Tíminn - 29.11.1981, Blaðsíða 6

Tíminn - 29.11.1981, Blaðsíða 6
6 Sunnudagur 29. n.ó.yember 1981 BLÓMALJÓS .«■ ' 'i*: ■ ÍE'X'- S - VINSÆLU KOMIN AFTUR TVÆR GERÐIR SENDUM í PÓSTKRÖFU H. G. Guðjónsson StigahM 46-47 - SoOurvari - Rayfcjnvik - Smi 37637 82088 sczjlsr^ÍLjm Höfum ávallt á lager þessa frábæru Solarium lampa fyrir heilsuræktir og sundlaugar. Einnig lampa fyrir heimahús. BENCO BS091°2Í9445 ISHIDA fP Höfum tekið í umboðssölu nokkrar lftið notaðar ISHIDA D82 vogir á góðu verði PLASTPQKAR O 8 26 55 PI.ISl.OS lll* ŒZEðP PLASTPOKAR tS 8 26 55 menningarmál Háskólatónleikar ■ Á hverjum föstudegi i hádeg- inu stendur Tónleikanefnd há- skólans fyrir konsert i Norræna húsinu. Tónleikarnir standa i rUman hálftima hverju sinni og hafa veriö meö þvi' skemmtileg- asta sem heyrst hefur i haust. Hinn 13. nóvember kynnti ungur breskurpianóleikari, John Lewis, pianótónlist Charles Ives. John Lewis hefur fengistviö „tilrauna- tónlist” i heimalandi sinu um árabil og starfaö þar meö ungum tónskáldum og hljóöfæraleikur- um. í seinni tiö hefur hann fengist mikiö viö tónlist bandariska tón- skáldsins Charles Ives (1874-1954) sem var aö mörgu leyti merkileg- ur nýjungamaöur i tónlist og raunar upphafsmaöur sann-ame- riskrar „æöri tónlistar”, eins og John Lewis segir i skránni. Ives var „svo á undan sinni samtiö” aö hann neyddist til aö leggja tónskálds-starfiö á hilluna og gerasttryggingamaöur. 120 ár frá 1898 til 1918 liföihann tvöföldu lifi — stundaöi viöskipti á daginn meö þeim árangri aö hann varö milljónungur, en tónsmiöar á nóttunni. Tónlist hans var aö mestu leyti óþekkt og óspiluö fram yfir 1930 og i verkum hans þróuöust sjálfstætt ýmsar nýjungar sem mörgum árum siöar uröu frægar hjá Evróputón- skáldum eins og Debussy, Schön- berg, Bartók og Stravinsky. Mest haföi Charles Ives frá fóöur sinum, sem var fjölhæfur tónlistarmaöur og lúörasveita- stjórnandi: frá honum þáöi hann ást sfna á ameriskridægurtónlist, sálmalögum, hlööudönsum, lúörasveitamörsum, tuskum (ragtime) o.s.frv. og kynntist nýjum undraheimum tónanna á óvenjulegum tilraunum hans með hljóma og takt. John Lewis sagöi fáein orö um tónskáldiö í upphafi. Þar kom m.a. fram, aö Ives náöi tökum á þvi aö hugsa mismunandi takt i einu: hann sló 2 meöhægri hendi, 5 meö vinstri fæti, 9 meö hinum hægri, 7meö vinstrihendiog söng 3um leiö— og tókst aö halda öllu aðgreindu i' huga sér á meðan. Ives gat vist aldrei gleymt þvi Charles Ives þegar hann ungur var staddur á torgi i' Boston og lúðrasveitir komu Ur ýmsum áttum til torgs- ins spilandi mismunandi lög. Um þetta samdi hann t.d. lagið „The Circusband” sem Paul Sperry söng sem aukalag hjá Tónlistar- félaginu fyrir réttu ári og af þessu tagi ermÚLÍð af pianótónlist Ives. Af þeim 9 stykkjum sem Lewis spilaöi eru sex óUtgefin enn, og hafði Lewis fengiö handritin á Ives-safninu I Yale háskóla. önn- ur eru þekktari t.d. er Þriggja síðna sónatan til á plötu. Þá var skemmtileg „Study 9 — The Anti- Abolitionist Riots in the 1830s and 1940s” en um þá æfingu segir PLASTPOKAVERKSMKUA 000S SIGURÐSSONAR GRENSASVEGI 7 REYKJAVÍK BYGGINGAPLAST • PLASTPRENTUN • MERKIMIÐAR OG VÉLAR • Flísar • Hreinlætistæki • Blöndunartæki • Gólfdúkar • Málningarvörur • Verkfæri • Baðteppi • Baðhengi og mottur • Harðviður • Spónn • Spónaplötur • Viðarþiljur • Einangrun • Þakjárn • Saumur • Fittings Ótrúlega hagstæðir greiðsluskilmálar' allt niður í 20% útborgun og eftirstöðvar allt að níu mánuðum Við höfum flutt okkur um set, að Hringbraut 119# aðkeyrsla frá Framnesvegi eða inngangur úr Fatadeild JL-hússins • Opið fimmtudaga til kl. 20, föstudaga til kl. 22 og laugardaga kl. 9 til 12 ATH.: Við opnum kl. 8 á morgnana — nema laugardaga kl. 9 — byggingavörur_______________ Hringbraut 119 - Simar: 10600 og 28600 John Lewis I skránni: (9. æfing — upphlaupin gegn afnámi þræla- halds milli 1830 og 1850) Ives skrifaöi fjölda greina um stjórn- mál og var ákafur baráttumaður fyrirraunverulegulýöræöi. Þetta ofsafengna verk á aö endurspegla hugdirfð og hugsjón þeirra Bandarikjamanna, þeirra á meðal afa Charles Ives sem böröust gegn þrælahaldi um miöja 19. öld. 1 upphafi og niður- lagi má heyra stutta bæn fyrir frelsi og stef úr 5. sinfóniu Beet- hovens heyrist stuttlega — i aug- um Ives tákn friðarins. John Lewis spilaöi þessi verk skemmtilega af krafti og sann- færingu. Og tónlistin er „skemmtilega klikkuö” — þetta er enginn gervimódernismi, heldur sönn framúrstefnutónlist sem skilur flest þaö eftir sem maður heyrir hér nú um stundir enda sagöi Lewis eitthvaö á þá leið aö Stockhausen og þeir strákarnir séu nú orðnir hvers- dagsfæöa i' tónleikasölum i Bret- landi, — enlves ekki.Hann ersvo dæmalaust „modern”. Viö þurf- um endilega aö heyra i Lewis aftur. oOo Föstudaginn 20. nóvember lék svo hinn góökunni blásarakvin- tett þeirra Lárusar Sveinssonar, Jóns Sigurössonar og Bjarna Guömundssonar — meö þeim eru núna Joseph Ognibene, sem spilar á horn og William Gregory básúnuleikari. Þessi blásara- kvintett kom fyrst fram i mars i vor á Háskólatónleikum, en is- lensku félagarnir hafa spilaö saman i mörgum kvintettum um 12 ára skeiö. Tónskáld vor ættu endilega að taka sig til og semja fyrir kvintettinn, þvi hann er „hljóðfæri” sem býður upp á marga hluti: fegurö, dýpt og gamansemi. Engir samhljómar eru tignarlegri en blásarakvin- tettsins enda eru englar sagðir spila á himneska lúöra og skapar- inn hlýtur aö kunna sitthvaö fyrir sér i tónsetningu. Og engin hljóö- færi eru gamansamari en lúörarnir ef þvi er aö skipta. Á efnisskránni voru tvö verk, kvintett nr. 2 óp. 6 eftir Victor Ewald ( 1860-1935) Rússlands- fæddan verkfræöing og áhuga- knéfiðlara sem ekki hefur annað skrifaösem i frásögur er færandi en þrjá kvintetta fyrir málm- blásara — og Svita frá Montere- gisku hæðunum eftir kanadiskan mann, Morley Calvert. Báöir þessir kvintettar eru góðir full- trúar hinnar léttúöugri tegundar lúöratónlistar, þótt þar megi heyra margan fagran og göfgandi samhljóm og sálar-upplyftandi stef. Þeir félagar spila bráövel, enda skemmtu menn sér hið besta. NU er svo komið aö ýmsir bæjarbUar, hrjáðir af argaþrasi fundarsetum og ööru heilsuspill- andi atferli eru farnir aö sækja Háskólatónleikana á föstudögum til að hreinsa hugann og lyfta sál- inni og mættu fleiri fylgja þvi for- dæmi. Tónleikaröð fyrra misseris lýkur með semballeik Helgu Ingólfsdóttur (27. nóv.) og pianó- leik Halldórs Haraldssonar (4. des.) 25.11 Sigurður Steinþórsson Á vegi án gangstéttar gengur fólk vinstra megin -ÁMÓTI AKANDI UMFERÐ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.