Fréttablaðið - 09.07.2008, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 09.07.2008, Blaðsíða 40
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur Eitt fegursta orðið í íslensku máli er ljósmóðir. Í því býr mildi og gæska, umhyggja og virð- ing fyrir lífi. Fæstar konur sem fætt hafa barn gleyma nokkru sinni þeirri konu sem annaðist þær á meðgöngu, spáði í spilin, samgladdist þegar fyrsti hjart- slátturinn heyrðist, skildi allar áhyggjur og sefaði kvíðann. Þegar frumbyrjan vildi í hríðunum helst af öllu hætta við allt saman og var sannfærð um að hún gæti ekki afborið augnablikinu meira vissi ljósmóðirin betur. Þetta var ennþá bara formálinn að því sem koma skyldi og konan myndi þola það líka. Alveg eins og aðrar konur hafa gert frá upphafi lífs. Samt hélt hún fyrir sig vitneskjunni um enn meiri átök, því hlutverk ljós- móður er að róa en ekki hræða. ÞAÐ er glettilega auðvelt að verða væminn í minningum um þessar konur sem taka þátt í dýr- mætustu upplifun lífsins. Líklega krefjast fá störf jafn mikillar fjöl- hæfni. Ljósmóðir er auðvitað fyrst og fremst sú sem fylgist með því að meðganga og fæðing gangi eðli- lega. Er vakandi fyrir merkjum um annað og gerir þær ráðstafan- ir sem þarf. Um leið sinnir hún sálgæslu, kennir og leiðbeinir nýliðum í foreldrahlutverkinu og líka lengra komnum. Umber sak- lausa sérvisku mæðra og feðra og tekur stjórnina þegar þau missa hana. Sinnir þeim eins og þau væru sjálf börn, klappar og strýk- ur, þurrkar svita og tár og miðlar endalausum ráðum úr vísindum og reynslusarpi. ÉG man samt líka eftir fúlu ljós- móðurinni sem fékk mig til að grenja af sjálfsmeðaumkun og var snarlega skipt út. Flestar sinna starfi sínu með sóma og af óbil- andi áhuga en laun þeirra hafa dregist aftur úr eins og annarra stétta sem einkum eru skipaðar konum. Án ljósmæðra værum við í vondum málum, án hjúkrunar- fræðinga og kennara líka. MIKILVÆGISRÖÐIN hefur riðlast, virðing fylgt beinhörðum peningum og öfugt. Veröldin færi ekki á hvolf þótt millistjórnendur bankanna legðu niður störf. En án ljósmæðra kæmi þekking á geng- isvísitölum og þróun hlutabréfa að litlum notum. Meðganga og fæðing nýrrar manneskju er göf- ugasta hlutverkið í þessum heimi. Það er mælikvarði á þroska þjóð- ar hversu vel hún hlúir að börn- um og metur fólkið sem er til staðar á mikilvægustu stundum ævinnar. Bobba, Jóhanna og Bergrún Í dag er miðvikudagurinn 9. júlí, 192. dagur ársins. 3.25 13.33 23.39 2.33 13.18 23.59 Þá smælar heimurinn framan í þig Við hjá Toyota erum stolt af því að hafa verið hluti af íslensku samfélagi í hartnær 40 ár og hlökkum til að takast á við verkefni morgundagsins, með bros á vör. :-) www.toyota.is framan í heiminn ÍS L E N S K A S IA .I S T O Y 4 26 76 0 6/ 08 Toyota á Íslandi Nýbýlavegi 2-8 200 Kópavogi Sími: 570-5070 ...ég sá það á visir.is Segir grafhýsi Kleópötru fundið Myndir berast frá Mars Tilfærsla yfir á hægri akrein sviðsett Býst við minni verðbólgu MEST LESIÐ:

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.