Fréttablaðið - 09.07.2008, Síða 26
18 9. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR
1816 Argentína öðlast sjálf-
stæði.
1940 Skýfall er og hagl fellur
í Hrunamannahreppi.
Lækir spillast af aurburði.
1946 Tívolí, nýtt skemmtivæði
sem inniheldur meðal
annars bílabraut og hring-
ekju, er opnað í Reykjavík.
1976 Mesti hiti í Reykjavík
mælist 24,3°C.
1992 Kim Basinger fær 1.959.
stjörnuna á Hollywood’s
Walk of Fame.
1972 Paul McCartney og Wings
leggja upp í sitt fyrsta tón-
leikaferðalag.
1997 Mike Tyson er bannað að
boxa eftir að hafa bitið
stykki úr eyra boxarans
Evanders Holyfield.
Margaret Thatcher (f. 13. október
1925) hóf annað kjörtímabil
sitt sem forsætisráðherra Breta
á þessum degi árið 1982. Hún
hafði þá leitt breska Íhalds-
flokkinn frá árinu 1975 og gegnt
stöðu forsætisráðherra frá 1979.
Thatcher myndaði ríkisstjórn
eftir sigur Íhaldsflokksins árið
1979 eins og áður sagði og var
forsætisráðherra Breta í sam-
fellt þrjú kjörtímabil. Meðan á
tímabilinu stóð var hún í senn
einn dáðasti og hataðasti stjórn-
málamaður Bretlands, en eftir
því sem á leið dvínuðu vinsældir
hennar meðal almennings.
Staða Thatcher innan Íhalds-
flokksins veiktist samfara því þar
sem flokkssystkini hennar óttuð-
ust að óvinsældirnar kynnu að
leiða til ósigurs flokksins í kom-
andi þingkosningum.
Thatcher neyddist svo til að
segja af sér sem leiðtogi breska
Íhaldsflokksins og forsætisráð-
herra Bretlands vegna lítils fylg-
is í leiðtogakjöri flokksins árið
1990.
Thatcher er fyrsta og eina
konan til að gegna þessum
stöðum í Bretlandi ásamt því að
hafa starfað lengst sem forsætis-
ráðherra Breta.
ÞETTA GERÐIST: 9. JÚLÍ 1982
Annað kjörtímabil Thatcher
O.J. SIMPSON ÍÞRÓTTAMAÐUR ER
61 ÁRA.
„Ég gæti ekki sagt ykkur
hvenær móðir mín lést né
faðir minn. Þessir dagar eru
mér ekki mikilvægir.“
Ruðningskappinn fyrrverandi
og leikarinn O.J. Simpson vakti
heimsathygli vegna gruns um
morð á fyrrum eiginkonu sinni
Nicole Brown Simpson. Hann
var sýknaður af ákærunni.
Sumartónleikaröðin Bláa kirkjan hefst
í dag á Seyðisfirði. „Hátíðin er tíu ára
í ár en hún varð til árið 1998 að frum-
kvæði Muff Worden. Muff kom frá
Bandaríkjunm og var tónlistarkennari
hér við Tónlistarskólann á Seyðisfirði,“
segir Aðalheiður Borgþórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar.
„Muff var algjör hamhleypa, hún
dreif þetta í gang og vann allt í sjálf-
boðavinnu. Muff Worden lést í ágúst
árið 2006 en hennar hinsta ósk var að
þessari hátíð yrði haldið gangandi. Í
dag eru sjö manns að sjá um það sem
hún gerði ein,“ segir Aðalheiður.
Eins og áður sagði hefst tónleikaröðin
í dag og verða tónleikar haldnir á hverj-
um miðvikudegi út ágúst í kirkjunni á
Seyðisfirði sem er einmitt blá og þaðan
kemur nafnið Bláa kirkjan. Þegar Að-
alheiður er innt eftir því hvort það séu
aðallega Seyðfirðingar sem sækja tón-
leikana segir hún svo ekki vera. „Há-
tíðin hefur þróast þannig að það kemur
mikið af fólki annars staðar frá og eru
Seyðfirðingar oft í minnihluta. Mjög
góð mæting hefur verið á tónleikana að
okkar mati. Í fyrra voru til dæmis um
70 manns á hverjum tónleikum.“
Dagskráin á sumartónleikaröðinni er
mjög fjölbreytt og ættu allir að finna
eitthvað við sitt hæfi.„Það hefur alltaf
verið, og verður áfram, fjölbreytt dag-
skrá og flytjendur allir fagmenn á sínu
sviði. Á hátíðinni verður meðal annars
boðið upp á klassíska tónlist, djasstón-
list, þjóðlagatónlist og síðan læðist inn
á milli popptónlist.“
Páll Óskar og Monika munu opna
sumartónleikaröðina í kvöld í Seyðis-
fjarðarkirkju. Meðal annarra tónleika
má nefna þá sem haldnir verða 23. júlí.
Þar munu feðgarnir Bergþór Pálsson og
Bragi Bergþórsson, ásamt Þóru Fríðu
Sæmundsdóttur píanóleikara, flytja
tónlist eftir Inga T. Lárusson tónskáld,
sem fæddist og ólst upp á Seyðisfirði.
Aðalheiður segir að þau vilji einn-
ig koma ungu tónlistarfólki á framfæri.
„Það hefur verið lykilatriði hjá okkur að
gefa ungum og upprennandi tónlistar-
mönnum tækifæri. Þann 6. ágúst verða
tónleikar með austfirsku söngvurunum
Aldísi Fjólu frá Borgarfirði eystri, Hall-
dóru Malin frá Egilsstöðum og Björt
Sigfinnsdóttur frá Seyðisfirði. Þær eiga
það sameiginlegt að hafa stundað nám
í söngskólanum Compleate Vocal Ins-
titute í Kaupmannahöfn auk annars list-
náms. Hver þeirra mun flytja nokkur lög
við undirleik bræðranna Barkar Hrafns
Birgissonar gítarleikara og Daða Birgis-
sonar píanóleikara.“
Allir tónleikarnir hefjast klukkan
20.30 og er aðgangseyrir á bilinu 1.500-
2.000 krónur en frítt er fyrir 16 ára og
yngri. Aðgangur kostar 1.000-1.500
krónur fyrir 67 ára og eldri, öryrkja og
námsmenn. Nánari upplýsingar um tón-
leikaröðina er hægt að nálgast á slóðinni
www.blaakirkjan.is.
sigridurp@frettabladid.is
SUMARTÓNLEIKARÖÐIN BLÁA KIRKJAN: HALDIN Í TÍUNDA SKIPTI
Fjölbreytt dagskrá fyrir alla
SUMARTÓNLEIKARÖÐ Alla miðvikudaga í sumar verða haldnir tónleikar í Seyðisfjarðarkirkju. Hátíðin ber heitið Bláa kirkjan og vísar það til
kirkjunnar sem er blá á litinn. MYND/ GUÐRÍÐUR ÁGÚSTSDÓTTIR
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
Halldóra Ágústa
Þorsteinsdóttir
Vestri-Reyni, til heimilis að Tindaflöt 5,
Akranesi,
er lést 4. júlí sl. verður jarðsungin frá Akraneskirkju
föstudaginn 11. júlí kl. 14.00. Jarðsett verður í Innra
-Hólmskirkjugarði.
Þórunn Valdís Eggertsdóttir
Elísabet Unnur Benediktsdóttir Benóný K. Halldórsson
Fríða Benediktsdóttir Eymar Einarsson
Valný Benediktsdóttir Ingibergur H. Jónsson
Haraldur Benediktsson Lilja Guðrún Eyþórsdóttir
Steinunn Fjóla Benediktsdóttir Jón E. Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Rósa Pétursdóttir,
varð bráðkvödd að heimili sínu, Grænumörk 5 Selfossi,
sunnudaginn 6. júlí. Jarðarförin auglýst síðar.
Börn, tengdabörn, barnabörn og langömmubörn.
Við þökkum ykkur öllum hlýhug, samúð
og vináttu við andlát elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
sonar,
Jóns Ólafssonar
frá Kirkjulæk.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á deild 13D á
Landspítalanum við Hringbraut og á líknardeildinni
í Kópavogi fyrir frábæra umönnun. Stuðningur ykkar
er okkur ómetanlegur. Þeim sem vilja beina áheitum
sínum á meyjarhofið Móður jörð geta lagt inn á
reikning hofsins 182 05 62648, kt. 311266-4469.
Ingibjörg Elfa Sigurðardóttir
Sveinbjörg Jónsdóttir
Signý Rós Jónsdóttir Samúel Ingi Guðmundsson
Ómar Smári Jónsson
Andri Geir Jónsson Agnes Helga Steingrímsdóttir
Patrik Þór Leifsson
María Jónsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jóhannes Þorberg
Kristinsson
Víðihvammi 15, Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
aðfaranótt þriðjudagsins 1. júlí.
Honum verður sungin sálumessa í Kristskirkju í
Landakoti fimmtudaginn 10. júlí nk. kl. 13.00.
Anna Jóhannsdóttir
Jóhann Þ. Jóhannesson
Svanhildur I. Jóhannesdóttir Guðmundur G. Kristinsson,
Kristinn Jóhannesson Guðrún F. Guðmundsdóttir,
Ólafur Jóhannesson Ingibjörg G. Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýju við andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
Jóns Þ. Björnssonar
Böðvarsgötu 19, Borgarnesi.
Ída Sigurðardóttir
Ólöf Hildur Jónsdóttir
Björn Jónsson
Anna Guðrún Jónsdóttir Birgir Skúlason
Sesselja Þórunn Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Guðmundar Guðveigssonar
Kirkjusandi 3, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfræðinga hjá Karitas og
starfsfólks deildar 11E á Landspítala við Hringbraut
fyrir frábæra umönnun. Guð blessi ykkur öll.
Kolbrún Dóra Indriðadóttir
Ólöf Guðmundsdóttir Salmon Peter Salmon
Eggert Snorri Guðmundsson Jóhanna Guðbjörnsdóttir
Indriði Halldór Guðmundsson Nína Edvardsdóttir
Sævar Guðmundsson Edda Sigurbergsdóttir
Halldóra Katla Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.