Tíminn - 08.01.1982, Blaðsíða 19
Föstudagur 8. janúar 1982
23
flokksstarfid
Auglýsing
um prófkjör
Prófkjör framsóknarmanna vegna borgarstjórnarkosn-
inganna i mai 1982 verður haldið dagana 23. og 24. janúar
1982
Skila þarf framboðum i' prófkjörið á skrifstofu Framsókn-
arflokksins að Rauðarárstig 18, Reykjavik fyrir kl.18.00
fimmtudag 7. janúar 1982. Kjörgengir eru allir flokks-
bundnir framsóknarmenn, sem fullnægja skilyrðum um
kjörgengi til borgarstjórnar. Framboði skal fylgja skrif-
legt samþykki frambjóðandans, svo og meðmæli 5-10
flokksbundinna framsóknarmanna.
Athygli er vakin á þvi að kjörnefnd hefur heimild til að
bætanöfnum á prófkjörslistann að framboðsfresti liðnum.
Kjörnefnd.
Bingó
Sunnudaginn 10. þ.m. hefjast hin geysivinsælu bingó FUF
i Reykjavik. Bingóið á sunnudag verður að venju i Hótel
Hekluoghefstkl. 14. Margir myndarlegir vinningar. Fjöl-
mennið.
FUF
Frá Happdrætti Framsóknarflokksins
Útdráttur hefur farið fram i hausthappdrættinu og eru
vinningsnúmerin innsigluð hjá borgarfógeta á meðan
fullnaðarskil eru að berast.
Dregið var úr öllum útsendum miðum. Samkvæmt giró-
seðlum má framvisa greiðslum enn um sinn i næsta póst-
húsi eða peningastofnun og eru flokksmenn vinsamlegast
beðnir um að gera skil.
Akranes
Fundur um stjórnmálaviðhorfið mánudaginn 11. janúar
kl. 20.30 i Framsóknarhúsinu Akranesi.
Framsögumaður: Tómas Árnason viðskiptaráðherra.
Allir velkomnir á fundinn.
Framsóknarmenn sérstaklega hvattir til að mæta.
Stjórnin
ísafjörður
Aðalfundur framsóknarfélags ísfirðinga verður haldinn
laugardaginn 9. febr. að Hafnarstræti 8 kl. 14.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
önnur mál
Félagar fjölmennið!
Stjórnin
Framsóknarfélag Austur-Skaftfellinga
Aðalfundur verður haldinn sunnudaginn 10. janúar kl.
16.00 i húsi Slysavarnarfélagsins á Höfn.
Dagskrá:
1. Sameiginlegt prófkjör
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
Norðurlandskjördæmi eystra
Alþingismenn Framsóknarflokksins i Norðurlandskjör-
dæmi eystra halda almenna stjórnmálafundi á eftirtöld-
um stöðum:
Húsavik, sunnudaginn 10. janúar i Félagsheimilinu kl.
20.30
Kópaskeri.mánudaginn 11. janúar i fundarsal K.N.Þ. kl.
20.30
Þórshöfn þriðjudaginn 12. janúar i Félagsheimilinu kl.
20.30
Raufarhöfn miðvikudaginn 13. janúar i Hnitbjörgum kl.
20.30.
Allir velkomnir.
Umboðsmenn Tímans Norðurland
Staður: Nafn og heimili: Stmi:
Hvammstangi: Eyjólfur Eyjólfsson 95—1384
Blönduós: Olga óla Bjarnadóttir,
Árbraut 10 95—4178
Skagaströnd: Arnar Arnarson,
Sunnuvegi 8 95—4646
Sauðárkrókur: Guttormur óskarsson, 95—5200
Skagfirðingabr. 25 95—5144
Siglufjöröur: Friðfinna Simonardóttir, .
Aðalgötu 21 95—71208
Ólafsfjörður: Helga Jónsdóttir,
Hrannarbyggð 8 96—62308
Dalvik: Brynjar Friðleifsson,
Asvegi9 96—61214
Akureyri: Viðar Garðarsson,
Kambagerði 2 96—24393
Húsavik: Hafliöi Jósteinsson,
Garðarsbraut 53 96—41444
Raufarhöfn: Arni Heiöar Gylfason,
Sólvöllum 96—51258
Þórshöfn: Kristinn Jóhannsson,
Austurvegi 1 96—81157
Yfirlýsing
frá sam-
tökum um
kvenna-
framboð
■ Blaðinu hefur borist eftirfar-
andi yfirlýsing:
Af gefnu tilefni skal það tekið
fram, að samtök þau sem vinna
að framboði sérstaks kvennalista
i borgarstjórnarkosningum i
Reykjavik, i vor eru ekki þátttak-
endur i fundi Kommúnistasam-
takanna um borgarmál, svo sem
ranglega er auglýst i Verkalýðs-
blaðinu þ. 22. desember s.l. Aug-
lýsingin var birt án vitundar og
vilja samtaka okkar.
Með þökk fyrir birtinguna
Kynningarhópur samtakanna
um kvennaframboð
„Galdrað
í gjósku”
■ t tilefni af sjötugsafmæli dr.
Sigurðar Þórarinssonar jarð-
fræðings i dag 8. jan. hafa nokkur
félög ákveðið að gefa út afmælis-
rithonum til heiðurs og hefur ritið
hlotið nafnið „Galdrað i gjósku”
til bráðabirgða.Landafræði-
félagið hafði forgöngu aö ritinu en
útgefandi verður Sögufélagið. t
ritinu verða 47 ritgerðir auk þess
sem birtar verða myndir úr ævi
Sigurðar ritaskrá hans, æviágrip
eftir Þorleif Einarsson og ,,Ta-
bula gratulatoria”-nöfn þeirra
sem heiðra vilja Sigurð á sjötugs-
afmælinu með þvi að gerast á-
skrifendur að ritinu.
— FRI
Hryssa
Rauðskjótt 8 vetra
hryssa tapaðist frá
Kambi Villingaholts-
hreppi i des. 1981.
Upplýsingar i sima 91-
83053.
Ávegi
án gangstéttar
gengur fóik
vinstra megin
-ÁMÓTi
AKANDI
UMFERÐ
|JUyFERDAR
í RYKI, ÞOKU
OG REGNI —
ERHÆPINN
SPARNAÐUR
... að kveikja
ekki ökuljósin.
ÞAU KOSTA LÍTIÐ.
llUMFEROAR
menningarmál
Gosi hundrað ára
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
GOSl, saga eftir
C. COLLODI
frumsýning.
Leikgerð:
Brynja Benediktsdóttir
Tónlist:
Sigurður Rúnar Jónsson.
Söngtextar:
Þórarinn Eldjárn.
Lýsing:
Ásmundur Karlsson.
Leikmynd og búningar:
Birgir Engilberts.
Leikstjóri:
Brynja Benediktsdóttir
■ Kirkjubókum ibókmennta-
sögu ber vist ekki alveg sam-
an um það hvenær Carlo Lor-
enzini (1826-1890), er tók sér
siðan höfundarnafnið Collodi,
samdi Gosa. Halir munu rifast
um það hvort halda beri eitt
hundraðára afmæliGosa árið
1891, eða 1892, en i sumum
lærðum bókum, er sagan talin
vera frá árinu 1883.
Ekki veit ég hvernig frægð
þessarar ævintýrabókar barst
fyrst til tslands, en hjá minni
kynslóð, hefur teiknimyndin,
sem Walt Disney gjörði um
söguna árið 1940 (kvikmynd)
eftil villskipt sköpum.Þá hef-
ur sagan verið þýdd og gefin
út i bók á islensku, a.m.k. tvi-
vegis eða i þýðingum Hall-
grims Jónssonar og Gisla As-
mundssonar. — En allavega
þá er Gosi frægðarmaöur á ís-
landi, sem og i mörgum lönd-
um öðrum, og enn vel ern,
þrátt fyrir hundrað árin, ekki
siður en Vinardrengjakórinn,
sem mun vera rúmlega þrjú
hundruð ára, og heldur þó sin-
um æskublóma öllum.
Collodi var blaðamaður og
ritstjóri á sinum tima og
gjörði að minnsta kosti tvö
timarit, eða gamanblöð gjald-
þrota.Siðan samdihann nokk-
ur ritverk, en það var ekki
fyrr en hann samdi Gosa, að
heimsfrægðin kom, en þá var
höfundurinn kominn undir
sextugt, þá byrjaður að skrifa
handa börnum, sem skildu
hann öllu betur en hinir full-
orðnu. Sagt er að Collodi hafi
samið Gosa til að borga spila-
skuldir, og er það ekki fyrsta
messtaraverkið sem til verður
i þeim tilgangi sérstaklega.
Leikgerð Brynju
Benediktsdóttur
Brynja Benediktsdóttir hef-
ur gjört leikrit eftir sögunni af
Gosa og segir frá þvi, að hdn
hafi á barnsaldri kynnst sög-
unni um spýtustrákinn Gosa.
Einnigsegist hún hafa skrifað
verkið með ákveðna leikendur
i huga, og þá einkum þá er
fara með aðalhlutverkin, þá
Arna Tryggvason, er leikur
smiðinn, Sigurð Sigurjónsson,
er leikur samvisku Gosa, og
svo Arna Blandon, er leikur
Gosa sjálfan. ,,Ég tek mérþað
bessaleyfi að stytta eða bæta
við söguþráðinn eftir þörf-
um”, segir hún lika.
En þrátt fyrir allt virðist
Brynja vera höfundi sögunnar
trú, a.m.k. eins og ég man
hana, en þvi er við að bæta, að
Gosi hefur áður komið á svið í
útlöndum, þvi hann er frægur
maöur, eða fræg persóna, eins
og allir vita.
Ekki veit ég hvemig hingaö
til hefur tekist að sýna Gosa á
leiksviði i Utlöndum, en hjá
Brynju gengur þetta ljómandi
vel.
Söngtextar Þórarins Eld-
járnseru smellnir og liðugir á
tungu, sem er bans visa, og
tónlist Sigurðar Rúnars Jóns-
sonar fer þessum leik vel.
Hann heldur vel sinum hlut.
Annað mál er svo það, að
ekki koma allir texta sinum til
skila í söng, og spillir það dá-
litið fyrir.
Gosi er annars býsna hag-
anlega samið og sviðsett leik-
rit. Þeir Arni, Sigurður og
Arni Blandon fara á kostum,
enda verkið saumað handa
þeim, og einnig vil ég geta
góðrar grammistöðu Flosa Ól-
afssonar er leikur Loga leik-
hússtjóra, er kaupir Gosa i
leikhús sitt.
Hulda álfköna er hinsvegar
dálltið skuggalega völtá sviö-
inu, en hún gengur á einhvers
konar stuitum (held ég) og
hefur maður á köflum enn
meiri áhygg jur af göngu henn-
ar, en vixlsporum Gosa.
Allar þessar aðfinnslur eru
þó smámunir. Gosi er
skemmtilegt verk og vakti
mikinn fögnuð á frumsýning-
unni.
Leikmynd Birgis Engilberts
erhaglega gjörð, og ævintýra-
leg i betra lagi. HUn er dálitið i
þeim Disney-stil, er við þekkj-
um svo vel.
Allmargir koma fram i
þessari sýningu og Ingibjörg
Björnsdóttir samdi dansana.
Þjóðleikhúsiðhefur ef til vill
haft meiri gæfu i barnaleikrit-
um en i öðru verki, svona
seinni árin, og eru börn þó
kröfuharðir listunnendur. Við
spáum Gosa góðu.
Jónas Guðmundsson
Jónas
Gnðmundsson
skrifar um leik-
list.