Fréttablaðið - 09.07.2008, Side 34
26 9. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Jónas Hallgrímsson
hættir með lið Völsungs í 2. deild
eftir fyrri umferðina. Í viðtali við
Fótbolta.net í gær ásakar hann
dómara í deildinni um að eyði-
leggja leiki hjá hans liði. Auk
þess sakar hann KSÍ um að
skemma fótbolta á Húsavík.
„Þeir
eru bara
hlæjandi
og
eyðileggja
leikinn og
eru bara
stoltir af því,“
sagði Jónas
meðal annars um
dómarana. „Ég get
ekki tekið þátt í
svona vitleysu, þetta er
orðið rotið og dómararnir hafa
algjörlega stjórn á því hvernig
leikirnir fara [...] Þessir menn fá
borgað fyrir þetta, þeir hafa
ekkert leyfi til að koma brosandi
út af eftir að hafa hegðað sér eins
og fífl.“ Hann skýtur svo föstum
skotum að KSÍ.
„Ég er búinn að lenda í KSÍ
áður. Það er búið að hóta okkur
áður að ef við höldum ekki kjafti
þá skuli KSÍ sjá til þess að
fótboltinn á Húsavík eigi sér ekki
viðreisnar von,“ sagði Jónas
stórorður en leikmenn liðsins
hafa einnig hótað að hætta. - hþh
Hættir vegna dómgæslu:
Eyðileggja leiki
stoltir og hlæja
>Hefur mikla trú á Aroni
Chris Coleman telur að landsliðsmaðurinn Aron Gunn-
arsson eigi eftir að fríska verulega upp á miðjuspilið hjá
Coventry á næsta keppnistímabili. „Ég þjálfaði
Heiðar Helguson hjá Fulham og hann er einver
mesti nagli sem ég hef séð inni á vellinum og
Aron er harðjaxl líka. Hann er með sterka
fætur, góða yfirferð og sendingargetu. Hann er
með gríðarlegt keppnisskap og mikla áræðni
og þó svo að hann sé aðeins 19 ára gamall
og við ættum ef til vill ekki að búast við of
miklu strax, þá er ég sannfærður um að
hann á eftir að láta að sér kveða strax á
komandi tímabili. Hann er þegar kominn í
A-landslið Íslands og á aðeins eftir að verða
betri,“ sagði Coleman í nýlegu viðtali við
Coventry Telegraph.
Landsbankadeild kvenna
Keflavík-Þór/KA 0-5
0-1 Bojana Besic, 0-2 Rakel Hönnudóttir, 0-3
Rakel Hönnudóttir, 0-4 Ivana Ivanovic, 0-5 Rakel
Hönnudóttir.
Stjarnan-Valur 0-5
0-1 Margrét Lára Viðarsdóttir (2.), 0-2 Katrín
Jónsdóttir (33.), 0-3 Margrét Lára Viðarsdóttir
(36.), 0-4 Margrét Lára Viðarsdóttir (40.), 0-5
Dóra María Lárusdóttir (77.)
Fylkir-HK/Víkingur 3-3
1-0 Lizzy Karoly (12.), 1-1 Þórhildur Stefánsdóttir
(13.), 1-2 Marina Nesic (24.), 1-3 Berglind
Bjarnadóttir (37.), 2-3 Ruth Þórðardóttir (52.),
3-3 Ruth Þórðardóttir (65.).
Breiðablik-Fjölnir 5-4
1-0 Fanndís Friðriksdóttir (4.), 2-0 Fanndís Frið-
riksdóttir (14.), 2-1 Helga Franklínsdóttir (23.), 3-1
Berglind Björg Þorvaldsdóttir (25.), 4-1 Erna Björk
Sigurðardóttir (37.), 4-2 Elísa Ósk Viðarsdóttir
(45.), 5-2 Harpa Þorsteinsdóttir (56.), 5-3 Kristin
R. Hextall (68.), 5-4 Elísa Ósk Viðarsdóttir (74.).
KR-Afturelding 2-0
1-0 Hrefna Huld Jóhannesdóttir (36.), 2-0 Fjóla
Dröfn Friðriksdóttir (46.).
STAÐAN Í DEILDINNI
Valur 9 9 0 0 38-6 27
KR 9 8 0 1 27-6 24
Stjarnan 8 4 2 2 15-11 14
Breiðablik 9 4 1 4 21-17 13
Afturelding 9 3 2 4 5-8 11
Þór/KA 8 3 1 4 16-14 10
Keflavík 9 2 2 5 10-26 8
Fylkir 9 2 1 6 9-24 7
HK/Víkingur 9 1 3 5 10-0 6
Fjölnir 9 1 2 6 9-28 5
MARKAHÆSTAR
Margrét Lára Viðarsdóttir, Val 10
Hólmfríður Magnúsdóttir, KR 8
Hrefna Huld Jóhannesdóttir, KR 8
Björk Gunnarsdóttir, Stjörnunni, 7
Rakel Hönnudóttir, Þór/KA 7
Dóra María Lárusdóttir, Val 6
Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Breiðabliki 6
ÚRSLIT
FÓTBOLTI KR-stúlkur kláruðu verk-
efnið og tóku þrjú stig gegn Aftur-
eldingu í gærkvöld og eru sem fyrr
fast á hæla Valsstúlkna.
Það var jafnræði með liðunum
fyrsta stundarfjórðunginn á KR-
vellinum þar sem nýliðar Aftureld-
ingar gáfu bikarmeisturum KR
ekkert eftir.
KR-stúlkur fóru svo smátt og
smátt að herða tök sín á leiknum og
fyrsta markið lá í loftinu. Markið
kom hins vegar ekki fyrr en á 36.
mínútu eftir fáheyrð mistök í vörn
Aftureldingar. Olga Færseth fékk
boltann rétt utan vítateigs eftir að
varnarmönnum Aftureldingar mis-
tókst að hreinsa frá markinu og
markadrottningin var komin í
ákjósanlegt skotfæri, en í stað þess
að skora sjálf gaf hún á Hrefnu
Huld Jóhannesdóttur sem skoraði
auðveldlega á fjærstönginni.
Staðan var 1-0 í hálfleik og það
voru aðeins liðnar 25 sekúndur af
seinni hálfleik þegar KR-stúlkur
bættu öðru marki við. Katrín
Ómarsdóttir átti þá glæsilega
stungusendingu inn fyrir vörn
Aftureldingar og Fjóla Dröfn
Friðriksdóttir lagði boltann
snyrtilega í markið.
Leikurinn datt örlítið niður eftir
markið en bæði lið áttu þó sín
marktækifæri. Katrín Ómarsdótt-
ir brenndi af sannkölluðu dauða-
færi þegar tuttugu mínútur lifðu
leiks eftir góðan undirbúning frá
Ólínu Guðbjörgu Viðarsdóttur og
stuttu síðar var mark dæmt af
Fjólu Dröfn vegna rangstöðu.
Afturelding komst næst því að
skora þegar Aldís Mjöll Helga-
dóttir átti skot af 30 metra færi
sem fór í slána. En hvorugt liðið
náði að skora á lokakaflanum og
KR-stúlkur hirtu því stigin þrjú.
Helena Ólafsdóttir, þjálfari KR,
var vitanlega ánægð með sigurinn
í leikslok.
„Við vissum alveg að við
þyrftum að hafa fyrir sigrinum og
að við mættum ekki slaka á.
Seinna markið var mikilvægt og
tryggði okkur þetta en ég hefði
alveg viljað sjá okkur fylgja því
marki betur eftir. Annars var ég
bara sátt með spilamennskuna
svona heilt yfir,“ sagði Helena.
Gareth O‘Sullivan, þjálfari Aft-
ureldingar, fannst stúlkurnar
sínar komast ágætlega frá leikn-
um.
„Þetta var erfiður leikur en mér
fannst við aðeins ná að stríða KR
og ég er stoltur af stelpunum
mínum fyrir að gefast aldrei upp,“
sagði Gareth.
- óþ
KR-stúlkur unnu baráttuglatt lið Aftureldingar 2-0 í Landsbankadeild kvenna á KR-vellinum í gærkvöld:
Nýliðarnir náðu að standa í KR-stúlkum
ÖFLUG Hólmfríður Magnúsdóttir hefur
hér betur í baráttunni við varnarmann
Aftureldinga. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Landsliðskonan Greta Mjöll Samúelsdóttir hjá Breiðabliki
varð fyrir því óláni að meiðast illa á æfingu með Kópavogs-
liðinu um síðustu helgi en hún kvað atvikið hafa komið upp
úr nánast engu.
„Ég var bara að rekja boltann á mikilli ferð og var að
búa mig undir að senda fyrir markið með vinstri fæti,
þegar eitthvað gaf sig í hægra hnénu og lærleggurinn
fór eitthvert sem hann átti ekki að fara. Ég var
nokkrar sekúndur að átta mig á því hvað hafði
gerst og hélt bara um löppina þegar ég fann
allt í einu gríðarlegan sársauka og stóð bara á
orginu. Eftir það fór mig að svima og ég fann
fyrir ógleði og mér var því komið beinustu leið upp
á sjúkrahús þar sem ég fékk morfín og fór í röntgen
til þess að fá úr því skorið hvort eitthvað væri brotið,
en það var sem betur fer ekki raunin,“ sagði Greta
Mjöll sem hefur ekki enn almennilega fengið á
hreint hvað amar að henni.
„Ég er í gifsi frá ökkla og upp að læri sem gerir
það að verkum að ég get labbað en hnéið á mér er í fastri stöðu og
hreyfist ekki úr stað. Ég fer til læknis í skoðun á föstudag og þá
kemst það vonandi á hreint hversu alvarleg meiðslin eru. Þetta
eru náttúrulega alltaf alvarleg meiðsli en það er mikill munur
á því að verða frá í tvo mánuði eða eitt ár og ef til
dæmis er um krossbandaslit að ræða gæti ég verið
frá keppni í að minnsta kosti níu mánuði og allt upp í
eitt ár. Þetta er líka leiðinlegur tími til þess að meiðast
þar sem ég stefndi á að fara í háskóla til Bandaríkjanna
eftir rúman mánuð og nú veit ég ekkert hvernig það á
eftir að ganga fyrir sig,“ sagði Greta Mjöll sem nálgast
þetta leiðindaatvik þó á jákvæðum nótum.
„Ég held bara í vonina um að þetta sé ekki jafn
alvarlegt og haldið var í fyrstu og hef reyndar verið
tiltölulega heppin með meiðsli hingað til. En ef allt fer
á versta veg þá tækla ég það bara þegar þar að kemur
og set mér ný markmið. Þó að einhverjar dyr lokist,
þá opnast aðrar í staðinn,“ sagði Greta Mjöll ákveðin.
GRETA MJÖLL SAMÚELSDÓTTIR, BREIÐABLIKI: MEIDDIST ILLA Á ÆFINGU OG VERÐUR FRÁ KEPPNI Í EINHVERN TÍMA
Þó að einhverjar dyr lokist, opnast aðrar í staðinn
FÓTBOLTI Sigurganga Valskvenna
heldur áfram í Landsbankadeild
kvenna en liðið vann sinn 18. deild-
arleik í röð þegar þær burstuðu
Stjörnuna, 0-5, á gervigrasinu í
Garðabæ í gær. Valur er því áfram
með fullt hús á toppnum.
Valsstúlkur með Margréti Láru
Viðarsdóttur í fararbroddi gerðu
út um leik sinn við Stjörnuna í
fyrri hálfleik. Margrét Lára skor-
aði fyrsta markið eftir aðeins 1
mínútu og 20 sekúndur eftir lag-
legan einleik og eftir það var á
brattann að sækja fyrir Stjörnu-
liðið sem hefur staðið sig vel í
sumar. „Við settum upp ákveðið
leikplan og það var orðið ljóst eftir
tvær mínútur að það gekk ekki
upp,“ sagði Þorkell Máni Péturs-
son, þjálfari Stjörnunnar. Margrét
Lára lagði upp annað markið fyrir
fyrirliðann Katrínu Jónsdóttur
eftir rúman hálftíma og skoraði
síðan tvö falleg mörk sjálf með
fjögurra mínútna millibili fyrir
lok hálfleiksins.
Dóra María Lárusdóttir innsigl-
aði síðan sigurinn í seinni hálfleik
með flottu marki eftir fallega
sendingu frá Katrínu fyrirliða inn
fyrir vörnina. Katrín var ánægð
með leikinn í leikslok.
Það heppnaðist allt
„Fyrri hálfleikurinn var mjög
góður hjá okkur og spiluðum við
ótrúlega vel. Það heppnaðist allt
hjá okkur og við gerðum út um
leikinn þá. Þetta datt svolítið niður
í seinni hálfleik. Stjarnan er með
mjög gott lið, þær eru líkamlega
sterkar og við vissum að við
þyrftum að mæta þeim þar. Við
vorum búnar að undirbúa okkur
vel fyrir þennan leik,“ sagði Katr-
ín eftir leik.
Margrét Lára átti frábæran
fyrri hálfleik og Stjörnuliðið réð
þá ekkert við hana. „Margrét er
alveg klárlega ein af bestu knatt-
spyrnukonunum í heiminum. Það
er stór munur á þessum liðum að
annað liðið er með Margréti Láru
en hitt ekki. Það má samt ekki taka
það af öðrum stelpum í Valsliðinu
að þær eru með rosalega gott lið,“
sagði Þorkell Máni, þjálfari Stjörn-
unnar, um Margréti Láru og hún
sjálf var líka sátt við sína frammi-
stöðu.
Áttum allar skínandi leik
„Þetta var frábær leikur hjá okkur
og ekki slæmt að vinna 5-0 sigur á
sterku liði Stjörnunnar. Við áttum
allar skínandi leik, sérstaklega í
fyrri hálfleik og rúlluðum yfir
þær. Ég held að ég sé að komast í
mitt besta form aftur. Þetta er
búinn að vera erfiður tími en ég er
að vinna í mínum málum og mun
hægt og sígandi koma sterkari og
sterkari til leiks. Ég átti einn minn
besta leik í sumar í dag og er mjög
sátt með það,“ sagði Margrét Lára
sem fór útaf á 68. mínútu.
„Ég hef verið verri á gervigrasi
og fann það í seinni hálfleik að ég
var farin að stífna vel upp. Við
tökum enga áhættu og ég er búin
að læra það á þessum þrálátu
meiðslum að það þýðir ekkert
annað en að vera skynsamur,“
sagði Margrét Lára.
Féllum bara á prófinu
Þorkell Máni, þjálfari Stjörnunn-
ar, var ekki ánægður með sínar
stelpur í leikslok. „Við föllum bara
á prófinu, þetta er búið að vera
voða fínt hjá okkur og ganga voða
vel. En þegar kemur í svona stór-
leik þá erum stelpurnar búnar að
gefa frá sér leikinn á fyrstu 45
mínútunum. Við erum ekki að
nálgast þessi lið,“ sagði Þorkell
Máni. „Við fengum þetta próf núna
og menn biðu eftir að sjá hvar við
stæðum í þessari baráttu. Þetta er
munurinn og við erum fimm mörk-
um frá Valsliðinu. Við þurfum að
halda áfram að minnka muninn.“
ooj@frettabladid.is
Annað liðið var með Margréti Láru
Margrét Lára Viðarsdóttir kláraði Stjörnuna í fyrri hálfleik með þremur flottum mörkum og glæsilegri
stoðsendingu. Hún segist öll vera að koma til eftir meiðsli og hún átti einn besta leik sinn í sumar í gær.
LÉTTUR DANS MEÐ BOLTANN Marrgét Lára Viðarsdóttir átti frábæran fyrri hálfleik í
5-0 sigri Vals á Stjörnunni og átti þá þátt í öllu8m fjórum mörkum Valsliðsins. Hér er
hún á fleygiferð með boltann í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN