Tíminn - 15.11.1981, Blaðsíða 4

Tíminn - 15.11.1981, Blaðsíða 4
4 ill'IS'JLÍ HÚN ER TIL í ALLT .... gæða prjónavélin Hún er sterk — Hún er lipur — Hún er til í allt 1 TOyOTA i VARAHLUTA- r»mUMBOÐIÐ H/F. ÁRMÚLA 23 ■ REYKJAVÍK • SÍMI 81733 Vílborg DngbjöftðJíUir Cyífí Gí.niasor. Sunnudagur 15. nóvember 1981 á bókamarkaði Tvær sögur um tunglið IÐUNN hefurgefiöút Tværsögur um tunglið eftir Vilborgu Dag- bjartsdóttur með teikningum eftir Gylfa Gíslason. Þetta eru sögur fyrir litil börn sem eru að byrja að lesa. Fyrri sagan heitir Alli Nalli og tunglið og hin siðari Góða gamla tunglfð mittog fjall- ar sú saga um Rósu Stinu. Vilborg Dagbjartsdóttir hefur áður samið sögur um Alla Nalla. Gylfi Gislason hefur myndskreytt barnabækur og gert sviðsmyndir við barnaleikritið Óvita sem Iðunn hefur gefið út tvivegis. Tvær sögur um tunglið er lið- lega fimmtiu blaðsiðna bók. Prenttækni prentaði. Þjóðsögur og þættir ur Mýrdal ,■ Bókaútgáfan örnog Orlygur hf. hefur nú sent frá sér bókina ÞJÓÐSÖGUR OG ÞÆTTIR OR MÝRDAL eftir Eyjólf Guð- mundsson frá Hvoli i Mýrdal, en Þórður Tómasson safnvörður á Skógum bjó bókina til prentunar. Eyjólfur Guðmundsson var fæddur 31. ágúst árið 1870, en lést 16. október 1954. Hann var lengst af ævi sinnar bóndi að Hvoli i Mýrdal, en gaf sig þó mikið af fræðistörfum og skrifum og allar þær bækur er hann sendi frá sér hlutu einstaklega góðar viðtökur, einkum þó bækurnar „Pabbi og mamma”og „Afi ogamma”sem komu út á árunum 1941 og 1944. Þegar Eyjólfur lést lá mikið magn óprentaðra handrita i skrif- borði hans, m.a. mannlifsþættir úr Mýrdal, þjóðsögur og ýmis fróðleikur yngri og eldri. Þórður Tómasson tók saman safn úr þessum handritum og birtist það i bókinni. Þórður Tómasson ritar einnig formáia bókarinnar og kemst þar m.a. svo að orði: „Mýrdælingar og íslendingar eiga Eyjólfi á Hvoli mikla þakkarskuld að gjalda fyrir þau firn af fróðleik um horfna tið, sem hann hefur haldið til haga og með orðfæri er skipar honum til rúms með bestu sagnamönnum og rit- höfundum þessarar aldar. Sú alþýðumenning er bjó hann úr garði var ekki fátæk né feyskin. Bókin ÞJ ÓÐSÖGUR OG ÞÆTTIR ÚR MÝRDAL er sett, umbrotin, filmuunnin og prentuð i Prentstofu G. Benediktssonar, en bundin hjá Arnarfelli hf. Bókar- kápu gerði Pétur Halldórsson. FARVEGIR Ljóó Stefán Höróur Grímsson „Farvegir” — ný ljóðabók eftir Stefán Hörð Scmsk gœðavam, Ljósaperur 25w-100w, ^KAUPfHAGH) | | i inl | : Grímsson ■ út er komin á vegum IÐ- UNNAR ný ljóðabók eftir Stefán Hörð Grinisson.Nefnist hún Far- vegir og er fjórða ljóðabók skáldsins. Stefán Hörður er eitt fremsta ljóðskáld sinnar kyn- slóðar. Fyrstu bók sina, Glugginn snýr i norður, gaf hann út 1946, siðan kom Svartalfadans 1951 og loks Hliðin á sléttunni 1970. Þessar þrjár bækur voru endur- prentaðar i safni, Ljóðum, 1979. Farvegirgeyma tuttugu og eitt ljóð, og bókin er liðlega þrjátiu blaðsiður. Káputeikningu gerði Þórður Hall. Oddi prentaði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.