Fréttablaðið - 23.11.2008, Qupperneq 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
Í dag er sunnudagurinn
23. nóvember, 327. dagur ársins.
10.23 13.14 16.05
10.27 12.59 15.30
með ánægju
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Skíðafrí!
Iceland Express býður flug til Friedrichshafen sem er afar vel
staðsett fyrir þá sem vilja skella sér á bestu skíðasvæði Alpanna í
Þýskalandi, Austurríki, Sviss, Frakklandi og Ítalíu. Bókaðu skíðaferð
fyrir þig og þína á www.icelandexpress.is
Davos Club Hotel
7.–14. febrúar 2009
Verð á mann í tvíbýli
164.900 kr.
Davos Club Hotel
14.–21. febrúar 2009
Verð á mann í tvíbýli
164.900 kr.
Davos Central
Sporthotel
21.–28. febrúar 2009
Verð á mann í tvíbýli
179.900 kr.
Skíðaferðir
til Sviss
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
Að kasta eggjum og tómötum er góð skemmtun. Það er löng
hefð fyrir því að það sé táknræn
athöfn til að láta í ljós megna
óánægju. Enginn meiðist og ekk-
ert skemmist og því er hvorki
hægt að flokka það sem ofbeldi né
skemmdarverk. Veður og vindar
afmá öll vegsummerki á nokkrum
dögum. Það er ekki stigsmunur á
því að kasta eggum og tómötum og
því að kasta grjóti og mólótoffkok-
teilum, heldur er þar eðlismunur
á. Mólótoffkokteilum og grjótkasti
er ætlað að skemma og meiða.
ÞESS vegna er óneitanlega hlægi-
legt að fylgjast með fréttamönnum,
afmynduðum í framan af vandlæt-
ingu, segja frá eggja- og tómata-
kasti eins og um stórhættuleg
skrílslæti hafi verið að ræða. Fjall-
að hefur verið um slíka atburði í
tengslum við nýleg mótmæli eins
og af þeim hefði getað hlotist stór-
fellt líkams- og eignatjón. Jafnvel
mætti halda að eggjarauður og
tómatklessur, svo ekki sé minnst á
blaktandi Bónusfána, væru meiri
svívirða við Alþingi um þessar
mundir en framferði alþingis-
manna. Að sífellt fleiri þúsund
Íslendinga mæti á Austurvöll til að
láta í ljós að afglöp stjórnvalda mis-
bjóði þeim, hverfur þannig í
skuggann af óeirð örfárra einstakl-
inga.
HVAÐ Bónusfánann varðar þá
fékk ég ekki greint á myndum að
Kalli á þakinu hefði haft mikið
nesti með sér þangað upp. Hann
hefði því væntanlega komið niður
af sjálfsdáðum þegar hungrið
hefði farið að sverfa að. Það eina
sem hugsanlega hefði getað valdið
einhverju eigna- og líkamstjóni í
undanförnum mótmælum á Aust-
urvelli voru því aðgerðir lögregl-
unnar. Samt var ekki sagt frá þeim
af viðlíka vandlætingu. Það versta
sem hefði getað gerst ef hún hefði
látið þetta afskiptalaust er að um
síðir hefðu allir farið ómeiddir
heim til sín.
NÚ MÁ alls ekki skilja þessi orð
mín sem svo að ég sé að mæla
sóðaskap bót, öðru nær. Það er
bara algjör óþarfi að gera úr
honum annað og meira en hann í
raun og veru er. Þetta eru engin
spellvirki. Aukinheldur get ég ekki
stillt mig um að benda á tvennt:
Í FYRSTA lagi er vitlaust hús að
verða fyrir barðinu á þessari
gremju. Hún ætti með réttu að
beinast að Stjórnarráðinu við
Lækjartorg og Seðlabankanum við
Kalkofnsveg.
Í ÖÐRU lagi er ljótt að henda
mat. Þeir sem telja sig geta leyft
sér það hafa ekki efni á að kvarta
yfir kreppu.
Spektir