Fréttablaðið - 23.11.2008, Síða 8
8 23. nóvember 2008 SUNNUDAGUR
EFNAHAGSMÁL „Þessi þjóð eyðir þegar hún
getur og sparar þegar hún þarf,“ segir
Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar, um
miklar breytingar á kortanotkun Íslendinga
að undanförnu.
Hann segir kortaviðskiptajöfnuð Íslend-
inga við útlönd vera fjórum sinnum betri nú
en í fyrra. „Reiknað á gengi dagsins var jöfn-
uður á Mastercard-kortum 80 milljónir á dag
sem við eyddum meira en útlendingarnir. Í
dag er hann 18 milljónir,“ segir Haukur og
bætir við að vöxtur á eyðslu útlendinga á
Íslandi teljist hæfilegur.
Haukur segir ótrúlegt að sjá hversu
hraðar breytingar urðu á neyslumynstri
Íslendinga. Hugsunarháttur landsmanna hafi
breyst snögglega upp úr miðjum september.
„Við sjáum líka mjög miklar tilfærslur á
kortanotkun innanlands. Hún er breytist
hægar en er að færast úr debetkortum yfir í
kreditkort,“ segir Haukur. Sumir velji þó að
nota reiðufé. „Við vitum að það er tvöfalt
meira af reiðufé í umferð núna en bara í
sumar. Sumir vilja spara með því að vera
með peninga í höndunum.“
Hauki sýnist sem fólk sé að gera hag-
kvæmari innkaup og kaupa meira í einu en
áður. „Þetta er allt rökrétt hvernig fólk
bregst við en það kemur okkur á óvart hvað
vanskil hækka lítið.
Fólk reynir að standa í skilum og það er
sameiginlegt verkefni okkar að gera allt til
að fólk geti staðið í skilum,“ segir Haukur.
Hann segist alveg eins hafa búist við meiri
og hraðari vexti vanskila. „Fólk er meira
meðvitað um hvað peningar kosta,“ segir
Haukur.
- ovd
DAGSKRÁ UMFERÐARÞINGS
8.30 SKRÁNING OG AFHENDING ÞINGGAGNA
9.00 ÞINGSETNING
Karl V. Matthíasson, formaður Umferðarráðs
ÁVARP
Kristján L. Möller, samgönguráðherra
AFHENDING UMFERÐARLJÓSSINS
Verðlaunagripur Umferðarráðs veittur í áttunda sinn þeim aðila,
einstaklingi, samtökum eða stofnun, sem unnið hefur sérstaklega
árangursríkt og/eða eftirtektarvert starf á sviði umferðaröryggismála
STUTT HLÉ
10.00 UMFERÐARÖRYGGISÁÆTLUN TIL ÁRSINS 2016
Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri í samgönguráðuneytinu og
formaður umferðaröryggisráðs
10.15 GETTING ORGANIZED TOWARDS ZERO ROAD DEATHS?
John Dawson, Chairman of EuroRAP and iRAP,
Director of FIA Foundation for Automobile and Society
11.15 UMFERÐARÖRYGGI SVEITARFÉLAGA
Lárus Ágústsson, Cowi, Danmörku
11.30 EuroRAP Á ÍSLANDI
HVAÐA EINKUNN FÆR ÍSLENSKA VEGAKERFIÐ?
Ólafur Kr. Guðmundsson, varaformaður FÍB og
verkefnastjóri EuroRap á Íslandi
11.45 FYRIRSPURNIR OG UMRÆÐUR
12.00 MATARHLÉ
13.00 ENDURSKOÐUN UMFERÐARLAGA
Róbert R. Spanó, prófessor í lagadeild við Háskóla Íslands og
formaður nefndar um endurskoðun umferðarlaga
13.15 Á AÐ TAKA UPP HLUTLÆGA ÁBYRGÐ EIGENDA?
Kolbrún Sævarsdóttir, lögfræðingur hjá Ríkissaksóknara
13.30 AKSTUR UNDIR ÁHRIFUM
Valgerður Rúnarsdóttir, fíknsjúkdómalæknir hjá SÁÁ
13.45 Á AÐ LÆKKA LEYFILEG MÖRK ÁFENGISMAGNS Í BLÓÐI?
Ágúst Mogensen, forstöðumaður Rannsóknarnefndar umferðarslysa
14.00 HVAÐA KRÖFUR Á AÐ GERA TIL ELDRI BORGARA
VARÐANDI AKSTUR?
Hallgrímur Magnússon, doktor í öldrunargeðlækningum
14.15 FYRIRSPURNIR OG UMRÆÐUR
14.30 KAFFIHLÉ
ÖRUGGARI ÖKUMENN – UNGIR ÖKUMENN
15.00 EFLING UMFERÐARFRÆÐSLU Í SKÓLUM – MARKMIÐ OG LEIÐIR
Birna Hreiðarsdóttir, lögfræðingur í samgönguráðuneytinu og
formaður starfshóps um útfærslu og tilhögun umferðarfræðslu
í skólum landsins
15.15 „STELPUR Í BLEIKU – STRÁKAR Í BLÁU“
HVAÐ MÓTAR HUGMYNDIR KYNJANNA UM BÍLA OG UMFERÐ?
Ragnheiður Davíðsdóttir, forvarnarfulltrúi VÍS
15.30 AKSTURSBANN UNGRA ÖKUMANNA OG ÁRANGUR AF ÞVÍ
Holger Torp, verkefnastjóri ökunáms hjá Umferðarstofu
15.45 ENDURSKOÐUN ÖKUNÁMS, NIÐURSTÖÐUR STARFSHÓPS
Arnaldur Árnason, formaður starfshóps
16.00 ER RÉTT AÐ HÆKKA ÖKULEYFISALDURINN Í 18 ÁR?
Sigrún Hlín Sigurðardóttir, háskólanemi mælir með
hækkun ökuleyfisaldurs.
Sveinn Guðberg Sveinsson, framhaldsskólanemi mælir
gegn hækkun ökuleyfisaldurs
16.30 FYRIRSPURNIR, UMRÆÐUR OG ÁLYKTANIR
17.00 ÞINGSLIT
Karl Ragnars, forstjóri Umferðarstofu
FUNDARSTJÓRAR:
Óli H. Þórðarson, fyrrverandi formaður Umferðarráðs
Auður Þóra Árnadóttir, forstöðumaður umferðardeildar Vegagerðarinnar
UMFERÐARÞING
2008
GRAND HÓTEL REYKJAVÍK
26. NÓVEMBER 2008
Umferðarþing er öllum opið. Þátttökugjald er 6.900 kr. Innifalið er
jólahlaðborð í hádeginu og kaffiveitingar. Skráning er á heimasíðu
Umferðarstofu, www.us.is, til 24. nóvember. Þar er að finna nánari
upplýsingar um þingið. Einnig í síma 580 2000.
1. Hvað heitir kvikmyndin sem
Gísli Örn Garðarsson leikur í og
frumsýnd verður sumarið 2010?
2. Hver mun leiða dómnefnd-
ina í nýju Idol-þáttunum?
3. Hver er nýskipaður
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna?
Endi bundinn á verkfall
Öldungadeild Chileþings samþykkti
samhljóða á fimmtudag að ríkisstarfs-
menn fái tíu prósenta kauphækkun.
Þar með lauk fjögurra daga verkfalli
um 400.000 opinberra starfsmanna.
CHILE
Níræður ók á sjötuga
Ekið var á konu á sjötugsaldri sem var
að ganga yfir gangbraut á móts við
Suðurver um sex leytið í fyrrakvöld.
Maður á níræðisaldri ók bílnum.
Hann sá ekki konuna sem var dökk-
klædd og sást illa í rökkrinu. Konan
var flutt á slysadeild og var ekki talin
alvarlega slösuð.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Neyslumynstur Íslendinga breyttist hratt þegar efnahagsþrengingarnar skullu á:
Tvöfalt meira reiðufé í umferð núna
Við vitum að það
er tvöfalt meira af
reiðufé í umferð núna en
bara í sumar. Sumir vilja
spara með því að vera með
peninga í höndunum.“
HAUKUR ODDSSON
FORSTJÓRI BORGUNAR
EFNAHAGSMÁL Finnski fjármálasér-
fræðingurinn Kaarlo Vilho Jännäri,
sem forsætisráðuneytið hefur ráðið
til að endurskoða regluverk um
fjármálastarfsemi og framkvæmd
bankaeftirlitsins hér á landi, fær 60
þúsund evrur, eða sem jafngildir
tæplega 11 milljónum króna, fyrir
að vinna verkið og er ekki gert ráð
fyrir að hann megi stofna til neins
kostnaðar utan þess.
Jännäri er á eftirlaunum. Hann
hefur reynslu bankakreppum og
var forstjóri finnska Fjár-
málaeftirlitsins á árunum
1996-2006. Hann var
mjög áberandi í því starfi
í opinberri umræðu í
Finnlandi enda hefur Fjármálaeft-
irlitið miklu hlutverki að gegna þar
í landi. Fyrir þennan tíma starfaði
hann meðal annars í Seðlabanka
Finnlands og svo hefur hann sinnt
ýmsum trúnaðarstörfum, til dæmis
hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Allan tímann hefur hann sinnt verk-
efnum sem snerta banka- og fjár-
málamarkaði.
Jännäri var stjórnarformaður
finnska bankans Skopbanki sem
varð gjaldþrota í bankakreppunni í
Finnlandi árið 1993.
Von er á Jännäri til Íslands í vik-
unni og hefst þá strax vinna hans.
Jännäri segist lítið vita um verk-
efnið á Íslandi og ekki vita hvenær
hann byrjar. Ekki sé tímabært að
veita nein viðtöl strax.
Jännäri á að skila skýrslu sinni í
lok mars og verður hún strax gerð
opinber, að sögn forsætisráðuneyt-
isins. - ghs
Finnski sérfræðingurinn sem á að endurskoða fjármálastarfsemi og bankaeftirlit:
Með reynslu af bankakreppu
STJÓRNARRÁÐIÐ Forsætisráðuneytið
hefur ráðið Kaarlo Vilho Jännäri til að
endurskoða regluverk um fjármálastarf-
semi.
SVEITARSTJÓRNIR Akureyringar
vilja að fjármálaráðuneytið
heimili rekstur dreifingarstöðvar
ÁTVR á Akureyri. Bæjarstjórnin
segir jafnframt nauðsynlegt að
koma á flutningsjöfnunarkerfi til
að jafna flutningskostnað fyrir-
tækja sem starfa á höfuðborgar-
svæðinu og landsbyggðinni.
„Nú þegar fyrirtæki standa
frammi fyrir erfiðari rekstrarskil-
yrðum en áður er þörfin á að
hrinda þessu réttlætismáli í
framkvæmd brýnni en nokkru
sinni,“ segir bæjarstjórn Akureyr-
ar sem enn fremur leggur til að
Alþingi láti gera athugun á
hagkvæmni strandsiglinga. - gar
Bæjarstjórn vill jöfnun:
Dreifing ÁTVR
sé á Akureyri
FERÐALÖG Norska ferðaskrifstofan
Islandsferder hefur fengið
greiðslustöðvun. Á heimasíðu
fyrirtækisins kemur fram að
hætt hafi verið við jólahlaðborðs-
ferðir til Íslands sem átti að fara
frá völdum stöðum í Noregi fyrir
utan Ósló. Engar breytingar verði
á ferðum frá höfuðborginni.
Viðskiptavinum hefur verið
tilkynnt að ferðirnar fáist
endurgreiddar að fullu. Ekki er
tekið fram hversu margir hafi
þegar pantað sér miða í ferðirnar.
Islandsferder hefur starfað í
Ósló um árabil og sérhæft sig í
ferðum til Íslands. - kg
Hætt við ferðir til Íslands:
Islandsferder í
greiðslustöðvun
Vegna húsleitar efnahagsdeildar
embættis Ríkislögreglustjóra hjá
verðbréfafyrirtækinu Virðingu
hf. föstudaginn 21. nóvember sl.
vill fyrirtækið árétta að aðgerðin
og yfirstandandi lögreglurann-
sókn beinist ekki að Virðingu og
starfsemi fyrirtækisins.
Enginn grunur er um að
Virðing hafi brotið lög heldur
beinist rannsóknin að mögulegri
misnotkun markaðsupplýsinga
eins starfsmanns fyrirtækisins í
málum sem Virðing á engan hlut
að. Ekki var hróflað við sjóðum
Virðingar, engum fjármunum
skotið undan og viðskiptavinir
fyrirtækisins hafa engan skaða
hlotið.
Virðing er löggilt verðbréfa-
fyrirtæki sem leggur áherslu á að
þjóna fag- og stofnanafjárfestum.
Stjórn og starfsmenn Virðingar
hafa aðstoðað lögreglu við
rannsókn málsins og munu gera
það áfram, verði þess óskað.
Fyrirtækið leggur áherslu á að
um er að ræða opinbert lögreglu-
mál sem er óviðkomandi starf-
semi Virðingar og vegna rann-
sóknarhagsmuna mun fyrirtækið
ekki tjá sig frekar um málið
meðan rannsókn efnahagsbrota-
deildar Ríkislögreglustjóra fer
fram.
Fyrir hönd stjórnar Virðingar,
Þröstur Olaf Sigurjónsson,
stjórnarformaður.
Yfirlýsing frá
Virðingu hf.
VEISTU SVARIÐ?