Þýðandi er Ólafur Jónsson. Verð kr. 216.15. Félagsverð kr. 183.75. Vésteinn Lúðvíksson í BORGINNI OKKAR Sögur og ævintýri frá kostulegri tíð. Vésteinn Lúðvíksson er löngu kunnur sem einn fremsti rithöfundur okkar. Með þessu sagnasafni mun hann þó enn koma lesend- um sínum á óvart. Hann fjallar hér um samtíð okkar írá sjónarhóli íramtíðar- innar og birtir hana um leið í nýju og kostulegu ljósi. Lestur þessara sagna er ekki síður skemmtun en opin- bemn á þeim vemleika sem við þekkjum best. Það er góður sögumaður sem heldur á penna. Richard Llewellyn GRÆNN VARSTU DALUR Saga námumannaf jölskyldu í Wales skömmu fyrir síðustu aldamót. Sagan er í senn uppvaxtarlýsing, þjóð- félagsleg skáldsaga og ástarsaga. Engum dylst að höfundur nauðþekkir það íólk sem hann lýsir og að það á samúð hans óskipta. Saga þess verður heillandi lestur, ljóðrœn, full aí hlýju. skaphita, angurvcBrð og góðlátlegri kímni. Þessi skáldsaga hefur hvarvetna íarið sigurför. Þýðing Ólaís Jóhanns Sigurðssonar var fyrst prentuð 1949ogseldistupp á tveimur mánuðum en hefur ekki verið endurprent- uð fyrr en nú. Verð kr. 197.60. Félagsverð kr. 167.95. Kristján Jóhann Jónsson HAUSTIÐ ER RAUTT Fjölskrúðug nútímasaga sem gerist í íslensku þorpi og sveitinni þar í kring. Þetta þorp er þó ekki allt þar sem það er séð. í rás sögunnar tekur það t.a.m. stökkbreyt- ingfu og þenst út í allar áttir. Er ekki að furða þótt ýmsar af sögupersónum verði átta- villtar og að háttvirtur höfundur óttist að missa allt út úr höndum sér. Kristján Jóhann Jónsson er f. 1949. Hann kennir nú við Menntaskólann á Egils- stöðum. Haustið er'rautt er fyrsta skáldsagan sem eftir hann birtist. Verð kr. 296.40. Félagsverð kr. 251.95. Verð kr. 216.15. Félagsverð kr. 183.75. Mál IMI og menning

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.