Tíminn - 29.11.1981, Blaðsíða 5

Tíminn - 29.11.1981, Blaðsíða 5
Sunnudagur 29. nóvember 1981 5 þróast áfram hér á landi, það eru allar aðstæður til þess. Erlendis kom þetta upp vegna kreppu efnahagslifsins þar er allt á niðurleið og meðan svo heldur áfram verður pönkið til. Hér- lendiser hinsvegar flest á uppleið og pönkið ætti að geta þróast á þann veginn hér li'ka”. Upphafið Eins og komið hefur fram er tónlistin upphafið og endirinn á pönkinu hér en hvernig varð hún til og hvernig þróaðist hún hér- lendis? Litum fyrst á bút úr er- lendu tímariti: „Fyrir nokkrum mánuðum rölti inn á skrifstofur Zigzag maður að nafni Björn, að ég held, og hóf að tala um is- land þetta land i buskan- um sem enginn okkar hugsar nokkru sinni um. Hann var í leit að vinsam- legum útgáfufyrirtækjum sem hefðu áhuga á þvi að gefa út íslenska plötu. Hvað!!!! Þar sem við vildum ekki að svo liti út að við vissum ekki að á islandi er diíndrandi tónlistarlif, eða að við skildum ekki framburð hans hlust- uðum við með eftirtekt á manninn. Hann sagðist siðan ætla að koma aftur og ræða betur um málið. A augnabliki var hann horfinn en við ekki. Var þetta brandari?... Zigzag ágiist ’81 um fyrsta árið auk þess að við vorum þeir einu og það var alltof h'tið til verulegur hópur gæti myndast i kringum þetta, og það hefur aldrei myndast hér sá mór- all sem var úti og maður hafði gaman af”. ,,Ég held að við höfum alltaf verið popp-hljómsveit frekar en allt annað en hinsvegar var popp vörumerki sem við þoldum ekki á sinum tima. Fólk vildi hafa okkur sem eftirlikingu af erlendum hljómsveitum en það var bara allt annað að gerast hér heldur en úti”, segir Valgeir. Hlutirnir fara fyrst að rúlla með tilkomu Utangarðsmanna og segja má að þá hafi sprenging orðið i tónlistarlifinu hér þvi' i kjölfar þeirra fylgdi fjöldi annarra hljómsveita. Þær eru enn að myndastog ekki er enn séð fyrirendann á þeim áhrifum sem Utangarðsmenn voru vakinn að. Það er athyglisvert að Utan- garðsmenn voru ekki pönk- hljómsveit i' neinum skilningi þess orðs heldur fyrst og fremst rock’n roll band enda skilgreindu þeir sjálfir tónlist sina i upphafi sem Gúano rokk. ,,Á þessum tima voru til fjöldi af bilskúrahljómsveitum sem ekki komu fram nema einstaka sinnum sem upphitunar-sveitir fyrir Fræbbblana og seinna meir Utangarðsmenn og þær fóru ekki að hasla sér völl að ráði fyrr en ljóst var að Utangarðsmenn höfðu slegið i gegn”, segir As- mundur Jónsson annar umsjóna- maður tónlistarþáttarins Afanga i samtali við Timann. „Aður en þessi sprenging varð hafði hin raunverulega bylgja verið lengi að siast inn til landsins spila neinsstaðar þessa tónlist fyrir utan Fræbbblana sem voru eitthvað að ströggla I Kópavogs- biói”. „Mórallinn hér var þannig að þú fékkst ekki að vera með nema þú kynnirað leika og vildir leika, vinsællög. Mike hér var rekinnúr grúppu vegna þess að hann gekkst ekki inn á þessi sjónar- mið”. „ÞegarUtangarðsmenn loksins brjótast í gegnum múrinn sáu aðriraðþetta var hægtog megniö af þessum nyju grúppum koma fram á sjónarsviðið eftir þann tima”. „Hvað pönkið snertir þá var varla til fólk sem gekk i leður- jökkum t.d. fyrir tveimur árum. Núna er þetta komið i tisku og þú sérð „einkennisklæðnaðinn út um allt”. „Punkið er laust við alla dellu. Tónlistin er blátt áfram og krakkarnir sem fylgjast með henni vita meira um heiminn og það sem er að gerast i kringum þá heldur en krakkar gerðu fyrir 10 árum siðan.” „Siðan höfum við fullt af áhangendum þessararstefnu sem tileinka sér ekkert nema fötin og útlitiðog það fólk verður komið út i eitthvað allt annað eftir árið”. „Okkar markmið m.a. var að brjóta niður það klikukerfi sem viðgengst hafði um fjölda ára á þessu sviði hérlendis. Þegar pönkið kemur upp var Gunni Þórðar búinn að spila sama lagið i 10 ár og hafði komist upp með það”. ..Gúano rokk. Gúano cr fuglaskitur. islending- um likaði vel við það og f ■ ,, Pönkmenning er til staðar maður finnur ólg- una". tslendingar hafa alltaf verið seinirað tileinka sérþað sem efst er á baugi erlendis f tónlist ef frá eru skilin minniháttar „æði” eins og Grease og þetta á einnig við um pönkið. Nú fimm árum eftir að þessi stefna hóf að hrista upp i steingeldum heimi rokktónlistar um miðjan þennan áratug má sjá fyrstu verulegu merkin hérlendis um að þetta sé að gripa um sig en stefnan hefur þó verið til staðar, hér i örlitlum mæli, s.l. þrjú ár. Fyrirbærið hér er um margt sérislenskt og ef til vill ekki rétt að kalla það pönk en notast er við það orð i þessum skrifum vegna skorts á öðru betra. Fræbbblarnir eru fyrsta is- lenska hljómsveitin sem gerir til- raunir til að spila tónlist sem flokka másem pönk en þeirkomu fyrst fram á menningarhátíð hjá Menntaskólanum i Kópavogi og þá sem gamanatriði. „Það var nákvæmlega ekkert að gerast i tónlistarlifinu hér- ’ lendis á þessum tima og þó þetta hafibyrjaðsem grin hjá okkurþá fannst okkur þetta það skemmti- legt að við vildum ekki hætta en einnig vartilgangurinn sá að hafa eitthvað svona i gangi”, segir Valgarður Guðjónsson betur þekktur sem Valli söngvari Fræbbblanna i samtali við Tim- ann. tkringum Fræbbblana myndaðist strax smáhópur sem var með á nótunum en þetta fólk var a ðallega úr Kópavogi og gekk undir nafninu Kópavogsklikan. „Við náðum ofurlitlum árangri fyrst en sfðan datt þetta að mestu niður m.a. vegna þess hve erfitt var að fá staði til að spila á og það má segja að fyrstu árin hjá okkur hafi verið bölvuð eyðimerkur- ganga”. „Við komum fram fimm sinn- og það gerist ekki fyrr en á árun- um 1979 og 1980. Það er fyrst á þessum árum sem plötur frá Independant fyrirtækjunum eins og Rough Trade fara að fást i búðum hérlendis, þá kannski tveggja-þriggja ára gamlar”. „...þetta er mjög snú- inn bransi. islendingar voru vanir að sækja tón- leika á 14du öld en þá bannaði kirkjan dans og slfkt og islendingar kunna ekkiað dansa. Þeir hafa gleymt þvi svo að kannski fimmtiu manns mæta. En ef þú leikur á Holteborch (þetta getur ekki verið rétt stafað) þá færðu fleiri. Það er örugglega staðurinn tilað leika á. Það er áfengi þar og islendingar vilja áfengi er þeir koma. Þeir vilja drekka, slást og ná I stelpur...” Einar örn, söngvari Purrks Pilnikks i samtali við Zig Zag ágúst ’81 „Við urðum aðallega frægir i blöðunum og það hvað við náðum langt er 75% að þakka þeirri um- fjöllun sem við fengum i blöðun- um” sögðu þeir Mike og Danny Pollock fyrrum meðlimir i Utan- garðsmönnum i samtali við Tim- ann. „Auk þess má segja að við höf- um þrýst okkur inn á markaðinn þvi' fyrsta árið héldum við milli 130- og I50tónleika viðsvegar um landið”. „Afhverju þetta varð svona tel ég vera vegna þess að ekkert var að gerast i tónlistarheiminum á þessum tima nema hjá skalla- poppurunum og enginn fékk að fyrsta sinni i 10 ár fengum við fjöldaæði. Fólk öskraði nafn hans. Við hcldum að þetta væri hrnndari en þá héldum við tónleika i litlum unglingaskóla og á eftir komu tvær ungar stelpur inn i bún ingsklef ann , snertu hann og aaaaah... við gátum heyrt igegnum loftræstikerfið að eitt- hvað var að gerast. Við fórum út og slógum hring I kringum hann en á ör- skammri stundu var hann þakinn kvenfólki. Hepp- inn bjáni”. Einar örn um Bubba Morthens og Utangarðs- menn í Zig Zag ágúst ’81 „Pönkmenningin er til staðar hér, maðurfinnur ólguna sem býr undir henni og hún fær ekki að brjótast út. Það sem skortir er staður þar sem þetta fólk getur komið saman þvi það er flest yngra en 18 ára. Ef við settum. þak yfir Hallærisplanið þá væri það vandamál leyst”, sagði Danny Pollock. Eins og staðan er i dag er útlit fyrir að tónlistin á þessu sviði muni halda áfram að dafna og þroskast. Fjölmargar hljóm- sveitir hafa skotið upp kollinum á undanförnum mánuðum og fleiri eiga eflaust eftir að bætast i hópinn sérstaklega eru ungir strákariðnir við að mynda hljóm- sveitir og þá oft meir af vilja en mætti. Ég held að það sé við hæfi að enda þessa grein á fyrirsögn i breska timaritinu New Musical Express: „Já, Ragnar, það er rokk á tslandi”. —FRI ■ ,,Varla til fólk sem gekk i !''ðurjökkum fyrir tveimur árum." „ísland er orðið stærsti skyndibitastaður í heimi”

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.