Tíminn - 08.01.1982, Blaðsíða 10
Föstudagur 8. janúar 1982
10_________________________________________IFromro
heimilistíminn Umsjón: B.St. og K.L.
Loksins „opið hús” fyr-
ir blinda og sjónskerta
— segir Ásgerdur Ólafsdóttir blindraráðgjafi
■ Ásgeröur ólafsdóttir
blindraráðgjafi er kenn-
ari aö mennt. Hún er gift
Sigurði Rúnari Jónssyni
tónlistarmanni og eiga
þau einn son, ólaf Kjart-
an, sem er 13 ára. Hún
hefur unnið við kennslu/
en undanfarið 1 1/2 ár
hefur Asgerður starfað
sem blindraráðgjafi hjá
Blindrafélaginu/ samtök-
um blindra og sjón-
skertraá íslandi. Eftirað
hún hóf störf þar var hún
send í starfsþjálfun til
norsku blindrasamtak-
anna og kynnti hún sér
þar málefni blindra og
sjónskertra og hvernig
þar var háttað ráðgjöf við
þá.
Þriftjudagur 15. desem-
ber 11)81
Ég vaknaöi kl.7.30 i morgun
til að vekja son minn sem þarf
að fara meö 8-strætó i skólann.
Hann var að venju syfjaður og
dálitið úrillur, svo ég fór fram
úrog hafði tilnestið hans. Þegar
hann var farinn út i myrkrið og
kuldann, skreið ég aftur upp i
rúm til að njóta til hins ýtrasta
hálftimans sem ég get blundað
lengur á morgnana. Mikið hvað
manni þykir vænt um rúmið sitt
á morgnana. Ég dormaðii' rúm-
inu til kl.8.30 og þá var orðið of
áliðið til að hægt væri aö borða
morgunmat, þvi tæplega hálf-
tima ferð var fyrir höndum. Ég
bý nefnilega i' Breiöholtinu
„fyrir ofan snjólinu” eins og
einhver sagði, og það tekur
drjúgan ti'ma að keyra eigin-
manninn i sina vinnu niður i
miðbæ og fara siðan sjálf i vinnu
upp i Hliðar.
Ég var komin i vinnuna kl.9,
en ég vinn hjá Blindrafélaginu
að Ham rahlið 17. Það er notaleg
tilfinning að mæta i vinnuna á
mœ'gnana og vita af sjóðandi
heitum kaffisopa i eldhúsinu hjá
Pálínu matráöskonu. Starf mitt
er fjölbreytt og lifandi og hver
dagur þvi spennandi. Ekki
skiptir minnst máli að ákaflega
góðurstarfsandier hjá Blindra-
félaginu og fólk er létt i skapi.
Dagurinn byrjar á þvi að við
Rósa Guðmundsdóttir, sem
vinnur með mér, hittumst og
ræöum hvaö gera skal i dag. Við
erum dálitið spenntar, þvi nú er
komið að þvi' sem við höfum
veriö að undirbúa lengi, en það
er að hafa „opið hús” fyrir
blinda og sjönskerta sem eru 67
ára eöa eldri. Viö höfum ekki
getað byrjað fyrr vegna þess að
akstursþjónusta var ekki komin
á fyrir þennan hóp en nú er hún
hafin og þvi ekki eftir neinu að
biða.
En hópurinn kemur ekki fyrr
en eftirhádegi og morguninn fer
að mestu i bréfaskriftir og að
svara isimann. Siminn erlifleg-
ur i dag, einn spyr hvort
blindraúrið sitt sé komið Ur við-
gerð, annar þarf aö fá Hljóð-
bókaskrá og sá þriðji er með bil-
að kassettutæki. En það hljóm-
are.t.v. undarlega að kassettu-
tæki eru eitt aðal-hjálpartæki
blindra og sjónskertra, þvi það
gerir þeim kleift að hlusta á
bækur sem lesnar hafa verið inn
á kassettur.
í kaffitimanum er mikið
skrafað að vanda og í dag er að-
alumræðuefnið hvaða aðferð er
notuð til aösneiða niður brauð i
bakari'um. Annars eru umræður
i kaffinu venjulega liflegar eins
og áöur segir og skrafað er um
hin ólikustu málefni.
t matarhléinu sitjum við Anna
Jóna, sem vinnur á skrifstof-
unni, og prjónum hvor í kapp við
aðra, endaerum við að ljúka við
jólagjafir.
Kl. eitt hittumst við Rósa aft-
ur og förum yfir helstu dag-
skrárliöi opna hússins. Rétt
fyrir kl.tvö kemur svo billinn
með gestina okkar og við förum
inn i dagstofu. Gestirnir eru ell-
efu talsins og einnig eru með
okkur Halldór Rafnar, formað-
ur Blindrafélagsins, og séra
Tómas Sveinsson prestur i Há-
teigssókn.
Halldór ávarpar hópinn i
byrjun og siðan les séra Tómas
frásögn af jólahaldi áður fyrr.
Við Rósa sýnum fólkinu spil
fyrir blinda og sjónskerta og
bræðurnir Arnþór og Gisli
Helgasynir leika fyrir okkur á
flautu og pianó. Siðan er borið
fram kaffiog meðlæti, en þann
þátt annast sjálfboðaliðar úr
Kvenfélagi Háteigssóknar.
Dagurinn lföur fljótt og mikið
errabbað saman. Billinn kemur
svo kl. 17.30 og sækir fólkið og
við Rósa setjumst niður smá-
stund, ánægöar með daginn.
En nú rennur upp fyrir mér að
klukkan er að verða sex, og ég
þarf aö hraöa mér i bæinn til aö
sækja egg sem kaupmaðurinn
minn á horninu lofaði aö taka
frá fyrir mig. Ég fæ eggin, svo
nú getum við mæðginin skemmt
okkur við smákökubakstur eitt-
hvert kvöldið.
Mér finnst þessi dagur hafa
verið svo góður, að ég er ekki i
neinu skapi til að fara heim og
elda mat, svo ég næ i eigin-
manninn i vinnuna og sting upp
á þvi að við förum út að borða.
Það verður úr og við förum á
Veitingahúsiö Torfuna og borð-
um snigia og fisk. Mikill munur
er að búa i Reykjavik siðan
maður gat fariö aö leyfa sér að
fara út að borða oftar en einu
sinni á ári.
Að lokinni gómsætri máltið
förum við og sækjum soninn til
afa og ömmu sem höfðu boöið
honum i mat. Siðan er brunaö i
Breiðholtið og horft á Vikingana
i sjónvarpinu. Þegar sá þáttur
er búinn, nenni ég ekki að horfa
lengur og grip bók sem sonur
minn keypti vegna fermingar-
undirbúnings. Þetta er bókin
„Lif með Jesú”, falleg útlits og
mikið myndskreytt, en ég verö
undrandi þegar ég fer að lesa. 'í
bókinni finnst mér mikiö um
fullyrðingar sem tæplega fá
staðist i okkar þjóðfélagi i dag.
Fram kemur greinilega, að
kjarnafjölskyldumunstrið er
„hið eina rétta” og beinlinis er
fullyrt að fólk eigi ekki að búa
saman i óvigðri sambúö, hvaö
þá að eiga kynlif fyrir hjóna-
bönd. Ég finn að ég verð ösku-
reið við lesturinn, og ákveð þvi
að lesa alla bókina vandlega
siðar þar sem ég er orðin grút-
syfjuö.
Þessi ágæti dagur er á enda
og best að svifa inn i drauma-
landið.
■ Asgeröur á skrifstofu Blindrafélagsins.
Dagur í lífi Ásgerðar Ólafsdóttur blindraráðgjafa
HLYIR PRJONASOKKAR
■ Það er löngu liöin tiö, aö það
þyki svo ófint aö vera hlýtt klædd-
ur i vetrarkuldum, aö fóik láti sig
hafa þaö aö norpa i útlendum
hýjalinsflikum, þegar betur hæfir
aö klæöast ull. Prjónasokkar hafa
t.d. loks náö rétti slnum aftur, en
lengi vel voru þeir i óveröskuld-
aöri ónáö, sérstaklega meöal
kvenfólksins. Hér meö fylgja
uppskriftir aö háum prónasokk-
um og fylgja meö 3 aörar uppá-
stungur um tilbreytingu i
munsturvali.
Efni: 200g garn. Breitt
teygjuband. Sokkaprjónar nr. 2
1/2 og .3.
Prjónafesta: 14 lykkur á prjóna
nr. 3 - 5 sm.
Fitjiö upp 80 1, jafnt deilt niður
á 4 sokkaprjóna nr. 2 1/2 og prjón-
ið 3 sm stroff, 1 r, 1 br. Skiptið yfir
i prjóna nr. 3 og byrjið fyrsta
prjón meö 1 br. x 3 R, 2br. x.
Endurtakið frá X til x og endið
umferöina á 1 br.
Prjónið svona áfram, þar til
komnir eru 22 sm, prjónið þvi
næst 2 1 sm hvorum megin við
brugönu lykkjurnar tvær i 10.
hverri umferð, þar til 60 1 eru eft-
ir.
Brugönu lykkjurnar 2 lenda aft-
an á miöjum kálfa. Deilið nú
lykkjunum jafnt á prjónana, svo
að 15 eru á hverjum prjóni, og
haldiö áfram, þar til komnir eru
48 sm, eða sú lengd, sem þið kjós-
ið. Þá er komið að hælnum, sem
er prjónaöur á eftirfarandi hátt:
Setjiö lykkjurnar af 1. og 4.
prjóni á einn prjón og prjónið
þessar 30 lykkjur með sléttu
prjóni. Lyftið 1. lykkju hvers
prjóns óprjónaðri af, svo að það
myndist „hlekkir” (1 hlekkur
hvorum megin samsvarar 2
prjónum). Prjónið þar til komnir
eru 15 „hlekkir” hvorum megin.
Siöan er tekið úr á eftirfarandi
hátt: Prjónið þar til 13 lykkjur
eru eftir á prjóninum, 2 snúnar
lykkjur saman r, 1 r, snúið við og
prjónið þar til 13 lykkjur eru eftir
á prjóninum, 2 br. sm, 1 br., snúið
við og prjóniö þar til 11 er eftir að
gatinu, 2 sn r sm, 1 r, snúið við og
prjónið þar til 1 1 er eftir aö gat-
inu, 2 br sm, 1 br. Haldið þannig
áfram, þar til allar lykkjur eru
prjónaðar, siöan eru hlekkirnir 15
báöum megin við hælinn veiddir
upp. Hællykkjunum skipt jafnt á 2
prjóna og nú er áfram prjónað i
hring á 4 prjónum (781). A prjón-
um nr. 1 og 4 eru 24 lykkjur og
prjónum nr. 2 og 3 15 lykkjur.
Lykkjurnar á prjónum nr. 2 og 3
eru áfram prjónaðar i munstri
enlykkjurnar á prjónum nr. 1 og 4
eru prjónaðar slétt. Og nú eru
tungurnar prjónaöar á eftirfar-
andi hátt: Siðustu 2 1 á fyrsta
prjóni prjónast sn r sm, og fyrstu
21 á 4. p eru prjónaöar r sm. Þess-
ar úrtökur eru endurteknar i
annarri hverri umferö, þar til 15
lykkjur eru á hverjum prjóni. Nú
er prjónaö beint áfram, þar til
framleisturinn er orðinn 18 sm.
eða eins langur og ykkur hentar.
Þá hefst úrtakan fyrir tánum.
Nú er prjónað slétt prjón á öll-
um prjónum. 1. p.Prjónið þar til 3
lerueftir, 2rsm, lr. 2. p:Prjónið
lr, 2sn sm, prjónið þær 1, sem
eftir eru, sléttar. 3. p.: Eins og 1
p. 4. p: Eins og 2. p. Endurtakið
þessar úrtökur i annarri hverri
umferð þangað til 20 1 eru eftir.
Lykkjurnar af 1. og 4. prjóni sett-
ar á einn prjón og lykkjurnar af 2.
og 3. prjóni á annan. Siðan er fellt
af á þann hátt, að 1 1 af hvorum
prjóni eru prjónaöar saman.
Frágangur: Pressiö sléttaprjónið
með volgu straujárni. Gleymið
ekki að hafa rakan klút ofan á
sokknum. Þræðið teygjuband á
ranghverfu stroffsins efst á
sokknum.
Hér koma svo 3 aðrar uppá-
stungur aö munstri:
I. 6 r, 2 br. Byrjið aftan á miöjum
kálfa þannig að fyrsta lykkja á
fyrsta prjóni er br og síöasta
lykkja á siöasta prjóni br.
II. 4 r, 4 br. Byrjiö aftan á miðjum
kálfa með þvi að prjóna fyrstu 2 1
á fyrsta prjóni br og endið siðasta
prjóninn á 2 br.
III. 1 r, 1 br.