Tíminn - 08.01.1982, Blaðsíða 5
5
Föstudagur 8. janúar 1982
fréttir
■ „Ef eitthvað er, þá er
þetta heldur i rénun.
Okkur sýnist þetta held-
ur ekki eins hættulegt
yfir hraunið eins og þeir
sögðu i útvarpsfréttun-
um”, sagði Gylfi Július-
son, starfsmaður Vega-
gerðarinnar i Vik, um
miðjan dag i gær.
„Þetta var ekki neitt sérscak-
lega alvarlegt i dag. Allavega
ekki hva6 varðar vegi og brýr”,
sagði Gylfi þegar haft var sam-
band við hann aftur i gærkvöldi,
en þá voru þeir vegagerðarmenn
fyrir nokkru komnir úr ferð aust-
ur að flóðasVæðinu. Aðeins Skaft-
árdalur hafði misst vegasam-
band, en allir bilar eigi að komast
óhindrað hringveginn, þótt sums-
staðar geti kannski vætlað yfir
veginn. Töldu menn þvi vegi og
brýr á þessu svæði úr allri hættu i
þessu hlaupi.
Hlaupið
í Skaftá í
rénum:
■ Þetta er sú brú á Skaftá sem menn töldu i mestri hættu, þar sem óttast er að hún standi á nokkrum brauðfótum, þ.e. að áin grafi undan
a.m.k. öðrum stólpa hennar. Ekki virtist hún þó i sjáanlegri hættu I gær. (Timamyndir: ELLA)
TAUÐ AÐ VEGIR OG BRYR
SÉU ÚR ALLRI HÆTTU
■ Auðsjáanlega var mikiil straumur f ánni undir brúnni næst Skaftárdal þótt Böðvar
bóndi segði vatnið heldur farið að lækka aftur.
■ Þessi mynd var tekin nokkru vestan við Kirkjubæjarklaustur ummiðjandagf gær.
Litillega flæddi þar yfir veginn, en ekki svo aö hindra ætti umferð.
„Ekki með meiriháttar
hlaupum”
„Þetta hefur heldur vaxið hér
hjá okkur frá þvi i gær, en maður
er þó að halda að það vaxi ekki
mikið meir úr þessu. Og fari það
ekki hærra held ég að vegir og
brýr séu ekki i hættu lengur.
Þetta er ekki með meiriháttar
hlaupum. Þau hafa oft verið
miklu meiri”, sagði Sæmundur
Björnsson i Múla i Skaftártung-
um i samtali um miðjan dag i
gær.
Hann sagði hlaupið ekkert baga
sig, fé sé á húsum og tún eða hús
ekki i neinni hættu. Sæmundur
sagði nokkuð misjafnt hve hlaup i
Skaftá standi lengi. Það taki
venjulega svona viku að hjaðna.
„Það er heldur farið að minnka
hérna”, sagði Böðvar bóndi i
Skaftárdal, en hann varð sem
kunnugt er vegasambandslaus i
gær, vegna þess að vatn rann yfir
veginn.
Böðvar sagðist nýkominn frá
vatninu og sýndist það heldur far-
ið að lækka. Hann var enn ekki
kominn i vegasamband, en tók
þvi heldur rólega. Hann væri með
mjólkurframleiðslu, þannig að
meðan ekkert sé að, engin hús i
hættu eða nokkur veikur, sé þetta
svo sem allt i lagi. Hlaupið hafði
ekki farið nálægt neinum gripa-
húsum.
„Hér á Klaustri sjáum við ekk-
ert af hlaupinu. Það er rétt litur á
ánni, en vatnið hefur ekki vaxið
neitt hér, enda eigum við heldur
ekki von á þvi vegna stiflu hér
fyrir vestan okkur”, sagði Hörður
Daviðsson i Efrivik.
— HEI
■ Skeftá dreifir úr sér vitt og
breitt um aurana
■ ■ ■ —>