Fréttablaðið - 09.07.2008, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 9. júlí 2008 27
FÓTBOLTI Gunnar Guðmundsson
hjá HK var fyrsti þjálfarinn sem
var látin fara í Landsbankadeild
karla í sumar þegar meistara-
flokksráð og knattspyrnudeild HK
ákváðu að láta hann fara í gær en
hann hafði stýrt liðinu í tæp fimm
ár eða frá 1. október 2003.
„Við hörmum það að hafa þurft
að taka þessa ákvörðun. Við höfum
staðið við bakið á Gunnari í gegn-
um súrt og sætt. Gunnar er HK-
ingur og hefur unnið gríðarlega
gott starf innan félagsins og það er
synd að missa slíkan mann frá
félaginu. Á meðan þjálfari er þjálf-
ari hjá Hk þá erum við ekki í nein-
um samningaviðræðum við einn
eða neinn. Sú vinna hófst í dag
(gær). Framtíðin er ekki niðurlögð
og hún blasir ekki við hvað varðar
nýjan þjálfara,“ segir Torfi Sverr-
isson, formaður knattspyrnudeild-
ar HK, „en eitthvað þurfti að ger-
ast“.
„Það er auðveldara að reyna
hrista upp í liðinu með því að taka
einn hlut út úr jöfnunni heldur en
marga. Hópurinn er í vanda og
þetta var það sem meistaraflokks-
ráð og knattspyrnudeild töldu að
væri rétt að gera í þessari stöðu,“
segir Torfi og bætir við:
„Við höfum skrifað niður nöfn á
blað en eðli málsins samkvæmt þá
eru það hlutir sem við getum ekki
rætt vegna þess að það er ekki í
hendi og við erum að tala við þessa
aðila sem við settum niður á blað.
Við ætlum að kanna hvaða menn
eru tilkippilegir og hverjir eru
lausir eða geta losað sig,“ segir
Torfi en á meðan mun Rúnar Páll
Sigmundsson stjórna æfingum.
„Rúnar Páll er okkar aðstoðar-
þjálfari og tekur bara við á meðan
unnið er í því að fá nýjan þjálfara.
Hann mun leiða liðið þar til nýr
þjálfari tekur við,“ segir Torfi en
næsti leikur er á móti Breiðabliki
á mánudaginn kemur.
Fréttablaðið komst að því að
það hefur borgað sig undanfarin
ár að breyta um þjálfara þegar
staðan hefur verið orðið slæm.
Frá árinu 2000 hafa átta lið í
fallsæti gripið til þess ráðs að
skipta um þjálfara og og aðeins
tvö þeirra náðu ekki að bjarga sér
frá falli. Það var annars vegar hjá
ÍBV 2006 og svo hjá Þrótti árið
áður.
Síðasta lið til þess að bjarga sér
frá falli eftir að hafa rekið þjálf-
ara var lið KR sem lét Teit Þórðar-
son fara 29. júlí í fyrra. Logi Ólafs-
son tók við og liðið endaði í 8. sæti,
en ólíkt öðrum tímabilum þá féll
aðeins eitt lið í fyrra.
Sex öðrum þjálfurum hefur tek-
ist að kveikja neistann í sínum
nýju liðum og náð að bjarga þeim
frá falli. Mesta stökkið tóku lið
Breiðabliks og ÍA sumarið 2006.
Ólafur Kristjánsson tók þá við
Blikum 3. júlí eða þremur dögum
eftir að tvíburarnir Arnar og
Bjarki Gunnlaugssyni höfðu tekið
við Skagamönnum. Bæði lið voru í
fallsæti og í báðum tilfellum náðu
liðin að hækka sig um fjögur sæti
þótt þau hefðu verið í fallbarátt-
unni allt til enda mótsins.
Ólafi Kristjánssyni, núverandi
þjálfari Blika, hefur tvisvar tekist
að taka við liði í fallsæti og bjarga
því frá falli en hann náði því einnig
með Framara sumarið 2004.
ooj@frettabladid.is
ÞJÁLFARABREYTINGAR
HJÁ LIÐUM Í FALLSÆTI:
KR 29. júlí 2007
Teitur Þórðarson 11 leikir (7 stig, 21%)
Logi Ólafsson 7 leikir (9 stig, 43%)
Frá 10. sæti upp í 8. sæti
ÍBV 2. agúst 2006
Guðlaugur Baldursson 12 (11, 31%)
Heimir Hallgrímsson 6 (7 stig, 39%)
Héldu sér í 10. sæti
Breiðablik 3. júlí 2006
Bjarni Jóhannsson 9 (10 stig, 37%)
Ólafur Kristjánsson 9 leikir (13, 48%)
Frá 9. sæti upp í 5. sæti
ÍA 30. júní 2006
Ólafur Þórðarson 9 leikir (6 stig, 22%)
Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir
9 leikir (16 stig, 59%)
Frá 10. sæti upp í 6. sæti
Þróttur 5. júlí 2005
Ásgeir Elíasson 9 leikir (5 stig, 19%)
Atli Eðvaldsson 9 leikir (11 stig, 41%)
Héldu sér í 10. sæti
Grindavík 15. júlí 2004
Zeljko Sankovic 10 leik. (10 stig, 33%)
Guðmundur V. Sigurðss. 8 (10, 42%)
Frá 9. sæti upp í 7. sæti
Fram 28. júní 2004
Ion Geolgau 8 leikir (5 stig, 21%)
Ólafur Kristj. 10 leikir (12 stig, 40%)
Frá 10. sæti upp í 8. sæti
Fram 5. júní 2003
Kristinn R. Jónsson 4 leikir (2, 17%)
Steinar Guðgeirsson 14 (21 stig, 50%)
Frá 10. sæti upp í 7. sæti
Sex af átta liðum hafa bjargað sér
Botnlið HK rak í gær þjálfara sinn Gunnar Guðmundsson. Fréttablaðið skoðaði þjálfarabreytingar hjá lið-
um í fallsæti frá árinu 2000 og 75 prósent liðanna hafa náð að bjarga sér frá falli í framhaldinu.
ERFIÐ ÁKVÖRÐUN Gunnar Guðmundsson (til vinstri) vildi halda áfram með HK en
meistaraflokksráð og knattspyrnudeild töldu þörf á breytingu eftir slæmt tap á móti
Fjölni í fyrrakvöld. Hér er Rúnar Páll Sigmundsson með honum en hann tekur tíma-
bundið við HK-liðinu á meðan leitað er að nýjum þjálfara. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Guðjón Þórðarson, þjálf-
ari Skagamanna í Landsbanka-
deild karla, stendur á tímamótum
og hefur gert það allt síðan 20.
maí síðastliðinn þegar ÍA vann 1-
0 sigur á Fram í 3. umferð. Það
var 99. sigur Guðjóns sem þjálf-
ara í efstu deild karla en jafn-
framt sá eini sem liðið hefur
unnið í sumar.
Guðjón getur orðið annar þjálf-
arinn í sögu efstu deildar til þess
að stjórna liði til sigur í 100 leikj-
um í efstu deild en lið Ásgeirs
Elíassonar unnu 120 leiki á árun-
um 1980 til 2005.
Guðjón stjórnaði liði í fyrsta
sinn sumarið 1987 og hefur alls
gert fjögur lið að Íslandsmeistur-
um frá þeim tíma en hann vantar
nú aðeins tíu leiki í að hafa stjórn-
að 200 leikjum í efstu deild.
Guðjón hefur verið í leikbanni í
tveimur af tíu leikjum liðsins í
sumar og hvorugur vannst, fyrst
gerði liðið 1-1 jafntefli við HK í
Kópavogi og svo tapaði liðið fyrir
Grindavík á Akranesi í síðasta
leik. Næsti leikur er gegn nýlið-
um og spútnikliði Fjölnismanna í
Grafarvogi en Fjölnir verður þá
20. liðið sem Guðjón mætir sem
þjálfari í efstu deild.
Guðjón hafði lengst áður þurft
að bíða eftir sigurleik númer 32
en það var á árunum 1990 til 1992
þegar lið hans léku sex leiki í röð
án þess að vinna. KA tapaði fjór-
um síðustu leikjunum undir hans
stjórn sumarið 1990 og þegar
hann kom upp með Skagamenn
sumarið 1992 þá gerði liðið jafn-
tefli í tveimur fyrstu leikjunum.
- óój
Guðjón Þórðarson hefur aldrei þurft að bíða lengur eftir sigri á 21 árs ferli sínum sem þjálfari í efstu deild:
Hundraðasti sigurinn lætur bíða eftir sér
SLAPPAÐ AF Í SÓLINNI Guðjón Þórðarson var í banni á móti Grindavík og fylgd-
ist með leiknum uppi á svölum félagsheimilsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR KRISTÓFERSSON
FÓTBOLTI Magnús Þorsteinsson var
hetja Keflvíkinga í toppslagnum á
móti FH á sunnudagskvöldið
þegar hann skoraði eina mark
leiksins í uppbótartíma og sá til
þess að Keflvíkingar komust upp
að hlið Hafnarfjarðarliðsins á
toppi Landsbankadeildar karla.
Þetta var líka langþráð mark
hjá Magnúsi sem hafði ekki skor-
að í 29 síðustu deildarleikjum (frá
28. maí 2006) og var búinn að spila
í 1.346 mínútur án þess að ná að
skora.
„Þetta var klárlega langþráð
mark. Ég hef verið að færast aftar
á völlinn í gegnum tíðina en setti
hann síðan í bikarnum um daginn
og er vonandi að gera tilkall til
þess að fá að vera framar á vellin-
um. Það eru margir framherjar í
liðinu og margir sem vilja spila
frammi,“ sagði Magnús sem kom
inn á miðjuna á móti FH .
Markið hans Magnúsar var
sérlega glæsilegt og kom eftir
flotta en óvenjulega bogasend-
ingu Hólmars Arnar Rúnars-
sonar inn í teig. „Ég held að
hann hafi ekki vitað hvað hann
var að gera og var örugglega
ekki að reyna þetta, “ segir
Magnús í léttum tón en það
er nóg af mönnum til að
skora í Keflavíkurlið-
inu í dag.
Magnús mætti
blóðugur í sjónvarps-
viðtal skömmu eftir
leik.
„Ég sá ekki blóðið fyrr
en í sjónvarpinu en
sennilega hefur þetta
gerst í fagnaðarlátun-
um. Það var mikið tek-
ist á þegar við fögnuð-
um,“ sagði Magnús og
það var vel þess virði að
fagna þessu marki vel.
„Það er erfitt að
mæla mikilvægi þessa
marks því þetta var gríðarlega
mikilvægur sigur fyrir okkur.
Þetta er klárlega mikilvægasta
markið sem ég hef skorað í meist-
araflokki. Þetta gerist örugglega
ekki oft á ferlinum og stundum
aldrei að maður nái að skora svona
sigurmark á síðustu mínútunni í
toppslag. Ég ætla að vona að þetta
verði eitt af mörkum sumarsins,“
sagði Magnús en fram undan eru
fleiri erfiðir leikir.
„Við erum að fara í erfitt pró-
gram núna og eigum fjóra útileiki
í röð með bikarnum og þar reynir
á okkur en við ætlum að reyna inn-
heimta eins mörg stig úr þessum
leikjum og við getum,“ sagði
Magnús að lokum. - óój
Magnús Þorsteinsson var ekki búinn að skora deildarmark í 1.346 mínútur þegar hann skoraði á móti FH:
Klárlega mikilvægasta markið á ferlinum
25 MÁNAÐA BIÐ Á ENDA
Magnús Þorsteinsson
er búinn að finna
skotskóna sína.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Hörður Antonsson,
formaður meistaraflokksráðs
Fylkis, vildi lítið tjá sig um mál
Leifs Garðarssonar þjálfara í
gær. Aðspurður hvort möguleiki
væri á því að Leifur yrði rekinn
sagði Hörður: „Það er aldrei hægt
að útiloka neitt. Það er möguleiki
á því að allir þjálfarar í deildinni
verði reknir, ekki satt?“ Samning-
ur Leifs er uppsegjanlegur.
Hörður viðurkenndi fúslega að
staða Fylkis væri ekki góð. „Við
þurfum að fara að vinna ein-
hverja leiki,“ sagði Hörður og
bætti við að menn hefðu mismikla
þolinmæði í Árbænum. „Við
eigum ekkert að vera þarna í
töflunni, við þurfum að taka
höndum saman núna,“ sagði
Hörður. Hann sagði svo við Vísi:
„Sjáum hvað gerist á næstu
dögum. Það er leikur fram undan
gegn FH um helgina.“ - hþh
Farið að hitna undir Leifi:
Þolinmæðin er
mismikil í Árbæ
ERFIÐIR TÍMAR Fylkir hefur tapað fimm
leikjum í röð og er staða liðsins orðin
erfið við botninn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Grétar Ólafur Hjartar-
son samdi við Grindavík í lok
júní. Hann er byrjaður að æfa
með liðinu en er ekki löglegur
með því fyrr en 15. júlí. Það
hittist svo á að fyrsti leikur
Grindavíkur eftir að félagaskipta-
glugginn opnast er á móti KR,
félaginu sem Grindavík keypti
Grétar af. Sá leikur er 19. júlí en
þann leik má Grétar ekki spila.
Það staðfesti Guðjón Kristinsson
hjá KR við Fréttablaðið.
Auk þess mætast Grindavík og
KR í bikarkeppninni fimm dögum
síðar og sem fyrr má Grétar ekki
spila þann leik. Það eru því enn
tæpar þrjár vikur í að Grétar
spili keppnisleik með Grindvík-
ingum á nýjan leik. Það gerir
hann að öllu óbreyttu gegn Val 27.
júlí. - hþh
Grétar Ólafur fær lengra frí:
Má ekki spila á
móti KR-ingum
GRÉTAR Þarf að bíða í átta auka daga til
að klæðast Grindavíkurbúningnum á ný.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT
HANDBOLTI Íslandsmeistarar
Hauka mæta Stjörnunni í fyrstu
umferð N1-deildar karla í
handbolta. Liðin mætast einnig í
kvennaflokki en þar eru Stjörnu-
stúlkur meistarar. Dregið var í
töfluraðir í gær en umferðin fer
fram 18. september. Þá mætast
einnig HK og Fram, Akureyri og
FH og Valsmenn heimsækja
Víkinga.
Raðað verður í þriðju umferð
eftir úrslitum úr fyrstu tveimur
umferðunum en gert er ráð fyrir
því að úrslitakeppnin hefjist 16.
apríl. Í N1-deild kvenna mætast
HK og Fram, Fylkir og Valur og
Grótta og HK. Fyrsta umferð fer
fram 20. september. - hþh
Dregið í töfluraðir í handbolta:
Haukar mæta
Stjörnunni