Fréttablaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar Í dag er sunnudagurinn 23. nóvember, 327. dagur ársins. 10.23 13.14 16.05 10.27 12.59 15.30 með ánægju F í t o n / S Í A Skíðafrí! Iceland Express býður flug til Friedrichshafen sem er afar vel staðsett fyrir þá sem vilja skella sér á bestu skíðasvæði Alpanna í Þýskalandi, Austurríki, Sviss, Frakklandi og Ítalíu. Bókaðu skíðaferð fyrir þig og þína á www.icelandexpress.is Davos Club Hotel 7.–14. febrúar 2009 Verð á mann í tvíbýli 164.900 kr. Davos Club Hotel 14.–21. febrúar 2009 Verð á mann í tvíbýli 164.900 kr. Davos Central Sporthotel 21.–28. febrúar 2009 Verð á mann í tvíbýli 179.900 kr. Skíðaferðir til Sviss Tveggja manna herbergi á kr. 5.000 nóttin Uppbúið rúm í svefnpokaplássi kr. 2.000 nóttin Gesthús Dúna Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is Að kasta eggjum og tómötum er góð skemmtun. Það er löng hefð fyrir því að það sé táknræn athöfn til að láta í ljós megna óánægju. Enginn meiðist og ekk- ert skemmist og því er hvorki hægt að flokka það sem ofbeldi né skemmdarverk. Veður og vindar afmá öll vegsummerki á nokkrum dögum. Það er ekki stigsmunur á því að kasta eggum og tómötum og því að kasta grjóti og mólótoffkok- teilum, heldur er þar eðlismunur á. Mólótoffkokteilum og grjótkasti er ætlað að skemma og meiða. ÞESS vegna er óneitanlega hlægi- legt að fylgjast með fréttamönnum, afmynduðum í framan af vandlæt- ingu, segja frá eggja- og tómata- kasti eins og um stórhættuleg skrílslæti hafi verið að ræða. Fjall- að hefur verið um slíka atburði í tengslum við nýleg mótmæli eins og af þeim hefði getað hlotist stór- fellt líkams- og eignatjón. Jafnvel mætti halda að eggjarauður og tómatklessur, svo ekki sé minnst á blaktandi Bónusfána, væru meiri svívirða við Alþingi um þessar mundir en framferði alþingis- manna. Að sífellt fleiri þúsund Íslendinga mæti á Austurvöll til að láta í ljós að afglöp stjórnvalda mis- bjóði þeim, hverfur þannig í skuggann af óeirð örfárra einstakl- inga. HVAÐ Bónusfánann varðar þá fékk ég ekki greint á myndum að Kalli á þakinu hefði haft mikið nesti með sér þangað upp. Hann hefði því væntanlega komið niður af sjálfsdáðum þegar hungrið hefði farið að sverfa að. Það eina sem hugsanlega hefði getað valdið einhverju eigna- og líkamstjóni í undanförnum mótmælum á Aust- urvelli voru því aðgerðir lögregl- unnar. Samt var ekki sagt frá þeim af viðlíka vandlætingu. Það versta sem hefði getað gerst ef hún hefði látið þetta afskiptalaust er að um síðir hefðu allir farið ómeiddir heim til sín. NÚ MÁ alls ekki skilja þessi orð mín sem svo að ég sé að mæla sóðaskap bót, öðru nær. Það er bara algjör óþarfi að gera úr honum annað og meira en hann í raun og veru er. Þetta eru engin spellvirki. Aukinheldur get ég ekki stillt mig um að benda á tvennt: Í FYRSTA lagi er vitlaust hús að verða fyrir barðinu á þessari gremju. Hún ætti með réttu að beinast að Stjórnarráðinu við Lækjartorg og Seðlabankanum við Kalkofnsveg. Í ÖÐRU lagi er ljótt að henda mat. Þeir sem telja sig geta leyft sér það hafa ekki efni á að kvarta yfir kreppu. Spektir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.