Tíminn - 21.03.1982, Page 10
io
Sunnudagur 21. mars 1982.
1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1
Bændur og búalið
Léttar og liprar aflúrtaksdrifnar 1. Loftdælur -
2. Háþrýstar þvottadælur
— 3. Afkastamiklar brunadælur C*-
Leitiö upplýsinga Sendum i próstkröfu —
Ágúst Schram heildverslun
- Bolholti 6 simi 31899 -
Árnesingamót
Árnesingamótið 1982 verður haldið i
Félagsheimili Fóstbræðra Langholtsvegi
109-111 laugardaginn 27. mars og hefst
með borðhaldi kl. 19. Heiðursgestir móts-
ins verða hjónin frú Magnea Þorkelsdóttir
og herra Sigurbjörn Einarsson fyrrver-
andi biskup en hann mun jafnframt flytja
aðalræðu kvöldsins.
Árnesingakórinn syngur undir stjórn Guð-
mundar ómars óskarssonar, fluttur
verður leikþáttur og að lokum leikur
hljómsveit Hreiðars ól. Guðjónssonar
fyrir dansi.
Árnesingar austan og vestan heiðar eru
hvattir til að fjölmenna og taka með sér
gesti.
Miðasala og borðapantanir eru i Bókabúð
Lárusar Blöndal Skólavörðustig 2 s. 15650.
Árnesingafélagið i Reykjavik
Jörðin Grund 11
Eyjafirði
er til sölu og laus til ábúðar frá næstu far-
dögum.
íbúðarhús (tvær hæðir hvor 155 ferm) með
tveimur ibúðum auk kjallara 90-100 ha af
ræktuðu landi.
2000 hesta hlaða — stálgrindarhús og
fjögurhundruð hesta votheysturn, 56 kúa
fjós og fjárhús fyrir 140 kindur. Land að
Eyjafjarðará. Sjálfvirkur simi 17 km. frá
Akureyri. Hentar vel til tvibýlis eða
félagsbúskapar einnig fyrir hverskonar
félagasamtök.
Eignamiðlunin
Þingholtsstræti 3
simi 27711
FORD TRAKTORAR
Ford 3600 47 ha með fullkomnum búnaöi til af-
greiðslu strax. Verð aðeins 145 þús.
Greiðsluskilmálar.
ÞÓRf ÁBMÚLA11
KÍ'lilÍ'ltllííf
bergmál
i.
■ Þetta var ábyggilega
vallarmet. Heilu fjöl-
skyldurnar voru með á nót-
unum. Börn, fullorðnir,
gamlingjar og unglingar
sem eru af grundvallar-
ástæðum afhuga. Gamal-
grónir kunning jahópar
komnir saman í tugatali.
Jafnt eldheitir áhugamenn
og þeir sem hafa minni
áhuga. Það ímynda ég mér
að minnsta kosti, þótt rétt-
astværi að Dagblaðið-Vísir
gerði vísindalega könnun.
Og með gosdrykki, öl, sæl-
gæti, saltstengur, snarl,
jafnvel púandi vindla og
drekkandi löglegan eða
ólöglegan bjór eða aðrar
veigar. Og þeir áköfustu
Iþróttlr p
mm
Er von á beinum útsendingum úr ensku knattspyrnunni?
SJÓN
WEMBLEY-LEIKURINN
GAF
VARPINU
36.000
HAGNAÐ!
að
Held
þetta
naffi
geffid
góda
segir
Höröur
Vilhjðlmsson. ffiármálastjóri
Rfkisútvarpsins
Við viljum
heimsmeistara-
keppiti!
jafnvel með trefla og
hrossabresti, Vallarmet —
fyrir framan sjónvarpið.
Áfram Tottenpool
Nú varö þaö aö visu raunin aö
allur þessi fjöldi var sviptur
gamaninu þegar leikurinn stóö
sem hæst. Þegar Pool var búiö aö
jafna á elleftu stundu og fór aö
halla undan fæti hjá Totten. Þaö
var auövitaö miöur og litil hugg-
un i skiöastökki eöa var þaö
skautadans sem á eftir kom. En
allt um þaö — þetta var talsverö j
(leyfis* mér aö segja ógleyman-'
leg?) reynsla fyrir okkur alla sem
erum kirfilega sestir fyrir framan
sjónvarpstækin á hverjum
laugardegi klukkan sjö okkur
sem ekki gefum matarfrið ef
veriö er aö sparka á skjánum,
okkur sem göngum i gegnum allt
litróf tilfinninganna á fótbolta-
leikjum.
Já þetta breytti öllu að vita ekki
úrslitin fyrirfram aö sjá atburö-
inn jafnóöum eöa kannski fáein-
um sekúndum siöar ekki veit ég
hvaö málin ganga hratt fyrir sig I
gervihnöttum. Og hvort viö vor-
um spenntir, já, örvæntingarfull-
ir framan af, búnir aö vera á
elleftu minútu, hjartveikir i hálf-
leik. orönir vonlausir, og þá, þá,
þegar siöasta vonarglætan var að
slökkna — skoraöi Pool, aöeins
fimm minútum fyrir leikslok.
Veröskuldaö mark gott mark,
mark sem bjargaöi þvi sem eftir
liföi af laugardeginum og laugar-
dagskvöldinu. Gluggar nötruöu
þaö tók undir i húsagöröum og
skúmaskotum, gleöin var óbland-
in fögnuðurinn algjör. Gott hjá
Pool, og nú fáum viö framleng-
ingu. Hvernig heföum viö látiö á
ööru marki eöa þvi þriöja...?
Leiöinlegt annars aö Daglish
skyldi ekki takast aö skora eins
og hann reyndi mikiö...
II.
Þaö er allt svo dýrt i sjónvarp-
inu. Og fátt sem hægt er aö leyfa
sér. Söngvakeppni hér og Snorra-
mynd þar og ekki söguna meir.
Gervihnettir eru ekki heldur rétt
billegir og jarðstöðin i Mosfells-
sveit kostar sitt, skiptir engu máli
þótt taxtinn hafi veriö lækkaöur.
Óbreyttum sjónvarpsáhorfanda
fannst satt aö segja ekki aö for-
ráðamenn rikisútvarpsins heföu
mikla trú á þessu fyrirtæki. En
þeir eru lika úrtölumenn og
svartsýnismenn þaö er partur af
þeirra starfi, þeim væri ekki stætt
á ööru. Svo settust menn niöur og
reiknuöu og bjuggust viö hinu
versta: 14.640 krónur til sjón-
varpsstöövar i Englandi fyrir
sýningarréttinn og til aö senda
efniö upp i fjarskiptahnöttinn.
Plús — niðurleiöin i gegnum
Skyggni og út i kerfiö, 25.000
krónur. Plús — annar kostnaður
um 10.000 krónur. Samtals um
50.000 krónur sem er vænt útgjald
þó ég þori ekki aö fullyröa hvaö
þaö gerir i samanburöi viö annað
sjónvarpsefni.
En þrátt fyrir útpungaöar krón-
ur voru menn glaöir og hressir i
sjónvarpinu. Þaö kom nefnilega á
daginn aö sjónvarpiö haföi oröiö
rikara af beinu útsendingunni.
Hagnaöurinn var beinn og blátt
áfram, eins og bent var á i mörg-
um blööum. Já, auðvitaö voru þaö
auglýsingarnai; hvar væri rikisút-
varpið okkar statt án þeirra, sem
borguöu upp kostnaöinn og gott
betur, þaö uröu um 36.000 krónur
aukreitis. Og þaö þrátt fyrir aö
þessi auglýsingatimi i hálfleik
væri ákveðinn meö mjög litlum
fyrirvara og færri kæmust aö en
vildu.
í ljósi þessarar ágætu reynslu
er nánast fastákveöiö aö úrslita-
leikurinn í bikarkeppninni ensku
veröi á dagskrá sjónvarpsins i
beinni útsendingu laugardaginn
22jnai. Hatursmenn iþrótta og fá-
nýtra hlaupa eru þegjandalegir
og fátt sem stendur i veginum
fyrir þvi aö viö fáum Totten aftur
heim i stofu á móti liði sem ég
kann ekki aö nefna, illu heilii ekki
Pool.
III.
Og hér er loks kjarni málsins.
Heimsmeistarakeppnin marg-
umtalaða hvaö annaö. Sem undir-
leggur Spán nú fyrripart sumars.
Og þar taka allir þátt sem ein-
hvers mega sin — Englendingar
loksins aftur, Þjóöverjar,
Brazzar, Argentinumenn, Skotar,
Italir, Rússar, allir nema
Hollendingar og þaö finnst Illuga
miður. Þvi hvaö er heims-
meistarakeppni án Rensenbrinks
og Kerkhof-tviburanna, þeirra
knáu vinnuhesta. Hvaö um þaö —
fyrir fjórum árum var ég staddur
erlendis einmitt um þær mundir
er heimsmeistarakeppnin ’78 fór
fram i Argentinu sem I sjálfu sér
var grábölvaö. Og i þessu útlandi
gafst manni kostur á aö fylgjast
meö heimsmeistarakeppninni i
samfelldri beinni útsendingu.
Hún var sýnd á stórum skermi i
biói ekki langt frá herbergjum
minum, umkomuleysingjar og
þeir sem ekki áttu litasjónvarp
stóöu framan við glugga sjón-
varpsbúöa og giáptu á stórmerkin
handan viö hafiö enda þjóöin sem
þessi borg tilheyrði einhver skær-
asta von keppninnar aö minnsta
kosti áöur en leikurinn hófst. Og
þarna sá ég þetta allt og naut vel
þótt sjónvarpstækið sem ég hafði
yfir að ráöa væri bara svart-hvitt.
Lystisemdir og stórmerki heims-
borgarinnar máttu biöa betri
tima.
IV
Við Islendingar komumst vist
seint i heimsmeistarakeppni, þaö
hjálpar okkur ekki einu sinni þótt
búiö sé aö fjölga þátttökuþjóðun-
um úr 16 I 24. Það var vist gert i
greiöaskyni við Þriöja heiminn.
En viö viljum,við heimtum beint
samband, viö knattspyrnu-
elskendur sem illu heilli komumst
ekki til Spánar. En nú eru uppi al-
varlegir meinbaugir, það gagnar
ekkert þótt búiö sé aö leysa fjár-
hagsmálin i bili. Sjónvarpiö fer i
heföbundiö mánaðarfri i júli fri
sem mér hefur hingað til þótt gott
og sjálfsagt, en vekur nú meö mér
illa fyrirboöa og skelfingu. Engin
bein útsending það er jafn vist, og
ekki einu sinni óbein útsending
fyrr en i ágúst. Og utan seilingar
mun blómi þessarar göfugu
iþróttay listar liggur mér viö aö
segja, leiöa saman hesta sina.
Hér þurfum við öldungis aö
standa saman við knattspyrnu-
áhangendur, hér gilda ekki hefð-
bundnirflokkadrættirnema þá aö
vinstri menn séu af illri nauösyn
og grundvallarástæðum á móti
öllum stjörnuiþróttum sem
kapitalistar hafa fundiö upp al-
þýöunni til skemmtunar. I út-
varpsráöi heyrist rödd sem er
reiðubúin aö samþykkja allar til-
lögur i þá átt aö viö hér á þessu
afskekkta eylandi fáum aö njóta
lystisemda heimsfótboltans —
Ellert B. Schram ritstjóri og for-
maður Knattspyrnusambandsins
og Bjarni Felixson umdeildur
iþróttafréttamaöur sjónvarps,
hefur lagt fram skýrar tillögur
um aö sent verði út frá þessum
heimsviöburði i júli, hvaö sem
liöursumarfrium. Þvi miöur ann-
ar hann þessu varla einn.
Nú eiga lesendadálkar dag-
blaöanna og þjóöarráö fótbolta-
unnenda leikinn...
Egill Helgason
blaðamaður skrifar