Fréttablaðið - 25.06.2008, Page 16
70% 170,4 3,7%Hækkun bréfa Century Aluminum í Kauphöllinni á árinu. Eina félagið sem hefur hækkað í kauphöllinni á þessu ári að Alfesca
undanskildu sem hefur hækkað um 0,43%.
Gengisvísitalan náði nýjum hæðum
þegar hún fór um stund í 170,4 stig á
mánudaginn en endaði í 168,15 stigum.
Verðbólga á evrusvæðinu síðastliðna
tólf mánuði samkvæmt mælingum
í maí. Hefur hún ekki mælst meiri í
sextán ár.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Hvers vegna PwC?
Þekkingarfyrirtæki í fremstu röð á Íslandi og leiðandi á alþjóðavettvangi.
Endurskoðun Fyrirtækjaráðgjöf Skatta- og lögfræðiráðgjöf
Reykjavík - Akureyri - Húsavík - Selfoss - Reykjanesbær www.pwc.com/is
*connectedthinking
ÍMYND SEM VEX
Upplifðu!
Sitt sýnist hverjum um ástæð-
ur hins bága efnahagsástands.
Guðmundur Ólafsson hagfræð-
ingur sagði við Vísi fyrr í vik-
unni að Seðlabankinn sé orðinn
að einu helsta vandamáli þjóðar-
innar. Bankinn þverskallist við að
fylgja stefnu ríkisstjórnarinnar
og besta dæmið sé sú töf sem er
orðin á margumræddri lántöku
til að styrkja gjaldeyrisforðann.
„Mér skilst að Seðlabankinn taki
ekki þetta lán af því
að Davíð Oddsson
seðlabankastjóri sé
á móti því,“ sagði
G u ð m u n d u r
og telur ein-
sýnt að skipta
þurfi út seðla-
bankastjóran-
um – í eintölu
– og bankaráði
Seðlabankans.
Davíð á móti?
Íslensk erfðagreining ku ætla
að rannsaka hvaða erfðaþættir
það séu sem hafi áhrif á minni,
athygli og hraða hugsunar.
Illkvittnir sáu samstundis glitta
í gagnsemi rannsóknarinnar.
Hægt væri að útbúa próf og síðar
lyf með öfugri virkni fyrir þá
sem keyptu hlutabréf í DeCode,
móðurfélagi ÍE, á gráum mark-
aði fyrir rúmlega sextíu dali á
hlut. Gengi bréfanna hefur fallið
um tæp hundrað prósent síðan
þá og lafað undir dalnum, þannig
að fáir eru eftir sem vilja kann-
ast við að hafa fjárfest í félag-
inu á sínum tíma. Gráglettnir
telja heppilegasta nafnið á lyf-
inu verða eitthvað á borð við
Minnisleysa. Eins og
stemningin hefur
verið í Kauphöllinni
upp á síðkastið munu
óbreyttir fjárfestar
eflaust ekki fúlsa
við smá-
slettu.
Minnisleysa
Hverjir láku?
Hinn harðorði tölvupóstur
Hreiðars Más Sigurðssonar,
forstjóra Kaupþings, til félaga
sinna í stjórn Samtaka banka og
fjármálafyrirtækja hefur vakið
mikla athygli en forstjórinn sagði
þar að aðgerðir ríkisstjórnarinn-
ar í málefnum Íbúðalánasjóðs
væru „ömurleg tíðindi“. Síðustu
daga hefur athyglin hins vegar
beinst að þeirri staðreynd að
einhver í hinni fámennu stjórn
skuli hafa ákveðið að leka tölvu-
skeytinu í fjölmiðla. Verður
vafalaust einhver bið á því að
tölvupóstur verði aftur notaður
í sam- skiptum stjórnar-
manna og velta
má almennt
fyrir sér
s t e m n i n g -
unni innan
hennar raða
um þessar
mundir.