Fréttablaðið - 09.07.2008, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 09.07.2008, Qupperneq 34
26 9. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Jónas Hallgrímsson hættir með lið Völsungs í 2. deild eftir fyrri umferðina. Í viðtali við Fótbolta.net í gær ásakar hann dómara í deildinni um að eyði- leggja leiki hjá hans liði. Auk þess sakar hann KSÍ um að skemma fótbolta á Húsavík. „Þeir eru bara hlæjandi og eyðileggja leikinn og eru bara stoltir af því,“ sagði Jónas meðal annars um dómarana. „Ég get ekki tekið þátt í svona vitleysu, þetta er orðið rotið og dómararnir hafa algjörlega stjórn á því hvernig leikirnir fara [...] Þessir menn fá borgað fyrir þetta, þeir hafa ekkert leyfi til að koma brosandi út af eftir að hafa hegðað sér eins og fífl.“ Hann skýtur svo föstum skotum að KSÍ. „Ég er búinn að lenda í KSÍ áður. Það er búið að hóta okkur áður að ef við höldum ekki kjafti þá skuli KSÍ sjá til þess að fótboltinn á Húsavík eigi sér ekki viðreisnar von,“ sagði Jónas stórorður en leikmenn liðsins hafa einnig hótað að hætta. - hþh Hættir vegna dómgæslu: Eyðileggja leiki stoltir og hlæja >Hefur mikla trú á Aroni Chris Coleman telur að landsliðsmaðurinn Aron Gunn- arsson eigi eftir að fríska verulega upp á miðjuspilið hjá Coventry á næsta keppnistímabili. „Ég þjálfaði Heiðar Helguson hjá Fulham og hann er einver mesti nagli sem ég hef séð inni á vellinum og Aron er harðjaxl líka. Hann er með sterka fætur, góða yfirferð og sendingargetu. Hann er með gríðarlegt keppnisskap og mikla áræðni og þó svo að hann sé aðeins 19 ára gamall og við ættum ef til vill ekki að búast við of miklu strax, þá er ég sannfærður um að hann á eftir að láta að sér kveða strax á komandi tímabili. Hann er þegar kominn í A-landslið Íslands og á aðeins eftir að verða betri,“ sagði Coleman í nýlegu viðtali við Coventry Telegraph. Landsbankadeild kvenna Keflavík-Þór/KA 0-5 0-1 Bojana Besic, 0-2 Rakel Hönnudóttir, 0-3 Rakel Hönnudóttir, 0-4 Ivana Ivanovic, 0-5 Rakel Hönnudóttir. Stjarnan-Valur 0-5 0-1 Margrét Lára Viðarsdóttir (2.), 0-2 Katrín Jónsdóttir (33.), 0-3 Margrét Lára Viðarsdóttir (36.), 0-4 Margrét Lára Viðarsdóttir (40.), 0-5 Dóra María Lárusdóttir (77.) Fylkir-HK/Víkingur 3-3 1-0 Lizzy Karoly (12.), 1-1 Þórhildur Stefánsdóttir (13.), 1-2 Marina Nesic (24.), 1-3 Berglind Bjarnadóttir (37.), 2-3 Ruth Þórðardóttir (52.), 3-3 Ruth Þórðardóttir (65.). Breiðablik-Fjölnir 5-4 1-0 Fanndís Friðriksdóttir (4.), 2-0 Fanndís Frið- riksdóttir (14.), 2-1 Helga Franklínsdóttir (23.), 3-1 Berglind Björg Þorvaldsdóttir (25.), 4-1 Erna Björk Sigurðardóttir (37.), 4-2 Elísa Ósk Viðarsdóttir (45.), 5-2 Harpa Þorsteinsdóttir (56.), 5-3 Kristin R. Hextall (68.), 5-4 Elísa Ósk Viðarsdóttir (74.). KR-Afturelding 2-0 1-0 Hrefna Huld Jóhannesdóttir (36.), 2-0 Fjóla Dröfn Friðriksdóttir (46.). STAÐAN Í DEILDINNI Valur 9 9 0 0 38-6 27 KR 9 8 0 1 27-6 24 Stjarnan 8 4 2 2 15-11 14 Breiðablik 9 4 1 4 21-17 13 Afturelding 9 3 2 4 5-8 11 Þór/KA 8 3 1 4 16-14 10 Keflavík 9 2 2 5 10-26 8 Fylkir 9 2 1 6 9-24 7 HK/Víkingur 9 1 3 5 10-0 6 Fjölnir 9 1 2 6 9-28 5 MARKAHÆSTAR Margrét Lára Viðarsdóttir, Val 10 Hólmfríður Magnúsdóttir, KR 8 Hrefna Huld Jóhannesdóttir, KR 8 Björk Gunnarsdóttir, Stjörnunni, 7 Rakel Hönnudóttir, Þór/KA 7 Dóra María Lárusdóttir, Val 6 Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Breiðabliki 6 ÚRSLIT FÓTBOLTI KR-stúlkur kláruðu verk- efnið og tóku þrjú stig gegn Aftur- eldingu í gærkvöld og eru sem fyrr fast á hæla Valsstúlkna. Það var jafnræði með liðunum fyrsta stundarfjórðunginn á KR- vellinum þar sem nýliðar Aftureld- ingar gáfu bikarmeisturum KR ekkert eftir. KR-stúlkur fóru svo smátt og smátt að herða tök sín á leiknum og fyrsta markið lá í loftinu. Markið kom hins vegar ekki fyrr en á 36. mínútu eftir fáheyrð mistök í vörn Aftureldingar. Olga Færseth fékk boltann rétt utan vítateigs eftir að varnarmönnum Aftureldingar mis- tókst að hreinsa frá markinu og markadrottningin var komin í ákjósanlegt skotfæri, en í stað þess að skora sjálf gaf hún á Hrefnu Huld Jóhannesdóttur sem skoraði auðveldlega á fjærstönginni. Staðan var 1-0 í hálfleik og það voru aðeins liðnar 25 sekúndur af seinni hálfleik þegar KR-stúlkur bættu öðru marki við. Katrín Ómarsdóttir átti þá glæsilega stungusendingu inn fyrir vörn Aftureldingar og Fjóla Dröfn Friðriksdóttir lagði boltann snyrtilega í markið. Leikurinn datt örlítið niður eftir markið en bæði lið áttu þó sín marktækifæri. Katrín Ómarsdótt- ir brenndi af sannkölluðu dauða- færi þegar tuttugu mínútur lifðu leiks eftir góðan undirbúning frá Ólínu Guðbjörgu Viðarsdóttur og stuttu síðar var mark dæmt af Fjólu Dröfn vegna rangstöðu. Afturelding komst næst því að skora þegar Aldís Mjöll Helga- dóttir átti skot af 30 metra færi sem fór í slána. En hvorugt liðið náði að skora á lokakaflanum og KR-stúlkur hirtu því stigin þrjú. Helena Ólafsdóttir, þjálfari KR, var vitanlega ánægð með sigurinn í leikslok. „Við vissum alveg að við þyrftum að hafa fyrir sigrinum og að við mættum ekki slaka á. Seinna markið var mikilvægt og tryggði okkur þetta en ég hefði alveg viljað sjá okkur fylgja því marki betur eftir. Annars var ég bara sátt með spilamennskuna svona heilt yfir,“ sagði Helena. Gareth O‘Sullivan, þjálfari Aft- ureldingar, fannst stúlkurnar sínar komast ágætlega frá leikn- um. „Þetta var erfiður leikur en mér fannst við aðeins ná að stríða KR og ég er stoltur af stelpunum mínum fyrir að gefast aldrei upp,“ sagði Gareth. - óþ KR-stúlkur unnu baráttuglatt lið Aftureldingar 2-0 í Landsbankadeild kvenna á KR-vellinum í gærkvöld: Nýliðarnir náðu að standa í KR-stúlkum ÖFLUG Hólmfríður Magnúsdóttir hefur hér betur í baráttunni við varnarmann Aftureldinga. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Landsliðskonan Greta Mjöll Samúelsdóttir hjá Breiðabliki varð fyrir því óláni að meiðast illa á æfingu með Kópavogs- liðinu um síðustu helgi en hún kvað atvikið hafa komið upp úr nánast engu. „Ég var bara að rekja boltann á mikilli ferð og var að búa mig undir að senda fyrir markið með vinstri fæti, þegar eitthvað gaf sig í hægra hnénu og lærleggurinn fór eitthvert sem hann átti ekki að fara. Ég var nokkrar sekúndur að átta mig á því hvað hafði gerst og hélt bara um löppina þegar ég fann allt í einu gríðarlegan sársauka og stóð bara á orginu. Eftir það fór mig að svima og ég fann fyrir ógleði og mér var því komið beinustu leið upp á sjúkrahús þar sem ég fékk morfín og fór í röntgen til þess að fá úr því skorið hvort eitthvað væri brotið, en það var sem betur fer ekki raunin,“ sagði Greta Mjöll sem hefur ekki enn almennilega fengið á hreint hvað amar að henni. „Ég er í gifsi frá ökkla og upp að læri sem gerir það að verkum að ég get labbað en hnéið á mér er í fastri stöðu og hreyfist ekki úr stað. Ég fer til læknis í skoðun á föstudag og þá kemst það vonandi á hreint hversu alvarleg meiðslin eru. Þetta eru náttúrulega alltaf alvarleg meiðsli en það er mikill munur á því að verða frá í tvo mánuði eða eitt ár og ef til dæmis er um krossbandaslit að ræða gæti ég verið frá keppni í að minnsta kosti níu mánuði og allt upp í eitt ár. Þetta er líka leiðinlegur tími til þess að meiðast þar sem ég stefndi á að fara í háskóla til Bandaríkjanna eftir rúman mánuð og nú veit ég ekkert hvernig það á eftir að ganga fyrir sig,“ sagði Greta Mjöll sem nálgast þetta leiðindaatvik þó á jákvæðum nótum. „Ég held bara í vonina um að þetta sé ekki jafn alvarlegt og haldið var í fyrstu og hef reyndar verið tiltölulega heppin með meiðsli hingað til. En ef allt fer á versta veg þá tækla ég það bara þegar þar að kemur og set mér ný markmið. Þó að einhverjar dyr lokist, þá opnast aðrar í staðinn,“ sagði Greta Mjöll ákveðin. GRETA MJÖLL SAMÚELSDÓTTIR, BREIÐABLIKI: MEIDDIST ILLA Á ÆFINGU OG VERÐUR FRÁ KEPPNI Í EINHVERN TÍMA Þó að einhverjar dyr lokist, opnast aðrar í staðinn FÓTBOLTI Sigurganga Valskvenna heldur áfram í Landsbankadeild kvenna en liðið vann sinn 18. deild- arleik í röð þegar þær burstuðu Stjörnuna, 0-5, á gervigrasinu í Garðabæ í gær. Valur er því áfram með fullt hús á toppnum. Valsstúlkur með Margréti Láru Viðarsdóttur í fararbroddi gerðu út um leik sinn við Stjörnuna í fyrri hálfleik. Margrét Lára skor- aði fyrsta markið eftir aðeins 1 mínútu og 20 sekúndur eftir lag- legan einleik og eftir það var á brattann að sækja fyrir Stjörnu- liðið sem hefur staðið sig vel í sumar. „Við settum upp ákveðið leikplan og það var orðið ljóst eftir tvær mínútur að það gekk ekki upp,“ sagði Þorkell Máni Péturs- son, þjálfari Stjörnunnar. Margrét Lára lagði upp annað markið fyrir fyrirliðann Katrínu Jónsdóttur eftir rúman hálftíma og skoraði síðan tvö falleg mörk sjálf með fjögurra mínútna millibili fyrir lok hálfleiksins. Dóra María Lárusdóttir innsigl- aði síðan sigurinn í seinni hálfleik með flottu marki eftir fallega sendingu frá Katrínu fyrirliða inn fyrir vörnina. Katrín var ánægð með leikinn í leikslok. Það heppnaðist allt „Fyrri hálfleikurinn var mjög góður hjá okkur og spiluðum við ótrúlega vel. Það heppnaðist allt hjá okkur og við gerðum út um leikinn þá. Þetta datt svolítið niður í seinni hálfleik. Stjarnan er með mjög gott lið, þær eru líkamlega sterkar og við vissum að við þyrftum að mæta þeim þar. Við vorum búnar að undirbúa okkur vel fyrir þennan leik,“ sagði Katr- ín eftir leik. Margrét Lára átti frábæran fyrri hálfleik og Stjörnuliðið réð þá ekkert við hana. „Margrét er alveg klárlega ein af bestu knatt- spyrnukonunum í heiminum. Það er stór munur á þessum liðum að annað liðið er með Margréti Láru en hitt ekki. Það má samt ekki taka það af öðrum stelpum í Valsliðinu að þær eru með rosalega gott lið,“ sagði Þorkell Máni, þjálfari Stjörn- unnar, um Margréti Láru og hún sjálf var líka sátt við sína frammi- stöðu. Áttum allar skínandi leik „Þetta var frábær leikur hjá okkur og ekki slæmt að vinna 5-0 sigur á sterku liði Stjörnunnar. Við áttum allar skínandi leik, sérstaklega í fyrri hálfleik og rúlluðum yfir þær. Ég held að ég sé að komast í mitt besta form aftur. Þetta er búinn að vera erfiður tími en ég er að vinna í mínum málum og mun hægt og sígandi koma sterkari og sterkari til leiks. Ég átti einn minn besta leik í sumar í dag og er mjög sátt með það,“ sagði Margrét Lára sem fór útaf á 68. mínútu. „Ég hef verið verri á gervigrasi og fann það í seinni hálfleik að ég var farin að stífna vel upp. Við tökum enga áhættu og ég er búin að læra það á þessum þrálátu meiðslum að það þýðir ekkert annað en að vera skynsamur,“ sagði Margrét Lára. Féllum bara á prófinu Þorkell Máni, þjálfari Stjörnunn- ar, var ekki ánægður með sínar stelpur í leikslok. „Við föllum bara á prófinu, þetta er búið að vera voða fínt hjá okkur og ganga voða vel. En þegar kemur í svona stór- leik þá erum stelpurnar búnar að gefa frá sér leikinn á fyrstu 45 mínútunum. Við erum ekki að nálgast þessi lið,“ sagði Þorkell Máni. „Við fengum þetta próf núna og menn biðu eftir að sjá hvar við stæðum í þessari baráttu. Þetta er munurinn og við erum fimm mörk- um frá Valsliðinu. Við þurfum að halda áfram að minnka muninn.“ ooj@frettabladid.is Annað liðið var með Margréti Láru Margrét Lára Viðarsdóttir kláraði Stjörnuna í fyrri hálfleik með þremur flottum mörkum og glæsilegri stoðsendingu. Hún segist öll vera að koma til eftir meiðsli og hún átti einn besta leik sinn í sumar í gær. LÉTTUR DANS MEÐ BOLTANN Marrgét Lára Viðarsdóttir átti frábæran fyrri hálfleik í 5-0 sigri Vals á Stjörnunni og átti þá þátt í öllu8m fjórum mörkum Valsliðsins. Hér er hún á fleygiferð með boltann í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.