Tíminn - 29.11.1981, Blaðsíða 17

Tíminn - 29.11.1981, Blaðsíða 17
16 Sunnudagur 29. nóvember 1981 Arthur Conan Doyle - höfundur Sherlock Holmes: Var knúinn til að vekja Holmes upp frá dauðum! Þótt Arthur Conan Doyle hefði vafalaust þótt það leitt/ er hann nú til dags fyrst og f remst/ ef ekki eingöngu, þekktur sem höfundur sagnanna um Sherlock Holmes, þann Napoleon spæjaranna. Þau skáldverk Doyles, sem hann taldi sjálfur mun mik- ilvægari, hafa yfirleitt fallið í glatkistu tímans, en sögurnar um Holmes og félaga hans, Watson, lifa góðu Iffi og hljóta sífellt nýja kynslóð lesenda. En hver var Arthur Conan Doyle? ■ Hann fæddist áriB 1859 — 22. mai — i Edinborg. Hann var af irskum og normönskum ættum. Doyle-fjölskyldan, sem var kaþ- ólsk, fékk land á trlandi snemma á fjórtándu öld, en afi Arthurs, John, varö aö yfirgefa landareign sina vegna nýrra laga, sem beindust gegn kaþólskum mönn- um, og flytja til Englands. Hann var listhneigöur mjög og þekkt- asti höfundur pólitiskra grin- mynda i Bretlandi á sinni tið. Listhneigöin kom fram i börn- um Johns. Charles, faöir Arthurs, varð arkitekt og málari i fri- stundum: hann settist að i Edin- borg sem opinber starfsmaöur, og þar fæddist sonur hans, Arth- ur. Fööurbróðir Arthurs, Rich- ard, var þó mun frægari teiknari: skreytti m.a. bækur Dickens og Thackerays og teiknaöi mikiö i hiö þekkta tímarit Punch. Enn annar föðurbróöir Arthurs, Henry, var sömuleiöis listmálari og forstöðumaöur Þjóölistasafns- ins i Dublin. Áhrif í æsku Sagt hefur veriö um föður Arth- urs, aö hann hafi veriö fjarlægur og ómannblendinn, og aö Arthur hafi mun frekar kosiö félagsskap móöur sinnar, sem hafi haft mikil áhrif á hann. Frá móðurinni, Mary Foley, hlaut hann mikinn á- huga á sögu og þá einkum sögu af hetjudáöum og ævintýrum fornra kappa. Arthur Conan Doyle gekk menntaveginn, en haföi þó mun minni áhuga á náminu en bók- menntum, einkum verkum eftir Scott, Macaulay og Edgar Allan Poe. Hann var heilsuhraustur, hugrakkur, góður iþróttamaöur og árangursrikur námsmaöur þrátt fyrir takmarkaöan áhuga á námsbókunum. Hann var þvi tal- inn hafa alla eiginleika til aö veröa góöur læknir, og var innrit- aöur I læknadeild Edinborgarhá- skóla árið 1876. Þaö reyndist ör- lagarikt skref, þvi af þvi leiddi m .a. aö hann komst i kynni viö mann þann, sem siöar varö öör- um fremur fyirmyndin aö Sher- iock Holmes — dr. Joseph Bell. Fystu skrefin Conan Doyle átti i fjárhagsleg- um erfiöleikum á meöan á nám- inu stóð og reyndar lengi á eftir, enda uröu þeir ööru fremur til þess að hann fór aö skrifa aö ráöi. Þegar á námsárunum reyndi hann aö selja sögur i þau mörgu timarit, sem þá voru gefin út og birtu smásögur af ýmsu tagi. Honum tókst aö selja eina sögu, en öörum var hafnaö. Hann neyddist þvi um tima til aö fara til sjós: fór m.a. á hvalveiöiskip- inu „Hope” noröur fyrir Island. Ariö 1881 lauk hann læknaprófi, og setti fljótlega upp læknastofu ásamt vini sinum i Plymouth. Nokkru siöar setti hann upp sina eigin stofu i Southsea og haföi tiu ára bróöur sinn, Innes, hjá sér sem sendisvein. En þaö var fátt um sjúklinga, og Conan Doyle haföi þvi nægan tima til aö sinna skriftum. Hann hélt áfram aö senda sögur til timarita, og 1883 fékk hann birta sögu I „The Cornhill”, sem var talið umtalsverö viöurkenning. Sagan hét „Habakuk Jephson’s Statement” og fjallaöi um Mary Celeste-slysiö. Watson og Holmes fæðast En samt sem áöur var flestum sögum hans hafnað. Hann fór þvi að huga að gerö lengri skáld- sagna. Ein slik saga náöi gífur- legum vinsældum uro þetta leyti — „The Mystery og a Hansom Cab” eftir Fergus Hume. Hann hugöist nota leiguvagn — hansom — sem uppistööu i sögu sina, eins og Hume, en frá allt ööru sjónar- horni: hann hafði ekki áhuga á farþeganum heldur ökumannin- um, sem gat ekiö um Lundúna- borg án þess aö vekja nokkra at- hygli, svipaö og leigubilar nú til dags. Samkvæmt frásögn hans sjálfs átti sagan upphaflega aö heita „The Tangled Skein” og ætlunin var aö sögumaðurinn héti Or- mond Sacker. Það nafn fannst honum þó við nánari athugun of fjarstæöukennt. Ungur læknir, vinur hans i Southsea, hét James H. Watson. Arthur breytti James i John, og þar með var dr. John H. Watson fæddur. Einkaspæjarinn i sögunni átti aö nota nákvæmar rannsóknaraöferöir dr. Bells viö lausn sakamála. Conan Doyle velti nafninu lengi fyrir sér. Eft- irnafnið, Holmes, kom aö visu fljótt, og var byggt á nafni bins þekkta bandariska lögfræöings Oliver Wendell Holmes. Fornafn- iö tók lengri tima: Sherringford hét hann um tima, en aö lokum varð Irska nafniö Sherlock ofan á. Þegar Conan Doyle haföi lokiö við þessa fyrstu sögu um Sherlock Holmes hafði hún fengiö annaö nafn — „A Study in Scarlet”. Þaö er vist ekki hægt aö segja, aö útgefendur hafi slegist um að fá aö gefa út fyrstu söguna um Holmes. Timaritiö „The Corn- hill”, sem áöur er nefnt, hafnaöi sögunni, og svo fór um næstu tvö útgáfufyrirtækin, sem Conan Doyle haföi samband viö. Þaö fjóröa, Ward, Lock & Co„ féllst á aö kaupa söguna til birtingar i jólablaöi sinu ef höfundurinn vildi selja allan höfundarétt fyrir 25 sterlingspund. Conan Doyle reyndi aö semja um prósentur, en það gekk ekki, svo aö hann féllst aö lokum á tilboöið. Sagan birtist svo i „Beeton’s Christmas Annu- al” árið 1887 og vakti litla athygli. Sögulegar skáldsögur En Conan Doyle hafði sjálfur hugann viö önnur og mun alvar- legri bókmenntaverk. Snemma árs 1887 hóf hann ritun fyrstu sögulegu skáldsögu sinnar, „Mic- ah Clarke”.Hann skrifaöi söguna sjálfa $ þremur mánuöum og nýtti þar alla þá þekkingu, sem hann hafði aflaö sér um sautj- ándu öldina, og frásagnaraöferöir Scotts og Macaulays. Viöbrögð útgefenda voru ekki uppörvandi: þaö var ekki fyrr en ári síöar aö Longmans féllst á aö gefa bókina út, og hún kom á markað i febrú- ar 1889. Þaö var reyndar skömmu eftir að Conan Doyle og kona hans, Louise Howkins, eignuöust sitt fyrsta barn, Marye Louise. Og nú tóku gagnrýnendurnir við sér: Micah Clarke var vel tekið i þeirra röðum. Þessar góöu viötökur uröu Con- an Doyle mikil hvatning, og hann hóf undirbúning næstu sögulegu skáldsögu sinnar, „The White „Einfalt, kæri Watson” — af Sherlock Holmes, þeim snjalla spæjara, Watson lækni, Moriarty prófessor og öðrum sögupersónum Arthur Conan Doyles „Hvort er það í dag", spurði ég, „morfín eða kókaín?" Hann lyfti augunum máttleysislega upp úr gömlu svartletruðu dósinni, sem hann hafði opnað. „Það er kókaín", sagði hann, „sjö prósent blanda. Viltu reyna?". „Mætti ég spyrja hvort þú ert að sinna einhverju rannsóknarverkefni sem stendur?". „ Engu. Þess vegna kókaínið. Ég get ekki lifað án heilabrota. Hvaðannaðer hægtað lifa fyrir? Stattu við gluggann þarna. Hefur nokkru sinni sést jafn dapurleg, ömurleg, gagnslaus veröld? Sérðu hvernig gul þokan þyrlast niður strætið og liðast yfir dökkmórauð húsin. Hvað er eins vonleysislega hversdagslegt og þetta? Til hvers hefur maður hæfileika, læknir, þegar það er enginn vettvangur til að nýta þá?". (The Sign of Four). ■ Þessi lýsing Arthur Conan Doyles á Sherlock Holmes, spæjaranum mikla, sem leiddist út ikókainneysluaf hreinum leið- indum, hefur reynst mörgum eftirminnileg, og ýmsir höfundar siðari ára hafa reyndar notaö kókainneyslu Holmes til þess aö búa til frekar ógeöfdldar sögur og kvikmyndirum þennan merka spæjara. Enhver var Sherlock Holmes? Hvaöa vitneskju um manninn er hægt aö lesa út úr þeim fjórum skáldsögum og 56 smásögum, sem Arthur Conan Dpyle skrifaöi um hann? Og ekki má gleyma Watson lækni, þvieins og Holmes segir i fyrstu smásögunni — „Hneyksli I Bæheimi” —: „Ég væri glataður án Boswells mins”. Þeir eru margir, sem hafa sökkt sér niður I rannsóknir á Holmes og Watson eins og þar væri um raunverulegar persópur aö ræöa, en ekki imyndun skald- sagnahöfundar. Þannig hafa veriö skrifaöar um hann æfisög- ur, þar sem byggt er á þeim upp- lýsingum, sem fram koma i bók- unum, og samtimaheimildum frá þeimtfma, sem Conan Doyle læt- ur sögur si'nar gerast. Eru þetta nokkuö sérkennilegar bókmennt- ir, og næsta óvenjulegt aö skáld- sagnapersónur leiti meö þessum hætti á fólk. Þær upplýsingar, sem hér fara á eftir um Holmes og Watson, byggja á slikum rann- sóknum erlaidra manna, og þá einkum bókinni „The Sherlock Holmes Companion” eftir Micha- el og Mollie Hardwick. Uppruni og æska Holmes sagði Watson vini sin- um tiltölulega litið um uppruna sinn. Þó kom fram, aö hann var kominn af sveitaaöli I Sussex, og taldi sig sennilega hafa fengiö listamannsblóö frá ömmu sinni, sem heföi veriö systir fransks listamanns. Hann átti einn bróður, Mycroft, sem Holmes fullyrti aö væri sér fremri — bæöi athugulli og rökvisari. Hann var aö finna iDiogens klúbbnum,sem sagöur var sérkennilegasti klúbb- ur I London. Reyndar kom fram siöar, að Mycroft var mikilsmet- inn meöal embættismanna i Whitehall, þar sem hann leysti úr mörgum vanda. Holmes hlaut háskólamenntun, en aödáendur hans hafa mjög rif- ist um þaö, hvort liklegra væri, aö hann heföi fariö til Oxford eöa Cambridge! Hann dvaldi alla vega nokkur ár í háskóla, en var að eigin sögu litt félagslyndur og mikið út af fyrir sig aö þjálfa þær aöferöir eftirtektar og rökvisrar hugsunar, sem siöan komu hon- um aö svo góöu haldi við lausn sakamála. Þá stundaöi hann einnig skylmingar og hnefa- leika. Fyrsta mál Holmes 1 háskólanum kynntist hann Victor nokkrum Trevor, sem bauð honum aö dvelja um mánaöarti'ma á setri fööur si'ns i Donnithorpe i' Norfolk, og þar leysti Holmes^ fyrstu ráögátu sina, sem frá áegir i sögunni „Gloria Scott”. Þar eins og annars staöar kemur Holmes öll- um á óvart meö eftirtekt sinni og ályktunum. Þar sem þær eru einkennandi fyrir aöferöir hans er rétt að birta hér stuttan kafla úr þessari sögu. „Kvöid nokkurt, skömmu eftir komu mína, sátum viö yfir glasi af porti eftir kvöldmat, þegar Trevor yngri fór aö tala um aö- feröir minar, sem ég haföi þegar fært i kerfi, þótt ég hefði þá ekki gert mér grein fyrir þvi, hvaöa hlutverk. þærættu eftir aö leika i lifi minu. Gamli maöurinn hélt sýnilega aö sonur hans væri aö ýkja, þegar hann lýsti einum eöa tveimursmávægilegum afrekum, sem ég haföi unnið. „Jæja, Holmes”, sagöi hann og hló góðlátlega. „Ég erágætis viö- fangsefni, ef þú getur dregiö ein- hverjar ályktanir af mér”. „Ég er hræddur um aö þaö sé ekki mikið”, svaraöi ég. „Ég myndi þo stinga upp á, aö þú hefðir óttast árás á þig persónu- iega siðustu tólf mánuöina. Hlátur hans hljóðnaði og hann starði á mig mjög undrandi. „Já, þaö er vissulega rétt”, sagöi hann. „Þú veist, Viktor”, hélt hann áfram og snéri sér aö synisinum, „aö þegar viö höföum hendur i hári veiöiþjófanna hétu þeir þvi aö hefna sin, og Sir Ed- ward HoIIy hefur orðiö fyrir árás. Ég hef alltaf veriö á veröi siðan, þótt ég geti ekki imyndaö mér, hvernig þú veist af þvi.” „Þú ert meö mjög veglegan staf’, svaraði ég. „Ég sé á stafn- um aö þú hefur ekki haft hann nema í eitt ár. Þú hefur hins vegar sýnilega borað holu I enda stafsins og helt bráönu blýi f hol- una til þess aö gera stafinn aö góöu vopni. Mér datt i hug aö þú myndir ekki gripa til slfkra varúða rráðstaf ana nema þú heföir ástæöu til aö óttast eitt- hvaö”. „Ekkert annaö?”, spuröi hann, brosandi. „Þú hefurstundaö mikiö hnefa- leika i æsku”. „Rétt aftur. Hvernig vissiröu þaö? Er nefiö á mér eitthvaö skakkt?”. „Nei”, svaraöi ég. „Þaö eru Sunnudagur 29. nóvember 1981 > ■. ■ Andstæöingurinn mikli, Mori- arty prófessor, „Napóleon glæpa- mannanna”. Company”.Sú saga tók hann mun lengri tima, enda þurfti hann aö afla heimilda meö rannsóknar- starfi mánuöum saman. A meöan hann var að vinna aö þessari skáldsögu truflaöi Sherlock Holmes hann á ný, nú vegna fyr- irspurnar frá ritstjóra banda- riska timaritsins „Lippincott’s Magazine”. Aö beiðni hans skrif- aöi Conan Doyle nýja skáldsögu um Holmes og Watson, „The Sign of the Four”eins og hún hét upp- runalega, og sú var birt á sama tima I Englandi og Bandarikjun- um, i febrúar 1890. Siöar þaö sama ár lauk hann viö „The White Company”, sem siðan var birt sem framhaldssaga i „The Cornhill” og siöan i bókarformi. Þegar svo var komiö haföi Arthur Conan Doyle flutt frá Soubsea, lagt læknastarfiö aö mestu á hill- una og fundiö hjá sér sterka hvöt til þess aö drepa Sherlock Holm- es. Holmes verður vinsæll Ef Conan Doyle hefði hrokkiö upp af eftir tvær fyrstu skáldsög- urnar um Sherlock Holmes komu út, er engin ástæöa til að ætla að sá frægi einkaspæjari væri þekkt- ur i dag. Þaö var ekki fyrr en hann hóf að skrifa smásögur um Holmes — fyrstu sex sögurnar skrifaöi hann I Vinarborg sumar- iö 1891 — að spæjarinn vakti veru- lega athygli. Smásögurnar voru birtar I nýju timariti, „The Strand”, og myndskreyttar af Sidney Paget. Lesendur urðu yfir sig hrifnir og ritstjóri timaritsins heimtaöi fleiri sögur. Conan Doyle, sem var aö hefja ritun enn einnar sögulegrar skáldsögu — „The Refugees” — neitaði. En bæöi ritstjórinn, og lesendur blaösins, héldu áfram aö heimta fleiri sögur um Sherlock Holmes, og Conan Doyle ákvaö aö lokum • aö afgreiöa máliö i eitt skipti fyrir öll meö þvi aö fara fram á fárán- lega háa greiöslu aö þeirra tima mælikvaröa — 50 sterlingspund fyrir hverja nýja sögu, hversu stutt sem hún yröi. Honum til undrunar var tilboöiö strax sam- þykkt, og hann varö þvi aö skrifa aörar sex sögur. Þessar 12 smá- sögur voru siöan gefnar út i bók undir heitinu „The Adventures og Sherlock Holmes” áriö 1892, þ.e. „Ævintýri Sherlock Holmes”. Conan Doyle haföi I hyggju að taka Holmes af lifi i tólftu smá- sögunni, svo hann flæktist ekki frekar fyrir honum viö gerð al- varlegri skáldverka, en hann hætti þó viö þaö og er taliö, aö móöir hans hafi ráöiö þar mestu um. Holmes liflátinn En hann fékk enn engan friö: útgefandinn og lesendur vildu fá meira aö heyra um Holmes og Watson. Enn á ný reyndi hann aö losna undan þessum þrýstingi meö þvi aö fara fram á yfirgengi- lega fjárhæö — aö þessu sinni eitt þúsund sterlingspund fyrir tólf smásögur. En útgefandinn kom honum aftur á óvart og sam- þykkti kröfuna umyrðalaust. Conan Doyle varö þvi að skrifa þær, hvort sem honum likaöi bet- ur eöa verr, en ákvaö aö sjá til þess, aö þar meö væri endir bund- inn á feril spæjarans. t siöustu sögunni i þessum flokki, sem hann nefndi einfaldlega „The Final Problem” eöa „Siöasta vandamáliö”, lét hann Sherlock Holmes falla til dauöa i glimu viö erkióvin sinn, Moriarty prófess- or, viö Reichenbach fossana. Þegar þessi saga birtist uröu aðdáendur Holmes reiöir mjög. Þeir sendu fjöldan allan af skammarbréfum til útgefanda og höfundar, og margir tóku upp á þvi aö bera svart sorgarband um arminn! Conan Doyle lét þaö þó ekkert á sig fá, heldur helgaði sig ritun skáldsagna og leikrita meö sagn- fræöilegu ivafi, auk þess sem hann þurfti aö hjúkra konu sinni, sem veiktist mjög alvarlega um svipaö leyti. Meöal bóka hans þessi árin eru „The Stark Munro Letters”, sem hafa ævisögulegan bakgrunn, leikritiö „Waterloo”, röö skáldsagna frá Napóleons- timanum sem nefndust „The Ex- ploits of Brigadier Gerard”, og skáldsöguna „Rodney Stone”. Þá var leikrit, byggt á sögunum um Sherlock Holmes, sýnt i Banda- rikjunum á þessum árum viö miklar vinsældir, en nýjar sögur um spæjarann neitaöi Conan Doyle staöfastlega aö skrifa. i Búastríðið I október árið 1899 varö veruleg breyting á högum Arthur Conan Doyle — aö hans eigin vali. Þá braust Buastriöiö út, og Bretar sendu hersveitir sinar til Suöur- Afriku til bardaga þar. Conan Doyle bauö sig þegar fram til her- þjónustu, en honum var hafnaö. Hins vegar tókst honum aö kom- ast i læknasveit, sem send var á vegum Longman sjúkrahússins til vlgvallanna i Suöur-Afriku, og brátt var hann kominn á vig- stöðvarnar viö Bloemfontein. Læknasveitin var mjög illa búin til sinna starfa, ekki sist þegar mikil hitasóttarfarsótt fór um svæöiö, og Conan Doyle þurfti aö leggja mjög hart aö sér. Hann fylgdist jafnframt vel meö gangi mála i striðinu, og gagnrýndi harölega mistök bresku her- stjórnarinnar, en af þeim var nóg i þessu striði. Þegar heim kom skrifaöi hann bók um styrjöldina — „The Great Boer War”, og nokkru siöar aöra — „The War in South Africa: It’s Cause and Con- duct” —, þar sem hann varöi mjög málstaö óbreyttra breskra hermanna, sem höföu veriö sak- aðir um margháttaöa villi- mennsku. Hann hlaut viöa góöar undirtektir, en þær dugöu honum þó ekki þegar hann bauö sig fram til þings, svo hann náöi ekki kjöri. Baskerville- hundurinn 011 þessi ár haföi Conan Doyle visaö öllum beiönum um fleiri Sherlock Holmes sögur á bug: Holmes væri dauöur og væri þaö vel. Þegar hann hins vegar dvaldi sér til hvildar eftir erfiöleika Búastriösins i Norfolk i mars áriö 1901, varö á þessu nokkur breyt- ing. Hann lék þar daglega golf viö vin sinn, Fletcher Robinson aö nafni. Dag nokkurn, þegar rign- ingin hindraöi þá i golfiþróttinni, sátu þeir félagar fyrir framan ar- ineld og Robinson sagöi sögur frá Dartmoor-heiöinni, sem er mjög umfangsmikil og skuggaleg. Einkum fjallaöi hann um ýmsar Holmes snéri aftur — „The Empty House’LÞá flutti Watson á nýjan leik til Bakarastrætis á- samt Holmes. Vinnubrögð og hegðan Að sjálfsögðu er mikið um lýs- ingar á hegðan Holmes og vinnu- brögöum i sögunum. Sumt er að sjálfsögðu óaöskiljanlegur hluti persónuleika hans: pipan og fiöl- an svo dæmi séu tekin. Hann undi sér illa þegar hann var ekki að vinna aö einhverju verkefni, og snéri sér þá — eink- um ifyrstu sögunum — að kókaini til að eyða leiðanum. 1 siöari sög- unum er þó látiö i þaö skina, aö mjög hafi dregið úr eiturlyfja- neyslu hans. Þegar Holmes var á eftir glæpamönnum komst ekkert ann- að aö ihuga hans, og hann minnti þá einna helst á veiðihund að stökkva á bráö — Þaö kom roöi i kinnarnar og hörkudrættir i and- litiö, augnabrúnir hans urðu aö tveimur hörðum, beinum linum, og undir þeim glitti I stálkalt augnaráöiö, svo vitnaö sé til lýs- ingar i „The Boscombe Valley Mystery”. En þess á milli var hann allur annar maöur, einkum þegar hann lék á Stradivarius-fiöluna si'na eða hlustaöi á tónlist, sem aðrir fluttu: „Allan eftirmiödaginn sat hann hamingjusamur i salnum, lét langa mjóa fingur sinar mjúk- lega fylgja tónhljóöfallinu, og dreymin augun voru eins ólik augum veiöihundsins Holmes, hins einarða, skarpgáfaöa og á- vallt viöbúna rannsóknarlög- reglumanns, og hugsast getur. Þannig birtust til skiptis hinir tveir gjörólfku þættir i' skapgerð hans.” Holmes leysti mikinn hluta vandamálanna með þvi einu aö sitja i stólnum sinum, reykja margarpipur og hugsa af rökvisi um þær staöreyndir málsins er fyrirlágu.Enfyrstvar aö fá stað- reyndimar: „Þaö eru grundvall- armistök aö búa sér til kenningu um mál áöur en staöreyndirnar liggja allar fyrir”var ein af meg- inreglum hans. Holmes tók að sjálfsögðu eftir þvi, sem aörir litu framhjá . Hann lagði oft á það áherslu við Wat- son,að þeirsæju báöir þaðsama: mismunurinn á milli þeirra væri sá, að hann, Holmes, tæki eftir þvi sem hann sæi og drægi siöan af þvi rökréttar ályktanir. Eitt frægt dæmi um þetta er úr sögunni „Silver Blaze”, þar sem eftirfarandi samtal á sér stað á milli Holmes og Gregory lög- reglufulltrúa: Gregory: „Er þaö nokkuö fleira, sem þú vilt vekja athygli mina á?” Holmes: ,,Já, skritna atvikiö varöandi hundinn um nóttina”. Gregory: „En hundurinn geröi ekkert um nóttina”. Holmes: „Þaö var skrítna at- vikiö”. I þessu tilviki, eins og svo mörgum öðrum, sönnuðust önnur ummæli Holmes, sem sé: „Heim- urinn er uppfullur af augljósum hlutum, sem enginn maöur tekur nokkru sinni eftir”. Takmarkanir Holmes 1 einni af sögunum um Sherlock Holmes gerir Watson sér þaö til dundurs aö skrifa „takmarkanir Holmes” og er þaö upptalning i tólf liöum. Þar segir Watson um félaga sinn, aö þekking hans á bókmenntum sé engin. Sama sé aö segja um heimspeki og stjörnufræði. Þekking hans á stjórnmálum sé litil. Þegar kemur aö raunvisindun- um breytist einkunnargjöfin. Um grasafræðisegir, að þekking hans sé nokkuö breytileg. Hann sé t.d. vel aö sér um ópi'um og önnur eit- urefni, en viti hins vegar ekkert um almenna garörækt. Um jaröfræöinga segir aö þekking hans sé aö visu takmörk- uð, en þó mikil á vissum sviöum. Hann geti t.d. strax greint mis- munandi tegundir jarövegs. „Eftir gönguferöir hefur hann eyrun. Þau hafa þaö sérkennilega lag sem einkennir hnefaleikara”. „Nokkuð annaö?” „Þú hefur þurftaö grafa mikiö meö höndunum”. „Ég græddi allt mitt fé í gull- námunum”. „Þú hefur verið á Nýja Sjála ndi”. „Aftur rétt”. „Þú hefur heimsótt Japan”. „Alveg rétt”. „Og þú hefur veriö mjög ná- tengdur einhverjum, sem ber upphafsstafina J.A., en honum hefur þú siðar reynt m jög ákveö- iö aö gleyma”. Trevor stóö hægt upp, staröi á mig bláum augunum meö undar- lega ofsafengnu augnaráöi, en féll siðar fram fyrir sig á boröiö svo hneturnar dreiföust yfir allan dúkinn. Það haföi liöiö yfir hann”. Þótt þaö hafi ekki liöiö yfir marga, þegar Holmes dró réttar ályktanir af þvi, sem hann tók eftir í fari annarra, þá kom hann öllum alltaf jafn mikiö á óvart. En á eftir, þiegar hann hafði út- skýrt, hvernig hann komst að niðurstööum sinum, voru allir alltaf jafn hissa á þvi, að þeim skyldi ekki hafa dottiö þetta i hug! Fram kemur hjá Holmes, aö eftir aö hann leysti gátuna um „Gloriu Scott” hafi honum fyrst hugkvæmstaö nota þær aöferöir, sem hann haföi þjálfað meö sér, til þess aö leysa flókin sakamál. Einnig, aö aöferöir hans vöktu athygli og umtal á seinni há- skólaárum hans. AB náminu loknu leigöi Hdmes ibúö viö Montague Street, sem er rétt hjá British Museum, og þar stundaöi hann ýmis þau visindi, sem hann taldi að gætu komiö aö góöu haldi viö lausn glæpamála. Holmes og Watson hittast Conan Doyle lét eina aöra af smááögunum gerast áöur en þeir Homes og Watson hittust á St. Bartholomew’s sjúkrahúsinu i London, þóttsá fundur eigisér aö sjálfsögðu staö i fyrstu sögunni, sem Conan Doyle skrifaöi um þá félaga — þ.e. „A Study in Scar- let”. Watson hafði þá komiöheim frá þvi að gegna herþjónustu i Afganistan, en þar haföi hann særst og var alllengi að ná sér eftir þá atburöi. Vinur þeirra beggja,Stamford aðnafni, kynnti þá, þar sem hann komst að þvi, að þeir voru báöir aö leita sér að herbergisfélaga. Þegar Stamford og Watson stigu inn I rannsóknarstofuna, þar sem Holmes var aö vinna við tilraunir sinar, kom Holmes hlaupandi á móti þeim meö til- raunaglas i hendinni og hrópaöi: „Ég hef fundiö þaö! Ég hef fundiö þaö!” Watson lýsir Holmes þannig viö þessi fyrstu kynni, aö hann hafi útlits sins vegna hlotið aö vekja athygli sérhvers sem sá hann. „Hannvar rúmlega sex fet á hæö, en svo óvenjulega grannur aö hann virtist mun hærri. Augu hans voru skörp og stingandi, og mjótt hauksnefiö gaf svip hans yfirbragð árvekni og ákveðni.”. Lesendur „The Strand” fengu fljótlega aö sjá teikningar af Holmes, sem samræmdust vel lýsingum Conan Doyles. Siöar komu kvikmyndirnar til sögunn- ar, og þótt margir hafi leikiö Holmes á hvita tjaldinu, mun þó Basil Rathbone vera, I hugum margra, hinn eini sanni Sherlock Holmes. Athyglisvert er hversu útlit hans kemur vel heim og saman við þær lýsingar, sem Conan Doyle gefur af söguhetju sinni. Eftir fyrstu kynnin tekst vin- átta með þeim Holmes og Watson og þeir leigja sér saman ibúð viö Bakarastræti 221, og þar bjó Holmes um langa hriö — eöa þar til hann dró sig i hlé á efri árum og flutti út i sveit. W atson bjó hins vegar ekki viö Bakarastræti nema hluta þess timabils, sem Conan Doyle lýsir, þar sem höf- undurinn skellti honum i hjóna- band ílok annarrar skáldsögunn- ar — „The Sign of Four”—-og los- aöi hann ekki viö eiginkonuna fyrr en I fyrstu sögunni eftir aö ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.