Fréttablaðið - 09.07.2008, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 09.07.2008, Blaðsíða 8
8 9. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR 1 Hvar rís metanstöð sem taka á í notkun í ágúst? 2 Hvað heitir sonur Keníu- mannsins Pauls Ramses sem vísað var úr landi fyrir helgi? 3 Hvaða fræga leikskáld og leikara hefur Baltasar Kor- mák ur ráðið til að leika stórt hlutverk í nýrri Hollywood- mynd? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30 JAPAN, AP Gagnrýnisraddir segja markmið G8-hópsins um að draga verulega úr losun gróðurhúsaloft- tegunda, sem samþykkt voru á leiðtogafundi hópsins í Japan í gær, vera innantóm orð sem hafi lítil áhrif í raun. Leiðtogafundurinn samþykkti í gær að stefnt skuli að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 50 prósent fyrir árið 2050. Á síðasta ári höfðu leiðtogar sömu ríkja samþykkt, á fundi sínum í Heiligendamm í Þýskalandi, að íhuga alvarlega hvort ekki skuli stefna að þessu markmiði. „Að staðfesta niðurstöður síð- asta fundar telst varla stórkost- legur árangur,“ segir Kim Carstensen hjá Alþjóðanáttúru- verndarsjóðnum WWF. „Þetta litl- ar framfarir eftir heilt ár af ráðherrafundum og samninga- viðræðum eru ekki aðeins glatað tækifæri, heldur vantar hættulega mikið upp á það sem þarf til að bjarga fólki og náttúru frá lofts- lagsbreytingum.“ Á fundinum, sem í ár er haldinn í Toyako í Japan, sitja æðstu ráða- menn Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Ítalíu, Japans, Kan- ada, Rússlands og Þýskalands. Mikið hefur verið þrýst á leið- toga þessara helstu efnahagsvelda heims um að ná samkomulagi í loftslagsmálum, ekki síst þar sem lítið hefur miðað í viðræðum á vegum Sameinuðu þjóðanna um framhald Kyoto-bókunarinnar. Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópu- sambandsins, segir þó að þessi loftslagsmarkmið G8-ríkjanna muni auðvelda samningaviðræður á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Leiðtogar G8-ríkjanna lýstu jafnframt í gær yfir miklum áhyggjum sínum af hækkandi olíuverði og matvöruverðshækk- unum, sem stofni efnahag heims- ins í voða. Þeir sögðust þó bjart- sýnir á horfurnar til lengri tíma litið. Nicolas Sarkozy Frakklandsfor- seti hefur lagt mikla áherslu á að upprennandi efnahagsveldi á borð við Kína og Indland fái aukið vægi á hinum árlegu fundum G8-hóps- ins. Á næsta ári verður leiðtogum Kína, Indlands, Brasilíu, Suður- Afríku og Mexíkó boðið að sitja vinnufundi með G8-hópnum í einn dag á leiðtogafundinum, sem þá verður haldinn á Ítalíu. gudsteinn@frettabladid.is Árangurinn sagður lítill Leiðtogafundur G8-ríkjanna hefur samþykkt al- menna stefnu í loftslagsmálum, en án skuldbind- inga. Gagnrýnendur segja markmiðin of hógvær. Fundinum í Japan lýkur í dag. LEIÐTOGAR RÆÐAST VIÐ Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti, George W. Bush Banda- ríkjaforseti, Dmitri Medvedev Rússlandsforseti og Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SJÁVARÚTVEGUR Hægt væri að byggja upp samkeppnishæfa kræklingarækt á Íslandi líkt og gert hefur verið í Kanada. Þetta er mat nefndar sem sjáv- arútvegsráðherra skipaði seint á síðasta ári til að kanna stöðu og möguleika kræklingaræktar á Íslandi. Eftirspurn eftir kræklingi vex auk þess sem nefndin telur lík- legt að verðið haldist hátt vegna skorts á hefðbundnum ræktunar- svæðum kræklings í Evrópu. Þá falli uppskerutími á Íslandi vel að sveiflum í ræktuninni annars staðar. Nefndin vill að skipaður verði samráðshópur um ræktunina sem komi með hugmyndir til ráðherra um ræktunarsvæði. Til þess þarf að kanna heilnæmi svæðanna og leggja mat á tíðni eitraðra svif- þörunga. Einnig er lagt til að mælingar á þörungaeitri og kadmíum í upp- skeru verði í upphafi fjármagn- aðar úr ríkissjóði. Nefndin telur mikilvægt að hægt verði að sækja um styrki í opinbera sjóði til þess að aðlaga ræktunartækni að hverju svæði fyrir sig. Einnig er lagt til að sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðuneyt- ið láti kanna bestu leiðir fyrir ferskan krækling á Evrópu- markað. - ht Nýtt mat nefndar sjávarútvegsráðherra: Kræklingarækt möguleg á Íslandi IÐNAÐUR Sveitarfélögin Garður og Reykjanesbær hafa afturkallað byggingarleyfi fyrir álveri í Helguvík og gefið út ný í staðinn. Ástæðan er sú að eldri útgáfa leyfisins hefði mátt vera staðfest af ráðherra sveitarstjórnarmála, samgönguráðherra, en hans samþykkis var víst ekki leitað. Nú hefur nýtt leyfi verið gefið út og á þann hátt að ekki er þörf fyrir ráðherrasamþykki. Náttúruverndarsamtök Íslands ætla að kæra nýju leyfin, enda hafi í þeim ekki verið tekin afstaða til álits Skipulagsstofnun- ar um álverið. Samtökin rifja upp í tilkynn- ingu að í því áliti hafi sagt að ganga þyrfti frá losunarheimild- um fyrir iðnaðinn í Helguvík, sem og orkuöflun og öðru, áður en hafist væri handa við að byggja álverið. - kóþ Leyfi fyrir álveri afturkallað: Spyrðu ekki ráðherrann LÖGREGLUFRÉTTIR Tveimur ferða mönnum var bjargað úr sjálfheldu í þoku í Eyrarfjalli við Ísafjörð í fyrrinótt. Ferðamennirnir, sænsk kona og franskur maður, höfðu lagt í göngu á fjallið undir kvöld. Um miðnætti skall á svartaþoka, ferðamennirnir komust því ekki niður aftur og höfðu samband við lögreglu. Björgunarsveitarmenn ásamt lögreglu fóru og sóttu fólkið sem fannst um klukkan tvö í fyrrinótt. Fólkið var komið niður af fjallinu ríflega klukkustund síðar, þreytt en að öðru leyti vel á sig komið. - ht Ferðamenn í kvöldgöngu: Bjargað úr sjálf- heldu í þoku HÚSNÆÐISMÁL Húsaleiga og hús- sjóður í íbúðum Byggingafélags námsmanna (BN) munu hækka um 15 prósent um næstu mánaðamót. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu félagsins. Einnig kemur fram að félagið horfist um þessar mundir í augu við óvæntan rekstrarvanda sem bregðast þurfi við. Sigurður Grétar Ólafsson, formaður stjórnar BN, vildi ekki greina Fréttablaðinu frá því í hverju rekstrarvandinn felst. Í síðustu viku var greint frá því að leiga á Stúdentagörðum fyrir Háskóla Íslands, sem Félagsstofn- un stúdenta rekur, muni hækka um 5,25 prósent vegna hækkunar á fasteignagjöldum. Sigurður segir þessa hækkun á fasteignagjöldum aðeins vera eina af mörgum ástæð- um fyrir hækkunum BN. Efnahagsbrotadeild ríkislög- reglustjóra hefur málefni bygg- ingafélagsins til rannsóknar. For- ráðamenn þess lögðu fram kæru eftir ítarlega úttekt KPMG á rekstri félagsins í kjölfar skyndilegs brott- hvarfs fyrrum stjórnarformanns. Grunur leikur á að fyrrum forráða- menn félagsins hafi hagnast veru- lega á því, meðal annars með því að semja við framkvæmdaaðila án útboðs og nota eigin fyrirtæki til að flytja inn búnað í stúdentaíbúðirnar og selja á of háu verði. - þeb Óvæntur rekstrarvandi veldur hækkunum hjá Byggingafélagi námsmanna: Leiga hækkar um 15 prósent Byggingafélag námsmanna á og rekur um 530 íbúðir. 26 þeirra eru á Laugarvatni og mun leiga á þeim ekki hækka. Dæmi um verðmun: ■ Einstaklingsíbúð við Kapellustíg kostar nú í heild 67.137 krónur en mun við 15 prósenta hækkun fara í 77.013 krónur. ■ Paraíbúð við Kapellustíg kostar nú 85.583 krónur en mun með 15 pró- senta hækkun fara í 98.033 krónur. MEÐALÍBÚÐ HÆKKAR UM 10 ÞÚSUND VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.