Fréttablaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 39
SUNNUDAGUR 23. nóvember 2008 SFR er stéttarfélag starfsmanna sem starfa í almannaþjónustu og nær yfir allt landið. Félagið berst fyrir bættum kjörum og atvinnuöryggi 7000 félagsmanna sinna. Sjö af hverjum tíu félagsmönnum eru konur. Flestir félagsmanna sinna umönnunar-, heilbrigðis- eða skrifstofustörfum. Frekari upplýsingar má fá á skrifstofu félagsins: SFR - Grettisgata 89 - 105 Reykjavík - sími 525 8340 - sfr@sfr.is - www.sfr.is A T A R N A Útifundur Á INGÓLFSTORGI mánudaginn 24. nóvember kl. 16.30 VERJUM VELFERÐINA Launþegar! Í efnahagserfiðleikum verður almenningur að geta treyst á öflugt velferðarkerfi. Látum ekki eyðileggja grunnþjónustu samfélagsins. Verjum velferðina. Fjölmennum öll á útifund BSRB, Öryrkjabandalags Íslands, Landssamtakanna Þroskahjálpar og Félags eldri borgara í Reykjavík. Leikarinn John Malkovich ætlar að gera heimildarmynd um ólöglega innflytjendur í Bandaríkjunum. Þegar hann frétti af þeim fjölda barna sem komast þannig til Bandaríkjanna ákvað hann að láta til skarar skríða. Myndin, sem nefnist Triple Crossing, fjallar um mannlegu hliðina á þessu vandasama málefni. Fyrirtækið Canana Films mun framleiða myndina en það er í eigu mexíkósku leikaranna Diego Luna og Gael Garcia Bernal. Malkovich er um þessar mundir í Mexíkó þar sem hann leikstýrir leikritinu The Good Canary þar sem Luna fer einmitt með aðalhlut- verkið. Mynd um innflytjendur JOHN MALKOVICH Leikarinn John Mal- kovich ætlar að gera heimildarmynd um ólöglega innflytjendur í Bandaríkjunum. Tónlistarmaðurinn Sverrir Norland játar að meistararnir Bob Dylan og Megas séu báðir á meðal áhrifavalda á hans fyrstu plötu sem er nýkomin út. „Ég get ekki neitað því að ég er mjög hrifinn af Dylan. Ég byrjaði ekkert að hlusta á Megas fyrr en fyrir svona einu ári. Ég á allt eftir hann núna,“ segir Sverrir, sem hefur spilað á gítar síðan hann var á unglings- aldri. „Ég hef verið í einhverjum hljómsveitum. Ein hét Furstaskytt- an en við náðum aldrei að fara nógu langt með hana.“ Sverrir, sem er 21 árs, starfaði sem hirðskáld Hins hússins í sumar og ferðaðist þá um með gítarinn og spilaði. „Ég hafði mikinn tíma til að semja þá en reyndar eru elstu lögin á plötunni frá 2006,“ segir Sverrir og bætir við að hann eigi enn fleiri lög á lager sem verði notuð síðar. - fb Dylan og Megas eru áhrifavaldar SVERRIR NORLAND Tónlistarmaðurinn Sverrir Norland hefur gefið út sína fyrstu plötu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.