Tíminn - 08.01.1982, Blaðsíða 6

Tíminn - 08.01.1982, Blaðsíða 6
6 iOS ,l. S'i'! Föstudagur 8. janúar 1982 K 17 9 & u L f\ U u M F 1 H Q A M |/ n R D h M D n U D á n Q s i/ n Q c > i/ rC \í > f/ IV V •• V • • 0 IV V • • 0 L V L D 0 L D Frá kl 19 KAFFIVAGNINN, GRANDAGARÐI Sími Auglysið i Timanum Fjárhagsáætlun Reykjavlkurborgar afgreidd X gærkveldi: „Lofum ekki meiru en vid getum stadid við” — „Látum ekki væntanlegar kosningar freista okkar’% segir Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi svo gjarnan vildu aö yr&i meö i framkvæmdum ársins. Þetta er nú einu sinni hlutur sem stjórn- málamenn veröa aB horfast i augu viB. Ég tel hins vegar aö i' stórum dráttum hafi meirihlutinn staöist þessa prófraun. Hann hefur ekki gripið til þess ráðs að hækka skatta eins og sumum hefði þótt liggja beinast viö, heldur þvert á móti t.d. fellt niður ákveðin gjöld, sbr. sætagjald af kvikmyndahdsr um. Þetta hefur verið hægt með þvi að lækka rekstrargjöld þar sem þvf hefur verið hægt að koma viö. Einnig hefur þessu verið mætt með þvi aö halda fjölda borgarstarfsmanna i skefjum. Þannig er óhætt að segja, að borgarstarfsmönnum hafi ekki fjölgað undanfarið ár, nema þar sem beinlinis er verið að taka i notkun nýja starfsemi og nýjar stofnanir sem kalla á aukið starfslið, sbr. dagvistarheimili, skólar og byggingar fyrir aldr- aða. Þessi meirihluti ætlar sér ekki heldur að auka skuldabyrði borg- arinnar. Við gerum að visu ráð fyrir heimild til að taka 40 millj. kr. lán til framkvæmda, en þar á möti kemur það, aö við gerum ráö fyrir og áætlum fyrir afborgun af eldri lánum upp á 25 míllj. kr., þannig að hér er nánast um óbréytta skuldabyrði að ræða hjá borgarsjóði”, sagði Kristján Benediktsson. —Kás. ■ „Ég tel aðnúverandi meirihluti I borgarstjórn hafi miðað fram- kvæmdaáætlun þessa árs við raunverulega getu borgarinnar, en hafi ekki látiö væntanlegar kosningar freista sin til að lofa meiru en hann kemur til meö aö geta staðið við, eins og stundum hefur viljað brenna við á kosn- ingaári, a.m.k. hjá fyrirrennur- um okkar, og haft slæm eftirköst eins og viö höfum dæmi um. Við höfum ekki hugsað okkur að taka neinn kosningavfxil á þessu ári, heldur einungis leggja fram raunhæfa fjárhagsáætlun”, sagði Kristján Benediktsson, borgar- fulltrúi í samtali við Timann i gær. I gærkveldi og nótt var f jár- hagsáætlun Reykjavikurborgar fyrir árið 1982afgreidd við seinni umræðu á fundi borgarstjórnar. „Þessi fjárhagsáætlun hefur að minum dómi verið viss prófsteinn fyrir þennan meirihluta”, sagði Kristján. „Þær þrjár fjárhags- áætlanir sem hann hefur fyrr gert á þessu kjörtimabili hafa allar staöist mjög vel, þrátt fyrir mikla verðbólgu á þeim árum. 1 ekkert skiptiö hefur þurft að taka þær upp á miðju ári, eins og jafnan tiðkaðist hér áöur fyrr. Þetta ber það auövitaö meösér, aö þaö hef- ur veriö reynt til hins itrasta aö vanda gerö f járhagsáætlunarinn- ar. Þaö er enginn vandi að gera fjárhagsáætlun þegar úr nægu fé er að spila. Það er hins vegar mikill vandi þegar þrengir aö, og menn sjá fyrir augum sér nauð- ■ Kristján Benediktsson. synlegar framkvæmdir, sem ekki er nægilegt fjármagn til að koma öllum á rekspöl. Þetta á að vissu leyti við hjá okkur nú. Þrátt fyrir að Reykvikingum hafi ekki fjölg- aö á undanförnum árum, þá er samt mikið um framkvæmdir og margskonar uppbyggingu. Þvi er þaö nú þegar tekjur aukast minna en tilkostnaöurinn, þ.e. verö- bólgustigið, þá hlýtur að koma til þess að borgarfulltrúar sem standa aö gerö fjárhagsáætlunar verði aö sjá á bak ýmsu sem þeir AUGLÝSING UM INNLAUSNARVERÐ VERDTRYGGÐRA SRARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍ M ABIL INNLAUSNARVERÐ x) 10.000 GKR. SKÍRTEINI CD cn CD 1 20.02. 1982 kr. 8.637,32 1970- 2. fl. 05.02. 1982-05.02. 1983 kr. 5.835,90 1972 — 1. fl. 25.01.1982-25. 01. 1983 kr. 4.490,55 1973 - 2. fl. 25.01. 1982 - 25.01. 1983 kr. 2.578,29 1975 — 1. fl. 10.01.1982- 10.01.1983 kr. 1.456,40 1975 - 2. fl. 25.01.1982-25.01.1983 kr. 1.098,93 1976 — 1. fl. 10. 03. 1982- 10.03. 1983 kr. 1.046,64 1976-2. fl. 25.01.1982-25.01.1983 kr. 836,35 1977- 1.fl. 25.03. 1982 - 25.03. 1983 kr. 780,59 x) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Sérstök athygli skal vakin á lokagjalddaga 1. flokks 1969, sem er 20. febrúar n. k. Reykjavík, janúar 1982 SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.