Fréttablaðið - 09.07.2008, Side 38
30 9. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT 2. brýna, 6. í röð, 8. mæli-
eining, 9. stækkaði, 11. samtök, 12.
ofan á brauð, 14. stoðvirki, 16. í röð,
17. fugl, 18. ennþá, 20. til dæmis, 21.
snöggur.
LÓÐRÉTT 1. þjaka, 3. í röð, 4. veið-
arfæri, 5. siða, 7. fíkinn, 10. ílát, 13.
gljúfur, 15. listastefna, 16. húðpoki,
19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ydda, 6. rs, 8. erg, 9. jók,
11. aa, 12. álegg, 14. grind, 16. hi, 17.
lóa, 18. enn, 20. td, 21. snar.
LÓÐRÉTT: 1. hrjá, 3. de, 4. dragnót,
5. aga, 7. sólginn, 10. ker, 13. gil, 15.
dada, 16. hes, 19. na.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Hellnahrauni í Hafnarfirði.
2 Fídel Smári.
3 Sam Shepard.
„Þetta var mikil reynsla og öll ferð-
in var hálfgerður lífsskóli,“ segir
Erla Tinna Stefánsdóttir, lögfræði-
nemi í Háskólanum í Reykjavík,
sem kom nýverið heim eftir hálfs
árs dvöl í Suður-Afríku ásamt Krist-
ínu Laufeyju Björgvinsdóttur, þar
sem þær luku BA prófi í lögfræði á
nýjum skiptisamningi milli HR og
University of Johannesburg.
„Við bjuggum í vel víggirtu húsi
rétt hjá skólanum og maður var
aldrei einn á ferli af öryggisástæð-
um. Ástandið í Jóhannesarborg er
svolítið tvískipt því þrátt fyrir að
það sé mikil fátækt og spillt ríkis-
stjórn er til dæmis mikil uppsveifla
í viðskiptalífinu. Við vorum svell-
kaldar að mati vina okkar, ferðuð-
umst mikið og ég held að við höfum
nánast þrætt alla Suður-Afríku,
enda mjög fallegt land með fjöl-
breytilegu landslagi,“ segir Erla
Tinna sem varð heldur betur fyrir
eftirminnilegri lífsreynslu á ferða-
lagi til Mósambík.
„Móðir tveggja vina okkar sem
við kynntumst í Suður-Afríku er
utanríkisráðherra Mósambík. Þeir
buðu okkur með sér í strandferð
einn daginn, en við höfðum ekki
verið lengur en klukkustund í land-
inu þegar tveir menn með byssur
réðust að okkur í nágrenni við
heimili móður þeirra í höfuðborg-
inni Maputo. Ræningjarnir töluðu
portúgölsku svo við skildum ekki
strax hvað var í gangi og það var
ekki fyrr en að við sáum þá halda
öryggisverði niðri með byssu að
við áttuðum okkur á hvað var að
gerast. Sem betur fer tóku vinir
okkar þessu með stökustu ró, létu
þá fá peninga og báðu þá að láta
okkur í friði. Þeir veifuðu byssunum
að okkur, en eftir einhver orða-
skipti tóku þeir lyklana að sjálfum
sendiherrabílnum og hurfu á braut,“
útskýrir Erla Tinna og segir áfallið
hafa verið töluvert eftir á að hyggja.
„Vinir þeirra sóttu okkur svo allt
fór á besta veg, en það bólar ekkert
á sendiherrabílnum ennþá,“ bætir
hún við.
En gafst einhver tími fyrir námið
í þessari ævintýralegu ferð? „Já, við
vorum rosalega ánægðar með skól-
ann, það var vel tekið á móti okkur
og námið sjálft var áhugavert. Erf-
iðleikaþröskuldurinn var sá sami og
hérna heima, en lagakerfi er öðru-
vísi og námið mestmegnis á ensku
svo maður bætti sig talsvert í orða-
forðanum,“ útskýrir Erla.
„Við kynntumst fólki frá öllum
stéttum, þjóðflokkum og kynstofn-
um og það er eitthvað sem við
munum búa að alla ævi.“
alma@frettabladid.is
ERLA TINNA STEFÁNSDÓTTIR: DVALDI Í HÁLFT ÁR Í SUÐUR-AFRÍKU
Lögfræðinemar lentu í
vopnuðu ráni í Mósambík
Á MUNAÐARLEYSINGJAHÆLI RÉTT FYRIR UTAN JÓHANNESARBORG Kristín Laufey Björgvinsdóttir vinstra megin og Erla Tinna
Stefánsdóttir til hægri heimsóttu meðal annars munaðarlaus börn í Suður-Afríku.
„Pabbi á þetta fyrirtæki,“ segir Skjöldur
Eyfjörð, hárgreiðslumaður og stílisti. Vökul
augu sem fletta gegnum hlutafélagaskrá geta
þar séð nafn Skjaldar Eyfjörð sem varastjórn-
armanns fyrirtækisins Arnartaks ehf.
Tilgangur félagsins er rekstur vöruflutninga-
bifreiða og jarðvinnuvéla og önnur skyld
starfsemi, eins og segir í hlutafélagaskrá.
Vörubifreiðar og jarðvinnuvélar stinga eilítið
í stúf við þá ímynd sem Íslendingar hafa af
Skildi. Hann á sér þó glamúr- og glysminni
fortíð. „Ég var að vinna eitt sumar með pabba
við að sjóða saman hitaveiturör og svoleiðis.
Það er ýmislegt sem maður hefur tekið sér
fyrir hendur. Ég var í sveit í hundrað ár og
svo hef ég verið á sjó meðal annars,“ segir
Skjöldur.
Í dag er Skjöldur hins vegar einn af
landsins snjöllustu og eftirsóttustu stílistum.
Var til að mynda stílisti hjá Sylvíu Nótt sem
og Eurobandinu. Hann á og rekur hárgreiðslu-
stofu í Pósthússtræti og er nú að auka umsvif
sín. „Ég er að setja saman snyrtistofu á
hárgreiðslustofunni,“ segir Skjöldur. „Ég er
búinn að ráða snyrtifræðing. Þetta er öfugu
megin við vinnuvélar,“ segir hann og hlær.
Hinn 25. júlí stendur Skjöldur á merkum
tímamótum. Þá mun hann fylla þrjátíu
viðburðarík ár. Ekkert verður til sparað í
veisluhöldum. „Ég ætla að halda gott partí þar
sem verða skemmtiatriði og allt mögulegt. Nú
er ég bara að hringja út símaskrána hjá mér,“
Skjöldur sem ætlar að halda afmælis-
fögnuðinn 19. júlí. - shs
Skjöldur Eyfjörð í stjórn vinnuvélafyrirtækis
HÖRKUTÓL Skjöldur hefur starfað við
ýmislegt um árin og hefur meðal annars
verið til sjós.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Leikkonan unga Anita Briem er nú
komin á þann stall í heimi fræga
fólksins að hún hefur ráðið sér fjöl-
miðlafulltrúa. Það er alþjóðleg
almannatengslaskrifstofa sem kall-
ast BWR sem annast nú öll sam-
skipti Anitu við fjölmiðla. Anita
hefur undanfarin misseri klifið
hægt og bítandi upp á stjörnuhimin-
inn og því líklegt að áreiti fjölmiðla
hafi aukist. Fjölmiðlasamskipti
Anitu eru sérstaklega í höndum
tveggja einstaklinga. Annars vegar
er það Ruth Bernstein sem starfar
hjá BWR í Los Angeles, hins vegar
er það Gary nokkur Mantoosh sem
er staðsettur í New York.
Íslendingar sjá nú Anitu í þáttun-
um The Evidence á SkjáEinum og
þann 3. ágúst hefjast sýningar á
annarri þáttaröðinni af The Tudors
á Stöð 2. Í haust verður svo frum-
sýnd hér á landi þrívíddarmyndin
Journey to the Center of the Earth
sem skartar Brendan Fraser meðal
annarra. Í henni fer Anita með hlut-
verk leiðsögumannsins Hönnu
Ásgeirsson.
Ekki er vitað til að annar leikari
hérlendis sé með fjölmiðlafulltrúa
en þó er aldrei að vita nema fleiri
bætist í hópinn þegar fram líða
stundir. Enda er það stöðugt að fær-
ast í aukana að Íslendingar nemi
leiklist erlendis og reyni fyrir sér í
hinum ýmsu löndum. -shs
Anita með fjölmiðlafulltrúa
ANITA BRIEM Lætur fjölmiðlafulltrúa sjá
um öll sín samskipti við fjölmiðla.
„Fyrst af öllu fæ ég mér sopa
af lýsi. Svo fæ ég mér flösku af
LGG plús, helst með eplabragði.
Ef vel liggur á mér bæti ég við
léttri AB mjólk og múslí. Svo er
kaffibollinn algjörlega ómiss-
andi. Það sem er á milli lýsis-
sopans og kaffisins getur verið
breytilegt frá degi til dags.“
Viðar Eggertsson leikari, leikstjóri og
leikhússtjóri Útvarpsleikhússins.
Daníel Ágúst Haralds-
son hefur komið eins
og stormsveipur inn í
íslenska poppheima
með endurkomu í
Nýdönsk. Hann hefur
nú hljóðritað sitt fyrsta
lag í mörg ár með
sveitinni og ber það
heitið Náttúra.
Hljómsveitin
er önnum
kafin og
spilar meðal
annars á Þjóðhátíð í Vestmanna-
eyjum. Þar skipar Daníel sér í hóp
með Þorgeiri Ástvaldssyni og
Ragga Bjarna sem spila einnig á
Þjóðhátíð. Þeir þremenningarnir
eru allir svokallaðir popp-afar, þrátt
fyrir að vera af þremur kynslóðum.
Sølva Ford, færeyska söngkonan
sem heillaði borgar-
stjóra vorn Ólaf F.
Magnússon, svo
mjög að Björgvin
Valur bloggari með
meiru á Stöðvarfirði
fann sig knúinn til
að skrifa þetta
eitt um málið:
„Ólafur reið
með björgum
fram, villir hann stillir hann,” er nú
að búa sig undir að koma til lands-
ins til að syngja á Menningarnótt
sem verður í ágúst. Sølva er, eftir
því sem næst verður komið, mjög
handgengin Kristi svo sem títt er
um Færeyinga, og syngur honum til
dýrðar. Þannig má segja að Björg-
vin Valur hafi ekki verið á réttu róli
því í dansinum er jú sungið: „Sú var
ekki Kristni kær...”
Langt er síðan Radíusbræður, þeir
Davíð Þór Jónsson og Steinn
Ármann Magnússon, tróðu upp
saman. Menn munu þó fljótlega
heyra raddir þeirra óma á ný því
þeir léku nýverið
saman í útvarps-
auglýsingu fyrir
flutningafyrir-
tæki. Er þar um
að ræða syrpu
auglýsinga og geta
þá aðdáendur
Radíusfluga
glaðst.
- shs/jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI