Fréttablaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 20
4 matur Sælkerakökur Leikandi létt Þegar nóg er komið af piparkökum, sörum og hálfmánum er um að gera að brydda upp á nýjungum með leikandi léttri uppskrift að góðum kornfleks- makkarónukökum. Bakaríið Passion í Álfheimum býður upp á átta mismunandi gerðir af gómsætum smákökum fyrir hver jól. Davíð Arnórsson, sem rekur bakaríið ásamt Styrmi Má Sigmundssyni, telur allar tegundirnar ómissandi fyrir jólin. Sérstaklega korn- fleks-makkarónukökur sem byggja á uppskrift sem hefur fylgt Styrmi um árabil. „Ætti ég að velja eina smákökuuppskrift þá kæmi þessi helst til greina,“ segir Davíð og bætir við að hún sé bæði auðveld og ódýr í framleiðslu í takt við þjóðarandann í dag. Davíð segist hafa bakað frá fjórtán ára aldri og því má segja að hann hafi varið hálfri ævinni innan um nýbakað lostæti. „Ég verð 29 ára í ár, en byrjaði að baka þegar ég var fjórtán ára. Ég hef reyndar ekki gert neitt annað og kann það jafnvel ekki,“ segir hann hlæjandi og bendir á að þeir Styrmir hafi svipaða sögu að segja. Leið beggja lá á sínum tíma í Menntaskólann í Kópavogi þar sem þeir stunduðu matvælanám í bak- araiðn og kynntust í náminu. Þeir tóku við rekstri Passion fyrir tveimur árum. Félagarnir voru svo vænir að láta af hendi uppskriftina að kornfleks- makkarónukökunum sem hafa notið mikilla vin- sælda. - aóv 250 g eggjahvítur 925 g sykur 115 g kornflex 475 g mjólkursúkkulaði (dropar) 20 g vanillusykur (annars vanilludropar eftir smekk) 115 g kókosmjöl 10 g salt Þeytið saman eggjahvítur, sykur og salt. Stífþeytið þó ekki alveg. Blandið öðrum þurrefnum saman við. Sprautið með sprautupoka eða notið teskeið til að búa til kökurnar (beint á bökunarplötuna). Bakið í 10 til 11 mínútur við 170°C. KORNFLEX-MAKKARÓNUR STYRMIS Davíð Arnórsson mælir sérstaklega með kornfleks-makkarónukök- um fyrir þessi jól. FRÉTTA B LA Ð IÐ /A RN ÞÓ R E Opið mán.–föstud. 11–18 laugardag 11–16 sunnudag 13–16 www.mirale.is MIRALE Fákafeni 9 108 Reykjavík sími: 517 1020 OPIÐ Í DAG frá kl. 13–16 verið velkomin í FÁKAFEN 9 ( við hliðina á ísbúðinni ) TILBOÐ 40% afsláttur af öllum vösum í dag

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.