Fréttablaðið - 30.07.2008, Blaðsíða 16
0,94% 72 0,7%kaupsamningar voru gerðir á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Þetta er yfi r meðalveltu síðustu
tólf vikna.
Gengissig krónunnar og erlendar verð-
hækkanir eru valdar af hækkunum á
innfl uttum vörum um 0,7 prósent. Innlendar
vörur hækka þó meira eða um 1,8 prósent.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð hækkun varð á vísitölu
neysluverðs í júlí. Síðastliðið
ár hefur vísitalan hækkað
um 13,6 prósent.
Sigurjón Árnason, bankastjóri
Landsbankans, sló á létta strengi
og kvað víðar skjálfta en úti fyrir
Grímsey um leið og hann á af-
komukynningu bankans í gær
brá upp línu- og stöplariti yfir
þróun hlutabréfaverðs og magn
viðskipta allt frá ársbyrjun 2003
til dagsins í dag. Enda hárrétt hjá
honum að í fljótu bragði mætti
ætla að myndin væri útskrift
jarðskjálftamælis.
Líkast til liggur nærri að segja
að starfsmenn í bönkum séu á
skjálftavaktinni og jafnvel í því
að meta hvernig bregðast skuli
við tjóni að sveiflum loknum,
hvort ráðist verði í fjárhagslega
endurskipulagningu hjá einhverj-
um viðskiptavinum, eða aðrar
leiðir farnar.
Skjálftavaktin
í bönkunum
Um allangt skeið hafa, þrátt
fyrir frávísan stjórnar, verið
uppi töluverðar vangaveltur um
stöðu Byrs sparisjóðs og hvort
búast megi við því að hann
renni saman við Glitni að lok-
inni skráningu á markað. For-
dæmi SPRON, sem er við það
að sameinast Kaupþingi, hefur
blásið þessum vangaveltum byr
undir báða vængi. Aðrar sam-
líkingar hafa svo þvælst meira
fyrir, svo sem vangaveltur um
hvort standist nýlegt verðmat
Capacent á sjóðnum, en brennd-
um fjárfestum er í fersku minni
60 milljarða mat fyrirtækisins á
verðmæti SPRON.
Hitt er svo annað mál að eftir
fækkun fyrirtækja í Kauphöll-
inni á þessu ári myndu menn
þar á bæ örugglega fagna því að
fá Byr, jafnvel þótt stoppið yrði
ekki nema stutt.
Byr vantar
á markaðinn
Stundum kemur upp í umræð-
um um tollamál að hér þurfi
að halda verndartollum á inn-
flutt matvæli til að tryggja mat-
vælaöryggi. Ekki er alltaf ljóst
við hvað er átt. Matvælaöryggi
er nefnilega hug-
tak úr matvæla-
iðnaði, þar sem
gætt er að rekj-
anleika vörunn-
ar og að smit kom-
ist ekki í framleiðslu-
ferlið. Fæðuöryggi er svo notað
í umræðum um hvort nægilegt
framboð sé af mat. Með slík-
um rökum mætti líka gefa sér
að hér þyrfti að tryggja fram-
leiðslu á öllum fatnaði og jafnvel
farartækjum og vinnuvélum.
Er örygginu
ábótavant?
Lúxusnámskeið NordicaSpa er hannað til
að koma þér af stað á mjög árangursríkan
og einfaldan hátt. Tilgangur námskeiðisins
er að koma þér á æðra stig hvað varðar
líkamlega og andlega heilsu.
Fimm tímar í viku – Brennsla og styrkur
3 öflugir brennslutímar
2 styrktartímar í sal undir handleiðslu þjálfara
Vikulegar mælingar
Ítarleg næringarráðgjöf
Fyrirlestur – Borðaðu til að léttast og auka orkuna
Slökun og herðanudd eftir hverja æfingu
Hollustudrykkur eftir hverja æfingu
Takmarkaður fjöldi
Tímar eru: 6:30, 7:30, 10:00, 12:00, 16:30 og 18:30 fimm sinnum í viku
Þjálfari er Gunnar Már Sigfússon
1. vika – Orkuhleðsla
Í fyrstu vikunni byggir þú upp orku og kemur líkamanum í jafnvægi.
2. vika – Öflug melting – Aukin brennsla
Í viku tvö er verið að efla og bæta meltinguna til að þú fáir sem mest út úr
holla matnum sem þú ert að borða.
3. vika – Hormóna jafnvægi – Hreinsun
Þriðja vikan mun koma jafnvægi á hormónaflæði líkamanns sem mun
hafa áhrif á skap þitt, lífsorku og kraft.
4. vika – Ónæmiskerfi eflt – Jafnvægi
Í viku fjögur byggjum við upp ónæmiskerfið og hjálpum því að verja
líkamann á náttúrulegan hátt.
Ný námskeið hefjast 11. ágúst
Skráning er hafin í síma 444 5090 eða
nordicaspa@nordicaspa.is www.nordicaspa.is
Hilton Reykjavík Nordica Hotel
Suðurlandsbraut 2
Sími 444 5090
nordicaspa@nordicaspa.is
www.nordicaspa.is
Styrmir Þór Bragason 37 ára
forstjóri MP Fjárfestingarbanka
Skemmtilegt og fjölbreytt námskeið og besta aðhald sem ég hef fengið og það er
það sem skiptir öllu máli þegar maður er að koma sér í form með breyttu mataræði
og meiri hreyfingu. Ég var farinn að hlakka til að komast á æfingar og ég fann að
orkan jókst mikið á skömmum tíma sem skipir miklu máli í minni vinnu.
Rannveig I. Marelsdóttir 48 ára
bókari hjá Mannviti
Markviss leiðsögn, frábær aðstaða og mesta aðhald sem hægt er að fá. Hér eru
engar öfgar á ferð. Farið er vel ofan í mataræðið á skynsaman hátt og bætt við
skemmtilegri hreyfingu – útkoman er aukinn orka, úthald og vellíðan í daglegu lífi.
Getum mælt með þessu námskeiði við hvern sem er – 100% árangur.
Björk Baldvinsdóttir 29 ára
sérfræðingur hjá Kaupþingi
Fjögurra vikna
lúxusnámskeið
fyrir konur og karla
Hvers vegna PwC?
Þekkingarfyrirtæki í fremstu röð á Íslandi og leiðandi á alþjóðavettvangi.
Endurskoðun Fyrirtækjaráðgjöf Skatta- og lögfræðiráðgjöf
Reykjavík - Akureyri - Húsavík - Selfoss - Reykjanesbær www.pwc.com/is
*connectedthinking