Tíminn - 21.03.1982, Side 13
Sunnudagur 21. mars 1982.
kvikmyndir um konur i einu kvik-
myndahúsa borgarinnar: fimm á
dag. Ásamt fleiru. Laugardaginn
var samkoma eöa fundur gegn
kvenhatri i heiminum, „Etats
généraux contre la misogynie
dans le monde”. Franskar konur
nokkrar vitnuöu um vinnu sina og
kjör og rætt var um þaö. Konur
viösvegar aö úr heiminum, flest-
ar landflótta sögöu af reynslu
sinni og landi sinu og hvöttu til
samstööu og dáöa: frá Bóliviu og
Guatemala frá Afganistan og
Iran, frá Alsir og Egyptalandi,
frá N-Irlandi og Bandarikjunum:
áhrifamikiö og vel fagnaö. Um
1200 konur hlýddu á og sárafáir
karlar. Um kvöldiö sungu banda-
riskar söngkonur tónleika.
Sunnudaginn var dagskrá i
„Vetrasirkusnum” sem tekur
nokkur hundruö manns i sæti.
Milli tvö og fjögur sýndu iþrótta-
konur fimi sina og likamsleikni,
frá sex til niu skyldu syngja söng-
konur og spila frá S-Ameriku,
Grikklandi, Frakklandi og viöar.
Fyrir tilviljun átti ég leiö hjá um
miðnætti, heyröi tónlist og gekk
inn. Salurinn var nánast fullur og
stemmning virtist góö innan um
rafmagnshljóö og mislit ljós og
blikkandi: æptogklappaö hlaupiö
og dansaö. Anægjulegt, og yfir
lauk um klukkustundu siöar.
Kvöldið eftir voru enn tónleikar,
söngkona frá Brasiliu Maria
Bethania og var gerður góöur
rómur aö henni i dagblööum degi
siðar.
Frá lýðveldisfundi á
Bastillutorgi
Fundarstaöur fyrir gönguna
var République-torgiö og auglýst-
ur timi var 14.00. Um hálftima
siöar var haldiö af staö og gengið
rólega meö hvildum niöur aö
Bastillu-torgi sem náö var um
18.00. Um 5000 konur gengu flest-
ar á milli tvitugs og þritugs
margvislega klæddar og allar
ööruvisi en þær sem gengu á
svipuðum slóð.um morguninn
áöur: gallabuxur og skrautlegir
kjólar, strigaskór, klútar og sjöl
allt hvaö eina. Meira bar á út-
lendingum, iranir mótmæltu
Khomeini og voöaverkum hans,
irar og hollendingar sögöu af bar-
áttu sinni, alsirskar konur mót-
mæltu yfirvofandi fjölskyldulög-
gjöf i landi sinu. Einnig gengu
meö fáeinir karlar, auk þess sem
margir slikir vöppuöu um væddir
ljósmyndavélum og fleiri stóöu á
gangstéttum aö horfa.
Þrir vagnar meö gjallarhorn-
um voru framantil, fyrir miöju og
aftast: þaöan sungu grænklæddar
konur baráttulög, sagt var af kon-
um viöa um heim og farið var
meö slgorö og kröfur: ókeypis
barnaheimili allan sólarhringinn:
óheft ráöstöfun kvenna á eigin
likama og þá að konur ákveöi
sjálfar um fóstureyöingar, aö
getnaöarvarnir veröi ókeypis og
öllum aögengilegar, aö lát veröi á
nauögunum, ofbeldi og vændi:
rétt mat veröi lagt á vinnu
kvenna, á heimilum jafnt sem á
vinnumarkaði og aö tekiö veröi
meira tillit til þess I vinnu þegar
kona er ólétt: konur gangi fyrir
um vinnu, hafi aögang aö öllum
störfum og fái sömu laun og karl-
ar: og svo framvegis. Þær konur
sem gengu tóku undir og báru
margar boröa og spjöld sama
efnis. Seölum og miöum var út-
býtt og haldiö á marglitum
blöörum meö nafni og merki
hreyfingarinnar: grænn litur
hennar var áberandi i öllu þessu,
einnig rauður og aörir skærir lit-
ir. Skrautlegt og skemmtilegt þvi
miður kannski ekki alveg nægi-
legt lif, nægiieg drifandi, nægi-
legur kraftur. Á Bastillutorginu
var fleiri hundruð blöörum sleppt
lausum og þær hurfu i himininn.
Samkoman leystist smám saman
uppundir slagorðum, áheitum og
flauti bila sem ekki komust leiðar
sinnar. Engar ræöur voru haldn-
ar né ávörp. Klukkan var rúm-
lega sex, og heldur fariö aö kólna
eftir þægilegt veöur um daginn:
Alþjóöa kvennadagurinn er liöinn
þetta áriö en þaö koma aörir og
dagar ársins eru fleiri. Þúsundir
kvenna tóku þátt, enn fleiri voru
hlynntar og flestar vissu af eða
fréttu. Ekkert er hægt aö vita um
áhrif eöa árangur, aðeins er aþ
vona aö veröi til góös og að ein-
hverju muni miöa á næstunni.
Engu er lokið enn.
HJRUHÚSGÖGN
Vönduð íslenzk framleiðsla.
Nær handverki verður vart komizt
Þossi glæsilogu húsgögn oru úr massífri furu og fást
Ijósum viðarlit og brúnbæsuð.
|(in 10% staógrciðsluafsláttur og góð groiðslukjör.
£**>&*<* -------------------------
FURUHÚSH)
Suðurlandsbraut 30 — sími 86605.
H
F
c»
Ferðaskritstotá
KJARTANS
HELGASONAR
Gnoóavog 44 - 104 Reykjavik
Simi 862SS
Ungverja 1 a nd
Alla föstudaga frá 28. maí — 3. sept.
Þotuflug um Kaupmannahöfn — morgun-
flug. Gist 2 nætur í Búdapest, síðan vikuferð
um Ungverjaland og 1—2—3 vikur við
Balatonvatn, stærsta vatn Evrópu, eða beint
í nýtízkulegar villur við Balatonvatn, 4 eða 8
manna villur. Hægt að dvelja þar 1—2—3—
4 vikur. Öll hótel og villur 1. flokks, bað,
WC, svalir. Fullt fæði á hótelum, en eigin
eldamennska í villum eða matarmiðar (hálft
fæði) kr. 31.60 á mann pr. dag. Skoðunar-
ferðir, möguleiki á vikuferð með fljótabát til
Vínar í Austurríki. Verð á gistingu í villum
það ódýrasta í dag kr. 7.795.- á mann í 4
vikur, innifalið er gisting, 2 dagar í Búdapest,
keyrsla til og frá
Balatonvatni
og skoðunarferð
í Búdapest. Hægt er
að stoppa í Kaup-
mannahöfn í bakaleið.
Pantið tímanlega.