Fréttablaðið - 23.11.2008, Page 40

Fréttablaðið - 23.11.2008, Page 40
24 23. nóvember 2008 SUNNUDAGUR sport@frettabladid.is Meistaradeildin í handbolta Veszprém-Haukar 34-25 (16-12) Mörk Hauka: Elías Már Halldórsson 5, Andri Stefan Guðrúnarson 4, Kári Kristján Kristjánsson 4, Sigurbergur Sveinsson 4, Einar Örn Jónsson 3, Freyr Brynjarsson 2, Pétur Pálsson 2, Gunnar Berg Viktorsson 1. Möbelringen Cup Rússland-Ísland 33-20 (15-13) Mörk Íslands: Hanna G. Stefánsdóttir 5, Hrafnhildur Skúladóttir 3, Ágústa Edda Björns- dóttir 2, Ásta Birna Gunnarsdóttir 2, Íris Ásta Pétursdóttir 2, Elísabet Gunnarsdóttir 2, Arna Sif Pálsdóttir 1, Rakel Dögg Bragadóttir 1, Dagný Skúladóttir 1, Hildur Þorgeirsdóttir 1. Iceland Express-deild kvk. KR-Fjölnir 80-47 (41-15) Stig KR: Guðrún Ósk Ámundadóttir 25, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 10 (7 frák.), Heiðrún Kristmundsdóttir 9 (6 frák., 3 stoðs.), Hildur Sigurðardóttir 9 (16 frák., 7 stoðs.), Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 9 (7 frák., 4 stoðs.), Guðrún Arna Sigurðardóttir 6, Brynhildur Jónsdóttir 3, Þorbjörg Friðriksdóttir 3, Helga Einarsdóttir 2, Rakel Vigg- ósdóttir 2, Sigurbjörg Þorsteinsdóttir 2 Stig Fjölnis: Ashley Bowman 14, Bergdís Ragn- arsdóttir 11, Eva M. Emilsdóttir 6 (12 frák.), Efem- ía Sigurbjörnsdóttir 6, Erla Sif Kristinsdóttir 5, Eva M. Grétarsdóttir 3, Birna Eiríksdóttir 2. STAÐAN Í DEILDINNI 1. Haukar 7 6 1 494-432 12 2. Keflavík 7 5 2 565-458 10 3. Hamar 7 5 2 553-455 10 4. KR 7 4 3 464-442 8 5. Grindavík 7 3 4 487-486 6 6. Valur 7 3 4 410-420 6 7. Fjölnir 7 1 6 385-562 2 8. Snæfell 7 1 6 431-534 2 ÚRSLIT N1-deild karla HK-FH 32-28 (14-15) Mörk HK (skot): Valdimar Fannar Þórsson 7/1 (12/3), Gunnar Steinn Jónsson 6 (8), Ragnar Hja- tested 6 (9), Brynjar Hreggviðsson 6 (10), Arnar Þór Sæþórsson 3 (3), Einar Ingi Hrafnsson 2 (2), Jón Björgvin Pétursson 1 (2), Ásbjörn Stefánsson 1 (6), Sigurgeir Árni Ægisson 0 (2). Varin skot: Björn Ingi Friðþjófsson 17 (45, 38%) Hraðaupphlaup: 5 (Ragnar 2, Valdimar Fannar 2, Brynjar) Fiskuð víti: 3 (Ragnar, Valdimar Fannar, Arnar Þór) Utan vallar: 6 mínútur Mörk FH (skot): Ólafur Guðmundsson 13 (23), Örn Ingi Bjarkason 5 (10), Aron Pálmarsson 4 (9), Ásbjörn Friðriksson 3 (5), Sigurður Ágústsson 2 (2), Guðmundur Pedersen 1 (7), Þorkell Magnússon 0 (2). Varin skot: Magnús Sigmundsson 10 (35/1, 29%), Daníel Andrésson 5 (12, 42%) Hraðaupphlaup: 4 (Ólafur 2, Ásbjörn, Örn Ingi) Fiskuð víti: 0 Utan vallar: 4 mínútur ÚRSLIT > Ísland tapaði fyrir Rússlandi Kvennalandslið Íslands í handbolta tapaði fyrir heims- meisturum Rússlands, 33-20, í öðrum leik sínum á hinu geysisterka Möbelringen Cup-æfingamóti í Noregi í gær. Ísland byrjaði mjög vel og leiddi leikinn með þremur mörkum um tíma í fyrri hálfleik, 7-4, en staðan var 15-13 Rússum í vil í hálfleik. Heimsmeistar- arnir sigldu svo jafnt og þétt fram úr í seinni hálfleik og unnu að lokum með yfirburðum. Hanna G. Stefáns- dóttir var atkvæðamest hjá Íslandi með fimm mörk en Hrafnhildur Skúladóttir kom næst með þrjú. Ísland leikur lokaleik sinn á mótinu í dag gegn Danmörk. KÖRFUBOLTI KR bætti stöðu sína í fjórða sæti Iceland Express-deild- ar kvenna með auðveldum sigri á Fjölni, 80-47, 33 stiga mun, í DHL- höllinni í gær. KR skoraði tuttugu fyrstu stigin, var 20-1 yfir eftir fyrsta leikhlutann og 41-15 yfir í hálfleik og því voru úrslitin nánast ráðin í upphafi leiks. Allir tólf leikmenn KR fengu að njóta sín í þessum leik, ellefu leik- menn komust á blað og allir leik- menn spiluðu í 8 til 24 mínútur. Guðrún Ósk Ámundadóttir átti mjög góðan leik í liði KR og skoraði 25 stig á 22 mínútum. Guðrún Ósk hitti úr 9 af 14 skotum sínum í leikn- um og þar af fjórum af sjö þriggja stiga skotum sínum. Hildur Sigurð- ardóttir var líka öflug að vanda og tók meðal annars 16 fráköst á 24 mínútum. Heiðrún Kristmunds- dóttir sýndi líka góð tilþrif þegar hún leysti Hildi af hólmi. Fjölnir náði ekki að fylgja eftir góðum sigri á Snæfelli í síðustu viku og munaði þar miklu um fram- lag bandaríska bakvarðarins Ashleys Bowman, sem er stiga- hæsti leikmaður deildarinnar, en var gjörsamlega úti að aka í leikn- um. Bowman skoraði aðeins 1 stig í fyrri hálfleik en endaði með 14 stig eftir að hafa skorað þau flest í lok leiksins. Bowman nýtti aðeins 5 af 28 skotum sínum í leiknum og end- aði með -5 í framlagi. Það var þó ein Fjölnisstúlka sem var að gera góða hluti en það var hin fimmtán ára Bergdís Ragnars- dóttir sem var með 11 stig og 10 fráköst og var yfirburðamaður hjá Fjölni í leiknum. Eva María Emils- dóttir átti líka ágæta spretti og var með 12 fráköst og 6 stig. KR-konur þurfa væntanlega að hafa meira fyrir næsta leik sem er á heimavelli gegn Grindavík í DHL- höllinni á mánudagskvöldið. Það er mjög mikilvægur leikur í barátt- unni um 4. sætið en með sigri væri KR komið með fjögurra stiga for- skot og mun betri innbyrðisstöðu á Grindavíkurliðið. - óój KR vann Fjölni í lokaleik 7. umferðar Iceland Express-deildar kvenna í gær: Fjölnir átti aldrei möguleika ÖFLUG Guðrún Ósk Ámundadóttir skoraði 25 stig í stórsigri KR á Fjölni í DHL-höllinni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Ævintýri Hauka í Meistaradeild Evrópu lauk í gær þegar liðið tap- aði, 34-25, gegn ungverska stórliðinu Veszprém í algjörum úrslita- leik um farseðilinn í 16-liða úrslit keppninnar. Aron Kristjánsson var að vonum stoltur af framgöngu Hafnarfjarðarliðsins í keppninni þrátt fyrir tapið. „Þetta var hörkuleikur og níu marka tap gefur ekki alveg rétta mynd af því hvernig þetta var að spilast. Fyrri hálfleikurinn var jafn og framan af voru þeir að leiða með einu marki og við að jafna og þannig gekk þetta þangað til þeir náðu góðum kafla í lok hálfleiksins og komust yfir í 16-12. Eftir stundarfjórðung af seinni hálfleik vorum við enn þá inni í leiknum og héldum í við þá og vorum að spila þokkalega vel. Það er ekki í raun fyrr en á síðustu fimm mínútunum sem við afhendum þeim sigurinn með því að gera þrjá tæknifeila á stuttum kafla, tvo þegar við erum einum leikmanni fleiri inni á vellinum. Þess vegna endar þetta í níu marka mun en fjögur til sex mörk hefðu verið mun eðlilegri miðað við gang leiksins,“ segir Aron. „Þetta er auðvitað einn erfiðasti útivöllur í heimi og það var þvílík stemning á pöllunum og löngu uppselt á leik- inn. Þeir auglýstu þetta auðvitað sem algjöran úrslitaleik í riðlinum, sem þetta var og það virtist meiri áhugi þarna úti fyrir þessum leik en heima. Þetta var í fyrsta skipti síðan riðlakeppni Meistaradeildarinnar hófst að íslenskt lið átti möguleika á að komast áfram í síðustu umferð riðla- keppninnar og ég er því mjög stoltur af framgöngu stákanna og leikmenn mínir eiga hrós skilið,“ segir Aron. Haukar enduðu í þriðja sæti riðilsins eftir að hafa unnið tvo af þremur heimaleikjum sínum, gegn Veszprém og Zaporozhye, sem þýðir að liðið kemur nú inn í fjórðu umferð Evrópukeppni bikarhafa. „Það verður dregið í Evrópukeppni bikarhafa á þriðjudaginn og við eigum svo að spila þar í febrúar og það verður spennandi að sjá hvaða liði við mætum þar. Vonandi að við verðum heppnir með mótherja,“ segir Aron að lokum. ARON KRISTJÁNSSON: HAUKAR TÖPUÐU GEGN VESZPRÉM Í LOKALEIK SÍNUM Í MEISTARADEILDINNI Í HANDBOLTA Leikmennirnir eiga hrós skilið fyrir framgönguna HANDBOLTI HK sýndi styrk sinn með sannfærandi sigri, 28-32, gegn nýliðum FH í Digranesi í gær og hefur Kópavogsliðið nú unnið báða leiki félaganna í N1- deildinni í vetur. FH-ingar byrjuðu leikinn reynd- ar af miklum krafti en HK-ingar tóku sér smátíma til þess að finna taktinn og voru skrefinu á eftir gestunum til þess að byrja með. HK-ingar reyndu svo að hefta sóknarflæði hinna spræku Hafn- firðinga með því að taka ungstirn- ið Aron Pálmarsson úr umferð og það virtist ekki ætla að skila miklu þar sem Ólafur Guðmundsson steig upp og skoraði grimmt auk þess sem Örn Ingi Bjarkason, sonur landsliðskempunnar Bjarka Sigurðssonar, kom inn á og skor- aði fimm mörk í fyrri hálfleik. Gunnar Steinn Jónsson var þá áberandi í sóknarleik HK en stað- an var 14-15 FH-ingum í vil í hálf- leik. Snemma í seinni hálfleik fór sóknarleikur FH hins vegar að hiksta og leikmenn HK kunnu vel að nýta sér það og skoruðu sex mörk í röð, flest úr hraðaupp- hlaupum, og breyttu stöðunni úr 15-16 í 21-16. Það er skemmst frá því að segja að gestirnir náðu aldrei að jafna sig eftir þennan leikkafla og HK vann að lokum, sigurnn var verð- skuldaður, 28-32. Gunnar Magnússon, þjálfari HK, var gríðarlega ánægður með sigurinn í leikslok í gær en HK- ingar lögðu höfuðáherslu á að stoppa Aron Pálmarsson og það gekk ágætlega upp hjá þeim. „Við veðjuðum á að taka Aron [Pálmarsson] úr umferð nánast alveg frá byrjun í von um að aðrir leikmenn liðsins myndu ekki ná að stíga almennilega fram en það var ekki alveg að ganga í fyrri hálfleik þar sem Ólafur [Guðmundsson] reyndist okkur erfiður. Í seinni hálfleik fór hins vegar að fjara undan þessu hjá þeim og við náðum góðu forskoti sem við gáfum ekki frá okkur á lokakafl- anum. Þetta gekk því upp í þetta skiptið en ég veit ekki til þess að önnur lið hafi verið að gera þetta gegn þeim hingað til. FH-ingar eru með frábært lið og eru rétti- lega búnir að fá mikla athygli í vetur en við vorum ákveðnir í því að ná þeim aðeins niður á jörðina og það tókst,“ segir Gunnar. Elvar Erlingsson, þjálfari FH, var svekktur yfir leik sinna manna en horfir bjartsýnn fram á veg- inn. „Ég er allt annað en sáttur með spilamennsku minna manna í upp- hafi síðari hálfleiks þegar við skautum okkur bara út úr leikn- um. Menn virtust bara gleyma því hvernig á að senda og grípa og við misstum þá langt fram úr okkur. Þetta var kjaftshögg fyrir okkur en það er ekki spurt hversu mörg kjaftshögg maður fær, heldur hvort maður standi upp eftir þau og við ætlum að gera það strax í næsta leik,“ segir Elvar. omar@frettabladid.is FH-ingar voru slegnir út af laginu HK-ingar náðu að leggja spútniklið FH-inga að velli, 28-32, í N1-deild karla í gær. Slæmur leikkafli Hafn- firðinga í upphafi síðari hálfleiks varð þeim að falli og HK er nú komið upp að hlið FH í þriðja sætinu. STÓRLEIKUR Þrettán mörk stórskyttunnar Ólafs Guðmundssonar dugðu FH-ingum ekki til sigurs í Digranesi í gær þar sem heimamenn í HK unnu verðskuldað sigur, 32-28, í N1-deild karla í handbolta. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.