Fréttablaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 4
4 23. nóvember 2008 SUNNUDAGUR
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Lífið á
landnámsöld
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
20°
5°
2°
2°
3°
3°
3°
-1°
3°
3°
21°
10°
3°
21°
-1°
5°
13°
0°
1
0 -1
-1
-2
2
-1
3
2
1
16
14
5
-5
5
5
7
510
8
13
10
-1 -3
-4
-4-1Á MORGUN
Hæg, breytileg átt.Rigning
eða slydda V-til undir kvöld
ÞRIÐJUDAGUR
8-13 m/s
5 4
1
35
HLÝNAR Á NÝ Á
ÞRIÐJUDAG
Í dag verður allhvöss og
sumstaðar hvöss norð-
an átt vestan til annars
hægari vindur. Samfara
þessu frystir á landinu
en þó má búast við
að hiti með ströndum
verði yfi r núllinu. Víðast
verður frost á morgun
en annað kvöld kemur
úrkomuloft upp að
landinu vestanverðu
og það smá hlýnar.
Úrkoman verður í fyrstu
snjókoma en síðan
slydda eða rigning.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
SKOÐANAKÖNNUN Vinstri græn
myndu bæta við sig tíu þingmönn-
um frá síðustu kosningum, sam-
kvæmt nýrri skoðanakönnun
Fréttablaðsins. 27,8 prósent segj-
ast nú myndu kjósa flokkinn, sem
gæfi honum 19 þingmenn, í stað
þeirra níu sem nú sitja á Alþingi
fyrir flokkinn. Vinstri græn yrði
þar með næst stærsti flokkurinn.
23,0 prósent sögðust styðja flokk-
inn í könnun blaðsins í lok október,
en 14,3 prósent kusu hann í síðustu
þingkosningum.
Stærsti flokkurinn yrði, líkt og í
síðustu könnun blaðsins Samfylk-
ing og segjast 33,6 prósent þeirra
sem afstöðu tóku til flokka myndu
kjósa flokkinn. Það er aðeins minna
fylgi en í síðustu könnun blaðsins
þegar 36,0 prósent studdu hann.
Samkvæmt þessari könnun fengi
flokkurinn 23 þingmenn í stað 18
sem þeir hafa nú.
Sjálfstæðisflokkurinn er sam-
kvæmt þessu þriðji stærsti flokk-
urinn og segjast 24,8 prósent
myndu kjósa hann. Samkvæmt því
fengi flokkurinn 17 þingmenn, átta
færri en flokkurinn hefur nú. 29,2
prósent sögðust styðja Sjálfstæðis-
flokkinn í síðustu könnun blaðsins,
en 36,6 prósent gáfu honum
atkvæði í síðustu kosningum.
Fylgi Framsóknarflokks og
Frjálslynda flokksins breytist ekk-
ert frá síðustu könnun blaðsins,
þrátt fyrir að nýr formaður hafi
tekið við í Framsóknarflokknum.
6,3 prósent segjast nú myndu kjósa
Framsóknarflokkinn og fengi
flokkurinn samkvæmt því fjóra
þingmenn. 4,3 prósent segjast
myndi kjósa Frjálslynda flokkinn
og fengi flokkurinn samkvæmt því
engan þingmann, þar sem fimm
prósenta marki er ekki náð til að fá
uppbótarþingmann kjörinn. 3,3
prósent sögðust myndu kjósa
annan flokk.
Hringt var í 800 manns laugar-
daginn 22. nóvember og skiptust
svarendur jafnt eftir kyni og hlut-
fallslega eftir búsetu. Spurt var;
Hvaða flokk myndir þú kjósa ef
gengið yrði til kosninga nú? og tóku
49,9 prósent afstöðu.
Einnig var spurt; Styður þú
núverandi ríkisstjórn? og tóku 88,3
prósent afstöðu til spurningarinn-
ar. svanborg@frettabladid.is
Sjálfstæðisflokkur
dregst enn saman
Sjálfstæðisflokkur hefur nú stuðning fjórðungs kjósenda. Þriðjungur kjósenda
styður Samfylkingingu og Vinstri græn er enn næst stærsti flokkurinn með um
28 prósent fylgi. Einungis helmingur aðspurðra tóku afstöðu til flokka.
36,6%
40
30
20
10
0
26,8%
14,3%
11,7%
7,3%
39,1%
23,2%
15,1%
13,2%
7,3%
40,2%
29,8%
16,5%
8,8%
4,4%
36,7%
34,8%
15,4%
8,9%
3,6%
40,1%
35,2%
14,2%
5,9%
3,8%
38,6%
26,8%
20,9%
7,0%
5,5%
32,8%32,0%
17,1%
8,9%
8,0%
36,0%
29,2%
23,0%
4,1%
FYLGI STJÓRNMÁLAFLOKKANNA
Samkvæmt könnun Fréttablaðsins
Kosningar
12.05.´07 15.05. ´07 29.09.´07 30.01.´08 23.02.´08 19.04.´08 21.06.´08 25.10.´08 22.11.´08
4,3%
6,6% 6,3%
27,8%
24,8%
33,6%
LÍTILL ÁHUGI Á DAVÍÐ
Nokkuð hefur verið rætt um hvort
Davíð Oddsson hyggi á endur-
komu í stjórnmál. Samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Fréttablaðsins
hafa kjósendur takmarkaðan
áhuga á slíkri endurkomu.
Spurt var; Myndir þú styðja
sérframboð sem leitt væri af
Davíð Oddssyni og svöruðu 4,7
prósent því játandi. Þá var spurt;
Myndir þú styðja Sjálfstæðisflokk-
inn ef hann væri leiddur af Davíð
Oddssyni? Svöruði 7,8 prósent því
játandi. Rúmlega 95 prósent tóku
afstöðu til hvorrar spurningar. - ss
Í blaðinu í gær riðluðust línur í ljóði
Kára Stefánssonar. Ljóðið er hér
endurbirt:
Hugrekki vort okkar hrynjandi blóð
Þeirra högg sem veitt´engum grið
Verða stuðlar og rím sem við leggjum í ljóð
Um lífsins byltingu og frið
ÁRÉTTING
„Þetta er náttúrulega ekki góð
útkoma fyrir Framsóknarflokkinn en
svo sem ekki langt frá því sem hann
var með í síðustu
könnun. Það er að
vísu helmingurinn
sem svarar ekki, en
það segir líka sína
sögu,“ segir Val-
gerður Sverrisdóttir,
formaður Fram-
sóknarflokksins.
„Það hafa atburð-
ir átt sér stað í
flokknum sem hafa
ekki verið til að styrkja okkur og þá er
ég að tala um brotthvarf formanns-
ins,“ en Guðni Ágústsson hætti sem
formaður í nýliðinni viku. „Hins vegar
er ég bjartsýn á að við eigum eftir að
styrkja okkur. Það er kraftur í flokkn-
um og við erum núna að undirbúa
glæsilegt flokksþing sem verður í
janúar. Eftir það verður allt upp á við.“
- kh
Eigum eftir að
styrkja okkur
„Því miður er engin breyting frá því
síðast á okkar fylgi. Það eru auðvit-
að vonbrigði að fólk skuli ekki átta
sig á því að við í
Frjálslyndaflokkn-
um erum að flytja
ýmis mál þjóðinni
til heilla. Málflutn-
ingurinn virðist
hins vegar ekki ná í
gegn,“ segir Guðjón
Arnar Kristjánsson,
formaður Frjáls-
lynda flokksins.
„Við höfum ekki
verið þátttakendur í því ástandi sem
nú ríkir hér á landi. Vonandi skýrast
hlutirnir nú þegar líður á. Við teljum
okkur eiga meira fylgi inni en þetta.“
- kh
Eigum meira
fylgi inni
VALGERÐUR
SVERRISDÓTTIR
GUÐJÓN ARNAR
KRISTJÁNSSON
“Ég skynja að það er mikil hreyfing í
þjóðfélaginu svo þetta kemur ekki á
óvart. Þetta er stemn-
ing sem ég skynja á
stjórnmálafundum og
meðal fólks sem ég
hitti,” segir Stein-
grímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri
grænna. “Í fyrsta
lagi er það þessi
umtalsverða sveifla til
okkar og í öðru lagi
það að stjórnin sé
að missa traust. Það
bitnar meira á Sjálfstæðisflokknum en
Samfylkingu þó þannig að Samfylking er
farinn að fá sinn skerf.” - kh
Stjórnin missir
traust þjóðar
„Ég er vissulega ánægður með það
að Samfylkingin skuli vera langstærsti
flokkurinn sam-
kvæmt þessu,“ segir
Össur Skarphéð-
insson iðnaðarráð-
herra.
„Hins vegar
kemur það mér
nokkuð á óvart
hversu sterk Sam-
fylkingin mælist
miðað við þá
óvægnu umræðu
sem verið hefur síðustu daga. Það
sýnir mér það að fólkið virðist skilja
og skynja að við í Samfylkingunni
erum að reyna að vinna okkar störf af
trúmennsku og einlægni.
Þetta er hraðskák þar sem menn
þurfa að taka margar ákvarðanir,
örugglega eru einhverjar rangar, en
við erum að reyna að vinna þetta
eins vel og við getum.“ - jse
Stuðningur
kemur á óvart
ÖSSUR SKARP-
HÉÐINSSON
LÖGREGLUMÁL Embætti lögreglustjórans í Borgarnesi
hefur hætt rannsókn á máli Jóns Sigurðar Ólasonar,
yfirlögregluþjóns á Akranesi, en hann hafði verið
sakaður um að hafa brotið lög með því að fara á
fjórhjóli til rjúpnaveiða á Sanddalstungu í Borgar-
byggð hinn fyrsta þessa mánaðar. Lögreglustjórinn
segir hins vegar engan grun um að hann hafi gerst
sekur um brot á lögum og því sé málinu lokið sem
slysamáli en Jón Sigurður varð fyrir því óláni að
fótbrotna í umræddri veiðiferð.
Í bréfi lögreglustjórans til Jóns Sigurðar segir að
götuskráð þung bifhjól, eins og hann var á, falli ekki
undir hugtakið „fjórhjól og önnur torfærutæki“ sem
eru ekki leyfð til veiðanna.
„Það var aldrei neinn vafi í mínum huga um að mér
var heimilt að nota hjólið með þeim hætti sem ég gerði
og nú hefur verið tekinn af allur vafi um að ég las regl-
urnar rétt,“ segir Jón Sigurður. - jse
Rannsókn hætt á máli yfirlögregluþjóns á Akranesi:
Yfirlögregluþjónn var í rétti
RJÚPUR Á FLUGI Yfirlögregluþjónn á Akranesi braut ekki lög
þegar hann fór á fjórhjóli sínu til veiða í byrjun mánaðar segir
lögreglustjóri í Borgarnesi.
„Það gefur auga leið
að þetta er óviðun-
andi stuðningur við
Sjálfstæðisflokkinn,“
segir Bjarni Bene-
diktsson þingmaður
flokksins. „Ég tel hins
vegar að óvissan sem
ríkt hefur að undan-
förnu ráði nokkuð
miklu um viðhorf
fólks en í vikunni
náðum við að ljúka mjög stórum áfanga
sem var afgreiðsla IMF á lánsbeiðni
okkar. Það er fyrsta stóra skrefið að snúa
við þeirri þróun sem verið hefur að und-
anförnu. Því er gríðarlega mikilvægt fyrir
okkur að ná að skýra stöðuna varðandi
framhaldið því óvissan er mjög slæm.“
- jse
Óvissan stjórnar
viðhorfum fólks
BJARNI
BENEDIKTSSON
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
GENGIÐ 21.11.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
237,5162
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
140,24 140,90
209,88 210,90
176,51 177,49
23,678 23,816
19,825 19,941
17,152 17,252
1,4729 1,4815
206,97 208,21
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR