Tíminn - 21.03.1982, Blaðsíða 6

Tíminn - 21.03.1982, Blaðsíða 6
6 Sunnudagur 21. mars 1982. ■ 1 Bogasal Þjóöminjasafnsins stendur nú yfir merkileg sýning: Ijósmyndir þeirra Nicoline Wey- wadt og Hansínu Björnsdóttur. Þær stöllur voru frænkur og héldu til á Teigarhorni viö Berufjörö, uröu einna fyrstar islenskra kvenna til aö taka ljósmyndir. Þykja myndir þeirra afar athygl- isveröar , bæöi listrænt séö og sem heimild um horfna tiö og er þvi full ástæöa til aö hvetja alla áhugamenn til aö vitja sýningar- innar. Inga Lára Baldvinsdóttir haföi umsjón meö sýningarskrá, sem er mjög vönduö og falleg, og ritar sjálf fróölega grein um þær Nico- line og Hansinu. Er þar meöal annars rakiö hversu ljósmyndir voru i hávegum haföar á Austur- fjöröum fyrir aldamótin en af 31 tslendingi sem vitaö er til aö hafi tekiö myndir gegn greiöslu voru 14 af Austfjöröum. Af þessum 14 voru fjórar konur en aöeins eru þekktar tvær konur annars staöar á landinu sem lögöu fyrir sig ljós- myndun. „Af austfirskum ljósmyndur- um ber nafn Nicoline Weywadt hæst,” segir Inga Lára, ,,og kem- ur þar margt til.” Hún fæddist ár- iö 1848 á Djúpavogi, var dóttir Ni- elsar P.E. Weywadts, faktors, og Sophie Brochdorf. Vegna stööu Weywadts I verslun bárust nýj- ungar skjótar inn á heimili hans en flest önnur og til dæmis er sagt aö fyrsta saumavélin sem kom á Austurland hafi fariö á Weywadt heimiliö. Einnig fyrsti oliulamp- inn. A heimilinu, sem var fjöl- mennt, var áhersla lögö á aö koma börnum til mennta, og stúlkum eigi siöur en drengjum. Tvær af elstu dætrunum sigldu til Danmerkur til náms, önnur læröi ostagerö á Jótlandi en hin, Nico- line, lagöi stund á ljósmyndun I Kaupmannahöfn. Má þaö heita ■ Fjórir sjómenn. Myndina tók Nicoline Óþekktkona með óþekkt barn. Mynd mun Hansina hafa tekiö KONUR TAKA MYNDIR — Myndasafn frá Teigarhorni til sýnis í Bogasal nýstárlegt enda voru þá engir ljósmyndarar á Austfjöröum, en kynni Nicoline af tveimur útlend- ingum sem nokkuö geröu af þvi aö taka myndir munu ef til vill hafa oröiö til aö kveikja áhuga hennar. 1872 kom Nicoline heim frá náminu og settist aö hjá foreldr- um sinum á Djúpavogi og stund- aöi ljósmyndun þar. Ekki er vitaö hvernig aöstööu hún bjó sér til þess. 1881 fluttist Weywadt aö Teigarhorni i nýtt og reisulegt hus sem enn er búiö i og var myndaskúr byggöur viö húsiö. A þessum tima var ljósmynda- tækni i örri framþróun og 1888 sigldi Nicoline aftur til Kaup- mannahafnar til aö kynna sér nýjungar, einkum svokallaöar þurrar plötur sem þá voru aö ryöja sér til rúms. Þaö var ekki fyrr en tveimur árum siöar aö Sigfús Eymundsson tók slikar þurrar plötur i notkun svo aug- ljóst er aö Nicoline hefur fylgst vel meö. í grein Ingu Láru, sem þetta er nú allt saman unniö upp úr, segir meöal annars á þessa leiö: „Myndir Nicoline vitna um gott handbragö enda verklagni fjöl- skyldunnar annáluö. Til eru fag- urlega útskornir munir eftir Niels Emil Weywadt, og sannaöir mun- ir eftir Elise Weywadt, systur faktorsins, Mortine Tvede og faktorsdæturnar voru rómaöir. En verklagni ein dugar skammt, ef smekkvisi er ekki til staöar. Næmt auga Nicoline fyrir mynd- efni samfara myndrænni skynjun gefur henni sérstööu meöal is- lenskra ljósmyndara. Hún var frumherji viö myndatökur á merkilegu tlmaskeiöi 1 byggöa- sögu Austurlands og eftir hana liggja fleiri útimyndir en flesta aöra ljósmyndara fyrir aldamót. Þó aö kunni aö hluta aö vera fólg- iö i tilviljanakenndri varöveislu er liklegra aö ætla aö hún hafi fengist meira viö slikar mynda- tökur en aörir á þeim tima. Meö þvi hefur hún eftirlátiö okkur inn- sýn I upphaf þorpsmyndunar á Djúpavogi, Eskifiröi og Seyöis- firöi aö ógleymdri tignarlegri náttúru Austfjaröa. Starfsferill Nicoline varö lang- ur eöa um 30 ár, þvi hún fékkst viö myndatökur fram yfir aldamót. Hún sinnti einnig veöurathugun- um á Teigarhorni um áratuga skeiö. En veöurathuganir hófust þar 1874. Jafnfram haföi hún nokkrar tekjur af steinsölu til út- landa, en fræg geislasteinanáma, nú friölýst er I landi Teigar- horns.” Nicoline Weywadt giftist aldrei en bjó hins vegar meö Sohpie móöur sinni eftir andlát fööur sins, hún hélt kyrru fyrir á Teig- arhorni til dauöadags sem rann upp síöla febrúar 1921. Þær mæögur ólu upp tvær stúlkur, Björgu Kristjánsdóttur og Han- sinu Björnsdóttur. Hansina var systurdóttir Nicoline, dóttir Sus- önnu Weywadtog Björns Eiriks- sonar trésmiös sem var læröur i Kaupmannahöfn.' Þau bjuggu fyrst á Teigarhorni en fluttust siöar á Eskifjörö og þar fæddist Hansina áriö 1884. Hún fæddist fyrir timann og sagt er aö hún hafi veriö svo litil viö fæöingu aö hún hafi komist fyrir I tréskó. Hún var hjá foreldrum sinum til þriggja ára aldurs er hún var sett til fósturs á Teigarhorni til þeirra Sophie og Nicoline. Hún nam und- irstööuatriöi i ljósmyndun hjá Nicoline móöursystur sinni en sigldi áriö 1902 til Kjöpenhafnar aö læra meira. Ljósmyndaferill hennar varö sýnu styttri en Nicoline þvi hún hætti aö mestu aö taka myndir eftir aö hún gifti sig áriö 1911. Inga Lára segir: „Mannamyndatökur voru aö sögn ekki uppáhaldsviöfangsefni. Hansinu. En hún haföi þeim mun meira gaman af útimyndatökum, aöallega landslags. En þær voru tiskufyrirbrigöi þess tima. En þvi miöur eyöilagðist stór hluti þeim plötum hennar fyrir slysni. En þær myndir sem til eru eftir hana eru allar úr Berufirði og næsta nágrenni. Hún viröist hafa sótt myndefni i dagsins önn, sbr. myndir af heyskap á Teigarhorni. Þegar börnin komust á legg um 1930 tók Hansina á ný til við myndatökur um skeiö en þaö viröist mest hafa veriö bundiö börnunum og fjölskyldunni. Han- sina bjó aö Teigarhorni alla tið, en var siöustu a’rin i Reykjavik aö vetrinum. Hún lést 5.2.1973. Enn er Teigarhorn i eigu af- komenda Weywadts og þeim er þaö aö þakka aö jafn mikiö hefur varöveist af munum tengdum ljósmynda rekstrinum eins og þessi sýning vitnar um. Það gefur þætti Teigarhorns i islenskri ljós- myndasögu sérstöðu og hún væri rikari ef fleiri hefðu sýnt jafn mikinn skilning á lifi, starfi og minjum genginna kynslóða.” Alls eru þaö tæplega 80 myndir sem til sýnis eru i Bogasal og þar aö auki áhöld og útbúnaður: Hnakkajárn, myndavélar, bak- tjald, vinnuborö, efnaglös, mæíí- glös, bakkar.þurrkgrindur fyrir plötur, framköllunarrammar plötuhaldarar, retoucherings- rammi og fleira. Sýningin veröur opin lengi enn. ■ Nicoline Weywadt. ■ Hansina Björnsdóttir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.