Fréttablaðið - 23.11.2008, Side 34
18 23. nóvember 2008 SUNNUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Þetta er
Sara.
Daginn
Sarah.
Ég heiti
Sara, það er
ekki H í því.
Nú,
fyrirgefðu.
Ég þoli ekki þegar
fólk segir nafnið mitt
vitlaust.
Kjartan!! Fólkið
fer að koma og
maturinn er að
verða til. Og það
er ekki einu sinni
búið að teikna þig
almennilega!!
Litli ljósrauði
sokkur
Litli ljósrauði
sokkur
Mjási! Hvað
er með þig og
þennan sokk?
Við eigum bara
eitthvað svo vel
saman.
Mmm...
Úff! Börn eru
svo heppin.
Hvenær datt þér síðast
í hug að borða heilan
kleinuhring með glassúr...
og gerðir það síðan?
Ég held að það hafi verið
eldsnemma í morgun.
Karlmenn og
börn eru svo
heppin!
Og síðan
aftur um
kaffileytið...
Það vill oft verða þannig, þegar aðrar aðferðir til að leysa úr málunum virðast vera komnar í þrot, að umræðan og
skoðanaskiptin fari á lægra og lægra plan.
Það hefur sannarlega gerst nú og sandkassa-
leikir hafa farið fram um allan bæ síðustu
daga. Mig minnti alltaf að fólk sem notast
við tólf spora kerfið byrjaði lífið hálfpartinn
upp á nýtt. Það er einmitt það sem auðmenn
og ráðamenn, þeir sem bera ábyrgð á
ástandinu, þurfa að gera. Þess vegna fór ég
að kynna mér tólf spora kerfið, til að sjá
hvort það sé ekki hægt að nota ýmislegt úr
því til þess að hjálpa þessu fólki. Reyndar er
margt frekar trúartengt í sporunum, sem
mér finnst svo sem óþarfi að vera að troða
upp á fólkið. Enda held ég að lausnin í þessu
máli felist varla í því að kristna fólkið. Samt
má margt gott taka úr þessum tólf skrefum,
þótt skrefin gætu þurft að vera ansi stór hjá
mörgum.
Hvernig væri til dæmis að viðurkenna
vanmátt sinn gagnvart þessu öllu saman?
Það er fyrsta skrefið. Svo væri ágætt ef
ýmsir gætu tileinkað sér fjórða skrefið, að
gera rækilega og óttalaust siðferðileg
reikningsskil. Nú, fimmta skrefið er líka
gott, að játa misgjörðirnar fyrir sjálfum sér
og öðrum og nákvæmlega hvað í þeim fólst.
Í áttunda skrefi felst að skrá misgjörðir
sínar og verða fús til að bæta fyrir þær.
Níunda skrefið gæti reynst hvað erfiðast, að
bæta fyrir brot sín. Það væri ágætt að sjá
þessi fimm af tólf skrefum tekin.
Tólf spor fyrir þau sem klúðruðu
NOKKUR ORÐ
Þórunn
Elísabet
Bogadóttir „Mig minnti alltaf að fólk sem notast við tólf spora kerfið byrjaði lífið hálfpart-inn upp á nýtt. Það er einmitt það sem
auðmenn og ráðamenn, þeir sem bera
ábyrgð á ástandinu, þurfa að gera.“