Fréttablaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 29
matur 5 ÓMISSANDI Í BAKSTURINN Sælkerakökur Arnar segir vissa áskorun felast í gerð franskra makkaróna. Súkkulaðibitakökur með valhnetum eru klassísk-ar og svo bragðgóðar að þær eru alveg ómiss-andi. Ég myndi að minnsta kosti vilja þær á mitt borð,“ segir Arnar Snær Rafnsson bakari og eigandi Café Konditori Copenhagen, þar sem ljúfur ilmurinn af nýbökuðum smákökum breiðir úr sér þessa dag- ana. Arnar segir uppskriftina að súkkulaðikökunum svo einfalda að jafn vel yngstu kokkar ættu að ráða við baksturinn undir eftirliti þeirra sem eldri og reynd- ari eru. „Í raun er ekki hægt að klúðra gerð þeirra, nema kannski með því að brenna þær,“ útskýrir hann og bætir við að gott sé að bera kökurnar fram með kaldri mjólk eða ís. „Eða eiga þær í bauk uppi í skáp til að geta nartað í frítímanum.“ Að öðrum kosti mælir Arnar með frönskum makk- arónum þar sem alltaf sé gaman að brydda upp á nýj- ungum. Kökurnar séu þar að auki litríkar og fallegar á borði. „Makkarónurnar má gera á óteljandi vegu eða eftir því hvað menn setja í kremið og hvernig matarlit þeir ákveða síðan nota í þær. Ég valdi til dæmis að hafa þær appelsínugular og fjólublá- ar og kremið eftir því en maður notar ávaxtapúrrið í þær,” segir hann og bætir við að uppskrift- in henti frekar þeim sem vilja áskorun. -rve Kökur sem kæta Arnar Snær Rafnsson bakari segir súkkulaðibitakökur með valhnetum klassískar fyrir jólin. Skemmtileg tilbreyting sé síðan fólgin í gerð franskra makkaróna. SÚKKULAÐISMÁKÖKUR MEÐ VALHNETUM 150 g smjör (mjúkt) 100 g sykur 100 g púðursykur 1 egg 75 g valhnetur, gróft hakkaðar 75 g ljóst súkkulaði 75 g dökkt súkkulaði 1/2 vanillustöng eða matskeið af vanillusykri 1 tsk. natron 200 g hveiti Kveikið á ofninum og stillið á 180°C. Hafið allt hráefni klárt og vigtið. Blandið saman hveiti, natroni og vanillukorn- um úr stöng. Setjið allt nema súkkulaðið og hneturnar í hrærivél og blandið saman þar til deigið fer að hanga saman. Bætið þá hnetum og súkkulaði í vélina og blandið. Takið litlar klípur af deiginu og raðið með passlegu millibili á bökunarplötu og bakið í forhituðum ofninum í um það bil 6 til 8 mínútur. FRANSKAR MAKKARÓNUR 150 g möndlumjöl (möndlur hakkaðar í matvinnsluvél) 150 g flórsykur 2 eggjahvítur 150 g sykur 100 g vatn 2 eggjahvítur 20 g sykur Blandið möndlumjöli, flórsykri og eggjahvítum saman í skál þar til það er orðið að jöfnum massa. (Hér er hægt að blanda duftmatarlit við massann til að ná fram lituðum makkarónum. Mikilvægt er að nota ekki fljótandi matarlit!) Setjið sykur og vatn saman í pott og sjóðið í síróp. Látið blönduna verða um það bil 113°C ef hitamælir er hafður við hönd. Sjóðið annars þar til gufa hættir að koma upp úr pottinum. Þeytið eggjahvítur og sykur saman í þéttan massa í hrærivél. Blandið síðan sírópinu hægt saman við og þeytið þar til marengsinn verður kaldur (rúmlega stofuhiti). Blandið marengs og möndlu- massanum nú saman. Setjið í sprautupoka og sprautið litlar makkarónukökur á bökunar- plötu. Látið makkarónurnar síðan þorna í um það bil 30 mínútur, áður en þær eru bakaðar í forhituðum ofni í 12 til 16 mínútur við 140°C. FERSKUR ÁVAXTA/BERJA- GANAGE (FYLLING Í MAKK- ARÓNUR): 100 g rjómi (ekki matreiðslu rjómi) 25 g glúkósi 215 g „ósvikið“ hvítt súkkulaði 95 g ávaxtamauk (niður- soðnir ávextir með 10 prósent sykri; nota má hvaða ávöxt sem er) Setjið rjóma og glúkósa í pott og hitið að suðu. Hellið því síðan yfir súkkulaðið og hrærið saman þar til súkkulaðið er alveg bráðið. Blandið ávaxta- maukinu saman við í. Gott er að notast við töfrasprota þegar þessu er blandað saman. Setjið síðan í kæli og látið kólna þar til þetta fer að taka sig. Þá er hægt að smyrja fyllingunni á milli makkarón- anna. KLASSÍKT EÐA NÝTT Makkarónurnar eru girnilegar að sjá. Arnar Snær segir súkkulaðibitakökur bæði klassískar og einstaklega góðar. FRÉTTA B LA Ð IÐ /A RN ÞÓ R E

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.