Tíminn - 08.01.1982, Blaðsíða 3

Tíminn - 08.01.1982, Blaðsíða 3
Föstudagur 8. janúar 1982 3 Freistaðu gæfunnar! r •••••■■■ ■■■••••• •■•• • ■•■ • ••• • •••• ■ ■••• • ••• • ••• ■■•••••• ••••■■■■ •••• ■••• ■■■■■ • •••• •■■• L ■■•■ ••••• • ■■■■ A Fyrir 30 kr. á mánuði áttu kost á ríflegum glaðningi sem getur gerbreytt fjárhagsstöðu þinni. Fjárhagsáaetlun Reykjavíkur- borgar: Samþykkt í nótt ■ Fjárhagsáætlun Reykjavikur- borgar fyrir áriö 1982 var sam- þykkt viö seinni umræðu á fundi borgarstjómar sem stóö fram á nótt. Ýmsar breytingar voru gerðar á áætluninni frá þvi við fyrri umræðu, bæði á tekju- og út- gjaldaliðum. Komiðhafði Iljds að framlag Ur Jöfnunarsjóði sveitar- félaga hafði verið vanáætlað um 150 kr. á hvern ibúa borgarinnar. Einnig var aidanlega gengið frá styrkveitingum til félaga og ýmissa samtaka. Eins og frumvarpiö var sam- þykkt þá nema rekstrartekjur borgarinnar á þessu ári um 970 millj. kr. Er það 53.24% hækkun frá áætlun síðasta árs. Rekstrar- útgjöld að meðtalinni gatna- og holræsagerð verður 772 millj. kr., og hafa hækkað um 61.76% frá fyrra ári. Nema rekstrarútgjöld- in þá 79.6% af tekjum, en af- gangur til eignabreytinga varð um 198millj. kr., eða rúm 20% af tekjum. Heildarupphæð eignar- breytingafjár sem aðallega fer til framkvæmda er tæpar 267 millj. kr. þegar tekiðhefur verið tillit til lántaka. Nema lántökur um 26% af öllu þvi fé sem varið er til eignabreytinga. Miklar umræöur urðu um fjár- hagsáætlunina á fundi borgar- stjórnar i' gærkveldi og nótt. Sjálfstæðismenn báru fram til- lögur um lækkun útsvars i 11% i stað 11.88% eins og reiknað er með iáæthininni. Lögöu þeir jafn- framt til niðurskurö á ýmsum liðum, bæði i rekstri og fram- kvæmdafé,tilað vega upp á móti tekjutapinu. Tillögurnar náðu hins vegar ekki fram að ganga, þar sem þær hlutu ekki náð fyrir augum meirihlutans. Töluðu sjálfstæðismenn um að fjármála- stjórn Reykjavikurborgar væri öll komin Ur böndum á þessu kjörtimabili, þannig að verstu hrakspár um stjórn vinstri m eiri- hlutans hefðu nú ræst. Fulltrúar meirihlutans i borgarstjórn bentu hins vegar á hið gagnstæða og færöu rök fyrir þvf að sjaldan heföi fjármála- stjóm borgarinnar verið meö betra móti. Kristján Benediktsson sagði að fjárhagsáætlunargerð heföi batnað verulega eftir að nýr meirihluti tók við og væri nú mun vandaðri en áður hefði tiðkast. Bentihann á að siöustu þrjú árin hefði aldrei þurft að taka upp fjárhagsáætlun borgarinnar á miðju ári, eins og hefði þó tiðkast i stórum stil á valdadögum Sjálf- stæðisftokksins. Frekar verður sagt frá umræð- um i borgarstjórn um fjárhags- áætlunina sfðar. —Kás „Akveðnari með hverjum deginum” ■ „Min persónulega skoðun er sú, að fiskverð þurfi að hækka um 18-20% sagði Guðjón, skipstjóri á Páli Pálssyni frá Hnifsdal og for- maður Skipstjóra og stýrimanna- félagsins Bylgjunnar i gær. Um tillögu Steingrims Her- mannssonar sjá varútvegs- ráðherra sagði Guðjón, að það hafi verið mistök að hafna henni alfarið, vegna þess að um allar tillögur eigi að f jalla og skoða vel.Umþaðhvortsjómenn vestra séu tilbúnir að vera i landi miklu lengur sagöi hann aö menn „þjöppuðust saman og yrðu ákveðnari með hverjum deginum sem liði”. „Mér finnst það alveg hrikalegt aö örfáir menn geti leyft sér að hafa atvinnu og lifsafkomu fleiri þúsund manns i landinu i hendi sérog neita að ræða tillögur rikis- stjórnarinnar”, sagði Hagalin Guðnason vélstjóri á skut- togaranum Dagrúnu i Bolungar- vik. „Þvi forsenda þess að sam- komulag náist er að menn ræðist við i alvöru. Við megum sitja heima og horfa upp á þessa menn svo til aðgerðarlausa og ekkert gerist i málinu. Flotinn i höfn og atvinnulif svo til algerlega lamað”. Um oliugjaldið sagði Hagalin að sér fyndist það svolitið einkennilegt að sjómenn þurfi einir að styrkja orkunotkun með greiðslu af launum sinum. „Frystihúsin eru rekin með halla. Þvi ekki að taka þá 7% úr launa- umslögum þeirra sem þar vinna til að borga upp i þeirra orku- notkun”, sagði Hagalin að lokum. „Hjá Fiskverkun Einars Guð- finnssonar h.f. liggur öll vinna nibri nema hvað öríáir menn vinna að viðhaldi og skreiðar- mati”, sagði Einar K. Guðjóns- son. Um það hve langan tima taki að koma öllu i gang aftur sagði hann að þeir stæðu vel að vigi þar sem linubátarnir myndu bjarga miklu þegar róðrar hæfust aftur i stað þess að þurfa að biða eftir þvi að togararnir komi inn. Enn- fremur gat Einar þess, að hjá fyrirtækjum E.G. hefði engu fast- ráðnu starfsfólki verið sagt upp vegna þessa ástands. —G.J.lsafirði/HEI Haföu þessar staðreyndir í huga: Allar þær 136 milljónir sem HHÍ greiðir í vinninga í áreru skattfrjálsar. Milljónin sem getur lent á trompmiðanum er það líka. Ekkert annað happdrætti hefur hærra vinnigshlutfall. Vinningaskrá: 9 @ 200.000,- 1.800.000,- 9 — 50.000,- 450.000,- 9 — 30.000,- 270.000,- 198 — 20.000,- 3.960.000- 1.053 — 7.500- 7.897.500,- 27.198 — 1.500- 40.797.000,- 106.074 — 750- 79.555.500- 134.550 450 3.000,- 134.730.000.- 1.350.000- 135.000 136.080.000- HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS hefur vinninginn Vinningareru 135 þúsund talsins. Allt í þeinhörðum peningum. Pú þarft ekki að hafa fjármálavittil að reikna út að það er svo sannarlega tilvinnandi að spila með Harka færist í deiluna um „EG TEL AFTURKOLLUNINA VERA HREINA MARKLEYSU — „og vil ekki trúa því að ráðuneytið grípi til lögregluadgerða”, segir Þorsteinn Júlíusson, lögmaður seljenda ■ tithlutunarmenn atvinnuleyfa leigubifreiðastjóra i Reykjavik afturkölluðu i gær, meö samþykki samgönguráðuneytisins 45 at- vinnuleyfi sem fimm erfingjar Steindórs Einarssonar hafa haft til reksturs Bifreiðastöðvar Steindórs undanfarin ár. Tima- mark afturköllunarinnar er miðað viö kl. 14 á morgun. Lögmönnum aðilja var tilkynnt munnlega að erfingjarnir gætu sótt um leyfin að nýju fram til laugardagskvölds vilji þeir firra sig vandræðum sem af aftur- kölluninni leiðir, að þvi tilskyldu að kaupin gangi til baka. Fyrrverandi og núverandi eig- endur Bifreiðastöðvar Steindórs telja að þau atvinnuleyfi sem stööin sé rekin á hafi verið útgefin árið 1956 á nafn stöðvarinnar. Leyfin sem afturkölluð voru i gær eru hins vegar frá árinu 1973 og gefin út á nöfn fimm erfingja Steindórs eins og sagt var frá i Timanum i gær. „Við teljum að þessi atvinnu- leyfi frá árinu 1973 hafi verið byggð á reglugerð sem aldrei hafi hlotið lagagildi þar sem hún var aldrei birt lögum samkvæmt. Þar af leiðir ab við teljum afturköllun leyfanna frá árinu 1956 nákvæm- lega sömu markleysuna, þar sem hún er byggð á þessari sömu ó- birtu reglugerð. I ljósi þessa munum við tilkynna hlutaðeig- andiyfirvöldum að við teljum aft- urköllunina frá þvi i dag vera hreina markleysu þar sem með henni sé verið að afturkalla at- vinnuleyfi sem aldrei hafi verið löglega útgefin og gömlu leyfin frá árinu 1956 þvi i fullu gildi”, sagði Þorsteinn Júliusson annar lögmaður seljenda, Bifreiða- stöðvarinnar Steindórs i samtali viö Timann i gær. „Ég vil ekki trúa þvi”, sagði hann, „að ráöuneytiö fari aö gripa til lögregluaögerða til þess að knýja fram þessa löglausu ákvöröun, sem hefur i för með sér atvinnumissi fyrir þá 34 einstakl- inga sem keyptu Bifreiðastöðina Steindór um áramótin. Sjómenn á Vestf jörðum:

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.