Fréttablaðið - 09.07.2008, Qupperneq 29
MIÐVIKUDAGUR 9. júlí 2008 21
Klarínettuleikarinn Einar Jóhann-
esson, einn af þekktustu einleikur-
um landsins, kemur fram á hádeg-
istónleikum í Dómkirkjunni í
Reykjavík á morgun kl. 12.15
ásamt Douglas A. Brotchie, organ-
ista Háteigskirkju. Tónleikarnir
eru liður í hádegistónleikaröð tón-
listarhátíðarinnar Alþjóðlegs
orgel sumars. Þá koma þeir Einar
og Douglas einnig fram á hádegis-
tónleikum í Hallgrímskirkju á
laugar dag kl. 12.
Í Dómkirkjunni leika þeir félag-
ar fyrst fjórar Kirkjusónötur eftir
Mozart sem eru útsettar fyrir
klarínett og orgel af Yonu
Ettlinger. Síðan leika þeir Exul-
tavit Maria sem Jónas Tómasson
skrifaði fyrir þá og að lokum leik-
ur Douglas tvo kafla úr orgelverk-
inu Dýrð Krists sem einnig er eftir
Jónas.
Á tónleikunum í Hallgríms-
kirkju leika Einar og Douglas
fyrst Concertino eftir ítalska
barroktónskáldið Giuseppe Tart-
ini í útsetningu Gordons Jacobs.
Þá leika þeir Music when soft
voices die eftir John Speight sem
hann skrifaði sérstaklega fyrir þá
og tónleikunum á laugardaginn
lýkur með Hugleiðingu um
ummyndum Krists á fjallinu eftir
Hafliða Hallgrímsson sem Douglas
leikur á Klais-orgelið. - vþ
Klarínetta og
orgel í hádeginu
EINAR JÓHANNESSON OG DOUGLAS A. BROTCHIE Koma fram á hádegistónleikum á
morgun og á laugardag.
Nýverið bárust fréttir af
því frá Frakklandi að þar
hefði verið tekin til sýninga
ópera sem byggir á hryll-
ings myndinni Flugunni. Þó
svo að mörgum þyki eflaust
merkilegt að umbreyta
óumdeilanlegri lágmenn-
ingarafurð í hámenningu á
þennan hátt eru fjöldamörg
dæmi um slíkar breytingar.
Kvikmyndin Flugan (The Fly) er
vafalaust ein vinsælasta mynd
kanadíska kvikmyndaleikstjórans
Davids Cronenberg. Þrátt fyrir
vinsældir myndarinnar kom það
þó flestum nokkuð á óvart að hún
yrði efniviður nýrrar óperu, enda
myndin líkamshryllingur af bestu
gerð. Færa má rök fyrir því að lík-
amlegar hryllingsmyndir séu
algjör lágmenning á meðan að
óperur séu algjör hámenning. Út
frá þessum hugsunarhætti má vel
álykta að það kæmi ekki jafnmikið
á óvart ef Flugan hefði alið af sér
söngleik fremur en óperu þar sem
að söngleikir búa í lægra menn-
ingarhólfinu ásamt teiknimynd-
um, þungarokki og öðru grodda-
legu efni. Þó verða þær raddir
ávallt háværari, nú á tímum staf-
ræns bræðings á öllum menning-
arsviðum, sem segja að mörkin á
milli þess háa og lága séu orðin
með öllu gagnslaus, en hér skal
ekki fjallað nánar um það.
Flugan er aðeins ein af nokkrum
vinsælum kvikmyndum síðustu
tveggja áratuga sem hljóta óperu-
meðferðina. Kvikmyndin Myrkra-
dansarinn eftir Danann skap-
stygga Lars Von Trier skartaði
Björk okkar í aðalhlutverki og
reiddi sig talsvert á tónlist og
dans til þess að koma tilfinninga-
hrifum til skila. Konunglega leik-
húsið í Kaupmannahöfn ku vera
um þessar mundir að breyta
myndinni í óperu sem frumsýnd
verður þar í borg eftir tvö til þrjú
ár. Leikstjórinn David Lynch er
rómaður fyrir óskiljanlegar og
undarlegar kvikmyndir sínar; ein
af hans undarlegustu myndum er
hiklaust Lost Highway frá árinu
1997. Færri vita að austurríska
tónskáldið Olga Neuwirth lagaði
handrit myndarinnar að óperu-
forminu árið 2003. Óperan var
sýnd við mikinn fögnuð Lynch-
aðdáenda bæði í Evrópu og í
Bandaríkjunum.
Að lokum ber að minnast á kvik-
myndina Sophie‘s Choice sem kom
út árið 1982 og skartaði Meryl
Streep í aðalhlutverki, en myndin
var gerð eftir skáldsögu Williams
Styron. Árið 2002 samdi tónskáldið
Nicholas Maw óperu út frá handriti
kvikmyndarinnar, en hlaut litlar
þakkir gagnrýnenda og áhorfenda
fyrir. Meryl Streep lætur aftur á
móti engan bilbug á sér finna og fer
mikinn um þessar mundir í kvik-
myndinni Mama Mia!, sem unnin er
upp úr samnefndum söngleik sem
sjálfur er unninn upp úr tónlist
sænsku poppmeistaranna í Abba.
Sóunarglaðir neytendur hins
vestræna heims mættu klárlega
taka sér kvikmynda-, leikhús- og
óperuiðnaðinn til fyrirmyndar hvað
viðkemur endurvinnslumálum.
vigdis@frettabladid.is
Kvikmynd verður ópera í
endurvinnsluiðnaðinum
HRYGGBRJÓTUR Kvikmynd leikstjórans Ang Lee um samkynhneigða kúreka verður
sviðsett sem ópera í New York árið 2013.
*
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
4
29
64
7
/0
8
HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ
+ Bókaðu flug á www.icelandair.isÍ Shaftesbury Theatre er sæti
fyrir þig. Ítalskur meistara-
kokkur við Duke Street hefur
lagt á borð fyrir þig. Það er
beðið eftir þér í Notting Hill.
*Flug aðra leiðina með sköttum.
Safnaðu
Vildarpunktum Punktarnir upp í Ferðaávísun gildir
Komdu til London, í helgarferð eða í sumarleyfi.
Lífvörður drottningar hefur æft vaktaskipti síðan á
19. öld og menn skilja ekkert í hvers vegna þú skulir
ekki hafa látið sjá þig ennþá.
M
A
D
R
ID
B
A
R
C
E
LO
N
A
PARÍS
LONDO
N
MANCHESTER
GLASGOW
MÍLANÓ
AMSTERDAM
MÜNCHEN
FRANKFURT
BERLÍN
KAUPMANNAHÖFN
BERGEN
GAUTABORG
OSLÓ
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
HA
LI
FA
X
BO
ST
ON
OR
LAN
DO
MINN
EAPOL
IS – ST. P
AUL
TOR
ONT
O
NE
W
YO
RK
REYKJAVÍK
AKUREYRI