Fréttablaðið - 28.09.2008, Blaðsíða 58
22 28. september 2008 SUNNUDAGUR
Loksins á Íslandi
Alvöru
orkudrykkur
Landsbankadeild karla:
LOKASTAÐAN
1. FH 22 15 2 5 50:25 47
2. Keflavík 22 14 4 4 54:31 46
3. Fram 22 13 1 8 31:21 40
4. KR 22 12 3 7 38:23 39
5. Valur 22 11 2 9 34:28 35
6. Fjölnir 22 10 1 11 39:33 31
7. Grindavík 22 8 4 10 29:36 31
8. Breiðablik 22 8 6 8 41:36 30
9. Fylkir 22 6 4 12 24:40 22
10. Þróttur 22 5 7 10 28:46 22
11. HK 22 5 3 14 26:47 18
12. ÍA 22 2 7 13 18:46 13
Fylkisvöllur, áhorf.: 1.530
Fylkir FH
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 7–20 (3–9)
Varin skot Fjalar 7 – Gunnar 3
Horn 4–1
Aukaspyrnur fengnar 8–7
Rangstöður 2–5
FH 4–3–3
Gunnar Sigurðsson 7
*Guðm. Sævarsson 8
Tommy Nielsen 8
Freyr Bjarnason 7
Hjörtur Valgarðsson 7
Ásgeir G. Ásgeirsson 7
Matthías Vilhjálms. 8
Davíð Þór Viðarsson 8
Matthías Guðmunds. 7
(71., Björn Sverris. -)
Atli Viðar Björnsson 7
Atli Guðnason 7
*Maður leiksins
FYLKIR 4–3–3
Fjalar Þorgeirsson 8
Andrés Jóhannsson 7
Björn Hermanns. 7
Valur Fannar Gísla. 7
Peter Gravesen 5
Kristján Valdimars. 6
Halldór Hilmisson 5
Ian Jeffs 5
Ingimundur Óskars. 6
Haukur Ingi Guðna. 7
Ásgeir Arnþórsson 4
(61., Kjartan Baldv. 5)
0-1 Matthías Vilhjálmsson (53.)
0-2 Guðmundur Sævarsson (78.)
0-2
Kristinn Jakobsson (9)
FÓTBOLTI FH varð í gær Íslands-
meistari í knattspyrnu eftir ótrú-
lega og æsispennandi lokaumferð
í Landsbankadeild karla. Hafn-
firðingar unnu 2-0 sigur á Fylkis-
mönnum í Árbæ sem dugði til þar
sem Keflvíkingar, sem sátu í topp-
sæti deildarinnar fyrir loka-
umferðina, töpuðu sínum leik.
Matthías Vilhjálmsson og Guð-
mundur Sævarsson skoruðu mörk
FH-inga í gær. Síðara markið kom
aðeins mínútu eftir að Framarar
komust yfir í Keflavík og gátu því
stuðningsmenn FH fagnað tvíveg-
is á sömu mínútunni þegar innan
við stundarfjórðungur var til
leiksloka.
Yfirburðir FH-inga í gær voru
algerir. Strax frá fyrstu sekúnd-
um leiksins sóttu þeir grimmt og
voru í raun klaufar að klára þenn-
an leik ekki löngu fyrr. Það skipti
þó engu í leikslok.
Heimi Guðjónssyni hefur tekist
það sem margir efuðust um– að
reisa við lið FH sem vann þrjá titla
undir stjórn Ólafs Jóhannessonar,
núverandi landsliðsþjálfara. Hann
var sigurvegari gærdagsins.
„Þetta er frábær tilfinning og
það er erfitt að lýsa henni,“ sagði
hann við Fréttablaðið eftir leik.
„Fyrst og fremst er ég stoltur af
þessum leikmönnum sem sýndu
fádæma góðan karakter. Þeir spil-
uðu þrjá leiki á sjö dögum og rúll-
uðu þeim öllum upp. Það er bara
þannig í fótbolta að úrslit mótsins
ráðast ekki fyrr en í september.“
Staðan var markalaus í hálfleik,
bæði í Keflavík og í Árbænum, en
Heimir sagðist hafa verið rólegur.
„Það eina sem við þurftum að
gera var að vera þolinmóðir og
senda nákvæmari úrslitasending-
ar. Opnanirnar voru til staðar og
við fengum fullt af færum. Ég var
alveg viss um að við myndum
skora í þessum leik.“
Hann segir að það hafi verið
fyrst og fremst skipun sín til leik-
manna að hugsa aðeins um þá
sjálfa.
„Um leið og maður fer að hugsa
eitthvað annað og meira er maður
kominn í vandræði. Þeir afgreiddu
þetta glæsilega og þetta var mjög
góður leikur hjá FH í dag.“
Heimir sagði að sínir menn
hefðu náð tveimur af þremur
markmiðum sínum í sumar.
„Við ætluðum að verða Íslands-
meistarar, komast áfram í Evr-
ópukeppninni og vinna bikarinn.
Það síðastnefnda tókst ekki en við
erum samt afar sáttir. Auðvitað
spilaði liðið ekkert alltaf eins og
maður vildi. En þetta snýst um að
toppa á réttum tíma og það gerð-
um við.“
Íslandsmótið hefur aldrei verið
eins langt og nú, 22 umferðir.
Heimir sagði það breytingu til
hins betra. „Mér fannst þetta
miklu skemmtilegra mót en áður.
Mér finnst líka liðin verða betri og
betri. Þau eru að verða jafnari.
Fótboltinn á Íslandi er að verða
betri og er það afar jákvætt.“
eirikur@frettabladid.is
Framúrskarandi FH-ingar
FH er Íslandsmeistari karla árið 2008 eftir æsispennandi lokaumferð. Fjórði
Íslandsmeistaratitill FH á aðeins fimm keppnistímatímabilum er staðreynd.
KÓNGURINN Á LOFT Þjálfari FH-inga, Heimir Guðjónsson, sem oft er kallaður Kóngurinn, fær hér flugferð frá lærisveinum sínum í
gær. Heimir stýrði FH til meistaratitils á sínu fyrsta ári, sem er magnaður árangur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Davíð Þór Viðarsson,
fyrirliði FH, sendi Frömurum
kærar þakkarkveðjur fyrir
sigurinn í Keflavík í gær sem
gerði FH-ingum kleift að verða
Íslandsmeistarar.
„Ég hafði alltaf trú á þessu. Ég
viðurkenni þó að það kom smá efi
í mann þegar Keflvíkingar kom-
ust í 1-0. En það var frábært hjá
Frömurum að vinna þennan leik
og ég get ekki fært þeim nægi-
lega miklar þakkir. Keflvíkingar
voru vissulega í erfiðri stöðu
þrátt fyrir allt. Þeir töpuðu fyrir
okkur og þurftu svo að horfa upp
á okkur vinna Breiðablik í miðri
viku. Það bara hlaut að koma
aukin pressa á þá og ég missti
aldrei trúna,“ sagði Davíð.
Hann sagði að leikurinn gegn
Fylki, sem FH vann 2-0, hefði
verið óvenjulegur.
„Við vorum með boltann allan
leikinn og hefðum átt að komast
yfir strax eftir tíu sekúndur. En
við sýndum þolinmæði og kláruð-
um verkið frábærlega.“ - esá
Davíð Þór Viðarsson fyrirliði var kampakátur:
Hafði alltaf trú á þessu
GLEÐI Davíð Þór, fyrirliði FH, dansar hér með bikarinn í klefanum. Hann átti
frábært sumar með FH. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Tryggvi Guðmundsson
tók út leikbann í leik FH og Fylkis
í gær og stóð því á meðal áhorf-
enda og fylgdist með leiknum.
„Það er nokkuð nett að verða
Íslandsmeistari í gallabuxunum
þó svo að ég sé nú í búningnum
undir. En það var fáránlegt að
fylgjast með þessu. Ég var með
útvarpið í eyrunum og þetta gerð-
ist allt svo skyndilega og hratt.
Þetta var ólýsanlegt að upplifa
þetta en um leið alveg yndislegt,“
sagði Tryggvi, sem sat á meðal
stuðningsmanna FH, Mafíunnar,
meðan á leik stóð. - esá
Tryggvi Guðmundsson fylgdist með úr stúkunni:
Nett að verða meist-
ari í gallabuxunum
FÖGNUÐUR Tryggvi Guðmundsson fagnar hér með stuðningsmönnum FH í stúkunni
þegar ljóst var að FH var að verða meistari. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM