Fréttablaðið - 16.07.2008, Blaðsíða 38
30 16. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR
LÁRÉTT
2. gleðimerki, 6. frá, 8. þróttur, 9.
nögl, 11. voði, 12. glæsibíll, 14. yndis,
16. hljóm, 17. titill, 18. niður, 20. á
fæti, 21. nabbi.
LÓÐRÉTT
1. gljáhúð, 3. guð, 4. stormur, 5.
slagbrandur, 7. hraðstreymi, 10.
hætta, 13. útdeildi, 15. stöng, 16.
rjúka, 19. tveir eins.
LAUSN
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT: 2. bros, 6. af, 8. afl, 9. kló,
11. vá, 12. kaggi, 14. unaðs, 16. óm,
17. frú, 18. suð, 20. il, 21. arða.
LÓÐRÉTT: 1. lakk, 3. ra, 4. ofviðri, 5.
slá, 7. flaumur, 10. ógn, 13. gaf, 15.
súla, 16. ósa, 19. ðð.
GAMLA MYNDIN
„Þetta útlit? Þetta er bara
söguleg staðreynd og ég er
sáttur við hana. Ég held ég hafi
aldrei verið neitt sérstaklega
sóðalegur. Ég var ekkert mikið
fyrir stóra hárið og glysið á
níunda áratugnum, held ég.“
Þórarinn Eldjárn rithöfundur.
Myndin er tekin í janúar 1980.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1. Keflavík.
2. Súdans.
3. Félags lögfræðinga.
„Við komum frá Barcelona á föstu-
daginn. Vorum að kaupa efni fyrir
atriðið okkar á Gay Pride,“ segir
Guðbergur Garðarsson - Beggi.
Hann og Pacas undirbúa nú atriði
sitt fyrir Gay Pride-gönguna af
miklum krafti og leituðu meira að
segja út fyrir landsteinana að efni-
við. „Við vorum bara tveir í
Barcelona. Það var æðislegt, 30-35
stiga hiti svo maður fór aldrei úr
stuttbuxunum,“ segir Beggi.
Atriði þeirra félaga verður í
þeirra anda. „Það verður rosalega
gleðilegt og skemmtilegt. Þetta er
tíunda árið í röð sem að Pacas fer
í gleðigöngu. Hann er mikil
drottning,“ segir Beggi en þær
turtildúfurnar munu bjóða upp á
nokkurs konar grískt blómaþema.
„Við fáum alla til að brosa, mikið
af litum og blómum og góðri dans-
tónlist.“
Beggi segir ferðina til Barcelona
hafa verið nauðsynlega. „Það var
frábært að komast aðeins úr skar-
kalanum.“ Það er í nógu að snúast
hjá honum og Pacasi og er sótt að
þeim úr öllum áttum. Allir vilja
njóta hæfileika þeirra. Innan
skamms munu þeir hefja störf hjá
vefsjónvarpi mbl.is og í haust
munu þeir verða á öldum ljós-
vakans með matreiðsluþátt. -shs
Beggi og Pacas
litríkir á Gay Pride
Hjúkrunarfræðinemanum Gunnari Péturs-
syni var hótað lífláti í gær, þar sem hann var
við sjálfboðaliðastörf í Palestínu. Hann var
staddur í sjúkrabíl þegar atvikið átti sér
stað.
Gunnari segist svo frá: „Við erum á leið-
inni í vinnuna eins og alla morgna. Við erum
að fara í gegnum vegatálma þar sem venju-
lega eru engir hermenn en í gærkvöldi hefur
verið eitthvað rosalegt í gangi því það var
heill hellingur af þeim þarna. Við erum að
drífa okkur að sinna neyðartilfelli þannig að
við ákváðum að fara ekki í röðina heldur í
gegnum neyðarleið. Þar erum við stoppaðir
og einn hermaðurinn varð snarvitlaus. „Á ég
að skjóta ykkur?“ Læknirinn segir að við
séum að drífa okkur vegna neyðartilfellisins
en hermaðurinn svarar. „Mér er andskotans
sama. Ég skýt ykkur með sama móti ef þið
reynið að vera með einhverja stæla! Ef þið
gerið þetta aftur þá skýt ég ykkur. Ekkert
mál, ég segi bara að ég hafi haldið að þið
væruð Hamas eða Fatah og ég skýt ykkur.
Ég get skotið ykkur hér og nú.“
Gunnar segir atvikið lýsa vel þeirri niður-
lægingu sem sjúkraliðar þurfa að þola í Pal-
estínu, þar sem fólk deyr í sjúkrabílum
vegna sams konar tafa eða stöðvana við
vegatálma. Hann segir ástandið þó aldrei
hafa verið þetta slæmt áður og þetta hafi
verið í fyrsta skipti sem hann óttast um líf
sitt. „Það eru búnar að vera aðeins fleiri
handtökur en venjulega. Aðeins fleiri skot-
hvellir og sprengingar á kvöldin. Herinn
kemur inn á hverri nóttu. Palestínumenn sjá
um löggæsluna á daginn, Ísraelsher á næt-
urnar. Maður heyrir í herþotunum fljúga
yf ir.“ Hann segir allt í góðu með Íslendingana.
Hann kvartar ekki. „Í fyrsta skipti
sem mér er hótað beinu lífláti en
þetta er eitthvað sem Palestínu-
menn ganga í gegnum á hverjum
degi.“ -kbs
Íslenskum sjálfboðaliða hótað lífláti
NÝKOMNIR FRÁ BARCELONA Beggi og
Pacas keyptu efni fyrir Gay pride-göng-
una í Barcelona. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÓTTAÐIST UM LÍF SITT Gunnar var
stoppaður við störf sín af her-
manni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hljómsveitin Merzedes Club lenti
í því á Landsmóti hestamanna
fyrir um viku að hópur gesta tók
sig til og púaði á hljómsveitina.
Ekki oft sem það gerist á Íslandi
en Egill „Gillz“ Einarsson svarar
fullum hálsi.
„Þegar Haffi Haff fór að taka
einhverja svona „gay-klúbba-
takta“ þá svelgdist einhverjum
bændum á bjórnum sínum. Og, já,
byrjuðu að púa. Þetta fór ekki vel í
þá,“ segir Valgeir Magnússon,
umboðsmaður Merzedes Club.
Morgunblaðið greindi frá því í
gær, reyndar í spurnarformi, hvað
hafi gerst þegar hljómsveitin
Merzedes Club var „púuð niður af
sviðinu“ þegar hún kom fram á
Landsmóti hestamanna sem lauk
fyrir viku. Valgeir segir að um ein-
angraðan hóp hafi verið að ræða
og MC hafi fallið vel í kramið
meðal yngri gesta Landsmótsins.
En því sé ekki að neita að ólíklegt
megi teljast að hestamenn upp til
hópa vilji teljast til aðdáenda
þeirrar technó-tónlistar sem flokk-
urinn býður uppá. „Þeir kunna
talsvert betur að meta Helga
Björns,“ segir Valgeir.
Hljómborðsleikari MC, Egill
„Gillz“ Einarsson, hafði nokkuð
fyrir því að falla í kramið og fékk
sér rándýran kúrekaklæðnað, hatt,
köflótta skyrtu, gallabuxur og
kúrekastígvél – sem hann hafði
byggt á pælingum sínum á því
hvernig kvikmyndaleikarinn
Chuck Norris kemur honum fyrir
sjónir. En allt kom fyrir ekki. Eða
hvað?
„Sko, ég var nú ekki að kippa
mér upp við það þó einhverjir 30
til 40 sveitalúðar hefðu verið að
púa. Leiðindahópur af „Red Necks“
úti í horni,“ segir Egill sem segir
þetta eitt það allra skemmtilegasta
„gigg“ sem hann hefur komið
nálægt. Þeir ævintýralega flottir,
birtust gestum á pallbílum í lög-
reglufylgd með sírenurnar á. „En
þegar vinur minn Haffi Haff fór
að riðlast á girðingu þá … já, fór
það ekki vel í sveitamanninn. En
við slógum að sjálfsögðu í gegn,“
segir Egill og dregur hvergi af sér:
„Meðal þorra gesta en það voru
einhverjir 30 gæjar með órakaðan
pung og 50 kílóum of þungir sem
voru með dólg. En þeir sögðu nú
ekki mikið þegar við hittum þá.
Grjótharðir uppí stúku en þegar
þeir mættu Stóra G [Agli] þá var
nú ekki uppi á þeim tippið.“
Egill segir þetta ekkert óeðli-
legt. Velgengnin á sér óvini. „Ég
skil það vel. Ég væri sjálfur pirr-
aður. Þarna var ég, ógeðslega flott-
ur rúntandi um á 400 hestafla
Bens, tek 150 kg í bekk … það eru
ekkert allir sem höndla það.“
jakob@frettabladid.is
EGILL EINARSSON: TELUR SIG FÓRNARLAMB SVEITAMENNSKU
Hestamenn púuðu á
hommatakta Haffa Haff
EGILL EINARSSON Stórglæsilegur í rándýrum kúrekafötum sínum að hætti Chucks
Norris. Hann gefur ekki mikið fyrir það þegar púað var á hljómsveitina á Landsmóti.
HAFFI HAFF Þegar Haffi tók að riðlast á
girðingu líkt og hann væri á teknóklúbbi
en ekki á Hellu þá fór það ekki vel í
hestamennina.
Eins og fram kom á vef Moggans
í fyrradag er von á auðkýfingnum
Roman Abramovitsj, eig-
anda Chelsea, til landsins.
Ekki var hann kominn til
landsins í gær þegar
menn svipuðust um
eftir honum en
hann mun eiga
fund hér með
Ólafi Ragnari
Grímssyni forseta
og sagt er að hann ætli
að renna fyrir lax á
Íslandi enda allar
ár kjaftfullar af
fiski. Rökstuddur
grunur er um
að hann ætli til
Vopnafjarðar til
veiða enda eru þar tvær frábærar
laxveiðiár: Selá og Hofsá en þar
hafa einmitt verið við veiðar Karl
Bretaprins og Gullbjörninn Jack
Nicklaus.
Hljómsveitin Slugs, með Sindra
Eldon Bjarkarson í broddi fylk-
ingar, var stödd á Vopnafirði fyrir
skömmu og naut gestrisni Siggu
Dóru (Sigríðar Dóru Sverrisdótt-
ur) menningarfrömuðar. Hljóm-
sveitin rótaði upp
hljóðfærum sínum
og græjum og lék
að gamni sínu í
plássinu við mikla
ánægju viðstaddra.
Sigga Dóra segir
að Sigur Rós hafi
verið á svipuðu róli
árið 1999, komu þá
við í Vopnafirði og urðu í kjölfarið
heimsfrægir svo því ekki Slugs?
Vegna fréttar á þessum stað í gær
um þyrluflug auðmanna við veiðar
í Kjarrá vill upplýsingafulltrúi Exista
koma því á framfæri að Lýður og
Ágúst Guðmundssynir tengdust
því ekki með neinum hætti. Enn
fremur að þyrluflugið hafi hvorki
verið á þeirra vegum, né Exista eða
Bakkavarar. Beðist er velvirðingar
á þessum misskilningi sem stafar
væntanlega af því að starfsmenn
úr fyrirtækjum þeirra bræðra voru
á eigin vegum við veiðar í Kjarrá og
ferðuðust á þyrlu í Baulu til að fá
sér pylsu. -jbg/hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI