Fréttablaðið - 09.07.2008, Page 38

Fréttablaðið - 09.07.2008, Page 38
30 9. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 MORGUNMATURINN LÁRÉTT 2. brýna, 6. í röð, 8. mæli- eining, 9. stækkaði, 11. samtök, 12. ofan á brauð, 14. stoðvirki, 16. í röð, 17. fugl, 18. ennþá, 20. til dæmis, 21. snöggur. LÓÐRÉTT 1. þjaka, 3. í röð, 4. veið- arfæri, 5. siða, 7. fíkinn, 10. ílát, 13. gljúfur, 15. listastefna, 16. húðpoki, 19. átt. LAUSN LÁRÉTT: 2. ydda, 6. rs, 8. erg, 9. jók, 11. aa, 12. álegg, 14. grind, 16. hi, 17. lóa, 18. enn, 20. td, 21. snar. LÓÐRÉTT: 1. hrjá, 3. de, 4. dragnót, 5. aga, 7. sólginn, 10. ker, 13. gil, 15. dada, 16. hes, 19. na. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Hellnahrauni í Hafnarfirði. 2 Fídel Smári. 3 Sam Shepard. „Þetta var mikil reynsla og öll ferð- in var hálfgerður lífsskóli,“ segir Erla Tinna Stefánsdóttir, lögfræði- nemi í Háskólanum í Reykjavík, sem kom nýverið heim eftir hálfs árs dvöl í Suður-Afríku ásamt Krist- ínu Laufeyju Björgvinsdóttur, þar sem þær luku BA prófi í lögfræði á nýjum skiptisamningi milli HR og University of Johannesburg. „Við bjuggum í vel víggirtu húsi rétt hjá skólanum og maður var aldrei einn á ferli af öryggisástæð- um. Ástandið í Jóhannesarborg er svolítið tvískipt því þrátt fyrir að það sé mikil fátækt og spillt ríkis- stjórn er til dæmis mikil uppsveifla í viðskiptalífinu. Við vorum svell- kaldar að mati vina okkar, ferðuð- umst mikið og ég held að við höfum nánast þrætt alla Suður-Afríku, enda mjög fallegt land með fjöl- breytilegu landslagi,“ segir Erla Tinna sem varð heldur betur fyrir eftirminnilegri lífsreynslu á ferða- lagi til Mósambík. „Móðir tveggja vina okkar sem við kynntumst í Suður-Afríku er utanríkisráðherra Mósambík. Þeir buðu okkur með sér í strandferð einn daginn, en við höfðum ekki verið lengur en klukkustund í land- inu þegar tveir menn með byssur réðust að okkur í nágrenni við heimili móður þeirra í höfuðborg- inni Maputo. Ræningjarnir töluðu portúgölsku svo við skildum ekki strax hvað var í gangi og það var ekki fyrr en að við sáum þá halda öryggisverði niðri með byssu að við áttuðum okkur á hvað var að gerast. Sem betur fer tóku vinir okkar þessu með stökustu ró, létu þá fá peninga og báðu þá að láta okkur í friði. Þeir veifuðu byssunum að okkur, en eftir einhver orða- skipti tóku þeir lyklana að sjálfum sendiherrabílnum og hurfu á braut,“ útskýrir Erla Tinna og segir áfallið hafa verið töluvert eftir á að hyggja. „Vinir þeirra sóttu okkur svo allt fór á besta veg, en það bólar ekkert á sendiherrabílnum ennþá,“ bætir hún við. En gafst einhver tími fyrir námið í þessari ævintýralegu ferð? „Já, við vorum rosalega ánægðar með skól- ann, það var vel tekið á móti okkur og námið sjálft var áhugavert. Erf- iðleikaþröskuldurinn var sá sami og hérna heima, en lagakerfi er öðru- vísi og námið mestmegnis á ensku svo maður bætti sig talsvert í orða- forðanum,“ útskýrir Erla. „Við kynntumst fólki frá öllum stéttum, þjóðflokkum og kynstofn- um og það er eitthvað sem við munum búa að alla ævi.“ alma@frettabladid.is ERLA TINNA STEFÁNSDÓTTIR: DVALDI Í HÁLFT ÁR Í SUÐUR-AFRÍKU Lögfræðinemar lentu í vopnuðu ráni í Mósambík Á MUNAÐARLEYSINGJAHÆLI RÉTT FYRIR UTAN JÓHANNESARBORG Kristín Laufey Björgvinsdóttir vinstra megin og Erla Tinna Stefánsdóttir til hægri heimsóttu meðal annars munaðarlaus börn í Suður-Afríku. „Pabbi á þetta fyrirtæki,“ segir Skjöldur Eyfjörð, hárgreiðslumaður og stílisti. Vökul augu sem fletta gegnum hlutafélagaskrá geta þar séð nafn Skjaldar Eyfjörð sem varastjórn- armanns fyrirtækisins Arnartaks ehf. Tilgangur félagsins er rekstur vöruflutninga- bifreiða og jarðvinnuvéla og önnur skyld starfsemi, eins og segir í hlutafélagaskrá. Vörubifreiðar og jarðvinnuvélar stinga eilítið í stúf við þá ímynd sem Íslendingar hafa af Skildi. Hann á sér þó glamúr- og glysminni fortíð. „Ég var að vinna eitt sumar með pabba við að sjóða saman hitaveiturör og svoleiðis. Það er ýmislegt sem maður hefur tekið sér fyrir hendur. Ég var í sveit í hundrað ár og svo hef ég verið á sjó meðal annars,“ segir Skjöldur. Í dag er Skjöldur hins vegar einn af landsins snjöllustu og eftirsóttustu stílistum. Var til að mynda stílisti hjá Sylvíu Nótt sem og Eurobandinu. Hann á og rekur hárgreiðslu- stofu í Pósthússtræti og er nú að auka umsvif sín. „Ég er að setja saman snyrtistofu á hárgreiðslustofunni,“ segir Skjöldur. „Ég er búinn að ráða snyrtifræðing. Þetta er öfugu megin við vinnuvélar,“ segir hann og hlær. Hinn 25. júlí stendur Skjöldur á merkum tímamótum. Þá mun hann fylla þrjátíu viðburðarík ár. Ekkert verður til sparað í veisluhöldum. „Ég ætla að halda gott partí þar sem verða skemmtiatriði og allt mögulegt. Nú er ég bara að hringja út símaskrána hjá mér,“ Skjöldur sem ætlar að halda afmælis- fögnuðinn 19. júlí. - shs Skjöldur Eyfjörð í stjórn vinnuvélafyrirtækis HÖRKUTÓL Skjöldur hefur starfað við ýmislegt um árin og hefur meðal annars verið til sjós. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Leikkonan unga Anita Briem er nú komin á þann stall í heimi fræga fólksins að hún hefur ráðið sér fjöl- miðlafulltrúa. Það er alþjóðleg almannatengslaskrifstofa sem kall- ast BWR sem annast nú öll sam- skipti Anitu við fjölmiðla. Anita hefur undanfarin misseri klifið hægt og bítandi upp á stjörnuhimin- inn og því líklegt að áreiti fjölmiðla hafi aukist. Fjölmiðlasamskipti Anitu eru sérstaklega í höndum tveggja einstaklinga. Annars vegar er það Ruth Bernstein sem starfar hjá BWR í Los Angeles, hins vegar er það Gary nokkur Mantoosh sem er staðsettur í New York. Íslendingar sjá nú Anitu í þáttun- um The Evidence á SkjáEinum og þann 3. ágúst hefjast sýningar á annarri þáttaröðinni af The Tudors á Stöð 2. Í haust verður svo frum- sýnd hér á landi þrívíddarmyndin Journey to the Center of the Earth sem skartar Brendan Fraser meðal annarra. Í henni fer Anita með hlut- verk leiðsögumannsins Hönnu Ásgeirsson. Ekki er vitað til að annar leikari hérlendis sé með fjölmiðlafulltrúa en þó er aldrei að vita nema fleiri bætist í hópinn þegar fram líða stundir. Enda er það stöðugt að fær- ast í aukana að Íslendingar nemi leiklist erlendis og reyni fyrir sér í hinum ýmsu löndum. -shs Anita með fjölmiðlafulltrúa ANITA BRIEM Lætur fjölmiðlafulltrúa sjá um öll sín samskipti við fjölmiðla. „Fyrst af öllu fæ ég mér sopa af lýsi. Svo fæ ég mér flösku af LGG plús, helst með eplabragði. Ef vel liggur á mér bæti ég við léttri AB mjólk og múslí. Svo er kaffibollinn algjörlega ómiss- andi. Það sem er á milli lýsis- sopans og kaffisins getur verið breytilegt frá degi til dags.“ Viðar Eggertsson leikari, leikstjóri og leikhússtjóri Útvarpsleikhússins. Daníel Ágúst Haralds- son hefur komið eins og stormsveipur inn í íslenska poppheima með endurkomu í Nýdönsk. Hann hefur nú hljóðritað sitt fyrsta lag í mörg ár með sveitinni og ber það heitið Náttúra. Hljómsveitin er önnum kafin og spilar meðal annars á Þjóðhátíð í Vestmanna- eyjum. Þar skipar Daníel sér í hóp með Þorgeiri Ástvaldssyni og Ragga Bjarna sem spila einnig á Þjóðhátíð. Þeir þremenningarnir eru allir svokallaðir popp-afar, þrátt fyrir að vera af þremur kynslóðum. Sølva Ford, færeyska söngkonan sem heillaði borgar- stjóra vorn Ólaf F. Magnússon, svo mjög að Björgvin Valur bloggari með meiru á Stöðvarfirði fann sig knúinn til að skrifa þetta eitt um málið: „Ólafur reið með björgum fram, villir hann stillir hann,” er nú að búa sig undir að koma til lands- ins til að syngja á Menningarnótt sem verður í ágúst. Sølva er, eftir því sem næst verður komið, mjög handgengin Kristi svo sem títt er um Færeyinga, og syngur honum til dýrðar. Þannig má segja að Björg- vin Valur hafi ekki verið á réttu róli því í dansinum er jú sungið: „Sú var ekki Kristni kær...” Langt er síðan Radíusbræður, þeir Davíð Þór Jónsson og Steinn Ármann Magnússon, tróðu upp saman. Menn munu þó fljótlega heyra raddir þeirra óma á ný því þeir léku nýverið saman í útvarps- auglýsingu fyrir flutningafyrir- tæki. Er þar um að ræða syrpu auglýsinga og geta þá aðdáendur Radíusfluga glaðst. - shs/jbg FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.