Fréttablaðið - 09.07.2008, Síða 32
24 9. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR
Murta St. Calunga er þriðja plata
Benna Hemm Hemm í fullri lengd,
en auk þess sendi hann frá sér EP-
plötuna Ein í leyni seint á síðasta
ári. Hún stóð reyndar undir nafni
og týndist alveg. Tónlist Benna er
lúðrasveitarskotið indí popp. Hún
þótti fersk og óvenjuleg þegar
fyrsta platan kom út sem var
Benna og plötunni til framdráttar.
Önnur platan Kajak var framhald
af þeirri fyrstu, en aðeins
þunglamalegri. Nú er þriðja plat-
an komin og enn er sótt á sömu
mið tónlistarlega.
Murta St. Calunga er að mín
mati skemmtilegasta Benna
Hemm Hemm platan til þessa. Það
er léttara yfir henni heldur en
Kajak og hún er mjög vel unnin.
Það eru mörg fín lög á henni og
smáatriði í vinnslu og útsetning-
um lyfta henni upp. Fyrsta lagið,
Beethoven í Kaupmannahöfn, er
til dæmis mikil snilld. Það byrjar
á rúmlega mínútu löngu sáraein-
földu intrói áður en að lagið sjálft
hefst. Plötunni er svo lokað með
gjörbreyttri útgáfu af sama lagi.
Veiðiljóð er annað frábært lag, -
sérstaklega vel útsett. Það sama
má segja um fleiri lög, til dæmis
Avían í Afganistan og Allt sem það
fer.
Textarnir eru skemmtilega ein-
faldir og kæruleysislegir. Avían í
Afganistan og Whaling In The
North Atlantic eru til dæmis
athyglisverð innlegg í alþjóðamál-
in. Ég verð líka að hrósa plötuum-
slaginu. Eins og áður hjá Benna er
það mjög flott og gerir gripinn
eigulegri.
Yfir það heila er meiri kraftur í
Murta St. Calunga heldur en fyrri
plötunum. Veikleiki plötunnar er
hins vegar sá að þrátt fyrir nýjar
útfærslur að hluta og vel útfærð
smáatriði þá hefur tónlistin sjálf
þróast of lítið. Benni verður hik-
laust að lemja sig í hausinn fyrir
næstu plötu og koma með eitthvað
nýtt á borðið. Samt er Murta St.
Calunga skemmtileg og heilsteypt
plata. Fínn endapunktur á skóla-
hljómsveitar indípoppskeiðinu
sem hófst með fyrstu plötunni. Allt
er þegar þrennt er. Trausti Júlíusson
Allt er þegar þrennt er
TÓNLIST
Murta St. Calunga
Benni Hemm Hemm
★★★★
Þó að Murta St. Calunga sé full lík
fyrri plötum Benna Hemm Hemm
þá er hún léttari og skemmtilegri
heldur en síðasta plata. Góð lög og
vel heppnuð smáatriði í útsetningum
lyfta henni upp.
„Þetta er þriðja árið í röð sem Húnavakan er haldin
frá því að hún var endurvakin, en í ár ákváðum við
að gera eitthvað extra og halda popplagakeppni í
tilefni af því að tuttugu ár eru liðin frá því að
Blönduós fékk kaupstaðarréttindi,“ segir Einar Örn
Jónsson framkvæmdastjóri Húnavökunnar og
meðlimur hljómsveitarinnar Í svörtum fötum.
„Þátttakan var vonum framar og 44 lög bárust í
keppnina, en aðeins níu munu keppa til úrslita í
Vökulögunum 2008 í íþróttahúsinu á Blönduósi
föstudagskvöldið 11. júlí,“ úskýrir Einar Örn sem
býst við að bærinn muni fyllast af gestum og
brottfluttum á fjölskyldu- og menningarhátíð
Húnavöku sem mun standa yfir frá 11.-13. júlí
næstkomandi.
„Lögin verða frumflutt í heild sinni í þætti Felix
Bergssonar á Rás 2 laugardaginn 5. júlí og búið er
að gera geisladisk með lögunum níu sem munu
keppa til úrslita. Þeir sem eru á leiðinni á Blönduós
geta til dæmis kippt honum með sér á N1 á Ártúns-
höfða,“ segir Einar Örn að lokum. - ag
Níu íslensk popplög á Húnavöku
HÚNAVAKAN Á BLÖNDUÓSI Popplagakeppnin Vökulögin 2008
verður haldin í fyrsta sinn á Húnavökunni í ár og alls munu níu
lög keppa til úrslita föstudagskvöldið 11. júlí.
Fyrsta uppistand Snorra Hergils Kristjáns-
sonar á Organ undir nafninu Happy
Mondays, var á mánudag. Uppistandið er
undirbúningur fyrir hina risastóru og virtu
Edenborgarhátíð, sem honum var boðið á.
Snorri Hergill hefur löngum búið í London
og staðið fyrir uppistandi þar, en hann var
kosinn næstfyndnasti maður Íslands 2002.
Þá er Snorri lærður leikari úr LAMDA-
skólanum.
„Þetta er svona vinnustofupæling. Ég hendi út efni
sem ég er með og athuga hvað virkar og hvað ekki.
Það er enginn betri staður til að hamra sýninguna á
en í smiðju áhorfenda. Það er svo erfitt að gera svona
einn. Þá situr maður bara og hugsar ætli þetta sé
fyndið? Ætli einhver elski mig? Sem er svolítið
sorglegt,“ segir Snorri Hergill Kristjánsson um
uppistand sitt á mánudagskvöldum á Organ,
Sýningin verður í þróun í allan júlí, út frá áhorf-
endum. „Nú fer ég í það að laga, klippa, líma og
breyta. Reyna að muna eftir að segja brandara eins
og: I wanted to do my preview in Iceland because I‘m
large, quite pale and hairy. What could possibly go
wrong?“
Það er ekkert smámál að vera fenginn á
Edinborgar hátíðina. „Eddie Izzard fór á tólf Edin-
borgarhátíðir í röð. Það hafa allir sem eru eitthvað
farið þarna í gegn. Þetta er staðurinn þar sem
uppistandarar í Evrópu, jafnvel heiminum, búa sér til
nafn,“ segir Snorri.
Uppistand hans á Organ er á ensku, eins og
hátíðin. Hvernig taka Íslendingar því? „Um fjörutíu
prósent af gestum á mánudaginn voru útlendingar.
Íslendingar hafa líka mjög gaman af gríni á ensku, þó
mér þyki alltaf vænna um að gera grín á ástkæra
ylhýra. En fólk tekur almennt vel í þetta.“ Hann
segist þurfa að breyta ýmsu í sýningunni fyrir
íslenskan markhóp. „Það sem ég þarf að breyta eru
tilvitnanir og tilvísanir. Sumt rennur beint ofan í
Bretana sem gengur ekkert ofan í Íslendingana. Ég
er að reyna að finna hvað það er og losna við það úr
sýningunni. Þess vegna er mjög gott fyrir mig að taka
þessa sýningu á Íslandi því þá kemst maður meira að
kjarna málsins. Öll skítatrixin virka bara ekki neitt.“
Snorri sér um Laughing Horse, Soho klúbbinn í
London á þriðjudögum og Laughing Horse, Queen‘s
Head, við Piccadilly Circus tvo daga í viku, en hann
komst í úrslit Laughing Horse keppninnar í fyrra.
Hvernig er að troða upp í London? „Það er bara hart.
Menn eru að reyna að smala áhorfendum, fá þá í hús
og skemmta þeim.“ En eru Bretar betur að sér um
uppistand? „Það er mjög góð spurning. En það er bara
þannig að ef þér finnst eitthvað fyndið, þá hlærðu.
Það er kannski meiri djassgeggjarafílingur á
uppistandsaðdáendum í Bretlandi. Á endanum er
húmor alþjóðlegt fyrirbæri,“ segir Snorri. Ein megin
ástæða þess að Snorri prufukeyrir sýninguna, sem
ber nafnið Dog Day King, á Íslendingum er til að
komast burt frá London og þeirri rútínu að skemmta
þrisvar í viku. „Svo er alltaf best að vera á Íslandi.
Ísland er best í heimi, það er bara þannig.“ Snorri er
einnig að gera sig líkamlega tilbúinn fyrir hátíðina.
„Ég er að hlaupa og synda með Rocky-kvikmyndatón-
listina í eyrunum.“
Happy Mondays standa út júlí og kostar 1500
krónur inn. kolbruns@frettabladid.is
Æft fyrir Edinborgarhátíð
HAMRAR SÝNINGU MEÐ ÁHORFENDUM Snorri Hergill athugar
hvað er fyndið. MYND/GUNNAR FREYR
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA.
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SELFOSS
MAMMA MÍA kl. 8 - 10:20 L
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 8 L
HANCOCK kl. 10:10 12
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 6 - 8 L
NARNIA 2 kl. 5:40 7
WANTED kl. 8 12
MAMMA MÍA kl. 3:40 - 5:40D - 8D - 10:20D L
MAMMA MÍA kl. 5:40 - 8 - 10:20 VIP
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 3:40D- 6 L
KUNG FU PANDA m/ensku tali kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 L
HANDCOCK kl. 8 - 10:10 12
WANTED kl. 5:40 - 8 - 10:20 16
NARNIA 2 kl. 5 7
INDIANA JONES 4 kl. 8 12
THE BANK JOB kl. 10:20 16
MEET DAVE kl. 6 - 8 - 10 L
WANTED kl. 8D - 10:20D 16
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 6D L
NARNIA 2 kl. 6 - 9 7
DIGITAL
DIGITAL
MAMMA MÍA kl. 8 - 10:20 L
MEET DAVE kl. 8 7
HANCOCK kl. 10 12
- bara lúxus
Sími: 553 2075
MAMMA MIA - DIGITAL kl. 4, 5.50, 8 og 10.10 L
HANCOCK kl. 6:10, 8 og 10 12
KUNG FU PANDA - ÍSl.TAL kl. 4 L
WANTED kl. 8 og 10.10 16
NARNIA: PRINCE CASPIAN kl. 5 7
M Y N D O G H L J Ó Ð
Það er heill heimur inni
í honum sem heldur
honum gangandi!
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
7
12
12
MAMMA MIA kl. 6 - 8 - 10
HANCOCK kl. 8 - 10
BIG STAN kl. 6
12
12
MAMMA MIA kl. 5.30D - 8D - 10.30D
MAMMA MIA LÚXUS kl. 5.30D - 8D - 10.30D
MEET DAVE kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
HANCOCK D HJÓÐ & MYND kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
KUNG FU PANDA ÍSL. TAL kl. 3.45 - 5.50
THE INCREDIBLE HULK kl. 8 - 10.30
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
12
12
14
MAMMA MIA kl. 6 - 8.30 - 11
HANCOCK kl. 5.50 - 8 - 10.10
KUNG FU PANDA ENSKT TAL kl. 6 - 8
BIG STAN kl. 10
SEX AND THE CITY kl. 6 - 9
5%
5%
SÍMI 551 9000
7
12
12
16
14
10
MEET DAVE kl. 6.10 - 8.30 - 10.40
BIG STAN kl. 5.40 - 8 - 10.20
THE INCREDIBLE HULK kl. 5.30 - 8
HAPPENING kl. 10.20
SEX AND THE CITY kl. 10.20
ZOHAN kl. 5.40 - 8
SÍMI 530 1919
FÍNASTA
SUMARSKEMMTUN
- V.J.V., TOPP5.IS/FBL
Þau komu langt utan úr geimnum
í fullkomnu dulargervi!