Fréttablaðið - 09.07.2008, Side 30

Fréttablaðið - 09.07.2008, Side 30
22 9. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR Söngkonan Amy Winehouse er nú undir stanslausu eftirliti bæði fjölskyldu sinnar og öryggisvarða á vegum útgefanda hennar og getur því ekki lengur skemmt sér eins og henni er einni lagið. Söngkonan hefur því fundið sér nýtt áhugamál og nú eyðir hún frítíma sínum í ljósum. „Amy þarf alltaf að fara með allt út í öfgar. Hún keypti ljósabekkinn til þess að losna við útbrot sem hún var með en núna er hún farin að eyða nokkrum klukkutímum á dag í bekknum,“ sagði vinur söngkonunnar. „Í gegnum árin hefur Amy verið háð áfengi, eiturlyfjum, karlmönnum og jafnvel prjóna- skap, þetta er nýjasta fíknin,“ sagði vinurinn um ljósabekkj- anotkun Amy. Nýjar öfgar hjá Amy Leikkonan Drew Barrymore virðist ekki ætla að finna hina einu sönnu ást. Drew hefur nú tilkynnt að hún og kærasti hennar Justin Long séu skilin að skiptum eftir næstum árs samband. Vinur leikkonunnar segir þó að Drew og Justin séu enn góðir vinir. Í viðtali við tískutímaritið Vogue í mars sagði Drew að hún væri svo hamingjusöm með Justin að hana verkjaði í kinnarnar. Justin þessi er hvað þekktastur fyrir leik sinn í grínmyndinni Dodgeball, sem skartaði einnig Ben Stiller og Vince Vaughn. Drew á lausu HÆTT SAMAN Drew Barrymore og Justin Long eru skilin að skiptum eftir árs samband. Hótelerfinginn Paris Hilton og kærasti hennar Benji Madden virðast enn vera yfir sig ástfang- in. Parið hefur ekki farið sparlega með það að dásama hvort annað í viðtölum og nú hefur Benji einnig fengið sér demantshring með upphafsstöfum Parisar. Paris virðist því vera komin í hóp fyrrverandi skemmtanafíkla á borð við Lindsay Lohan og Nicole Ritchie sem hafa sagt skilið við skemmtanalífið eftir að þær fundu ástina. Ástfanginn hótelerfingi Lily Allen sýndi á sér nýja og óöruggari hlið á dögunum þegar hún ræddi um væntanlega plötu sína. Söngkonan sagði í viðtali við Rolling Stone tímaritið að henni fyndist hún ekki vera mjög hæfileikaríkur tónlistarmaður. „Ég hætti í skóla þegar ég var fimmtán ára. Ég er ekki snjall lagahöfundur. Mér finnst ég í raun ekki vera mjög góð í neinu.“ Allen segir að nýja platan verði ólík því sem hún hefur gert hingað til og því óttist hún viðbrögð aðdáenda sinna. „Sumum á eflaust eftir að líka platan vel, öðrum ekki. Ef fólk hatar hana, þá reyni ég bara eitthvað annað næst.“ Lily Allen ekki góð í neinu LILY ALLEN Söngkonan hefur efasemdir um eigið ágæti sem lagahöfundur. Hin brjóstagóða Pamela Ander- son kallaði söngkonuna Jessicu Simpson tík og gleðikonu í útvarpsþætti fyrir skömmu. Ástæðan að baki ummæla Pamelu er sú að Jessica sást klæðast bol með áletruninni „Alvöru stúlkur borða kjöt“ og Pamela er yfirlýst- ur dýraverndunarsinni og grænmetisæta. „Jessica var mjög sár vegna ummæla Pamelu. Að segja að hún sé reið er of vægt til orða tekið,“ sagði náin vinkona Jessicu um málið. „Jessica ætlaði að hefna sín á Pamelu en fjölskylda hennar talaði um fyrir henni og ráðlagði henni að gera ekki stórmál úr þessu því þá fengi Pamela fjölmiðla- umfjöll- unina sem hún þráir. Jessica ætlar því að halda aftur af sér þar sem ferill hennar er á uppleið en Pamela Anderson er á niðurleið.“ Ætli orðtakið „sá vægir sem vitið hefur meira“ eigi ekki við hérna. Ljóskurnar sýna klærnar Ein líflegasta hárgreiðslustofa höfuðborgarinnar, Gel, ætlar að leggja upp laupana í lok sumars. Anna Sigríður Pálsdóttir, hár- greiðslukona og eigandi stofunn- ar, segir ástæðuna einfaldlega vera þá að tími sé kominn til að hætta. „Við sem vinnum hér erum öll búin að vera í þessum bransa svo rosalega lengi og viljum nú snúa okkur að öðru. Við teljum að það sé betra að hætta á meðan allt er í blóma og við höfum enn gaman af því sem við erum að gera.“ Stofan hefur verið starfrækt í sjö ár og ætla þau á Geli að halda stærðarinnar kveðjupartí fyrir viðskiptavini stofunnar þann 13. september. „Partíið verður haldið á Organ og við ætlum að reyna að fá nokkra af bestu plötusnúðum landsins til að halda uppi fjörinu. Þetta verður alvöru kveðjupartí,“ segir Anna um kveðjuhófið og hvetur um leið viðskiptavini stofunnar til að nýta sér þessa síðustu mánuði til að næla sér í skemmtilega sumar- klippingu. Hárgreiðslumaðurinn lands- þekkti, Jón Atli Helgason segist ætla að vinna að viðburðarfyrir- tækinu Jóni Jónssyni ásamt því að sinna tónlistinni betur. „Við hjá Jóni Jónssyni stefnum á að víkka það konsept og taka að okkur öðru- vísi verkefni en við höfum áður gert. Þessa dagana erum við að vinna hörðum höndum að Trent- emöllertónleikunum sem verða á Tunglinu þann 18. júlí,“ segir Jón Atli sem mun augljóslega ekki sitja auðum höndum eftir lokun hárgreiðslustofunnar. - sm Gel hættir í lok sumars KVEÐJUSTUND Anna Sigga hefur rekið Gel í sjö ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM AFTUR Í TÓNLJSTINA Jón Atli Helgason ætlar að sinna tónlistinni betur í fram- tíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Flestir eru sammála um að tími sveitaballanna sé liðinn, og þar af leiðandi hinna hefðbundnu sveitaballabanda. Tvær gáfumannasveitir úr 101 ætla að snobba niður á við um næstu helgi og halda sveitaböll eins og það sé 1993 og landi í brúsa sé málið. Þetta eru hljómsveitirnar Sprengjuhöllin og XXX Rottweiler sem spila á 800 Bar á Selfossi á föstudags- kvöldið og í Sjallanum á Akureyri kvöldið eftir. Hljómsveitarmeðlimir segjast hafa orðið fyrir óþægindum vegna uppátækisins. Erpur Eyvindarson Rottweiler-hundur segist hafa fengið morðhótanir inn um bréfalúguna skrifaðar á Re-Max bréfsefni og Georg Kári í Sprengjuhöllinni var að sögn stunginn í rassinn með heykvísl þar sem hann lá í sólbaði í síðustu viku. Hljómsveitirnar hvetja fyrrverandi sveitaballakónga til að láta af ofbeldinu. Ef ekki, mega þeir vita að eldi verður svarað með eldi og hafa hljómsveitirnar þegar leitað til Grímseyjarhrottans til að sjá um gæslu á tónleikunum á Akureyri. Gáfumenn á sveitaböll SVEITABALL UM NÆSTU HELGI XXX Rottweiler spila með Sprengjuhöllinni á Selfossi og Akureyri um næstu helgi. Bloggarinn Jens Guð nafn- greindi meintan kynferðis- brotamann á bloggi sínu í gær. Hann tók út færslu sína að beiðni stjórnenda Moggabloggsins. „Árni Matt hringdi og bað mig í guðanna bænum að fjarlægja þetta í hvelli. Nei, hann gaf ekki upp neina ástæðu en ég geng út frá því sem vísu að þarna sé verið að hugsa um fórnar- lömbin, börn þessa manns,“ segir ofur- bloggar- inn Jens Guð. Í gær- morgun tók Jens, sem er með vin- sælli bloggurum á hinu svo- kallaða Mogga-bloggi, sig til og nafngreindi mann þann sem verið hefur í fréttum ónafngreind- ur að undanförnu grunaður um kyn- ferðislega misnotkun á börnum sínum. Komið hefur fram í fréttum að maðurinn, sem nú er í gæsluvarð- haldi, hefur starfað sem kennari við Háskólann í Reykja- víkur. Bloggfærsla Jens er undir fyrir- sögninni „Barnanauðg- arinn“ þannig að Jens velkist ekki í vafa um sekt eða sakleysi. Árni Matthíasson, vefstjóri Morgunblaðsins, segir sannarlega annan veruleika blasa við fjöl- miðlum með tilkomu netsins en áður var. Og hvetur Blaðamanna- félagið til að setjast yfir hann og siðareglur sínar sem hann telur brandara. „Mat lögmanns Árvak- urs er að ábyrgðin liggi hjá þeim sem heldur síðunni úti. Allir sem skrá sig hjá okkur gera það með kennitölu þannig að við vitum hver viðkomandi er,“ segir Árni. Ef ábyrgðin er bloggarans hlýt- ur sú spurning að vakna af hverju Moggamenn eru að skipta sér af efninu en Árni segir að allir gang- ist undir ákveðna skilmála þegar þeir skrá sig og vísar til þess. „Við höfum gripið inn í ef okkur finnst menn ganga of langt til dæmis með því að birta klám- fengið efni, meiðandi efni eða kynþáttaníð.“ Svo eru það nafn- birtingarnar sem eru umdeilan- legar. Árni segir þá á Mogganum líta svo á að þar eigi fórnarlambið alltaf að njóta vafans. „Þarna tog- ast á réttur fólks til að vita hverj- ir eru að brjóta af sér til að geta varist þeim og svo réttur fórnar- lambsins til að njóta verndar. En það er rétt, þetta er forvitnilegt mál ekki bara fyrir Blaðamanna- félagið heldur almennt.“ jakob@frettabladid.is Jens Guð skammaður JENS GUÐ Árni Matt á Mogganum hringdi og bað hann í guðanna bænum að kippa færslunni út í hvelli. SÍÐA JENS Víst er að fjölmiðlaveruleikinn hefur gerbreyst með tilkomu Netsins. > KÆRASTAN ÓSÁTT Kærastu Harrys, Chelsy Davy, þykir prinsinn drekka einum of mikið og hefur nú sett honum úrslitakosti; annað hvort minnki hann drykkjuna eða hún hættir með honum. Prinsinn hefur verið áberandi í skemmtanalífi Lundúnaborg- ar síðustu ár og hefur einn- ig verið staðinn að neyslu fíkniefna. folk@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.