Tíminn - 08.01.1982, Blaðsíða 4

Tíminn - 08.01.1982, Blaðsíða 4
Föstudagur 8. janúar 1982 stuttar fréttir f réttir ■88 a ~*»*rr B Frá Flateyri: Þar var veöur meö eindæmum leiöinlegt milli jóla og nýárs. ,, U mburðarlynd ið fyrir náttúru- öflunum stórkostlegt’ ’ FLATE YRl: „Veörið var með ágætum hér á Flateyri yfir jóladagana snjór var tölu- verður en miklar stillur. Jólin gengu i garð með sinum heilagleika hér eins og annarsstaðar á landinu” sagði Björk Gunnarsdóttir á Flat- eyri er Timinn haföi samband við hana á þrettándanum til að leita almennra frétta eftir hátiðarnar. „Milli jóla og nýárs var veðrið hins vegar eindæma leiðinlegt, mikill snjór, hvass- viðri og umhleypingar. En umburðarlyndi Vestfirðinga fyrir náttiiruöflunum er svo stórkostlegt að fyrir mig er það mikill skóli”, sagði Björk, sem bjó i þéttbýlinu sunnan- lands þar til fyrir tveim og halfu ári. „Kvenfélagið hélt sitt ár- lega jólaball þar sem öllum er boðið jafnt ungum sem öldn- um og allar veitingar eru gefnar. Yngstu börnin eru frá kl. 3-6 og þau eldri frá kl. 8-12 á miðnætti. Tvær konur léku hin hefðbundnu jólalög á pianó „Ógnvekjandi upplýsingar” ÍSAFJÖRDUR: „bað voru ógnvekjandi upplýsingar sem fundarmenn hlýddu á, enda þótt m enn hefðu vitað fyrir, aö ástandið gæfi ekki tilefni til bjartsýni ”, segir i frétt frá opnum umræðufundi á ísafirði undirorðunum „Hverjum ber að tryggja friðinn?” Forsögumaður á fundinum var dr. Gunnar Kristjánsson sóknarprestur á Reynivöllum i Kjós. Greindi hann frá at- hugunum sinum á hernaðar- uppbyggingu stórveldanna og hins vegar eöli og starfi friö- arhreyfinga þeirra er mikið hafa látið til sin taka i Evrópu að undanförnu. Einnig sagði hann frá afskiptum Alkirkju- ráðsins af friðarmálum, en hann hefur sótt fundi á þess vegum. t ræðum flestra komu fram það álit, að heimsfriðurinn væri ekki einkamál þeirra sem yfir tortimingarvopnum réöu, heldur varði það mál hvern og einn er tilheyri þessu mannkyni. Skirskotað var til yfirskriftar fundarins. Komiö sé að hverjum og einum að hefjast handa að heimta af- vopnun. Fundarboðandi var Friðar- nefndin á Isafirði i samstarfi við MálfundaklUbb Mennta- skólans á Isafiröi. I nefndinni eru um þessar mundir þeir: Björn Teitsson, skólameistari, Finnbogi Hermannsson, blaðamaður, Jakob Hjálmars- son, sóknarprestur, Pétur Sig- meðan gengið var kringum jólatréö en siöan spilaði hljómsveit staöarins fyrir dansi. Þama skemmtu sérall- ir saman ungir og aldnir og man ég ekki eftir því að hafa skemmtmér eins vel og i þetta sinn. Hér á Flateyri er það lika vani að halda skemmtun eftir kl. 24 á miðnætti aöfaranótt 2. jóladags. Skilst mér að þessi timimiðist við búsetu fólks og starf hér um slóðir, þ.e. sjó- mennskuna. Þá hafði Leikfélag Flateyr- ar sina lokasýningu á leikrit- inu „Margt býr i þokunni” um jólin. Búið var að fara með það til Bolungarvikur, Suður- eyrar og Þingeyrar, en vegna ófæröar yfir Breiödalsheiði gátum við ekki sýnt Isfirðing- um leikritið. Að lokum get ég ekki latið hjá liöa að minnast á flug- félagið Amarflug sem flýgur hingað 3 i viku, þvi þjónusta þess er alveg stórkostleg og okkur hreint ómetanleg”, sagöi Björk. —HEI urðsson, forseti A.S.V. og Þor- valdur örn Arnason, kennari. — HEI Öll björgunar- net með Ijós- um framvegis HAFNARFJÖRÐUR: „Sigl- ingamálastjóri hefur orðið við þeirri ósk minni aö ég megi setja lögmæt ljós — eins og þau sem viðurkennd eru af Siglingamálastofnun á bjarg- hringjum — á björgunarnet það er ég hef hannaö og fundið upp, og jafnframt aö ég megi nota lögmæta endurskins- borða, sem í dag eru sett á alla bjarghringi”, segir i frétt frá Markúsi B. Þorgeirssyni, bj ör gun ar ne tahö nnu ði. Segist hann nú þegar hafa pantað ljós á þau 100 björgun- arnet sem nú biði afgreiðslu hjá sér. „Þar með afhendi ég engin björgunarnet frá mér framvegis öðmvisi en með lögmætum ljósum og endur- skinsborðum. Þvi mælist ég til við þá útgerðarmenn, skip- stjóra og skipafélög, sem fengið hafa net hjá mér til þessa, aðhafa sem allra fyrst samband við mig svo ég geti pantað ljós fyrir þá”, ssgir Markús. Jafnframt segir hann nú i athugun á erlendum vett- vangi, útvegun á korki er sé sjálflýsandi i myrkri og hand- hægra linubyssa er tengdar verði hverju neti, 100 til 150 metra liftaug frá skipi. — HEI Frumathuganir á kísilmálmframleiðslu hér á landi: ARDBÆR OG ÞJÖD- Tf HAGSIÍGA HAGKVÆM V ■ „Niðurstöður frumathugana benda til þess aö kisilmálmfram- leiðsla á Islandi getiorðið aröbær og þjóðhagslega hagkvæm en ýmsir þættireiga eftir að skýrast beturá næstunni”, segiri áfanga- niðurstöðum verkefnastjórnar iðnaðarráðuneytisins sem unniö hefur að áfangaskýrslu II varð- andi byggingu og rekstri á 25-30 þús. tonna klsilmálmverksmiðju á Reyðarfirði. I frétt frá iðnaðarráðuneytinu segir: „Aætlaður stofnkostnaður 25 þús. tonna verksmiðju er rúm- lega 600 m.kr og árlegt fram- leiðsluverðmæti áætlað um 280 m.kr. að meðaltali. Arðsemi heildarfjárfestingar er talin geta numiö 12.9% miðað við 20 ára endingartfma verksmiðju. I samþykkt rikisstjórnarinnar frá 27. nóvember sl. kemur framað kisilmálmverksmiðjan veröi staðsettá Reyðarfirði. Athuganir hafa leitt i ljós að aðstæður þar eru góðar, m.a. benda rannsóknir á hafnaraöstöðutilþess að hún sé með þvi besta sem gerist hér- lendis fyrir stór skip”. Öformleg tilboð hafa borist i tæki og vélar i verksmiðjuna og verður unnið að samanburöi á þeim á næstu mánuðum, með það i huga að ákveðin verði endanleg stærðofna og fleira. Miðað er við að formleg tilboð liggi fyrir frá tækjarframleiöendum i lok febrti- ar 1982. Þ.egar lokaniðurstöður hag- kvæmniathugunar liggja fyrir er reiknað með að hægt verði að taka endanlega afstöðu til máls- ins, en búist er við að það verði siðar i vetur. —AB Stórbruni í netagerð í Vestmannaeyjum: Kviknaði í út frá 99 rakettu eða blysi” segir Ingólfur Theódórsson, netagerðarmeistari ■ „Það er komið i ljós# alveg pottþétt,að það kviknaði i út frá rakettu eða blysi sem hefur brætt sig i gegnum stálið”, sagði Ingólfur Theódórsson neta- gerðarmeistari i Vestmannaeyj- um i samtali i gær, en i fyrra- kvöld kviknaði i þaki netagerðar hans i Eyjum, þannig að um hálft þakiö er ónýtt. Einnig kvað hann tjón á raflögnum. Ingólfur sagði hins vegar bygg- ingaraðferð þaksins hafa bjargað húsinu frá stórbruna. Þakið er byggt með öryggi gagnvart bruna þ.e. sperrur eru allar úr li'mtrjám og klæðing neðan á þaki einnig Ur stáli i' stað timburklæðningar eins og venja er. Eldurinn fór þvi að- eins i gegn um efri stálklæðing- una og I einangrunina en ekki niður i vinnslusalinn sem hann hefði gert ef klætt hefði verið með timbri. Hann sagði eldinn hafa kviknað út frá nokkurskonar svifblysi sem ekki virtist hafa farið hærra en upp á þakið, þar sem það hafi sprungið og tfrætt sig i gegn. Þau geti þvi greinilega verið stór- hættuleg. Ingólfur kvaðst ekki vita enn hve tjóniðsé mikið i fjármunum. Spurður um tryggingabætur sagði hann Brunabótafélagið hafa neitað að borga bráöabirgðavið- gerö. Á þakinu sé sænskt stál sem taki um hálfan annan mánuð að útvega. En B.I. virðist heldur vilja rifa járnið af öllu þakinu og endurnýja það með annarskonar járni heldur en að borga bráða- birgðaviðgerð. „Bæði er þetta vitlaust og auk þess ekki hægt að standa i þessu um hávetur”, sagði Ingólfur. „En ég er bara að vona að m atsmennirnir sem koma frá Brunabótafélaginu á morgun sjái hvaö bráðabirgða- viðgerð mundi kosta þá miklu minna”. __hÉI ■ Þó enn sé langt i hvalvertiðina er þegar farið að dytta að hvai- veiðiskipunum i Reykjavikurhöfn. Þessi heiðursmaður var aö brenna rusli um borð i einu þeirra. Timamynd: Róbert Heildsala Smásala & SPORTVAL Hlemmtorgi — Simi 14390 OMOIVI Öryggisins vegna

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.