Fréttablaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 42
26 23. nóvember 2008 SUNNUDAGUR
Enska úrvalsdeildin
Chelsea-Newcastle 0-0
Liverpool-Fulham 0-0
Man. City-Arsenal 3-0
1-0 Stepen Ireland (45.), 2-0 Robinho (56.), 3-0
Daniel Sturridge (90.).
Middlesbrough-Bolton 1-3
0-1 Grétar Rafn Steinsson (8), 0-2 Matthew
Taylor (10.), 1-2 Emanuel Pogatetz (77.), 1-3
Johan Elmander (78.).
Portsmouth-Hull 2-2
1-0 Peter Crouch (20.), 1-1 Michael Turner (54.),
2-1 Glen Johnson (63.), 2-2 sjáflsmark (89.).
Hermann Hreiðarsson sat allan leikinn á bekkn-
um hjá Portsmoth.
Stoke-WBA 1-0
1-0 Mamady Sidibe (84.).
Aston Villa-Man. Utd 0-0
STAÐAN Í DEILDINNI
1. Chelsea 14 10 3 1 32-4 33
2. Liverpool 14 10 3 1 21-8 33
3. Man. Utd 13 7 4 2 25-10 25
4. Aston Villa 14 7 3 4 22-16 24
5. Arsenal 14 7 2 5 25-18 23
6. Hull 14 6 4 4 21-23 22
-----------------------------------------------------
18. Blackburn 13 3 4 6 14-24 13
19. Tottenham 13 3 3 7 16-20 12
20. WBA 14 3 2 9 10-25 11
Coca Cola Championship
Burnley-Doncaster 0-0
Jóhannes Karl Guðjónsson var í byrjunarliði
Burnley en var skipt af velli á 79. mínútu.
Reading-Southampton 1-2
0-1 Bradley Wright-Phillips (8.), 0-2 Bradley
Wright-Phillips (49.), 1-2 Jimmy Kebe (57.). Ívar
Ingimarsson lék allan leikinn með Reading og
Brynjar Björn Gunnarsson síðustu sjö mínúturnar.
Sheffield Wed.-Coventry 0-1
0-1 Clinton Morrison (60.). Aron Einar Gunnars-
son var ekki í leikmannahópi Coventry.
Watford-QPR 3-0
1-0 Tommy Smith (26.), 2-0 Darren Ward (34.),
3-0 Lee Williamson (45.). Heiðar Helguson var
ekki í leikmannahópi QPR.
Skoska úrvalsdeildin
Hearts-Falkirk 2-1
0-1 Steve Lovell (16.), 1-1 Bruno Agular (18.), 2-1
Andrew Driver (59.). Eggert Gunnþór Jónsson var
í byrjunarliði Hearts en skipt út af á 60. mínútu.
Spænska úrvalsdeildin
Real Madrid-Recreativo 1-0
1-0 Wesley Sneijder (39.).
Villarreal-Real Valladolid 0-3
0-1 Sesma Jonathan (22.), 0-2 Sesma Jonathan
(42.), 0-3 Luis Prieto (45.).
Ítalska úrvalsdeildin
Fiorentina-Udinese 4-2
0-1 Antonio Floro Flores (29.), 1-1 Adrian Mutu
(51.), 2-1 Riccardo Montolivo (63.), 3-1 Riccardo
Montolivo (77.), 4-1 Alberto Gilardino (79.), 4-2
Antonio Di Natale (83.).
Inter-Juventus 1-0
1-0 Sulley Muntari (71.).
ÚRSLIT
Nánari upplýsingar eru á www.bhs.is
Borgarholtsskóli við Mosaveg, sími 535 1700
Borgarholtsskóli
býður upp á nám með starfi
Síðdegisnám fyrir:
Leiðbeinendur í leikskóla
Skólaliða
Stuðningsfulltrúa
Félagsliða
Kennt verður virka daga kl. 1500–1740.
Innritun í síðdegisnám lýkur 3. desember og kennsla hefst 12. janúar.
Dreifnám (fjarnám með staðbundnum lotum) fyrir:
Leiðbeinendur í leikskóla
Skólaliða
Stuðningsfulltrúa
Félagsliða
Félags- og tómstundanám NÝTT
Á lista- og fjölmiðlasviði er boðið upp á dreifnám í:
Bókasafnstækni
Margmiðlun
Innritun í dreifnám lýkur 3. desember og kennsla hefst 9. janúar.
SUND Jakob Jóhann Sveinsson úr
sundfélaginu Ægi fór á kostum á
Íslandsmeistaramótinu í 25
metra laug í Laugardalslaug í
gær þegar hann setti tvö Íslands-
met, í 50 metra bringusundi og í
100 metra bringusundi. Kvenna-
boðsundssveit Sundfélagsins
Ægis náði einnig að bæta
Íslandsmet í 4x50 metra
fjórsundi.
Jakob Jóhann bætti til
að byrja með eigið
Íslandsmet í 50 metra
bringusundi. Það gerði
hann í undanrásum í 100
metra bringusundi þegar
hann synti á tímanum 28,09
sekúndur og bætti metið
um þrettán hundraðs-
hluta.
Jakob Jóhann var
ekki hættur því í
úrslitasundinu í 100
metra bringusundi
synti hann á rétt
rúmri mínútu
eða 1:00,18 og
bætti þar
með eigið
Íslandsmet á
glæsilegan hátt
um þriðjung úr
sekúndu. Jakob
Jóhann var ánægður
með metabætingarnar
þegar Fréttablaðið heyrði
hljóðið í honum í gær en
kvaðst hafa viljað gera enn
betur.
„Ég er auðvitað mjög ánægð-
ur með að ná að setja Íslands-
metin. En það er nú samt alltaf
eitthvað sem má betur fara og
ég var pirraður með að ná ekki
að fara undir mínútuna í 100
metra bringusundinu sem
var takmarkið hjá mér.
Ég byrjaði kannski
aðeins of hratt í
100 metra bringu-
sundinu og snún-
ingarnir hefðu
getað verið betri
en eins og ég segi
þá er það alltaf eitt-
hvað sem má betur
fara,“ segir Jakob
Jóhann.
Kvennaboðsunds-
sveit Sundfélagsins
Ægis bætti svo eigið
Íslandsmet í 4x50
metra fjórsundi í
gær með tíman-
um 1:58,22 en
gamla Íslands-
metið frá árinu
2006 var 1:58,98.
Sundsveitina
skipuðu þær
Jóhanna Gerða
Gústafsdóttir,
Sarah Blake
Bateman,
Ásbjörg Gúst-
afsdóttir og
Karen Sif Vil-
hjálmsdóttir. - óþ
Þrjú Íslandsmet féllu á ÍM í 25 metra laug í gær:
Jakob með tvö met
JAKOB JÓHANN Bætti tvö
Íslandsmet á Íslandsmeistara-
mótinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
FÓTBOLTI Toppliðunum Chelsea,
Liverpool, Manchester United,
Arsenal og Aston Villa mistókst
öllum að finna leið að marki mót-
herja sinna í ensku úrvalsdeild-
inni í gær. Grétar Rafn Steinsson
náði hins vegar að skora eitt mark
í útisigri Bolton gegn Middles-
brough en Hermann Hreiðarsson
var sem fyrr úti í kuldanum hjá
knattspyrnustjóranum Tony
Adams og kom ekkert við sögu í
jafntefli Portsmouth gegn Hull.
Manchester City stal senunni í
gær með því að niðurlægja Arsen-
al 3-0 á Borgarleikvanginum í
Manchester en athygli vakti að
fyrirliðinn William Gallas var ekki
í leikmannahópi Lundúnafélags-
ins fyrir ummæli sín um ókyrrð í
herbúðum Arsenal í vikunni. Til
að bæta gráu ofan á svart þá vant-
aði einnig þá Cesc Fabregas,
Emanuel Adebayor og Theo Wal-
cott í leikmannahóp Arsenal.
City-menn nýttu sér
greinilegt óöryggi í
vörn Arsenal og hinn
sjóðheiti Stephen Ire-
land skoraði fyrsta
markið eftir mistök
Gael Clichy á 45. mín-
útu. Hinn brasilíski
Robinho bætti við öðru
marki snemma í seinni
hálfleik áður en vara-
maðurinn Daniel Stur-
ridge innsiglaði sigur-
inn í blálokin úr
vítaspyrnu.
„Þetta er held ég bara
annar sigur okkar á Arsenal
síðan enska úrvals-
deildin var stofnuð
þannig að þetta er
þýðingarmikill
áfangi fyrir okkur.
Við komum inn í
leikinn með ákveð-
ið skipulag til þess
að stoppa flæðið í
sóknarleik þeirra
og mér fannst það
takast mjög vel,“
segir Mark Hug-
hes, knattspyrnu-
stjóri Manchester
City í leikslok í gær.
Skotskórnir týndir
Toppliðin Chelsea og
Liverpool gerðu
hvort um sig marka-
laust jafntefli í gær,
Chelsea á heimavelli
á móti Newcastle og Liverpool á
heimavelli gegn Fulham.
„Þeir reyndu ekki einu sinn að
ógna marki okkar í leiknum og
ætluðu bara að spila upp á jafn-
teflið og það gekk upp hjá þeim.
Maður leiksins er því knattspyrnu-
stjórinn þeirra,“ segir svekktur
Luiz Felipe Scolari, knattspyru-
stjóri Chelsea.
Fernando Torres sneri aftur í
byrjunarlið Liverpool en náði ekki
að setja mark sitt á leikinn frekar
en aðrir leikmenn á Anfield í gær.
„Þetta var slæmur dagur. Við
spiluðum ekki með nógu miklum
krafti og það vantaði mikið upp á
sendingarnar hjá leikmönnum
liðsins,“ segir Rafa Benitez, knatt-
spyrnustjóri Liverpool.
Enn átta stigum á eftir
Englandsmeisturum Manchester
United mistókst að saxa á átta
stiga forskot Chelsea og Liverpool
í gær og urðu að sætta sig við mar-
kalaust jafntefli við Aston Villa en
United á einn leik til góða á hin
liðin. Aston Villa skaust upp í
fjórða sætið með jafnteflinu á
kostnað Arsenal.
Grétar maður leiksins
Grétar Rafn Steinsson gerði það
sem öllum toppliðunum fimm mis-
tókst og skoraði mark í 1-3 sigri
Bolton gegn Middlesbrough. Grét-
ar Rafn átti skalla sem hafði við-
komu í sóknarmanninum Kevin
Davies á leið í markið strax á átt-
undu mínútu en Siglfirðingurin
lagði svo stuttu síðar upp annað
mark Bolton fyrir Matthew Taylor.
Grétar Rafn var valinn maður
leiksins hjá BBC Sports í leikslok.
omar@frettabladid.is
Markaþurrð hjá toppliðunum fimm
Einstæður atburður átti sér stað í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar ekkert af topp fimm félögunum náði
að skora eitt einasta mark í leikjum sínum. Grétar Rafn skoraði eitt mark og lagði upp annað í sigri Bolton.
HVAÐ ER MÁLIÐ? Sir Alex Ferguson,
knattspyrnustjóri Manchester United,
fórnar höndum í markaleysinu í gær.
NORDIC PHOTOS/GETTY
N
O
R
D
IC PH
O
TO
S/G
ETTY
FÖGNUÐUR Grétar Rafn Steinsson
og félagar hans í Bolton höfðu ærna
ástæðu til þess að fagna í gær þegar
þeir unnu frækinn útisigur gegn
Middlesbrough. Siglfirðingurinn
skoraði eitt mark, sem er meira en
leikmenn toppliðanna fimm gátu
státað sig af í gær.