Fréttablaðið - 28.09.2008, Blaðsíða 37
SUNNUDAGUR 28. september 2008 13
Auglýsing á útboðum í Dalabyggð
Útboð 1
Dalabyggð óskar eftir tilboðum í viðbyggingu og fullnaðarfrágang á
viðbygginu við Dvalar og hjúkrunarheimilinu Silfurtún Búðardal.
Um er að ræða 53m² viðbyggingu sem byggð verður við núverandi
foranddyri húsin.
Samantekt sundurliðast eftirfarandi:
• Jarðvinna
• Burðarvirki
• Lagnir
• Rafl agnir
• Frágangur innanhúss
• Frágangur utanhús.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 20.02.09.
Tilboð merkt:
Tilboð Silfurtún Dalabyggð
Viðbygging 2008
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 5.000 hjá skrifstofu Dala-
byggðar frá og með Þriðjudeginum 30. september 2008. Tilboðin
verða opnuð á skrifstofu Dalabyggðar 14. nóvember 2008 kl. 14°°
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Útboð 2
Dalabyggð óskar eftir tilboðum í klæðningu og fullnaðarfrágang á
útveggjum við grunnskólann Tjarnarlundi Saurbæ Dalabyggð.
Um er að ræða að klæða útveggi með annarsvegar sléttri
klæðningu og hinsvegar með báraðri klæðningu á til þess gerða
burðargrind. Einangra skal veggi undir klæðningu.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 15.12.08
Tilboð merkt:
Tilboð Tjarnarlundur Dalabyggð
Klæðning 2008
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 5.000 hjá skrifstofu Dala-
byggðar frá og með Þriðjudeginum 30. september 2008. Tilboðin
verða opnuð á skrifstofu Dalabyggðar 14 nóvember 2008 kl. 14.15
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Skipulags og byggingarfulltrúi
Dalabyggðar.
Auglýsing vegna úthlutunar
atvinnuleyfa til aksturs
leigubifreiða.
Vegagerðin auglýsir laus til umsóknar 23 leyfi til leiguaksturs
á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum og 1 leyfi á Akureyri.
Þeir einir geta sótt um leyfi sem hyggjast stunda akstur
leigubifreiðar að aðalatvinnu. Til að öðlast leyfi þurfa umsækj-
endur að uppfylla skilyrði leyfi s skv. 5. gr. laga nr. 134/2001
og reglugerðar nr. 397/2003 um leigubifreiðar, með síðari
breytingum.
Úthlutun leyfa fer fram á grundvelli starfsreynslu við akstur
leigubifreiðar, sbr. ákvæði 6. gr. reglugerðar nr. 397/2003.
Umsóknareyðublöð má nálgast á vegagerdin.is/leyfi sveitingar,
eða í afgreiðslu Vegagerðarinnar Borgartúni 5 í Reykjavík.
Þeir sem þegar hafa sótt um leyfi þurfa ekki að endurnýja
umsóknir sýnar.
Umsóknarfrestur er til 7. október. 2008.
Sjóðurinn Blind börn á Íslandi
Sjóðurinn Blind börn á Íslandi veitir styrki til blindra
og sjónskertra barna á Íslandi allt að 18 ára aldri.
Úthlutað verður styrkjum úr sjóðnum á fyrsta
vetrardag sem er 25.október næstkomandi.
Umsóknir um styrki þurfa að hafa borist eigi
síðar en 20.október 2008
Umsóknir skal senda til Blindrafélagsins,
Hamrahlíð 17 skulu vera skrifl egar og þeim fylgja
kostnaðaráætlun vegna þess sem sótt er um.
Listamannalaun 2009
Umsóknarfrestur listamannalauna rennur út 2. október
kl.17.00.
Eyðublöð fást á skrifstofu stjórnar listamannalauna
Túngötu 14 og á www.listamannalaun.is.
Umsóknum skal skila á skrifstofu Stjórnar listamanna-
launa, Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík.
Stjórn listamannalauna
ÚTBOÐ
Frágangur þaka
Eignarhaldsfélagið Fasteign hf.
óskar hér með eftir tilboðum í verkið:
Grunnskólinn á Egilsstöðum
Viðbygging og breytingar
Frágangur utanhúss – Frágangur þaka
Verkið felst í útvegun og niðurlögn á þakpappa-
klæðningu á þök Grunnskólans á Egilsstöðum.
Aðalverktaki verksins er Malarvinnslan ehf.
Væntanlegur undirverktaki vegna útboðs þessa
verður undir stjórn aðalverktaka.
Helstu magntölur eru:
Viðsnúin þök með fargi 1.215 m2
Hefðbundin pappaþök 1.318 m2
Endurnýjun þaka 757 m2
Framkvæmdatími er frá 1. nóvember 2008 til
10. júlí 2009
Útboðsgögn fást afhent hjá VSÓ Ráðgjöf,
Borgartúni 20, Reykjavík og Verkfræðistofu
Austurlands, Kaupvangi 5, Egilsstöðum frá og með
miðvikudeginum 24. september 2008. Einnig er
hægt að óska eftir gögnum á rafrænu formi með
því að senda póst á netfangið vso@vso.is
Tilboð verða opnuð á skrifstofu VSÓ Ráðgjafar,
Borgartúni 20, Reykjavík og Verkfræðistofu
Austurlands, Kaupvangi 5, Egilsstöðum,
miðvikudaginn 15. október 2008, kl. 11:00.
14591 – Egilstaðafl ugvöllur
– Lenging öryggissvæðis, jarðvinna
Ríkiskaup, fyrir hönd Flugstoða ohf. óska eftir
tilboðum í verkið: Egilstaðafl ugvöllur – Lenging
öryggissvæðis, jarðvinna
Öryggissvæðið við norðurenda fl ugbrautarinnar
skal lengt um 90 m. Grafa skal burtu ónothæft
efni og fylla í með efni sem verkkaupi útvegar
úr námu í Mýnesi sem er í um 2 km fjarlægð frá
vinnusvæði. Fergja skal öryggissvæði og jafna út
uppgröft.
Setja skal ræsi í Eyvindará og kíl til að gera færan
námuveg að Mýnesnámu.
Helstu verkþættir eru:
• Uppúrtekt 18.000 m3
• Fylling 19.000 m3
• Burðarlag 8.000 m3
• Farg 6.000 m3
Nánari upplýsingar er að fi nna í útboðsgögnum
sem eru aðgengileg á vef Ríkiskaupa,
www.rikiskaup.is.
Opnun tilboða verður 9. október 2008 kl. 14.00
hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík.
Útboð skila árangri!
Auglýsing um lausar lóðir Dalabyggð.
Dalabyggð auglýsir eftir umsóknun um lóðir við
Vesturbraut í Búðardal.
Um er að ræða 2 verslunar- og þjónustulóðir við Vestfjarðarveg
(60) í Búðardal. Staðsetning lóðanna er mjög góð, áberandi og
með góðu aðgengi. Byggingarskilmálar samkvæmt deiliskipulagi.
Lóð A.
Þeirri er komið er fyrst að sunnan má reisa 1h byggingar vegna
bensínsölu, verslunar- veitingar og þjónustubyggingar vegna
hjól- og tjaldhýsasvæða með snyrtingum og gistimöguleikum á
smáhýsum.
Byggingarreitur er um 3.230m². Gert er ráð fyri allt að 75
bílastæðum og amk 5-7 stæðum fyrir rútur og fl utningabíla með
tengivagna. Þá má hluti af bílastæðum vera inn á byggingarreit.
Umferð frá suðri til norðurs er um sameiginlega húsagötu með
bílastæðum samsíða Vestfjarðarveginum.
Lóð B.
Lóð B er nær núverandi verlunar- og þjónustukjarna. Þar má reisa
1h byggingar vegna verslunar- og þjónustubyggingy fyrir léttari
starfsemi.
Byggingarreitur er stóru um 2.700m². Gert er ráð fyrir allt að 60
bílastæðum og amk. 5 stæðum fyir rútur og fl utningabíla með
tengivagna. Þá má hluti af bílastæðunum vera inn á byggingarreit.
Umferð frá suðri til norðurs er um sameiginlega húsagötu með
húsagötu með bílastæðunum samsíða Vestfjarðarveginum.
Umsóknir skulu berast á skrifstofu Dalabyggðar Miðbraut 11 370
Búðardal
Umsóknafrestur er til 15.10.08.
Nánari upplýsingar gefur skipulags og byggingarfulltrúi í 430-4700.
Skipulags og byggingarfulltrúi
Dalabyggðar.
Tilkynningar Styrkir
Útboð
Auglýsingasími
– Mest lesið