Fréttablaðið - 09.07.2008, Page 12
12 9. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Surtsey
Surtsey hefur verið færð
á heimsminjaskrá UN-
ESCO. Þetta er fyrst og
fremst viðurkenning en
mun einnig hafa áhrif á
ferðamannaiðnað.
Surtsey varð í gær annað svæðið
hér á landi, á eftir Þingvöllum, til
að komast á heimsminjaskrá
UNESCO. Þetta var ákveðið á
fundi heimsminjaráðsins í
Québec í Kanada í fyrrakvöld.
Surtsey myndaðist í eldgosi
sem hófst árið 1963 og er mesta
neðansjávareldgos sem orðið
hefur á sögulegum tíma. Hún er
nú tæplega helmingi minni en
þegar hún reis úr sæ, eða tæplega
1,5 ferkílómetri. Þrátt fyrir að
hún sé berskjölduð gegn ágangi
sjávar hefur hún verið vernduð
sérstaklega vel gegn ágangi
manna en hún var friðuð nokkru
áður en gosinu sjálfu lauk.
Að þessu leyti er eyjan einstök
í heiminum. Hvergi annars stað-
ar hefur verið hægt að fylgjast
með landtöku og þróun lífs á eyju
nánast frá fyrsta degi. Þetta er í
raun lykilatriðið í rökstuðningi
heimsminjaráðsins þar sem
kemur fram að vegna þess að
eyjan hefur verið vernduð frá
upphafi veiti hún heiminum
„ósnortna náttúrulega rannsóknar-
stofu“.
„Lífríki eyjarinnar verður
sífellt fjölbreyttara og ekkert
hefur dregið úr landnámi líf-
vera,“ segir Borgþór Magnússon
plöntuvistfræðingur. Alls hafa 89
fuglategundir greinst í eyjunni,
þar af átta varpfuglar. Þar hafa
og fundist hrúðurkarlar, kross-
fiskar, selir og fjöldamörg sjáv-
ardýr til viðbótar. Auk þess hafa
ýmsar tegundir fléttna, mosa og
háplantna numið land á eyjunni
auk skordýra, svo lítið brot af
fjölbreyttu lífríkinu sé upp talið.
„Þetta er mikil viðurkenning
fyrir Surtseyjarfélagið en fyrst
og fremst þá vísindamenn sem
hafa starfað í eyjunni en þeir hafa
að mínu mati unnið einstakt
afrek,“ segir Steingrímur Her-
mannsson sem hefur verið for-
maður Surtseyjarfélagsins frá
upphafi. Hann bætir því við að
rannsóknirnar hefðu verið útilok-
aðar án hjálpar Landhelgisgæsl-
unnar sem hefur flutt vísinda-
menn að kostnaðarlausu út í eyna.
„Við erum afar þakklátir gæslunni
fyrir það.“
„Fyrst og fremst mun þetta
geta haft mikil áhrif á ferða-
mennsku í Vestmannaeyjum.
Margir ferðamenn leggja sig sér-
staklega eftir því að heimsækja
heimsminjastaði hvar sem er í
heiminum,“ segir Ragnheiður
Þórarinsdóttir, tengiliður Íslands
við heimsminjaskrifstofu UNES-
CO, sem situr fundinn í Québec.
Hún segir Íslendinga þurfa að
bera aukna ábyrgð í kjölfar
ákvörðunarinnar. „Ísland hefur
tekið á sig þá ábyrgð að gæta
Surtseyjar í framtíðinni fyrir alla
heimsbyggðina því hún er ekki
lengur bara merkileg fyrir okkur
og okkar náttúrusögu heldur
allan heiminn.“
gudmundure@frettabladid.is
Surtsey á
lista UNESCO
Tilgangur heimsminjaskráarinnar
er að flokka og varðveita staði sem
teljast sérstaklega merkilegir frá
menningar- eða náttúrufræðilegu
sjónarmiði og teljast tilheyra sameig-
inlegri arfleifð mannkynsins.
Svokallað Heimsminjaráð ákveður
hvaða staðir komast á skrána á
fundum sínum sem haldnir hafa
verið árlega frá árinu 1972. Síðan þá
hafa 855 staðir verið settir á listann,
auk þeirra sem hljóta samþykki á
fundinum núna.
Þingvellir komust á skrána árið 2004.
HEIMSMINJASKRÁ UNESCO
FRÉTTASKÝRING
GUÐMUNDUR E. S. LÁRUSON
bjorn@frettabladid.is
SURTSEY Nafn eyjarinnar er tekið úr norrænni goðafræði. Í Völuspá er fjallað um
Surt hinn svarta sem „ferr sunnan; með sviga lævi“. MYND/ERLING ÓLAFSSON
SIGUR Bandarískir samherjar fagna
sigri í tennisleik á Wimbledon-mótinu
á Englandi. NORDICPHOTOS/AFP
NÝJUNG Á ÍSLANDI
Húð- og hárlína úr Dauðahafinu sem var
valin besta lífræna línan fyrir
árið 2008 í Bretlandi
KYNNING Í SKIPHOLTS APÓTEKI
Skipholt 50b
fimmtudaginn 10 júlí kl. 14-17
Bergfell ehf heildsala
HEILBRIGÐISMÁL Kostnaður Trygg-
ingastofnunar vegna lyfja jókst
um 308 milljónir króna á fyrsta
þriðjungi ársins, eða um fjórtán
prósent miðað við sama tíma í
fyrra. Ástæðan er annars vegar
aukin lyfjanotkun og hins vegar
lágt gengi krónunnar.
Lyfjanotkunin sjálf jókst um
átta prósent. Guðrún Gylfadóttir,
hjá Tryggingastofnun, segir eðli-
legt að lyfjanotkun aukist eitthvað
á milli ára þegar þjóðin eldist og
fitnar. Aukningin er þó hlutfalls-
lega meiri nú en áður.
Kostnaður stofnunarinnar jókst
mest vegna flogaveikilyfja, geð-
rofslyfja, þunglyndislyfja og lyfja
við ofvirkni. Aldur og þyngd þjóð-
arinnar virðast ekki útskýra aukn-
inguna í þessum flokkum. „Menn
hafa í raun engar skýringar á auk-
inni notkun þunglyndis- og
ofvirknilyfja hér á landi,“ segir
Kristján Oddsson hjá Landlæknis-
embættinu. „Þetta gæti tengst
þjóðfélagsstrúktúrnum, mikilli
greiningu eða góðu aðgengi að
heilbrigðisþjónustu.“
„Það leikur enginn vafi á að
þetta hefði verið hærra ef ég hefði
ekki farið út í þær aðgerðir að
lækka lyfjakostnað,“ segir Guð-
laugur Þór Þórðarson, heilbrigðis-
ráðherra um málið.
Í rannsókninni voru nýttar upp-
lýsingar um lyfseðilsskyld lyf úr
apótekum, en hvorki lausasölulyf
sem seld eru án lyfseðils né lyf
sem notuð eru á stofnunum. - ges
Lyfjakostnaður Tryggingastofnunar eykst:
Borga ríflega 300
milljónum meira í lyfSVEITARSTJÓRNIR Trausti Aðal-steinsson, áheyrnarfulltrúi
Vinstri grænna í byggðaráði
Norðurþings, undirstrikaði á
síðasta fundi ráðsins að flokkur
hans væri ekki fylgjandi álveri á
Bakka við Húsavík.
„Þeir aðilar sem voru á
Húsavíkurlistanum fyrir vinstri
græn lýstu aldrei yfir stuðningi
við álversuppbyggingu á
svæðinu hvað þá að beita sér
fyrir því,“ bókaði Trausti og
ítrekaði að vinstri græn teldu
þetta ekki fýsilegan kost fyrir
sveitarfélagið.
„Það er undarlegt þegar vinstri
græn reyna á þennan hátt að
hlaupast undan verkum Húsavík-
urlistans sem þeir bera fulla
ábyrgð á,“ bókaði núverandi
meirihluti í byggðaráðinu.
- gar
Vinstri grænir á Húsavík:
Afneita ábyrgð
á Bakkaálveri
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur
maður hefur verið dæmdur fyrir
að aka bíl undir áhrifum fjölda
vímugjafa. Maðurinn lauk
akstrinum á bensínstöð í Reykj-
a vík, þar sem lögregla kannaði
ástand hans. Hann reyndist vera
ölvaður og að auki undir áhrifum
kókaíns, amfetamíns og kanna-
bis efna. Í þokkabót var hann
öku skírteinis laus og á ótryggðum
bíl.
Maðurinn á nokkurn sakaferil
að baki en hann hefur ekki áhrif á
refsingu hans. Maðurinn er dæmd-
ur til að greiða 250 þúsund króna
sekt í ríkissjóð og er sviptur
ökurétti í átján mánuði. - sh
Ungur ökumaður dæmdur:
Ólöglegur á
flesta vegu
SERBÍA, AP Mirko Cvetkovic tók við
forsætisráðherraembætti Serbíu í
gær af hinum þjóðernissinnaða
Vojislav Kostunica. Nýlega kjörið
þing landsins samþykkti stjórnina
á mánudag með 127 atkvæðum
gegn 27, en aðrir þingmenn á 250
manna þinginu sátu hjá.
Öfugt við Kostunica hyggst
Cvetkovic efla tengsl Serbíu við
Vesturlönd og sækja um aðild að
Evrópusambandinu. Hann lagði
þó áherslu á að stjórn sín muni
aldrei viðurkenna sjálfstæði Kos-
ovo.
Að stjórninni standa Lýðræðis-
flokkurinn, en leiðtogi hans er
Boric Tadic forseti landsins, og
Sósíalistaflokkurinn, sem stofnað-
ur var af Slobodan Milosevic árið
1990. Þessir tveir flokkar voru
lengi svarnir andstæðingar, en
sósíalistar hafa verið að breyta
um áherslur frá því Milosevic réð
ríkjum og Júgóslavíustríðin stóðu
sem hæst.
Fráfarandi forsætisráðherra,
Vojislav Kostunica, hafði reynt að
fá Sósíalistaflokkinn til stjórnar-
samstarfs með þjóðernisflokki
sínum, sem er andvígur nánari
tengslum við Evrópusambandið
en vildi þess í stað styrkja tengsl-
in við Rússland. Stjórnarmyndun-
arviðræður hafa gengið hægt
síðan þing var kosið 11. maí. - gb
CVETKOVIC OG SAMRÁÐHERRAR HANS
Nýju ráðherrarnir sóru embættiseiða í
gær. NORDICPHOTOS/AFP
Ný stjórn tekin við völdum í Serbíu eftir erfiðar stjórnarmyndunarviðræður:
Evrópusinnar stjórna Serbíu