Fréttablaðið - 09.07.2008, Qupperneq 10
10 9. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR
REYKJAVÍK „Um leið og ég vil þakka
fyrir umsókn þína um starf mann-
réttindastjóra, vil ég tilkynna þér
að búið er að ráða í starfið.“ Þetta
segir í tölvupósti sem umsækjend-
ur um stöðu mannréttindastjóra
Reykjavíkur fengu tilkynningu
um síðastliðinn föstudag. Enn er
ekki búið að skipa í stöðuna.
Á föstudaginn var tilkynnt að
ráðgjafarnefnd hafi mælt með því
að Anna Kristinsdóttir fyrrver-
andi borgarfulltrúi Framsóknar-
flokksins yrði skipuð mannrétt-
indastjóri Reykjavíkurborgar.
Anna er með BA-próf í stjórn-
málafræði. Ekki er enn búið að
samþykkja tillöguna í borgarráði
en umsækjendum var sagt að búið
væri að skipa í stöðuna.
„Ég gerði mistök og mér þykir
það mjög leiðinlegt. Mig langaði
bara að láta umsækjendurna vita
áður en fjölmiðlar fengju upplýs-
ingar um þetta. Í öllum flýtinum
urðu mér á mistök,“ segir Anna
Gunnhildur Ólafsdóttir, sérfræð-
ingur á skrifstofu borgarstjóra.
Hún er ein af þeim sem störfuðu í
ráðgjafarnefndinni og sú sem
sendi tölvupóstinn.
Í Fréttablaðinu í síðustu viku
var sagt frá því að reynt fólk í
mannréttindamálum hefði ekki
verið boðað í viðtal. Þar af er einn
með embættispróf í lögfræði og
einn er fyrrverandi formaður
Öryrkjabandalagsins.
Stefán Einar Stefánsson, sið- og
guðfræðingur og einn umsækj-
enda um starfið, segir auðvitað
ekkert óeðlilegt við það að einn sé
ráðinn á endanum en tölvupóstur-
inn hafi komið sér á óvart.
„Þetta er til vitnis um slæm
vinnubrögð. Mér finnst þetta
móðgun við kjörna fulltrúa sem
enn eiga eftir að taka ákvörðun
um hvort hún verði skipuð,“ segir
Stefán.
Umsóknarfrestur til að sækja
um stöðu mannréttindastjóra
Reykjavíkur rann út 26. maí.
Umsækjendur um starfið voru 23
en sex voru boðaðir í viðtöl hjá
þriggja manna ráðgjafarnefnd.
Tillagan um skipun Önnu í stöðu
mannréttindastjóra verður lögð
fram á fundi borgarráðs næst-
komandi fimmtudag til samþykkt-
ar eða synjunar.
vidirp@frettabladid.is
Umsækjendum
sagt að búið
væri að ráða
Umsækjendum um starf mannréttindastjóra
Reykjavíkur var sagt í tölvupósti að búið væri að
ráða í stöðuna án þess að enn sé búið að því. Send-
andi tölvupóstsins segir þetta hafa verið mistök.
REYKJAVÍK Tilkynnt var um ráðningu í stöðu mannréttindastjóra Reykjavíkur áður en
til hennar kom. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
STEFÁN EINAR STEFÁNSSON Hann segir
tölvupóstinn vera til vitnis um slæm
vinnubrögð. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
GAY PRIDE Þátttakendur í skrúðgöngu
samkynhneigðra í Madríd á Spáni 5.
júlí stilla sér upp fyrir ljósmyndara.
NORDICPHOTOS/AFP
LANDBÚNAÐUR Bændasamtök
Íslands (BÍ) hafa ákveðið að bjóða
bændum í fjárhagserfiðleikum
ókeypis fjármálaráðgjöf í kjölfar
skoðanakönnunar sem benti til
mikillar eftirspurnar eftir slíkri
ráðgjöf meðal bænda.
„Hækkandi aðfangaverð og
vaxtakostnaður er [bændum] erf-
iður og við reynum að bregðast
við því,“ segir Eiríkur Blöndal,
framkvæmdastjóri BÍ. „Það eru
ábyggilega sóknarfæri í því að
fara yfir stöðu á lánum, möguleika
á hagræðingaraðgerðum og áætl-
anir um hvernig hægt sé að komast
í gegnum þetta.“
Farið verður að bjóða upp á ráð-
gjöfina í lok þessa mánaðar, að
sögn Gunnars Guðmundssonar,
forstöðumanns ráðgjafasviðs BÍ.
„Tilgangur okkar er að aðstoða
bændur við að leita leiða ásamt
lánastofnunum út út þeim vanda
sem þeir eru í,“ segir hann.
Gunnar segir bændasamtökin
hafa í nokkur ár veitt almenna
fjármálaráðgjöf til bænda, en
þetta sé viðbót fyrir þá sem séu í
sérstökum erfiðleikum. - gh
Bændasamtök Íslands bjóða fjármálaráðgjöf:
Bændur í kröggum
SAUÐFÉ Hækkandi aðfangaverð og
vaxtakostnaður hefur komið illa við
marga bændur. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
AFGANISTAN, AP Leyniþjónusta Pak-
istans aðstoðaði við sprengjutil-
ræðið í Kabúl í Afganistan í fyrra-
dag. Þetta segir í skýrslu
varnarmálaráðuneytis Afganist-
ans.
Minnst 41 lést og um hundrað og
fimmtíu særðust þegar bíl-
sprengja sprakk utan við sendiráð
Indlands í Kabúl, höfuðborg
Afganistans. Árásin var sú blóð-
ugasta frá falli talibana árið 2001.
Pakistanar neita aðild og segj-
ast engan hag hafa af því að grafa
undan stöðugleika í Afganistan.
Pakistan var þó eitt fárra ríkja
sem viðurkenndi stjórn talíbana
árin 1996 til 2001. Margir leið-
togar talíbana voru menntaðir í
Pakistan og nokkur söguleg tengsl
eru milli talíbana og leyniþjónustu
Pakistans. Auk þess hafa Pakist-
anar lengi deilt við Indverja og
vantreysta hjálparstarfi þeirra í
Afganistan.
Sumir sérfræðingar kenna Pasj-
túnum, stærsta afganska þjóðern-
ishópnum, um árásina. Pasjtúnar
séu kjölfestan í andspyrnu talí-
bana við ríkisstjórn Afganistans
og heri Atlantshafsbandalagsins
og álíti Indverja óvini.
Ráðamenn í Afganistan og Ind-
landi hafa sagt að árásin muni
ekki hafa áhrif á samband þjóð-
anna. - gh
Afganar saka Pakistana um aðild að sprengjutilræði sem kostaði tugi mannslífa:
Pakistanar sakaðir um aðild
SPRENGJUVETTVANGURINN Ofbeldi
hefur færst í aukana í Afganistan undan-
farna mánuði. NORDICPHOTOS/AFP
ESB „Greinin kemur mér ekki á
óvart því Einar Ben hefur verið
talsmaður þess í mörg ár að
ganga í ESB,“ sagði Geir H.
Haarde forsætisráðherra eftir
ríkisstjórnarfund í gærmorgun.
Jónas H. Haraldz, fyrrverandi
bankastjóri, og Einar Benedikts-
son, fyrrverandi sendiherra, birtu
sameiginlega grein í Morgunblað-
inu á laugardaginn þar sem þeir
hvöttu íslensk stjórnvöld
eindregið til þess að sækja um
aðild að Evrópusambandinu.
Greinin vakti töluverða umræðu
vegna þess að bæði Jónas og
Einar eru sjálfstæðismenn og
stefna flokksins hefur ekki
hneigst í átt til ESB.
„Ég þekki þessa menn vel og
met þá mikils en er ósammála
þeim í þessu máli,“ sagði Geir.
- vsp
Geir ósammála ESB-grein:
Greinin kemur
ekki á óvart
DÓMSMÁL Tvítugur Ísfirðingur
hefur verið ákærður fyrir brot
gegn valdstjórninni, en hann
hótaði tveimur lögreglumönnum
ítrekað lífláti og ofbeldi eftir að
þeir handtóku hann í febrúar
síðastliðnum.
Maðurinn lét meðal annars þau
orð falla að þetta væri þeirra
síðasta vakt, þeir væru búnir að
vera, þeir væru báðir dauðir en
yrðu jafnframt báðir drepnir, og
að hann skyldi fá tiltekinn mann
til að valda þeim líkamstjóni og
drepa þá.
Maðurinn játaði sök við
þing festingu og var málið þegar
dóm tekið. Dæmt verður 17. júlí. - sh
Hótaði lögregluþjónum lífláti:
Þetta er ykkar
síðasta vakt