Fréttablaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 16
16 23. nóvember 2008 SUNNUDAGUR timamot@frettabladid.is GAMANLEIKARINN OG HÖRPU- LEIKARINN HARPO MARX FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1888. „Ég var faðir á sama hátt og ég var hörpuleikari − ég spilaði eftir eyranu.“ Harpo Marx var einn af Marx- bræðrum sem gerðu vinsælar myndir á millistríðsárunum. Þeir höfðu áhrif á gamanleikara og gamanleikstjóra eins og Woody Allen. Breska dagblaðið Sunday Times greindi frá því 19. nóvember 2006 að eitrað hefði verið fyrir rússneska blaðamanninn Litvinenko og að hann lægi þungt haldinn á sjúkra- húsi í Lundúnum. Hann hafði legið þar síðan 1. nóvember. Óvíst var hvort hann myndi lifa eitrunina af og fylgdist heimsbyggðin með frétt- um af líðan hans. 23. nóvember var Litvinenko allur. Eitrunin var sögð hafa átt sér stað á fundi sem Litvinenko átti í sam- bandi við morðið á blaðamanninum Önnu Politkovskaju. Hún var þekktust fyrir harða gagnrýni sína á stríðið í Tsjetsjeníu og á stjórnar- hætti Vladimírs Pútín, þáverandi forseta Rúss- lands og núverandi forsætisráðherra. Hún fannst skotin til bana í lyftu fjölbýlishúss sem hún bjó í. Alexander Litvinenko var undirof- ursti í rússnesku leyniþjónustunni. Árið 2000 flutti hann til Bretlands og gerðist breskur ríkisborgari og rithöf- undur. Hann var mikill gagnrýnandi Pútíns, fyrrverandi forseta Rússlands og núverandi forsætisráðherra. Fyrir andlát sitt skrifaði Litvinenko bréf þar sem hann lýsir því að Pútín hafi fyrir- skipað að eitrað skyldi fyrir honum. Í byrjun ársins 2007 greindi breska lögreglan frá því að hún hefði komist að því hvernig morðið átti sér stað. Fundist hefði tebolli á hótelinu Lond- on Millenium með efninu Pólon-210. Í maí sama ár sóttist lögreglan eftir því að rússnesk yfirvöld framseldu Andrei Lugovoi, fyrrverandi rússnesk- an njósnara, svo hægt væri að yfirheyra hann en Rússar neituðu að verða við því. ÞETTA GERÐIST: 23. NÓVEMBER 2006 Blaðamaðurinn Litvinenko deyr MERKISATBURÐIR 1700 Francesco Albani kardínáli verður Clemens XI páfi. 1838 Hólavallagarður, kirkju- garðurinn við Suðurgötu, er vígður og fyrsta greftr- unin fer fram. 1916 Karlakór KFUM er stofn- aður sem verður síðar Karlakórinn Fóstbræður. 1939 Fyrsta orrusta þýskra herskipa er háð undan ströndum Íslands. Þýsku skipin Gneisenau og Scharnhorst sökkva hinu breska Rawalpindi. 1979 The Wall, plata hljóm- sveitarinnar Pink Floyd, er gefin út og selst í sex milljónum eintaka á tveimur vikum. 1988 Frakkar gera kjarnorkutil- raunir. „Við hefjum afmælisdagskrána í kvöld klukkan 20 með tónleikum Gospelkórsins. Svo rekur hver dagskrárliðurinn annan út vikuna og við endum svo á sunnudaginn 30. nóv- ember, á kirkjudeginum,“ segir séra Þór Hauksson, sóknar- prestur í Árbæjarsókn. Alla vikuna verður opið hús í Árbæjarkirkju og geta gestir af götunni kíkt í heimsókn og skoðað hvaða starf fer þar fram. Kór Árbæjarkirkju verður með opna kóræfingu og syngur lög fyrir gesti, unglingastarf leikfélagsins sýnir hvað verið er að æfa og opið er á foreldramorgna og öldr- unarstarf. Öflugt starf fer því fram innan safnaðarins sem í eru tæplega 10.000 manns. „Já, hér er blómlegt starf og kom okkur eiginlega á óvart þegar við settum dagskrána niður á blað og sáum svart á hvítu hvað það er margt í gangi. Það er eitthvað um að vera frá morgni til kvölds í kirkjunni alla daga vikunnar. Við erum sérstaklega stolt af öldrunarstarfinu hjá okkur en við höfum í ein tuttugu ár verið með svokallaðar vinaheim- sóknir, í samstarfi við félagsþjónustuna og heilsugæsluna. Við heimsækjum þá lasburða og einmana einstaklinga, og það fá bæði ungir og aldnir þjónustu frá okkur.“ Hápunktur afmælisdagskrárinnar verður næstkomandi sunnudag og hefst klukkan 11 á sunnudagaskóla. Hátíðar- guðsþjónusta verður klukkan 14 og boðið upp á kaffiveit- ingar á eftir. Einnig mun Vinabandið, hljómsveit eldri borg- ara leika lög og dregið verður í happdrætti. Séra Þór hóf störf sem aðstoðarprestur í Árbænum 1991 en tók við sem sóknarprestur árið 2001. Honum líkar vel í starfi og segir gott að þjóna í Árbæjarsókn. „Hér er gott fólk og gott að þjóna. Við kvörtum ekki yfir kirkjusókninni, hún er góð, en það mega auðvitað alltaf koma fleiri.“ Afmælisdagskrána má sjá á heimasíðu Árbæjarkirkju, www.arbaejarkirkja.is heida@frettabladid.is ÁRBÆJARSÖFNUÐUR: 40 ÁRA AFMÆLI Blómlegt starf OPIÐ HÚS Á AFMÆLISDAGSKRÁ Séra Þór Hauksson, sóknarprestur í Árbæjarsókn, býður gestum og gangandi að skoða starf safnaðarins á opnu húsi alla vikuna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON 60 ára afmæli Mamma mín og amma, Jakobína Óskarsdóttir, er 60 ára í dag. Í tilefni af afmæli sínu er hún stödd í Taílandi ásamt eiginmanni sínum og sendir hún kveðju til fjölskyldu og vina. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærrar dóttur, móður, ömmu, systur, mágkonu og frænku, Kötlu Sigurgeirsdóttur Þórsgötu 22, 101 Reykjavík, sem andaðist föstudaginn 31. október. Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Anna G. Kristgeirsdóttir Elva Rakel Sævarsdóttir Aron Kristinn Haraldsson Stella Sigurgeirsdóttir Jóhann Bjarni Pálmason Salka Þorgerður Jóhannsdóttir Stelludóttir Daði Sigurgeirsson Kristgeir Sigurgeirsson og fjölskylda. 75 ára afmæli Herder Andersson fatahönnuður, Ljósheimum 11, Reykjavík, fæddur í Svíþjóð og fl uttist til Íslands árið 1958. Undanfarin ár hefur mestur tími hans farið í að hanna kirkju- klæði. Herder situr aldrei auðum höndum, hann segir það gott að hafa nóg fyrir stafni þegar aldurinn færist yfi r. Kvöldinu æltar hann að eyða í faðmi fjölskyldu, íslenskri og sænskri. Um þessar mundir kemur út í Svíþjóð fyrsta bók hans og verður það stærsta g jöf hans. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, lang- ömmu og systur, Vilborgar Katrínar Þórðardóttur Petit Brekkustíg 29a, Reykjanesbæ. Sérstakar þakkir til starfsfólks á D-deild Heilbrigðistofnunar Suðurnesja. Guð blessi ykkur öll. Leethor Cray Björg Hauks Cray Reynir Hauksson Monica Hauksson barnabörn, barnabarnabörn og systkini. Ástkær eiginkona mín, móðir, stjúpmóðir, tengdamóðir og amma, Theodóra Þórðardóttir Kirkjusandi 1, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 17. nóvember. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 27. nóvember kl. 13.00. Þorleifur Kristinn Valdimarsson Þórður Þorgeirsson Helga Dís Hálfdánardóttir Daníel Ben Þorgeirsson Agnes Linda Þorgeirsdóttir Matthías Karl Þórisson María Kristín Þorleifsdóttir Sigurður Jóhann Finnsson Hafdís Þorleifsdóttir Haukur Ingi Jónsson Esther Ósk Estherardóttir Guðjón Ingi Hafliðason og barnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ásmundur J. Aðalsteinsson, áður til heimils að Hafnarstræti 18b Akureyri, lést á Dvalarheimilinu Hlíð 14. nóvember sl. Hann verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju 24. nóvember kl. 13.30. Sigríður Alda Ásmundsdóttir Guðmundur Bjarni Friðfinnsson Nanna Ásmundsdóttir Bjarni Sævar Róbertsson Jón Ásmundsson Sigrún Gunnarsdóttir Gylfi Ásmundsson Guðný Sigurhansdóttir Þröstur Ásmundsson Aðalheiður Steingrímsdóttir Ásdís Björk Ásmundsdóttir Oddur Ævar Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn. Sendum okkar bestu þakkir til þeirra fjöl- mörgu sem sýnt hafa okkur mikinn hlýhug, vináttu og samúð við fráfall og útför eigin- konu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Ástdísar Guðjónsdóttur Suðurgötu 37, Reykjavík, sem andaðist á líknardeild Landakotsspítala 31. októb- er. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar Landakotsspítala fyrir frábæra umönnun. Haraldur Theodórsson Guðjón Haraldsson Sigríður Siemsen Þórir Haraldsson Mjöll Flosadóttir Haraldur Guðjónsson Yalda Guðjónsson María Guðjónsdóttir Helgi Guðjónsson Gunnur Elísa Þórisdóttir Ástdís Sara Þórisdóttir Ludwig Norooz Guðjónsson. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og sonar, Gests Sigurgeirssonar Ystaseli 29, Reykjavík. Bestu þakkir fá ættingjar, vinir og samstarfsfólk. Þökkum læknateyminu á LSH, sérstaklega Margréti Árnadóttur og Runólfi Pálssyni. Einnig starfsmönnum heimahlynningar krabbameinsdeildar LSH. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Svala Ingimundardóttir.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.