Fréttablaðið - 09.07.2008, Qupperneq 40
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
Eitt fegursta orðið í íslensku máli er ljósmóðir. Í því býr
mildi og gæska, umhyggja og virð-
ing fyrir lífi. Fæstar konur sem
fætt hafa barn gleyma nokkru
sinni þeirri konu sem annaðist
þær á meðgöngu, spáði í spilin,
samgladdist þegar fyrsti hjart-
slátturinn heyrðist, skildi allar
áhyggjur og sefaði kvíðann. Þegar
frumbyrjan vildi í hríðunum helst
af öllu hætta við allt saman og var
sannfærð um að hún gæti ekki
afborið augnablikinu meira vissi
ljósmóðirin betur. Þetta var ennþá
bara formálinn að því sem koma
skyldi og konan myndi þola það
líka. Alveg eins og aðrar konur
hafa gert frá upphafi lífs. Samt
hélt hún fyrir sig vitneskjunni um
enn meiri átök, því hlutverk ljós-
móður er að róa en ekki hræða.
ÞAÐ er glettilega auðvelt að
verða væminn í minningum um
þessar konur sem taka þátt í dýr-
mætustu upplifun lífsins. Líklega
krefjast fá störf jafn mikillar fjöl-
hæfni. Ljósmóðir er auðvitað fyrst
og fremst sú sem fylgist með því
að meðganga og fæðing gangi eðli-
lega. Er vakandi fyrir merkjum
um annað og gerir þær ráðstafan-
ir sem þarf. Um leið sinnir hún
sálgæslu, kennir og leiðbeinir
nýliðum í foreldrahlutverkinu og
líka lengra komnum. Umber sak-
lausa sérvisku mæðra og feðra og
tekur stjórnina þegar þau missa
hana. Sinnir þeim eins og þau
væru sjálf börn, klappar og strýk-
ur, þurrkar svita og tár og miðlar
endalausum ráðum úr vísindum
og reynslusarpi.
ÉG man samt líka eftir fúlu ljós-
móðurinni sem fékk mig til að
grenja af sjálfsmeðaumkun og var
snarlega skipt út. Flestar sinna
starfi sínu með sóma og af óbil-
andi áhuga en laun þeirra hafa
dregist aftur úr eins og annarra
stétta sem einkum eru skipaðar
konum. Án ljósmæðra værum við
í vondum málum, án hjúkrunar-
fræðinga og kennara líka.
MIKILVÆGISRÖÐIN hefur
riðlast, virðing fylgt beinhörðum
peningum og öfugt. Veröldin færi
ekki á hvolf þótt millistjórnendur
bankanna legðu niður störf. En án
ljósmæðra kæmi þekking á geng-
isvísitölum og þróun hlutabréfa
að litlum notum. Meðganga og
fæðing nýrrar manneskju er göf-
ugasta hlutverkið í þessum heimi.
Það er mælikvarði á þroska þjóð-
ar hversu vel hún hlúir að börn-
um og metur fólkið sem er til
staðar á mikilvægustu stundum
ævinnar.
Bobba, Jóhanna
og Bergrún
Í dag er miðvikudagurinn 9. júlí,
192. dagur ársins.
3.25 13.33 23.39
2.33 13.18 23.59
Þá smælar heimurinn framan í þig
Við hjá Toyota erum stolt af því að hafa verið hluti af
íslensku samfélagi í hartnær 40 ár og hlökkum til að takast
á við verkefni morgundagsins, með bros á vör. :-)
www.toyota.is
framan í heiminn
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
4
26
76
0
6/
08
Toyota á Íslandi
Nýbýlavegi 2-8
200 Kópavogi
Sími: 570-5070
...ég sá það á visir.is
Segir grafhýsi Kleópötru fundið
Myndir berast frá Mars
Tilfærsla yfir á hægri akrein sviðsett
Býst við minni verðbólgu
MEST LESIÐ: