Fréttablaðið - 23.07.2008, Síða 11
MARKAÐURINN 11MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2008
S K O Ð U N
SIGRÚN HJARTARDÓTTIR hefur verið
ráðin forstöðumaður fjárfestatengsla
hjá Glitni. Sigrún tekur við starfinu af
Völu Pálsdóttur sem er
í fæðingarorlofi. Sigrún
hóf störf hjá Glitni í
febrúar 2007, fyrst sem
sérfræðingur á fyrir-
tækjasviði en tók í sept-
ember sama ár við starfi
verkefnastjóra innan greiningar þar sem
hún hafði umsjón með samþættingu
starfsemi greiningardeilda
JÓHANNES RÚNARSSON, hefur tekið við
stöðu framkvæmdastjóra viðskipta-
þjónustu Skipta. Jóhannes hefur starf-
að hjá Skiptum, og áður hjá Símanum,
í 20 ár. Fyrst sem sér-
fræðingur í hagdeild,
svo sem forstöðumaður
innkaupamála, því næst
sem forstöðumaður
starfsmannaþjónustu
og síðar sem fram-
kvæmdastjóri starfsmannasviðs.
Jóhannes er viðskiptafræðingur frá
Háskóla Íslands.
KETILL B. MAGNÚSSON hefur tekið við
stöðu framkvæmdastjóra mannauðs-
sviðs Skipta. Ketill hefur starfað hjá
Skiptum, og áður hjá Símanum, í 7 ár,
fyrst sem forstöðumaður
stefnumótunar, þar á
eftir sem mannauðs-
ráðgjafi og síðast sem
forstöðumaður starfsþró-
unar og fræðslu. Áður
vann hann meðal annars
sem ráðgjafi hjá Skref fyrir skref. Ketill
er MA í heimspeki frá University of
Saskatchewan í Kanada og MBA frá
ESADE Business School á Spáni.
F Ó L K Á F E R L I
Undanfarnar vikur hafa ís-
lensk fyrirtæki gripið til upp-
sagna og jafnvel hópuppsagna
vegna samdráttaráhrifa í efna-
hagslífinu. Þegar til slíkra upp-
sagna kemur snýst umræðan
helst um þá aðila sem missa at-
vinnuna og þurfa hugsanlega að
kljást við einhverja erfiðleika
sökum þess að verða atvinnu-
lausir. Minna hefur borið á um-
ræðu um hugsanlega líðan og
ástand þess starfsfólks sem er
svo lánsamt að hafa haldið vinn-
unni.
Það að hafa haldið starfi sínu
þegar fyrirtæki neyðist til þess
að draga saman seglin er ekki
bara dans á rósum fyrir þá sem
þurfa að halda skútunni áfram
á floti. Starfsfólk horfir á eftir
fyrrum vinnufélögum og jafn-
vel vinum yfirgefa starfsstöðv-
ar sínar lotið í baki, því að upp-
sögn er vissulega áfall fyrir þá
sem fyrir henni verða. Þrátt
fyrir ákveðinn létti um að hafa
komist undan niðurskurði, getur
einnig borið á sektarkennd og
sorg hjá þeim sem eftir verða.
Slík tilfinningatogstreita getur
reynst erfið viðureignar og haft
áhrif á líðan og afköst starfs-
mannanna.
Starfsmenn þurfa að halda
áfram að vinna og jafnvel tak-
ast á við aukið álag í starfi sem
brotthvarf fyrrum samstarfs-
manna getur haft í för með sér.
Því þrátt fyrir að til uppsagna
komi þarf það ekki endilega að
þýða að starfsemi fyrirtækis
dragist mikið saman, öllu heldur
eru það færri hendur sem þurfa
að ljúka sömu verkefnunum.
Einnig getur brotist út gremja
á milli vinnufélaga sem halda
störfum sínum vegna ótta við að
verða næsta fórnarlamb niður-
skurðar. Viðvarandi ótti um að
missa vinnuna getur haft slæm
áhrif á samskipti innan vinnu-
staðar og dregið úr samheldni
vinnufélaga. Samstarfsfélag-
ar fara jafnvel að keppa hver
við annan um hylli yfirmanna
með ófyrirsjáanlegum afleið-
ingum. Eldfimt og erfitt ástand
á vinnustað getur jafnvel leitt
til þess að þeir starfsmenn sem
fyrirtækið má alls ekki missa,
ákveða að segja upp.
Val á þeim sem þurfa að láta
af störfum getur verið vanda-
samt verk. Ef starfsfólki finnst
að uppsagnirnar hafi ekki náð til
þeirra sem helst áttu þær skil-
ið, getur það enn aukið á ringul-
reiðina á vinnustaðnum og jafn-
vel dregið úr samkeppnishæfi
fyrirtækisins. Við uppsagnir
þarf að gæta þess að tapa ekki
grunnþekkingu og hæfni sem
nauðsynleg er fyrirtækinu til
þess að starfa áfram. Taka þarf
tillit til aldurs starfsmanna,
starfsaldurs, vinnuframlags og
stöðu þeirra innan fyrirtækis.
Alla þessa þætti þarf að vega
og meta svo að þeir muni ekki
draga úr þrótti þeirra sem halda
störfum sínum eða afköstum
fyrirtækisins í heild.
Fyrir stjórnendur fyrirtækja
er því að mörgu að huga þegar
til uppsagna kemur. Setja þarf
fyrirtækinu ný markmið með
færri starfsmönnum og vera
vakandi yfir áhrifum samdrátt-
ar á starfsemi sem og á starfs-
fólkið. Því afleiðingar uppsagna
eru ekki einungis fjárhagsleg-
ar, heldur þarf að taka tillit
til tvíbentra tilfinninga þeirra
sem halda vinnunni, reyna eftir
fremsta megni að draga úr ótta
þeirra um að missa vinnuna
síðar meir og að lokum reyna að
þétta samheldni
starfshópsins
sem eftir er.
Karen Halldórsdóttir,
MS í mannauðs-
stjórnun og BA
í sálfræði.
Uppsagnir og þeir
sem eftir verða
Svakalega gerði ég góðan díl um
daginn þegar ég nældi mér í svo
gott sem nýjan stóran amerísk-
an pallbíl. Það er ekki á hverjum
degi sem seljendur bjóðast til að
borga heimanmund með kerrun-
um sem þeir vilja losna við. Fyrir
mismuninn nældi ég mér í nýjar
dýnur í hjónarúmið, eða eins og
frúin sagði: „Neih! Bara búinn að
endurnýja undirlagið á skeiðvell-
inum!“ Svo tísti í henni.
Hún varð nú samt eitthvað
skrítin á svipinn þegar hún sá
nýja Dodge-inn, enda síkvakandi
kerlingarnar í saumaklúbbnum
hennar um bensínverðið. Hún
sá nú samt fljótt skynsemina í
þessu og kvartaði ekki þegar hún
teygði úr sér í kerrunni á leiðinni
upp í veiðihús. Ég hef nefnilega
ekki miklar áhyggjur af olíu-
verðinu. Bæði getur maður leyft
sér að spandera í reksturinn á
bílnum og svo varir heldur ekki
þetta ástand að eilífu. Ég gat ekki
annað en glott út í annað fyrir
helgi þegar ég heyrði í útvarp-
inu umfjöllun um „óvænta“ þíðu
í samskiptum Bandaríkjanna og
Írans. Ég vissi að þess væri ekki
langt að bíða að „Sámur frændi“
legðist á árar í að lægja öldur á
olíumarkaði, enda svíður pöpul-
inn westra undan bensínverðinu
í kreppunni þar.
Í kauphallarládeyðunni hér
heima hefur maður svo líka tekið
nokkrar rispur í afleiðuviðskipt-
um hér og hvar. Þar hefur svarta
gullið gefið vel af sér. Allt er
þetta bara spurning um að vega
og meta aðstæður rétt. Maður
leggur ískalt mat á aðstæður, fer
ekki á taugum og peningarnir
streyma í kassann. Stundum er
þetta svo líka bara spurning um
hæfilega ófyrirleitni, það vita
þeir sem komið hafa að olíuvið-
skiptum hér heima.
Svo þarf náttúrlega að vega og
meta samspil kaupverðs og reks-
rarkostnaðar, eins og ég endaði á
að útskýra fyrir konunni.
„Þú veist þetta best,“ sagði þá
dúllan mín sátt og passaði sig
vandlega að ekki færi naglalakk
í leðuráklæðið. Ég ákvað að vera
ekkert að fetta fingur út í tá-
naglalökkunina í framsætinu.
Naut þess bara að láta drynja að-
eins í tryllitækinu þegar ég tók
fram úr Priusnum á leiðinni út
úr bænum.
S P Á K A U P M A Ð U R I N N
Svarta gullið
gefur vel
M A N N A U Ð S M Á L
Í BÓTABIÐRÖÐ Greinarhöfundur bendir
á að við uppsagnir á vinnustað geti orðið
til skaðleg samkeppni meðal þeirra sem
sem eftir standa með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum. NORDICPHOTOS/AFP
Glitnir leggur 0,1% mótframlag í Glitnir Globe, sjóð sem
styrkir sjálfbæra þróun. Farðu inn á saveandsave.is eða talaðu
við ráðgjafa Glitnis og kynntu þér hvernig þú getur notið hárrar
ávöxtunar um leið og þú leggur náttúrunni lið.
*skv. vaxtatöflu Glitnis 01.07.2008
* *
TVÆR LEIÐIR TIL AÐ
NJÓTA HÁRRA VAXTA
E
Ð
A
• Óbundinn innlánsreikningur
• Hægt að leggja inn og taka
út hvenær sem er.
• Bundinn í 12 mánuði
• Vextir greiddir út mánaðarlega
og eru ávallt lausir
fastir vextir í heilt ár
15 %
breytilegir vextir
Save&Save opinn
* 14,5 %
Save&Save bundinn
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
–
1
9
4
1