Fréttablaðið - 23.11.2008, Side 20
4 matur
Sælkerakökur
Leikandi létt
Þegar nóg er komið af piparkökum, sörum og hálfmánum er um að gera
að brydda upp á nýjungum með leikandi léttri uppskrift að góðum kornfleks-
makkarónukökum.
Bakaríið Passion í Álfheimum býður upp á átta mismunandi gerðir af gómsætum smákökum fyrir hver jól. Davíð Arnórsson, sem rekur
bakaríið ásamt Styrmi Má Sigmundssyni, telur allar
tegundirnar ómissandi fyrir jólin. Sérstaklega korn-
fleks-makkarónukökur sem byggja á uppskrift sem
hefur fylgt Styrmi um árabil. „Ætti ég að velja eina
smákökuuppskrift þá kæmi þessi helst til greina,“
segir Davíð og bætir við að hún sé bæði auðveld og
ódýr í framleiðslu í takt við þjóðarandann í dag.
Davíð segist hafa bakað frá fjórtán ára aldri og
því má segja að hann hafi varið hálfri ævinni innan
um nýbakað lostæti. „Ég verð 29 ára í ár, en byrjaði
að baka þegar ég var fjórtán ára. Ég hef reyndar
ekki gert neitt annað og kann það jafnvel ekki,“
segir hann hlæjandi og bendir á að þeir Styrmir hafi
svipaða sögu að segja.
Leið beggja lá á sínum tíma í Menntaskólann í
Kópavogi þar sem þeir stunduðu matvælanám í bak-
araiðn og kynntust í náminu. Þeir tóku við rekstri
Passion fyrir tveimur árum. Félagarnir voru svo
vænir að láta af hendi uppskriftina að kornfleks-
makkarónukökunum sem hafa notið mikilla vin-
sælda. - aóv
250 g eggjahvítur
925 g sykur
115 g kornflex
475 g mjólkursúkkulaði (dropar)
20 g vanillusykur (annars vanilludropar eftir
smekk)
115 g kókosmjöl
10 g salt
Þeytið saman eggjahvítur, sykur
og salt.
Stífþeytið þó ekki alveg. Blandið
öðrum þurrefnum saman við.
Sprautið með sprautupoka eða notið teskeið
til að búa til kökurnar (beint á bökunarplötuna).
Bakið í 10 til 11 mínútur við 170°C.
KORNFLEX-MAKKARÓNUR STYRMIS
Davíð Arnórsson mælir
sérstaklega með
kornfleks-makkarónukök-
um fyrir þessi jól.
FRÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
RN
ÞÓ
R
E
Opið
mán.–föstud. 11–18
laugardag 11–16
sunnudag 13–16
www.mirale.is
MIRALE
Fákafeni 9
108 Reykjavík
sími: 517 1020
OPIÐ Í DAG
frá kl. 13–16
verið velkomin
í FÁKAFEN 9
( við hliðina á ísbúðinni )
TILBOÐ
40% afsláttur
af öllum vösum
í dag